• ACTIVATING sturtugel fyrir karlmenn 2 in 1 fyrir hár og líkama. Active Shower Gel frá JANSSEN COSMETICS er fullkomin byrjun á deginum. Endurlífgandi og frískandi formúlan tryggir milda en áhrifaríka hreinsun á húð og hári og skilur eftir frábæra ferskleikatilfinningu. Active Shower Gel hreinsar  yfirborð húðarinnar á áhrifaríkan hátt án þess að virka þurrkandi þökk sé mildum yfirborðsvirkum efnum úr kókos og sykrum sem koma í veg fyrir að húðin þorni. Gagnsæ geláferðin dreifist auðveldlega og myndar mjúka froðu þegar það er blandað saman við vatn og eykur þannig endingu þar sem ekki þarf að nota mikið af gelinu fyrir ríkulegt magn af froðu. Gelið er með mildum en herralegum blæ sem lífgar upp á skynfærin og skilur eftir sig mjúka angan af  krydduðum sandalviði, sítrus og jasmine.
  • Alkahól frír svitalyktareyðir með langvarandi áhrifum. Kemur í þægilegu stifti sem rennur mjúklega yfir handakrikann án þess að valda ertingu eða óþægindum í húðinni með mildum og léttum herrailm. Inniheldur sérvalin plöntuþykkni sem hafa þau áhrif að eyða svitalykt og sporna gegn fyrir að svitalykt myndist með langvarandi eiginleikum.  
  • Orkugefandi og kælandi augnrollon fyrir herra, sérhönnuð formúla fyrir augnsvæðið sem dregur samstundis úr þreytumerkjum, dökkum baugum og bólgum í kringum augun með sýnilegum áhrifum. Smýgur fljótt niður í húðina með kælandi og frískandi áhrifum, sléttir úr fínum línum og veitir augnsvæðinu einstaka rakagjöf og næringu. Innih. Men’s Eye Perfecting Complex 4in1 formúlu, Hyaluronic sýru, Caffeine og Menthol.
  • Orkumikið og djúpnærandi krem fyrir húð sem er byrjuð að eldast. Djúpvirkandi formúla sem gefur húðinni samstundis orku og hraustlegan ljóma. Virk innihaldsefni auka nýmyndun húðar og þéttleika, fínar línur og áferð húðarinnar verða jafnari og náttúrulegt varnarlag fyrir utanaðkomandi áreiti og sindurefnum(free radicals) styrkist. Smýgur fljótt niður í húðina þannig húðin helst þurr viðkomu, með frísklegum herrailm.
  • Einstaklega rakagefandi formúla með sefandi og græðandi áhrifum, fullkomið eftir rakstur!
    Örvar endurnýjun húðarinnar og græðir sár eða rispur af völdum raksturs. Styrkir náttúrulegt varnarlag húðarinnar og eykur húðljóma.
    Gelkennd áferð með frísklegum herrailm sem smýgur fljótt niður í húðina þannig að húðin helst mött og þurr viðkomu.
    Innih. Men´s SuperMoist næringarríka formúlu sérþróaða fyrir karlmannshúð, Hyaluronic Sýru, Men´s UltraCalm formúlu til að draga úr roða og ertingu, Aloe Vera og E-Vítamín.
  • Gelkennd raksápa og hreinsir í einni vöru með frísklegum herrailm, hentar öllum húðgerðum einnig viðkvæmum. Einstaklega handægt og drjúgt hreinsigel sem breytist í kremkennda froðu þegar það er blandað með volgu vatni. Kemur í veg fyrir roða og ertingu af völdum raksturs, hreinsar og mattar yfirborð húðarinnar ásamt því að gefa góðan raka og frísklegra yfirbragð. Noktun: Blandið með volgu vatni í lófanum í kremkennda froðu, það þarf aðeins nokkra dropa af gelinu svo úr verður ríkuleg froða. Berið á húðina með hringlaga hreyfingum og skolið af með volgu vatni eða þvottapoka. Fyrir rakstur: Nuddið froðunni létt yfir skeggsvæði og leyfið að virka í stutta stund fyrir rakstur og skolið síðan umfram froðu af með volgu vatni eða þvottapoka.
Go to Top