• Regulating Retinol Cream er djúpvirkandi 24-stunda krem fyrir grófar og þykkar húðgerðir sem og eldri húðgerðir sem þurfa kröftuga endurnýjun, næringu og orku. Kremið hefur áhrifamikla virkni og hraðar öllu endurnýjunarferli húðarinnar með djúpnærandi eiginleikum, dregur saman og minnkar stórar/opnar húðholur og fyllir uppí fínar línur með sléttandi áhrifum á yfirborð húðarinnar. Inniheldur hjúpað Retinol sem helst stöðugt á ferð sinni niður húðlögin og tryggir þannig hámarksupptöku og virkni í neðstu húðlögum, Equal-Refining Complex sem dregur úr olíuglans og hefur samherpandi áhrif á stórar/opnar húðholur, rakagefandi Hyaluronic sýru og nærandi Shea butter sem eykur mýkt og fyllingu húðarinnar. Með aukinni nýmyndun öðlast húðin aukna orku og hreinleika sem eykur bæði birtu og náttúrulegan húðljóma, yfirborð húðarinnar þéttist eftir því sem húðholur og fínar línur dragast saman og náttúruleg kollagenframleiðsla eykst sem gefur  húðinni aukna fyllingu og mýkt.
  • Alkahól-frítt andlitsvatn sem fullkomnar hreinsun húðar, dregur úr olíuglans með mattandi eiginleikum og hefur einnig samherpandi áhrif á opnar/stórar húðholur sem dregur úr stíflumyndun. Inniheldur Equal Refining Complex sem stuðlar að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar með einstaklega samherpandi áhrifum á opnar/stórar húðholur. Með reglulegri noktun dragast opnar húðholur saman með sjáanlegum árángri og yfirborð húðarinnar verður sléttara. Fullkomið par með Purifying Cleansing Gel fyrir olíkenndar og grófar húðgerðir. Helstu innihaldsefni : Equal Refining Complex, Glycerine
  • Hreinsigel fyrir olíukenndar húðgerðir með tvíþættri virkni. Frískandi gelið leysir upp óhreinindi og umframhúðfitu af yfirborði húðarinnar og veitir ásamt því að varðveita rakamagn hennar með Panthenol:Provitamin B5 sem hefur einnig verndandi og sefandi áhrif á roða og bólgur í húð. Gelið hefur mildan en frísklegan ilm og gefur húðinni matta og fallega áferð. Helstu innihaldsefni : Decyl glucoside (sugar surfactant), Panthenol:Provitamin B5
  • Serum með djúphreinsandi áhrifum, inniheldur BHA Salicylic sýru sem leysir upp og fjarlægir dauðar húðfumur af yfirborði húðarinnar og opnar þannig fyrir stíflaðar húðholur og losar upp safnaða húðfitu, fílapensla og önnur óhreinindi með bakteríudrepandi eiginleikum. Equal-Refining Complex stuðlar að auknu jafnvægi framleiðslu fitukirtla og dregur úr olíuglans á yfirborði húðarinnar á meðan Hyaluronic sýra veitir nauðsynlega rakagjöf sem eykur heilbrigði og náttúrulega endurnýjun húðarinnar. Frábær meðferð fyrir staðbundin svæði eins og T-svæði eða sem blettameðferð á einstaka svæði fyrir áhrifamikla hreinsun og sem fyrirbyggjandi meðferð gegn stíflum og bólumyndun. Berið serumið á þau svæði sem á að meðhöndla og leyfið að síast niður í húðina og setið svo viðeigandi krem yfir.
