• Litað dagkrem fyrir blandaðar húðgerðir, dregur úr olíuglans og gefur húðinni jafnann og frísklegan húðtón með litagigmentum sem aðlagast mismunandi húðtón hjá hverjum og einum. Tinted Balancing Cream hefur meiri virkni fyrir blandaðar húðgerðir en bara það að jafna húðlit og gefa húðinni fallegri áferð, kremið endurheimtir jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar með reglulegri noktun og dregur stórar/opnar húðholur saman með sýnilegum árángri. Létt og loftkennd áferð á kreminu inniheldur virkt sykru-líkt efni unnið úr Rice bran sem hefur þann einstaka eiginleika að stuðla að jafnvægi fitukirtla hvort sem er á olíukenndum svæðum eða þurrari svæðum húðarinnar ásamt þykkni úr Rauðum Þara og Aloe Vera sem gefa húðinni djúpvirkandi rakagjöf ásamt því að sefa roða og ertingu. Örfínt Polyamide púður dregur svo í sig umfram olíu á yfirborði húðarinnar þannig húðin helst mött og silkimjúk viðkomu.
  • 24stunda krem með tvöfaldri virkni fyrir blandaðar húðgerðir, kremið hefur hreinsandi og mattandi eiginleika en nærir jafnframt húðina þar sem þarf og kemur þannig jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar allt í einni vöru. Blönduð húðgerð getur átt erfitt með að finna jafnvægi þar sem þarfir húðarinnar eru misjafnar eftir svæðum, yfirleitt er T-Svæði húðarinnar olíukennt, húðholur opnar og með fílapenslamyndun á meðan önnur svæði virka þurr og vantar aukna næringu og raka. Olíuglans og fílapenslamyndun getur verið hvimleitt ástand og er oftast tilhneiging til þess að einblína á að reyna koma jafnvægji á fituframleiðslu húðarinnar sem getur haft enn meiri þurrkandi áhrif á þau svæði þar sem húðin þarfnast meiri raka og næringar og skapar þannig ójafnvægi, ertingu og ónotatilfinningu í húðinni. Balancing Cream mætir þarna mismunandi þörfum húðarinnar á áhrifaríkan hátt og jafnar starfsemi fitukirtlanna bæði á olíukenndari svæðum þar sem fituframleiðsla er mikil og á þurrari svæðum sem vantar meiri næringu og rakafyllingu. Árángurinn er jafnari húð þar sem opnar húðholur dragast saman og fílapenslamyndun minnkar með sjáanlegum árángri, húðin endurheimtir mýkt og losnar við ertingu og ónot af völdum þurrks. Kremið er létt og silkimjúkt viðkomu og gefur húðinni frísklega tilfinningu en hefur jafnframt mattandi áhrif á yfirborð húðarinnar þar sem örfínt Polyamide púður dregur í sig umfram húðfitu þannig húðin helst þurr og mött viðkomu.
  • Í tilfelli blandaðrar húðar getur aukin fituframleiðsla valdið óæskilegum glans á húðinni, sérstaklega á miðsvæði andlitsins, á meðan vangar og augnsvæðið eru þurrari. Sértækar hreinsivörur eru nauðsynlegar af þessari ástæðu, til þess að mæta ólíkum þörfum húðarinnar fyrir áhrifaríka hreinsun og aukið jafnvægi fyrir blandaðar húðgerðir. Gentle Cleansing Powder hefur verið þróað sérstaklega til þess að mæta þessum þörfum! Í tilfelli blandaðrar húðar getur aukin fituframleiðsla valdið óæskilegum glans á húðinni, sérstaklega á miðsvæði andlitsins, á meðan vangar og augnsvæðið eru þurrari. Sértækar hreinsivörur eru nauðsynlegar af þessari ástæðu, til þess að mæta ólíkum þörfum húðarinnar fyrir áhrifaríka hreinsun og aukið jafnvægi fyrir blandaðar húðgerðir. Gentle Cleansing Powder hefur verið þróað sérstaklega til þess að mæta þessum þörfum! Kemur í púðurformi og er blandað saman við vatn í lófunum fyrir ríkulega og kremkennda hreinsifroðu. Hreinsar farða og önnur óhreinindi af með áreynslulausum hætti sérstaklega fyrir blandaðar húðgerðir. Húðin verður silkimjúk án ertingar og öðlast betra jafnvægi, jafnvel fyrir viðkvæma blandaða húð sem fær matt yfirbragð og endurnærist á einstakan hátt. • Kremkennd froða, hreinsar húðina eykur mýkt og ferskleika • Fjarlægir farða, umfram fitu og óhreinindi af húðinni • Viðheldur náttúrulegum raka húðarinnar • Stuðlar að hreinni, jafnvægisríkri og mattri áferð • Mildur ilmur Notkun: Helltu púðrinu í lófann og blandaðu því með vatni þar til það myndar kremkennda froðu. Berðu jafnt á andlit og háls með hringlaga hreinsihreyfingum. Skolaðu af með ríkulegu magni af vatni eða rökum þvottapoka. Virk innihaldsefni:
    • Hydrolyzed maize starch: Náttúrulegt síuefni, hjálpar við hreinsun húðarinnar, dregur í sig umfram fitu og gefur mjúka áferð. • Silica: Náttúrulegt púðurefni, dregur í sig umfram fitu og bætir áferð húðarinnar. •Tenside based on amino acids: Yfirborðsvirk efni úr amínósýrum, hreinsa húðina með nærandi eiginleikum. • Biosynthetic polypeptide: Lífvirkt fjölpeptíð, eykur mýkt og vellíðan húðarinnar.
     
Go to Top