-
Pro-Youth 7 daga ampúlukúr frá Janssen Cosmetics er háþróaður 7 daga meðferðarpakki með sérvöldum ampúlum sem auka endurnýjun húðar, styrkja húðvefi og gefa húðinni frísklegan ljóma allt frá fyrsta degi. Hver dagur meðferðarinnar inniheldur sértæka ampúlu með virkum innihaldsefnum sem vinna frá neðstu húðlögum að því að bæta áferð húðarinnar, auka rakafyllingu og draga úr þreytu og öldrunarmerkjum. -
Pro Glow Selection – 7 daga ampúlukúr Ljómagefandi ampúlukúr sem veitir húðinni samstundis ferskara, jafnara og geislandi yfirbragð. Pro Glow Selection er sérvalin ampúlupakki sem sameinar þrjár öflugar ampúlur í 7 daga kúr fyrir húð sem vantar aukinn ljóma, rakafyllingu og frísklegra yfirbragð. Kúrinn er hannaður til að auka ljóma og útgeislun húðarinnar með sýnilegum árangri, draga úr þreytumerkjum og gefa húðinni sléttara, stinnara og unglegra útlit. Í pakkanum eru 2 x Brilliance Shine Elixir, 2 x Marine Collagen Fluid og 3 x Radiant Skin Fluid. -
Radiant Skin Fluid – Fyrir einstakann húðljóma og geislandi yfirbragð. Ampúlan inniheldur þörunga extract úr Indlandshafi sem gefur húðinni aukinn húðljóma á sjálfbæran hátt þ.e.a.s þörunganir láta húðina sjálfa framkalla aukinn húðljóma með því að hámarka frumuskiptingu í yfirborðslögum húðarinnar og stuðla þannig að jafnari uppbyggingu hennar sem eru fullkomin skilyrði fyrir geislandi og frísklegan húðljóma. Radiant Skin Fluid inniheldur að auki kjarna úr bóndarós sem tryggir að yfirbragð húðarinnar fær aukna birtu og jafnara litarhaft með hverjum deginum sem líður ásamt tvíþættri hýalúrónsýru sem gefur húðinni djúpnærandi raka frá neðstu húðlögum sem fyllir uppí fínar línur/ójöfnur með sléttandi áhrifum á yfirborði húðarinnar. Árángur: Húðin öðlast geislandi og náttúrulegan húðljómaljóma. *Með reglulegri noktun verður litarhaft húðarinnar enn jafnara með mælanlegum árángri. -
Bi-Phase Skin Recovery ampúlan er djúpnærandi 2-fasa ampúla sem tryggir húðinni einstaka næringu og rakagjöf með tvíþættri virkni olíufasa og rakafasa. Olíufasi ampúlunnar er úr vönduðum blóma- og plöntuolíum og rakafasi ampúlunnar samanstendur af hýalúrónsýru og endurnýjandi runnasmárakjarna fyrir geislandi yfirbragð og endurnærða húð eftir hverja noktun. -
CBD Calming Fluid ampúlan er áhrifarík meðferð gegn hverskonar húðertingu, roða eða viðkvæmni. Ampúlan samanstendur af CBD-olíu og trufflusveppum sem saman með einstakri virkni róa ertingu og roða í húð ásamt því að styrkja náttúrulegt varnarlag og auka viðnám húðarinnar. Ampúlan inniheldur einnig tvíþætta hýalúrónsýru og aloe vera sem veita húðinni djúpvirkandi raka og næringu. CBD (kannabídíól) er vinsælt virkt innihaldsefni sem er unnið úr hampjurtinni og býr yfir einstökum eiginleikum og heilandi áhrifum á húðina. Kannabídíól (sem hefur ekki hugbreytandi áhrif) er þekkt fyrir að hafa sefandi áhrif á hitatilfinningu, roða eða hverskonar húðertingu og er frábær til meðhöndlunar á viðkvæmri húð. Til viðbótar við CBD olíuna inniheldur ampúlan sveppa-extract sem hefur bein áhrif á taugaenda húðarinnar með því að hamla virkni ákveðinna sársaukanema á yfirborði húðarinnar og dregur þannig með virkum hætti úr viðkvæmni húðarinnar. Saman með rakagefandi Hýalúrónsýru og Aloe Vera gefur CBD Calming Fluid ampúlan húðinni samstundis létti og fullkomna slökunartilfinningu. -
Marine Collagen Fluid fyrir þéttari og frísklegri húð. Inniheldur hátt hlutfall af hreinu sjávarkollageni, löngum- og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru ásamt granateplaþykkni. ACTIVATE Marine Collagen ampúlunar gefa húðinni samstundis aukinn þéttleika með langvarandi eiginleikum þar sem kollagenþræðir húðarinnar taka vel á móti aðstoð og utanaðkomandi styrk frá sjávarkollageni ampúlunnar. Hyaluronic sýran sér um að gefa húðinni aukinn raka og passar uppá að virk efni nái á áfángastað niður neðstu húðlögin. Að auki fær húðin frísklegra yfirbragð og litarhaft húðarinnar verður líflegra með öflugri andoxun frá hreinni ofurfæðu fyrir húðina úr grantateplunum. -
