-
Sannkallað vítaminboost fyrir allar húðgerðir sem vantar aukna orku, þéttingu og ljóma.Caviar er löngu þekkt munaðarvara og inniheldur einstaka samsetningu af steinefnum, vítamínum og aminosýrum.Kremið inniheldur hreint Caviar Extract og er áhrifarìk međferđ fyrir þreytta og orkulausa húđ þar sem samsetning vìtamìna, steinefna og aminosýra glæđa húđina nýjum og orkumeiri ljóma.Frumustarfsemi húđarinnar eykst og hrađar nýmyndun kollagens sem gefur húđinni aukinn þèttleika með djúpvirkandi næringu sem fyllir húđlögin af raka og nauđsynlegum fitusýrum sem auka fyllingu, slétta yfirborð húðarinnar og gefur henni flauelsmjúka áferđ.Fölt yfirbragđ og þreytumerki vìkja fyrir frìsklegum ljóma og bjartara yfirbragđi.
-
Einstök formúla (age spot corrector) dregur úr og minnkar ásýnd sólarskemmda og dökka litaflekkja á húðinni án þess þó að lýsa húðina í kring sem er bylting á þessu sviði gegn litabreytingum.E vitamin og silkipúður vernda síðan húðina fyrir skaðlegum sindurefnum (free radicals), slétta húðina og gefa henni silkimjúka áferð.Vísindalega sönnuð virkni með sýnilegum árángri eftir aðeins 8 vikur.
-
Epigenetic Serum inniheldur djúpvirkandi formúlu sérþróaða til að auka náttúrulegt varnarlag og heilbrigði húðfrumna.Háþróuð tækni sem styrkir náttúrulega frumustarfsemi og eykur varnarlag húðarinnar gegn skaðlegum ytri áhrifum og sporna gegn ótímabærri öldrun húðarinnar.Húðin fær sléttara yfirbragð, fallegri áferð og bjartara yfirbragð.Inniheldur einungis hágæða hráefni með djúpa innsíunarhæfileika og hámarks virkni án þess að erta húðina.Epigenetic Serum hægir sýnilega á öldrunarferli húðarinnar, fyrirbyggir ótímabæra öldrun, dregur sýnilega úr hrukkum/línum í húðinni, eykur náttúrulegar varnir fyrir sindurefnum og niðurbroti, varðveitir hraustleika og unglegan ljóma húðarinnar.Epigenetic Serum 10ml kemur í einstaklega fallegum söluumbúðum með skemmtilegu ívafi þar sem líkt er eftir læknasprautu til að undirstrika virkni og áhrif vörunnar.Lítill skrúfutappi er á enda "sprautunnar" og pumpa á hinum endanum þannig ekkert súrefni kemst að vörunni og hámarksnýting af hverjum dropa!Inniheldur:· Epigenetic agent: Pot marigold (calendula officinalis) Plöntuþykkni; Einstaklega ríkt af oligosaccharides sem eru náttúrulegar fjölsykrur með tvennskonar áhrif á utanaðkomandi áreiti á húðfrumur. Virka bæði sem viðgerð á þegar laskaðar frumur og sem varnarhjúpur gegn óæskilegum sindurefnum og hrörnunar húðfrumna.· Long-chain hyaluronic acid: Langar keðjur af Hyaluron Sýru liggja eftir í efri lögum húðarinnar og mynda rakabindandi varnarfilmu á yfirborði húðarinnar og sporna gegn rakatapi og línum af völdum yfirborðsþurrks.· Short-chain hyaluronic acid: Stuttar keðjur af Hyaluron Sýru síast niður í neðri húðlögin og auka á náttúrulegar rakabirgðir húðarinnar sem gefur henni aukna fyllingu og unglegra yfirbragð.· Saccharide isomerate: Náttúrulegar sykrur sem tengjast og binda sig við náttúrulegt keratin húðarinnar líkt og segull og veitir húðinni næringu og mýkt.
