- Haldið á ampúlunni og brjótið lokið af með meðfylgjandi ampúluopnara.
- Hellið innihaldi ampúlunnar í pörtum eða öllu í einu í lófann.
- Berið allt innihald ampúlunnar jafnt á andlit og háls og klappið/þrýstið því laust inn í húðina.
- Hver ampúla inniheldur eitt skipti, virk efni missa virkni ef þau eru geymd eftir að ampúlan hefur verið opnuð. *Aðeins til notkunar útvortis.
-
Njóttu þess að dekra við húðina í aðdraganda jólanna með einstökum ampúlu kúr, raðað niður eftir dögum í glæsilegt aðventudagatal frá Janssen Cosmetics. Hver ampúla er sérvalin eftir virkni og raðað niður þannig að sem bestur árángur fáist á þessum 24 daga lúxús húðkúr. Hver ampúla inniheldur virk efni í sínu hreinasta formi og kemur skömmtuð í glerampúlum sem varðveita virkni og gæði innihaldsefna og tryggja þannig hámarksvirkni við hverja noktun. Teljum niður dagana fram að jólum með dásamlegu dekri, geislandi og vel nærðri húð sem fyllist af orku og einstökum húðljóma frá fyrstu noktun. Dagatalið í ár hefur fengið glænýtt útlit í elegant bláum og gylltum lit með nýrri og glæsilegri hönnun og er nú samanbrjótanlegt um miðjuna líkt og bók. JANSSEN COSMETICS aðventu dagatalið er dásamleg leið til þess að hleypa smá auka birtu inn í skammdegið og njóta aðventunnar enn frekar þar sem hver dagur verður dekurdagur. Nærandi niðurtalning til jóla með fullkomlega samsettum ampúlukúr sem svíkur engann. Dagatalið byrjar á djúpnærandi Bi-Phase Skin Recovery ampúlu, sem endurstillir og sefar húðina og undirbýr hana fullkomlega fyrir næstu skref af virkum ampúlum sem á eftir koma. Bi-Phase Skin Recovery ampúlan er einnig endurtekin aftur í gegnum dagatalið til þess að viðhalda virkni og sefa húðina. Hyaluron Fluid ampúlan fylgir á eftir með djúpvirkandi rakagjöf sem fyllir húðlögin af nauðsynlegum raka og eykur á flutningsleiðir virkra efna niður húðina. Því meiri raki sem er í húðinni því betri verður upptaka virkra efna. Öflug andoxunarefni eiga nú greiða boðleið og húðin orðin vel móttækileg fyrir virkari meðferð og þar kemur Superfruit Fluid ampúlan sterk inn hlaðin af vitamínum og einstakri orku ofurávaxta. Caviar Extract ampúlan fylgir á eftir með djúpvirkandi og örvandi áhrifum á frumustarfsemi húðarinnar og glæðir hana af aukinni orku og húðljóma. Skin Contour Fluid ampúlan færir okkur yfir á seinni hluta kúrsins þar sem áherslan er á að bæta þéttleika og styrkja húðvefi. Elastin örvandi peptíð styrkja náttúrulega elastin þræði húðarinnar og auka togkraft með lyftandi áhrifum. Marine Collagen Fluid ampúlan styður enn frekar við ferlið og virkni með hreinu sjávarkollageni og minnkar umfang á fínum og djúpum linum á yfirborði húðarinnar. Anti-Wrinkle Booster ampúlan færir okkur svo nær endanum og innsiglar aukinn þéttleika húðarinnar með einstakri 3-D express lifting tækni. Radiant Skin Fluid ampúlan bætir svo enn frekar á húðljómann rétt fyrir hátíðarhöldin. Síðasti hápunkturinn og jafnframt síðasti glugginn á dagatalinu lýkur svo með tvöfaldri mini booster meðferð. Þar sem tvær ampúlur eru notaðar í röð Radiant Skin Fluid og Anti-Wrinkle Booster sem hámarka virkni innihaldsefna og innsigla þennann glæsilega kúr. Notkun ampúla:
-
Ampúlur og Serum eru með virkustu formúlum í umhirðu húðarinnar heimafyrir. Þetta einstaka gjafasett inniheldur tvær af stjörnum Janssen Cosmetics Superfruit Fluid (7 x 2ml) ampúlur og Vitaforce C Skin Complex Serum (30 ml). SUPERFRUIT FLUID ampúlunar veita húðinni aukinn lífsþrótt og samstundis frískleika með hreinu C-Vítamíni og sérvalinni blöndu af superfruit þykkni sem er sannkölluð ofurfæða fyrir húðina, hlaðin af vítamínum og öflugum andoxandi eiginleikum. Parað saman með Vitaforce C Skin Complex serum sem eykur kollagenframleiðslu, styrkir elastínþræði húðarinnar og eflir ytri varnir þökk sé C-vítamín fosfati. Húðin fær samstundis frísklegra yfirbragð þar sem þú finnur húðina bókstaflega vakna til lífsins með dásamlegum angan af citrus ávöxtum.
