Njóttu þess að dekra við húðina í aðdraganda jólanna með einstökum ampúlu kúr, raðað niður eftir dögum í glæsilegt aðventudagatal frá Janssen Cosmetics.
Hver ampúla er sérvalin eftir virkni og raðað niður þannig að sem bestur árángur fáist á þessum 24 daga lúxús húðkúr.
Hver ampúla inniheldur virk efni í sínu hreinasta formi og kemur skömmtuð í glerampúlum sem varðveita virkni og gæði innihaldsefna og tryggja þannig hámarksvirkni við hverja noktun. Teljum niður dagana fram að jólum með dásamlegu dekri, geislandi og vel nærðri húð sem fyllist af orku og einstökum húðljóma frá fyrstu noktun.
Dagatalið í ár hefur fengið glænýtt útlit í elegant bláum og gylltum lit með nýrri og glæsilegri hönnun og er nú samanbrjótanlegt um miðjuna líkt og bók.
JANSSEN COSMETICS aðventu dagatalið er dásamleg leið til þess að hleypa smá auka birtu inn í skammdegið og njóta aðventunnar enn frekar þar sem hver dagur verður dekurdagur. Nærandi niðurtalning til jóla með fullkomlega samsettum ampúlukúr sem svíkur engann.
Dagatalið byrjar á djúpnærandi Bi-Phase Skin Recovery ampúlu, sem endurstillir og sefar húðina og undirbýr hana fullkomlega fyrir næstu skref af virkum ampúlum sem á eftir koma. Bi-Phase Skin Recovery ampúlan er einnig endurtekin aftur í gegnum dagatalið til þess að viðhalda virkni og sefa húðina. Hyaluron Fluid ampúlan fylgir á eftir með djúpvirkandi rakagjöf sem fyllir húðlögin af nauðsynlegum raka og eykur á flutningsleiðir virkra efna niður húðina. Því meiri raki sem er í húðinni því betri verður upptaka virkra efna. Öflug andoxunarefni eiga nú greiða boðleið og húðin orðin vel móttækileg fyrir virkari meðferð og þar kemur Superfruit Fluid ampúlan sterk inn hlaðin af vitamínum og einstakri orku ofurávaxta. Caviar Extract ampúlan fylgir á eftir með djúpvirkandi og örvandi áhrifum á frumustarfsemi húðarinnar og glæðir hana af aukinni orku og húðljóma. Skin Contour Fluid ampúlan færir okkur yfir á seinni hluta kúrsins þar sem áherslan er á að bæta þéttleika og styrkja húðvefi. Elastin örvandi peptíð styrkja náttúrulega elastin þræði húðarinnar og auka togkraft með lyftandi áhrifum. Marine Collagen Fluid ampúlan styður enn frekar við ferlið og virkni með hreinu sjávarkollageni og minnkar umfang á fínum og djúpum linum á yfirborði húðarinnar. Anti-Wrinkle Booster ampúlan færir okkur svo nær endanum og innsiglar aukinn þéttleika húðarinnar með einstakri 3-D express lifting tækni. Radiant Skin Fluid ampúlan bætir svo enn frekar á húðljómann rétt fyrir hátíðarhöldin.
Síðasti hápunkturinn og jafnframt síðasti glugginn á dagatalinu lýkur svo með tvöfaldri mini booster meðferð. Þar sem tvær ampúlur eru notaðar í röð Radiant Skin Fluid og Anti-Wrinkle Booster sem hámarka virkni innihaldsefna og innsigla þennann glæsilega kúr.
Notkun ampúla:
- Haldið á ampúlunni og brjótið lokið af með meðfylgjandi ampúluopnara.
- Hellið innihaldi ampúlunnar í pörtum eða öllu í einu í lófann.
- Berið allt innihald ampúlunnar jafnt á andlit og háls og klappið/þrýstið því laust inn í húðina.
- Hver ampúla inniheldur eitt skipti, virk efni missa virkni ef þau eru geymd eftir að ampúlan hefur verið opnuð.
*Aðeins til notkunar útvortis.
Inniheldur: 25x ampúlur 2 ml