Þetta einstaka gjafasett samanstendur af þremur sérvöldum vörum fyrir hámarks umönnun húðarinnar: Kynnum nýtt djúpnærandi og endurnýjandi Pro-Lift Cream (50 ml) sem eykur og styður við náttúrulega endurnýjun húðarinnar og dregur um leið úr fyrstu línum og hrukkum þökk sé kröftugu ofurávaxtaþykkni.
Kremið þéttir og bætir teygjanleika húðarinnar með lyftandi áhrifum sem gerir hana unglegri og frísklegri, inniheldur tvíþætta hýalúrónsýru sem eykur raka húðarinnar og sléttir yfirborð hennar með sýnilegum árángri saman með djúpnærandi eiginleikum og aminosýrum sem styrkja náttúrulegt varnarlag húðarinnar. Silkimjúka Smooth + Lift augnkremið (15 ml) er einnig nýtt hjá Janssen Cosmetics auðgað með virkum efnum í hæsta gæðaflokki sem heilla með samstundis virkni og langtímaáhrifum. Smooth + Lift Eye Cream bætir þéttleika húðarinnar í kringum augnsvæðið með einstaklega sléttandi áhrifum, djúpvirkandi næring og rakagjöf fyllir uppí fínar línur og grynnkar á dýpri línum og bætir birtu og útgeislun húðarinnar með sýnilegum árángri. Pomegranate krem-maskinn (20 ml) var framleiddur sérstaklega til þess að fylgja með jólaútgáfunni og er fullkomin viðbót við þessa öflugu tvennu úr Demanding Skin vörulínu Janssen Cosmetics.
Maskinn inniheldur hreint Pomegranate blómaþykkni sem er einstaklega ríkt af C-Vítamíni og öflugur andoxari. Djúpnærandi eiginleikar maskans endurlífga húðina og færa henni aukna birtu og einstakann húðljóma.