-
Lúxús handáburður sérframleiddur fyrir jólaútgáfu Janssen Cosmetics í ár. Fullkomin gjöf fyrir bæði kynin í glæsilegum umbúðum. Hágæða djúpnærandi formúlan smýgur fljótt niður húðina og gefur þurrum höndum samstundis létti og óviðjafnalega mýkt. Virk innihaldsefni úr sykrum efla varnarlag húðarinnar og koma í veg fyrir sprungumyndun eða flagnandi húð vegna þurrks með græðandi og bólguhamlandi eiginleikum Allantoins og Phantenol. Tvíþætt Hyaluron Sýra og djúpnærandi Shea Butter binda raka og næra húðina með langvarandi eiginleikum sem gera þennann lúxús handáburð ómissandi yfir mesta kuldatímann.
-
Fallegt gjafasett úr Platinum vörulínu Janssen Cosmetics á einstöku gjafatilboði! Inniheldur hágæða Platinum Eye Care 15ml og 7stk Brilliance Shine Elixir ampúlur. Inniheldur sérþróaða Platinum MP Complex formúlu með peptíðblöndu sem fyllir uppí línur með einstakri virkni og hindrar niðurbrot kollagenþráða, verndar og hægir á öldrunarferli húðarinnar. Einstök virkni þar sem árángurinn er sléttari áferð í kringum augun og bjartara yfirbragð með auknum þéttleika.
-
Fallegt gjafasett úr Platinum vörulínu Janssen Cosmetics á einstöku gjafatilboði! Inniheldur hágæða Platinum Eye Care 15ml og 7stk Brilliance Shine Elixir ampúlur. Inniheldur sérþróaða Platinum MP Complex formúlu með peptíðblöndu sem fyllir uppí línur með einstakri virkni og hindrar niðurbrot kollagenþráða, verndar og hægir á öldrunarferli húðarinnar. Einstök virkni þar sem árángurinn er sléttari áferð í kringum augun og bjartara yfirbragð með auknum þéttleika.
-
Sérvalda gafasettið fyrir HANN inniheldur 24/7 Skin Energizer (50 ml) fyrir daglega umhirðu húðarinnar og 2/1 Active Shower Gel (200 ml) fyrir hár og líkama. 24/7 Skin Energiser er létt en öflug formúla byggð á nýstárlegum og virkum innihaldsefnum Men´s SuperMoist og SPECIMEN ásamt stuttum og löngum keðjum ag Hyaluronic Sýru. Létt formúluan smýgur fljótt niður húðina og dregur samstundis úr þreytumerkjum með sýnilegum árángri þar sem þú finnur bókstaflega fyrir frískandi virkni á yfirborði húðarinnar. Náttúruleg starfsemi húðarinnar fær aukið orkuskot og örvar nýmyndun sem bætir þéttleika og styrkir húðvefi með sléttandi áhrifum á yfirborðinu, ásamt frumuverndandi og andoxandi E-Vítamíni. MEN Active Shower Gel fyrir hár og líkama er gelkennd formúla sem umbreytist í ríkulega froðu þegar það blandast með vatni. Endurlífgandi og frískandi formúlan tryggir milda en áhrifaríka hreinsun á húð og hári og gefur frábæra ferskleikatilfinningu sem lífgar upp á skynfærin og skilur eftir sig mjúka angan af krydduðum sandalviði, sítrus og jasmín.
-
Þetta einstaka gjafasett samanstendur af þremur sérvöldum vörum fyrir hámarks umönnun húðarinnar: Kynnum nýtt djúpnærandi og endurnýjandi Pro-Lift Cream (50 ml) sem eykur og styður við náttúrulega endurnýjun húðarinnar og dregur um leið úr fyrstu línum og hrukkum þökk sé kröftugu ofurávaxtaþykkni. Kremið þéttir og bætir teygjanleika húðarinnar með lyftandi áhrifum sem gerir hana unglegri og frísklegri, inniheldur tvíþætta hýalúrónsýru sem eykur raka húðarinnar og sléttir yfirborð hennar með sýnilegum árángri saman með djúpnærandi eiginleikum og aminosýrum sem styrkja náttúrulegt varnarlag húðarinnar. Silkimjúka Smooth + Lift augnkremið (15 ml) er einnig nýtt hjá Janssen Cosmetics auðgað með virkum efnum í hæsta gæðaflokki sem heilla með samstundis virkni og langtímaáhrifum. Smooth + Lift Eye Cream bætir þéttleika húðarinnar í kringum augnsvæðið með einstaklega sléttandi áhrifum, djúpvirkandi næring og rakagjöf fyllir uppí fínar línur og grynnkar á dýpri línum og bætir birtu og útgeislun húðarinnar með sýnilegum árángri. Pomegranate krem-maskinn (20 ml) var framleiddur sérstaklega til þess að fylgja með jólaútgáfunni og er fullkomin viðbót við þessa öflugu tvennu úr Demanding Skin vörulínu Janssen Cosmetics. Maskinn inniheldur hreint Pomegranate blómaþykkni sem er einstaklega ríkt af C-Vítamíni og öflugur andoxari. Djúpnærandi eiginleikar maskans endurlífga húðina og færa henni aukna birtu og einstakann húðljóma.