Smooth + Lift Eye Cream er einstök formúla með hágæða virkum innihaldsefnum eins og lífrænum trönuberjapeptíðum, Soft Focus Pigments og amínósýru complex fyrir hámarks ummönnun og virkni fyrir augnsvæðið.
AUGNKREM MEÐ ÁHRIFARÍKUM OG LANGVARANDI EIGINLEIKUM
Smooth + Lift Eye Cream er einstök formúla með hágæða virkum innihaldsefnum eins og lífrænum trönuberjapeptíðum, Soft Focus Pigments og amínósýru complex fyrir hámarks ummönnun og virkni fyrir augnsvæðið.
Dagleg umhirða augnsvæðisins kvölds og morgna er nauðsynlegur hluti af fyrirbyggjandi meðferð til að hægja á öldrunarferli húðarinnar, viðhalda styrk og jafnframt draga úr línum og fyrstu öldrunarmerkjum með djúpnærandi eiginleikum sem slétta húðina umhverfis augun og vinna gegn sinduráhrifum.
Silkimjúk áferð Smooth + Lift Eye Cream frásogast hratt niður húðlögin og tryggir aukinn styrkleika og sléttara yfirbragð húðarinnar með djúpvirkandi rakagjöf og auknum frískleika.
Trönuber hafa öfluga virkni á húðina og stuðla að auknum þéttleika og kollagenframleiðslu sem viðheldur fyllingu húðarinnar með langvarandi eiginleikum. Tvíþætt hýalúrónsýra færir húðinni djúpvirkandii raka og gerir hana sýnilega sléttari. Að auki er þessi fjölvirka fyrirbyggjandi formúla auðguð með nauðsynlegum fitusýrum og amínósýrum sem styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar og vinna gegn öldrunarmerkjum húðarinnar.
Soft Focus Pigments gefa húðinni samstundis jafnari áferð og fylla uppí fíngerðar línur og hrukkur sem gefur augnsvæðinu silkimjúka slétta og matta áferð.