Stem Cell ampúlan frá Janssen er alveg einstök en hún inniheldur Epla-stofnfrumur úr sjaldgæfu svissnesku eplatré "Uttwiler Spätlauber" en þær líkjast og hafa sömu eiginleika og stofnfrumur manna. Húðin tekur vel á móti þessum merkilegu stofnfrumum og örvar sína eigin frumuskiptingu og framleiðir þar af leiðandi meira kollagen og eflir nýmyndun húðarinnar, húðin öðlast betri rakafyllingu og fær aukinn kraft og hægjir á náttúruleg öldrunarferli með hjálp frá Stem Cell Fluid. Árangurinn er aukin endurnýjun og bætt starfsemi húðar, sléttir úr fínum línum og grynnkar á hrukkum sannkallað orkuskot fyrir húðina! *Til gaman má geta þess að Svissneska Eplatréð "Uttwiler Spätlauber" er þekkt fyrir einstaklega stökk og bragðgóð epli sem þóttu haldast fersk mun lengur en önnur epli, vísindamönnum þótti þetta afar merkilegt og hófu rannsóknarvinnu og fundu út þessi einstöku tengsl og miklu virkni á húð manna. -
Melafadin Fluid er áhrifarík meðferð gegn litabreytingum á húðinni af völdum sólarskemmda, hormónabreytinga og ellibletta. Inniheldur kraftmikla blöndu af Vitamin-C, Lipoamino Acid og SORR-Plöntuþykkni sem vinna í sameiningu að því að hindra myndun og sundra upp dökku melanin litarefni húðarinnar og lýsa þar með og minnka/eyða dökkum blettum og jafna þannig litarhaft húðarinnar. Húðin fær dásamlega rakafyllingu og bjartara útlit með jafnari litarhafti. -
FLAWLESS ampúla Janssen Cosmetics gefur húðinni aukna lyftingu og þèttleika með ESP - elastin-stimulating peptides. Elastin örvandi peptíð styrkja og efla náttúrulega elastin þræði húðarinnar og auka þannig tog og þéttleika húðarinnar með lyftandi áhrifum. Inniheldur einnig SORR Plant Extract sem hefur sefandi áhrif og stuðlar að jafnari húðtón og auknum húðljóma. -
Hver ampúla inniheldur hágæða efni í sínu hreinasta formi án allra aukaefna með hámarksvirkni á húð, öflug meðferð gegn djúpum línum/hrukkum og gefur samstundis lyftingu og aukinn þéttleika með Instensyl® 3-D Express Lifting tækni þar sem náttúrulegar sykrur tengjast á yfirborði húðarinnar og mynda á örskömmum tíma fjaðurkennt net sem togar upp slaka húðvefi með einstaklega þéttandi áhrifum.Inniheldur einnig Gatuline® lífrænt efni sem dregur saman og minnkar djúpar línur/hrukkur, eykur þéttleika, styrk og hægir á öldrunarferli húðarinnar með áberandi árángri!Húðin verður sýnilega þéttari og bjartari yfirlitum og endurheimtir teygjanleika og styrk með sýnilega lyftandi áhrifum. -
Refining Retinol Fluid hefur öfluga virkni á áferð húðarinnar með oleanolic acid sem hreinsar opnar/stórar húðholur og jafnar fituframleiðslu húðarinnar þannig húðholur dragast saman með sýnilegum áhrifum ásamt Enanta chlorantha með hinu kröftuga Retinoli sem vinnur gegn öldrun húðarinnar, örvar kollagen framleiðslu og eykur birtu og ljóma húðarinnar. -
DESCRIPTION The 7-day moisture boost for your skin. Highly-concentrated moisture fluid with short and long chain hyaluronic acid. USAGE Gently distribute Hyaluron Fluid onto cleansed skin. To do so, break off the top of the ampoule, protecting your hands with a paper tissue, and pour the entire content into the palm of your hand. Then distribute evenly over the face and neck and press in gently. For external use only. Tip: Ideal for use during a flight. During an 8-10-hour flight, 2-3 ampoules can be applied as required every 2-3 hours. INGREDIENTS • Long-chain hyaluronic acid: Skin-caring, moisturizing, smoothing • Short-chain hyaluronic acid: Extreme moisturizing and moisture-retaining effect, high moisture binding capacity, lifts and smoothes the epidermis from the depths -
Caviar Fluid - Veitir húðinni aukna orku, örvar nýmyndun húðar og er sérstaklega góð til þess að vekja upp líflausa húð og draga fram ljóma og orku. Veitir vörn gegn ótímabærri öldrun húðarinnar og verndar húðina gegn skaðlegum áhrifum sindurefna og virkjar viðgerðarferli fyrir húð sem hefur verið undir miklu álagi, stressi og streitu. -
Brilliance Shine Elixir ampúlan er byggð á einstakri virkni með MatrixylTM Synthe‘6 TM petíð formúlu ásamt Persian Silk Tree exteact plöntuþykkni unnið úr persnesku silkitré. Peptíð formúlan virkar eins og viðgerðarþræðir sem tengja sig við og fylla uppí skemmda/brotna kollegenþræði húðarinnar sem eykur þrótt og þèttleika húðarinnar með langvarandi eiginleikum. Saman með hreinu plöntuþykkni Persneska trèsins sem hefur einstök áhrif gegn þreytumerkjum húðarinnar og öldrunareinkennum fyllist húðin nýrri orku og fínar línur, hrukkur og svipbrigðalínur grynnka með sýnilegum árángri.