Mjúkt og einstaklega rakagefandi krem sem gefur rakaþurrum húðgerðum hámarks virkni af næringarríkum innihaldsefnum sem auka þéttleika og gera yfirborð húðarinnar slétt og silkimjúkt.
Allar húðgerðir þurfa raka til að viðhalda fyllingu og heilbrigði húðar, Super Hydrating Cream er hið fullkomna rakakrem fyrir allar húðgerðir til að gefa húðinni daglega næringu og auka rakamagn sem veitir vörn gegn ytra áreiti og ótímabærri öldrun húðarinnar.
Kremið veitir djúpa rakagjöf niður í neðstu húðlög og fyllir húðina af raka líkt og þegar þurr svampur kemst í snertingu við vatn með sérþróaðri tækni þar sem krosstengdar samsetningar af Hyaluronic sýru mynda einskonar raka-net í húðinni með “plumping” áhrifum.
Kremið einstaklega frískandi viðkomu og gefur húðinni létta kælitilfinningu sem frískar samstundis uppá húðlitinn með mildum og náttúrulegum ilm.
Super Hydrating Cream er einnig einstaklega gott undir farða, fyrir sléttari áferð, meiri fyllingu og betri endingu farðans.