-
Létt alhliða sólarvarnar-serum með SPF 30 og IR frumuvernd fyrir daglega noktun, hentar öllum húðgerðum. Svipað og útfjólubláir geislar valda innrauðir geislar sólarinnar einnig ótímabærri öldrun húðarinnar og geta leitt til óæskilegra húðskemmda síðar meir. Húðin í andlitinu er hvað mest berskjölduð fyrir geislum sólarinnar og er því ekki síður mikilvægt eins og að veita henni vörn gegn UVA og UVB geislum að tryggja húðinni þar einnig skilvirka hitavörn gegn IR geislum. FACE GUARD ADVANCED er létt alhliða formúla sem gefur húðinni góðann raka ásamt photostable UVA+UVB vörn og einstaka frumuvernd með virka efninu Ectoin®, sem hefur verið sannað að gefa húðinni skilvirka vörn gegn umhverfisáhrifum eins og þurrki, hita, kulda og útfjólubláum geislum að auki sjá líftæknilega fengin ensím um að hlutleysa sindurefni, og veita húðinni aukinn varnarskjöld ásamt hitavörn gegn innrauðum geislum (IR) FACE GUARD ADVANCED er frábær og einföld viðbót við morgunrútínuna og passar með öllum dagkremum eða farða fyrir alhliða vernd gegn UVA+UVB geislum, IR og aukinni frumuvernd. Noktun: Berið á hreina húð á morgnanna fyrir dagkrem eða farða. Tip: FACE GUARD ADVANCED er einnig frábær vörn á handarbökin og virkar eins og ósýnilegur hanski til að koma í veg fyrir óæskilegar litabreytingar og aldursbletti. Gott er að bera á handarbökin jafnt yfir daginn í útiveru eins og t.d. í golfi.
-
FLORAL ENERGY SERUM blandar saman hreinu blómaextrakti úr alpafíflum, fjallarósum, lúpínu og krossfararósum til að endurlífga húðina og styrkja náttúrulegt verndarlag húðarinnar. Fjallarós styrkir viðnám í stofnfrumum húðarinnar og verndar auk þess gegn áreiti frá útfjólubláum geislum. Alpafífils-extrakt styður einnig náttúrulega frumustarfsemi húðarinnar og stuðlar að auknu húðviðnámi gegn umhverfisáhrifum.
-
Djúpvirkandi og einstaklega nærandi formúla sléttir varinar, losar um herping og fyllir uppí fínar línur af völdum þurrks ásamt því að gefa aukna fyllingu “plump”. Dásamleg næturmeðferð fyrir mjúkar varir en hentar einnig vel sem varanæring yfir daginn fyrir þurrar varir og er einnig frábær primer undir varaliti. Varinar fá samstundis fylltara yfirbragð og frísklegri litatón með mildri glansáferð. Lip Mask inniheldur blöndu af hágæða náttúrulegum innihaldsefnum eins og sólkjarna- og hörfræjarolíu með ríkulegu magni af Omega 3 og 6 fitusýrum sem gefa einstaka næringu og verja varnar fyrir þurrk. Maskinn inniheldur einnig plöntuþykkni (Paracress Extract) unnið úr jurt sem heitir Spilanthes Acmella sem er vel þekkt fyrir einstaka eiginlega á húðina gegn svipbrigðalínum (hrukkum) og er gjarnan kölluð “Botox” Jurtin þar sem hún slakar á spennu og herping í húðinni og hefur einstaklega sléttandi áhrif. Fyrir hámarksárángur yfir nóttina er mikilvægt að bera maskann vel útfyrir varinar, og alveg yfir efri vörina ef það er mikill þurrkur eða línur byrjaðar að myndast í húðinni. Þannig nær maskinn hámarksvirkni og varinar fá aukna fyllingu þar sem allur herpingur hefur slaknað og djúpnærandi innihaldsefnin fylla uppí varinar sem verða silkimjúkar. Inniheldur: • Shea butter: (Butyrospermum Parkii) • Sunflower wax: (Unnið úr Sólkjarnafræjum) • Candelilla Wax: (Euphorbia antisyphilitica) • Linseed oil: (Hörfræjarolía, rík af Omega 3og6 fitusýrum) • Cottonseed oil: (E-Vítamín) • Paracress extract (Spilanthes Acmella) • Hyaluronic acid
-
3x2stk. í pakkaKælandi augnmaski tilbúin til noktunar, dregur samstundis úr þrota og bólgum og örvar sogæðahreinsun með mild örvandi áhrifum frá koffíni, með því minnkar blámi undir augunum og húðin verður bjartari.Maskinn hefur einstaklega sléttandi áhrif með virku Paracress extract sem hefur Botox lík áhrif á húðina en það slakar á herping í litlum vöðvum undir augunum og sléttir þannig úr húðinni með sýnilegum áhrifum sem fletur út fínar línur og minnkar umfang á djúpum línum/hrukkum, saman með löngum og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru sem fylla húðlögin af langavarandi raka og fyllingu. Maskanir eru úr 100% viscose fleece, biogradable efni með oeko-tex standard 100 sem brotnar niður án þess að valda skaða í náttúrunni.
