Fagvörur fyrir þig

Janssen Cosmetics er þýskt cosmeceutical húðvörumerki sem hefur ástríðu fyrir samsetningu virkra efna fyrir húðina í hæsta gæðaflokki. Janssen Cosmetics er einn af frumkvöðlunum á markaðnum fyrir húðvörur í Þýskalandi og hefur verið á markaði í yfir 25 ár.

Janssen Cosmetics er fjölskyldufyrirtæki sem vill bjóða fólki upp á áhrifaríkan og sýnilegan árangur með skilvirkum formúlum og fjölbreyttu vöruúrvali, faglegri ráðgjöf og virkum húðmeðferðum á snyrtistofum.

Vöruúrval okkar samanstendur fyrst og fremst af húðvörum og sérsniðnum vörum til meðferðar á snyrtistofum undir handleiðslu þjálfaðra snyrtifræðinga.

Húðvörur, sem henta þér

Húðin þín er ástríða okkar. Þess vegna er sérstaklega mikilvægt fyrir okkur að veita þér nákvæma ráðgjöf um húðvörur sem henta þinni húðgerð. Umhirðuseríurnar okkar eru sérsniðnar að til að mæta ólíkum húðgerðum og þörfum húðarinnar. Hver manneskja er einstök og húðin þeirra líka! Finndu Janssen Cosmetics snyrtistofu nálægt þér og fáðu faglega ráðgjöf um vörunotkun hjá snyrtifræðingi hvað hentar þinni húð.