Fullkomin kúr til að styrkja og endurstilla varnarhjúp húðarinnar, frábær tvenna til að viðhalda árángri eftir andlitsmeðferðir eða sem öflug viðgerð heima fyrir viðkvæmar, þurrar húðgerðir eða húð sem vantar aukið jafnvægi.
Styrkir. Endurbyggir. Verndar.
Ceramide Beauty Duo frá Janssen Cosmetics er öflug húðumhirðutvenna með serum og kremi sem vinnur markvisst að því að styrkja og endurbyggja náttúrulegan varnarhjúp húðarinnar. Heilbrigð húð byggir á réttu jafnvægi raka og fitusýra í yfirborði húðarinnar, en þegar það jafnvægi raskast verður húðin viðkvæmari, tapar raka hraðar og bregst auðveldlega við með þurrki, roða, kláða og herpingstilfinningu sem getur valdið óþægindum. Ceramide Beauty Duo er sérstaklega þróað til að styðja húðina einmitt við þessar aðstæður og hjálpa henni að endurheimta jafnvægi, aukna mýkt og heilbrigðara yfirbragð.
Seramíðar gegna þar lykilhlutverki, enda eru þeir náttúrulegur hluti af varnarhjúp húðarinnar. Þeir hjálpa til við að styrkja samheldni húðarinnar, draga úr rakatapi og styðja við getu hennar til að verja sig gegn ytri ertingu og umhverfisáhrifum. Með markvissri blöndu seramíða hjálpar Ceramide Beauty Duo til við að auka jafnvægi og efla náttúrulegar varnir húðarinnar, fyllir á rakabirgðir, sefar roða og ertingu og gefur húðinni aukna léttleikatilfinningu.