Fair Skin

Jafnari húðlitur og ljómandi yfirbragð.

Fair Skin vörulínan frá JANSSEN COSMETICS er sérstaklega þróuð til að jafna húðtón, slétta áferð og draga fram náttúrulegan ljóma húðarinnar. Öflugar formúlur með sérvöldum virkum innihaldsefnum draga úr litabreytingum og dökkum blettum, meðal annars af völdum sólar og hormónabreytinga. Þær vinna á ólíkum stigum litarefnamyndunar og hjálpa þannig einnig til við að fyrirbyggja að nýir blettir myndist.

Heildstæð húðvörulína sem sameinar markvissa virkni, rakagjöf og vernd — fyrir bjartara og ljómandi yfirbragð.

Janssen Cosmetics eru fáanlegar á snyrtistofum. Finndu söluaðila nálægt þér og fáðu ráðgjöf fyrir þína húðgerð.