Ampúlur og Serum eru með virkustu formúlum í umhirðu húðarinnar heimafyrir. Þetta einstaka gjafasett inniheldur tvær af stjörnum Janssen Cosmetics Superfruit Fluid (7 x 2ml) ampúlur og Vitaforce C Skin Complex Serum (30 ml).
SUPERFRUIT FLUID ampúlunar veita húðinni aukinn lífsþrótt og samstundis frískleika með hreinu C-Vítamíni og sérvalinni blöndu af superfruit þykkni sem er sannkölluð ofurfæða fyrir húðina, hlaðin af vítamínum og öflugum andoxandi eiginleikum. Parað saman með Vitaforce C Skin Complex serum sem eykur kollagenframleiðslu, styrkir elastínþræði húðarinnar og eflir ytri varnir þökk sé C-vítamín fosfati.
Húðin fær samstundis frísklegra yfirbragð þar sem þú finnur húðina bókstaflega vakna til lífsins með dásamlegum angan af citrus ávöxtum.