-
Roll-On fyrir augun sem dregur samstundis úr þreytumerkjum með kælandi stálkúlu á endanum sem gefur raka og með koffíni sem frískar sýnilega uppá augnsvæðið!Með einstaklega sléttandi áhrifum og fyrirbyggir ótímabæra öldrun, hrukkur og línur í kringum augun.Samspil innihaldsefna m.a. koffín og sérþróuð anti-wrinkle peptíðblanda ásamt Silk Acacia þykkni draga sýnilega úr dökkum baugum og bólgum “puffiness” í kringum augnsvæði og vinna saman með einstökum áhrifum þegar formúlan er borin á með roll-on stálkúlu sem örvar sogæðahreinsun og veitir vellíðunar tilfinningu með kælandi áhrifum.Algjör draumur fyrir þreytt augu á morgnanna!Inniheldur:• Long-chain hyaluronic acid: Djúpvirkandi rakagjöf sem eykur og viðheldur rakamagni húðarinnar.• Matrixyl™3000: Peptíð formúla með sléttandi áhrifum gegn öldrun húðarinnar.• Silk acacia extract: Dregur úr dökkum lit (baugum) undir augum og minnkar bólgur og þrota.• Caffeine: Frískar og örvar sogæðahreinsun og blóðflæði með bólgueyðandi áhrifum
-
Magic Glow Serum gefur húðinni þetta “highlight” áhrif á náttúrulegan hátt án farða! Einstök rakagefandi formúla með næringarríkum þara úr Indverska hafinu sem hefur sannað 28% aukningu á ljóma húðarinnar á 28 dögum með aukinni rakafyllingu og þéttleika. Rakagefandi Hyaluronic Sýra og Soft Focus Pigments hylja fínar línur og fylla á rakabirgðir húðarinnar með “highlight” áhrifum þegar birtan glampar á húðina. Hentar fullkomnlega undir farða eða annað krem eða eitt og sér fyrir ljómandi húð. Pro Tip! Fyrir enn meiri ljómaáhrif notið undir Sensational Glow Cream
-
Þéttandi og lyftandi 24.stunda krem með sjávarkollageni og kollagen-booster sem vinnur gegn kollagen niðurbroti húðarinnar og eykur þéttleika með lyftandi áhrifum. Húðin fær samstundis aukna rakafyllingu (“plump”) og verður þéttari viðkomu þar sem virk innihaldsefni binda raka í efstu húðlögunum og mynda ósýnilega varnarfilmu sem fyllir uppí fínar línur vegna rakaþurrks með sléttandi áhrifum á yfirborð húðarinnar. Með reglulegri noktun getur húðin þrefaldað náttúrulegar kollagen birgðir sínar, sem eykur styrkleika, hald og lyftingu í húð sem er byrjuð að missa teygjanleika, varðveitir rakafyllingu og gefur húðinni ferskara og líflegra yfirbragð. -Virk innihaldsefni: *Marine Collagen (Sjávarkollagen): hefur lyftandi eiginlega á húðina og myndar varnarfilmu í efstu húðlögum sem bindur raka og eykur fyllingu húðarinnar með sléttandi áhrifum. *Pomegranate blóma þykkni og C vítamín virkja og styðja við aukna náttúrulega kollagen framleiðslu húðarinnar með andoxandi eiginleikum sem spornar gegn niðurbroti kollagenþráða og ótímabærri öldrun húðarinnar af völdum sindurefna (free radicals). -Til viðbótar fær húðin dásamlega mýkt og rakafyllingu með löngum keðjum af Hyaluronic sýru og nærandi Makadamíu olíu og frumuverndandi “anti aging” eiginleika E vítamíns. -Kremið hentar þurrum og rakaþurrum húðgerðum sem vantar aukinn þéttleika og fyllingu með lyftandi áhrifum.
