Öflugt serum fyrir húð sem þarfnast orku, aukna lyftingu og bjartara útlit.

Húð sem er byrjuð að eldast og slakna á það til að verða föl og þreytuleg með tímanum þar sem hægst hefur á frumustarfsemi húðarinnar.

Hátt hlutfall C Vítamíns í Vitaforce C Complex hefur þríþætt áhrif við að endurvekja frumustarfsemi og hægja á öldrunarferli húðarinnar.

  • C vítamín er það efni sem er hvað mest áhrifaríkast í snyrtivörum við að styrkja og styðja við kollagenþræði húðarinnar. Það bæði eykur náttúrulega kollagenframleiðslu húðarinnar sem eykur þéttleika og styrkir varnir húðarinnar fyrir skaðlegum sindurefnum og öðrum umhverfis áhrifum sem herja á húðina.
  • C vítamin hefur djúpvirkandi áhrif í neðri húðlögum þar sem húðfrumur framleiða elastinþræði sem hafa áhrif á teygjanleika húðarinnar, hátt hlutfall C vítamins í Vitaforce C Complex styrkir við og hægjir á niðurbroti elastins í húðinni auk þess sem náttúruleg frumustarfsemi eykst og örvar nýmyndun nýrra þráða sem hafa stinnandi og lyftandi áhrif á húðvefi.
  • C vítamín eykur birtu í húðinni og minnkar ásýnd litabletta og vinnur á móti nýmyndun litabletta.

Vitaforce C Complex hefur einstaklega frískandi áhrif þar sem þú finnur bókstaflega fyrir virkninni og hvernig húðin fyllist strax af orku. Létt örvun verður á yfirborði húðarinnar sem frískar uppá húðlitinn með sýnilegum áhrifum og fær húðina til að ljóma af frískleika.

Notið á hreina húð kvölds og morgna undir krem/farða eða eitt og sér fyrir olíumeiri húðgerðir eða yfir sumartímann.

Vitaforce C Complex er einstaklega virkt og er frábært sem kúr með hvaða kremi sem er frá Janssen Cosmetics, C – Complexið eykur alla frumustarfsemi húðarinnar svo um munar og eykur flutningsleiðir virkra efna með löngum og stuttum keðjum að Hyaluronic sýru sem hefur þau áhrif að enn betri virkni og nýting virkra efna í kremum sem eru notuð samhliða.