SERUM SEM LÝSIR OG JAFNAR LITARHÁTT HÚÐARINNAR
Litabreytingar á húð, blettir, Acne ör eða aðrar ójöfnur eftir bólur sem og rósroði geta verið hvimleitt vandamál. Tranexamic Acid Serum dregur með sýnilegum hætti úr ýmsum litabreytingum á húð, þar á meðal dökkum blettum vegna skemmda af völdum sólarinnar, með áhrifaríkri en mildri efnasamsetningu.
Tranexamsýra (tranexamic acid) er virkt innihaldsefni unnið úr amínósýrunni lýsíni, sem er um allan heim álitið það efni sem hefur mest lýsandi áhrif á húðina.
Hún kemur í veg fyrir víxlverkun milli sortufrumna og hyrnisfrumna og hamlar þannig myndun melaníns og þar með nýmyndun dökkra bletta. Auk þess að vinna á þeim litabreytingum sem hafa nú þegar myndast.
Virk formúlan inniheldur einnig Níasínamíð (niacinamide) sem eykur lýsandi áhrif tranexamsýru, styrkir varnarlag húðarinnar og kemur í veg fyrir bólgu. Hýalúrónsýru með lýsandi áhrifum (hyaluronic acid with whitening effect) sem dregur marktækt úr myndun melaníns og gerir húðlitinn sýnilega bjartari og jafnari.
Blanda af sykrum (saccharide isomerate) og hýalúrónsýru (með stuttri og langri keðju) gefur svo húðinni nauðsynlegan raka með langvarandi endingu og aukna mýkt.
Með reglulegri notkun dregur hægt og örugglega úr roða, mislitun og dökkum blettum sem gefur húðinni jafnt og ljómandi yfirbragð með aukinni birtu.