-
Retinol Lift Serum er áhrifaríkt serum með margþætta eiginleika fyrir húðina þar sem hið margrómaða Retinol spilar lykilhlutverk. Retinol er eitt mest rannsakaða efni í heimi snyrtivara og klíniskar rannsóknir sanna það að Retinol er eitt það öflugasta efni sem hægt er að fá í húðsnyrtivörum sem hægir á öldrunarferli húðarinnar með sjánlegum árángri. Með aldrinum þá hægist á frumuendurnýjun húðarinnar og fínar línur, misfellur og litabreytingar fara gera vart um sig á yfirborði húðarinnar og með tímanum slaknar á teygjanleika og húðin verður slappari því kollagen framleiðsla fer minnkandi, þarna kemur Retinol sterkt inn og skerst í leikinn og hraðar endurnýjunarferlinu á nýjan leik og örvar nýmyndun kollagens og viðheldur þannig þéttleika og eykur lyftingu í húðvefum sem eru byrjaðir að slakna. Með aukinni endurnýjun eykst náttúruleg húðflögnun og yfirborð húðarinnar verður sléttara þar sem fínar línur vegna þurrks hverfa og svipbrigðalínur grynnka, litamisfellur verða minna áberandi og húðin fær bjartara yfirbragð og frísklegan ljóma. Retinol stuðlar einnig að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar dregur þannig úr fílapensla myndun og dregur saman stórar húðholur. Retinol Lift Serum inniheldur ríkulegt magn af hágæða Retinoli sem er lípósóm hjúpað og nær þess vegna að flytja Retinólið dýpra niður í húðina og tryggir þannig hámarksupptöku og virkni í neðstu húðlögum. Samhliða Retinolinu er annað lykilefni sem heitir Niacinamide sem er eitt form af B Vítamini og hefur retinól-lík áhrif á húðina ásamt því að styrkja varnahjúp húðarinnar, minnka bólgu, roða og ertingu og tryggir þannig þolanleika blöndunnar fyrir daglega noktun. Síðast en ekki síst inniheldur Retinol lift Serum rakagefandi Hyaluronic Sýru og blöndu af hágæða Sea Buckthorn Olíu og Macadama Olíu sem umlykja húðina með dásamlegri næringu og mýkt.
-
Krem til meðhöndlunar á örum, inniheldur Siegesbeckia orientalis sem styður við enduruppbyggingu á collagen þráðum og styrkir nýmyndun húðarinnar þar sem húð hefur skemmst og myndað ör. Kremið hefur nærandi eiginleika með Mango Seed Oil sem mýkir húðina og slakar á spennu við örasvæði, kremið inniheldur einnig Octyldodecanol sem er fituleysanlegt efni og hefur þann eiginleika að auka flutningsleiðir virkra efna og dreifa þeim betur um húðina og styður þannig enn betur við náttúrulegt viðgerðarferli húðarinnar á örasvæðinu.
-
Næringarríkt 24-stunda krem sem fær húðina bókstaflega til að ljóma! Kremið veitir húðinni djúpa næringu við fyrstu snertingu og smýgur á milli húðlaga og gefur henni samstundis rakafyllingu sem fyllir uppí fínar línur og yfirborðsþurrk. Kremið er sérþróað til þess að auka ljóma húðarinnar og samanstendur af virkum efnum eins og koffíni sem eykur blóðrás húðarinnar á mildan hátt, Indian Ocean Algae Extract, hyaluronic Sýru og Soft Focus Pigments sem fylla uppí yfirborðslínur og gefa þennann einstaka glampa á húðina án þess að skilja eftir sig “fituglans” heldur helst húðin þurr og mött viðkomu. Kremið hentar öllum húðgerðum sem vilja aukinn ljóma og glampa og hentar einnig viðkvæmum húðgerðum þar sem kremið inniheldur einnig sefandi Aloe Vera og Allantoin sem gerir kremið einnig frábæran valkost yfir sólríka daga bæði þar sem það eykur á ljóma húðarinnar þegar sólin skín og með verndandi áhrifum. Pro Tip! Notið Magic Glow Serum undir á morgnanna fyrir enn meiri ljóma og “highlight” áhrif.
-
Græðandi krem til noktunar sem heimameðferð fyrir húð sem hefur gengist undir kraftmiklar húðmeðferðir á borð við ávaxtasýrur, dermapen eða lazer þar sem yfirborð húðarinnar verður meira berskjaldað viðkvæmt. Kremið flýtir fyrir gróanda húðarinnar og dregur úr óþægindum svo sem þurrki/herping og hitatilfinningu með græðandi jurtablöndu sem samanstendur m.a. af Calendula Officinalis og Hestakastaníu sem styrkja háræðakerfið og draga sýnilega úr roða, minnka hitatilfinningu og ertingu í húðinni. Kremið inniheldur einnig bakteríuverndandi Farnesol sem veitir húðinni vörn á meðan hún byggir sig upp að nýju og er að jafna sig eftir meðferð með frumuendurnýjandi áhrifum.