  • Einstaklega virk og áhrifarík formúla gegn bólum, djúpum sýkingum og Acne húðgerðum. Microsilver Serum pH 4,2 er sérþróuð formúla sem vinnur bæði í neðri lögum sem og á yfirborði húðarinnar þar sem Glycolic ávaxtasýra smýgur niður í neðstu húðlögin og eykur náttúrulega endurnýjun og hreinsun húðarinnar og kemur á auknu jafnvægi á framleiðslu fitukirtlanna, á meðan Micro-Silfur agnir vinna á yfirborði húðarinnar og mynda einskonar skjöld á yfirborði húðarinnar og fyrirbyggja þannig að óhreinindi eða bakteríur nái að grassera í húðinni. Micro-Silfur er alveg einstakt innihaldsefni fyrir vandamálahúð þar sem það innsíast ekki niður í húðina heldur vinnur einungis á yfirborðinu og hefur þann sérstaka eiginleika að fjarlægja bakteríur og óæskilegar örverur af yfirborði húðarinnar sem myndu annars valda bólum, bólgum eða djúpum húðsýkingum hjá húð með mikla fituframleiðslu. Serumið inniheldur einnig D-Panthenol, Provitamin B 5 sem örvar fumuendurnýjun og bætir þannig gróandaferli húðarinnar og fyrirbyggir sáramyndun með rakagefandi áhrifum. Inniheldur: 3,5% Glycolic sýru og 0,2% Micro-Silfur með pH gildi 4,2
  • Light Mattifying Cream er létt 24-stunda krem fyrir olíukenndar húðgerðir, kremið stuðlar að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar og inniheldur Silica púður sem dregur samstundis í sig umfram húðfitu á yfirborði húðarinnar og gefur henni matta og flauelsmjúka áferð. Kremið inniheldur djúpvirkandi Equal-Refining Complex sem vinnur sérstaklega að því að minnka umfang á opnum/stórum húðholum og koma jafnvægji á framleiðslu fitukirtla húðarinnar, kremið vinnur þannig úr neðri lögum húðarinnar við að jafna út umfram fituframleiðslu og fyrirbyggir þannig stíflur í húðholum og bakteríusýkingar með sjáanlegum árángri en rannsóknir hafa sýnt stórar/opnar húðholur dragast saman um allt að 16% á aðeins 28 dögum. Létt formúlan smýgur fljótt niður húðina með kælandi og sefandi áhrifum frá hreinu Aloe Vera og fyllir húðlögin af dásamlegum raka með löngum og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru sem tryggir hámarks rakagjöf og fyllir uppí fínar línur af völdum rakaþurrks og eykur mýkt húðarinnar.
  • Djúphreinsandi maski með græðandi áhrifum fyrir olíukennda, bólugjarna og grófar húðgerðir með opnar/stórar húðholur. Maskinn inniheldur djúpvirkandi Equal-Refining Complex sem vinnur sérstaklega að því að minnka umfang á opnum/stórum húðholum og koma jafnvægji á framleiðslu fitukirtla húðarinnar, maskinn vinnur þannig úr neðri lögum húðarinnar við að jafna út umfram fituframleiðslu og fyrirbyggir þannig stíflur í húðholum og bakteríusýkingar. Til stuðnings á yfirborðinu dregur Kaolin í sig alla umfram húðfitu og minnkar þannig verulega olíuglans og mattar yfirborð húðarinnar. Aloe Vera og Bisabolol minnka samstundis bólgur og roða í húðinni með græðandi áhrifum sem dregur úr ertingu, hita og óþægindi í húðinni. Húðin fær samstundis létti og öðlast auka birtu og frísklegra yfirbragð. Noktun: Berið maskann á hreina húð . forðist augnsvæði og látið liggja á í 20min. Tip. Maskinn þornar örlítið upp á húðinni, gott er að leggja volgt þvottastykki upp við húðina og blyta maskann upp til að auðvelda hreinsun. Má einnig nota staðbundið á T-Svæði eða sem blettameðferð á bólur.
  • Enzyme Peeling Powder losar um dauðar húðfrumur og umfram húðfitu af yfirborði húðarinnar á áhrifaríkan en jafnframt mildan hátt við djúphreinsun á yfirborðs viðkvæmum og Acne húðgerðum. Fínmalað púðrið myndar létta froðu þegar það er blandað við vatn og virkjar um leið Ensím sem vinna hörðum höndum á yfirborði húðarinnar við að brjóta niður keratin prótín og losa þannig dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar á áhrifaríkann hátt án þess að erta yfirborð húðarinnar. Húðin nær að losa um óhreinindi og umfram húðfitu með mattandi áhrifum frá Silica kísil sem stuðlar að auknu jafnvægi fituframleiðslu og heilbrigði húðarinnar. Noktun: Blandið c.a. teskeið af púðri við vatn og myndið létta froðu, dreifið jafnt yfir andlit og háls og nuddið létt yfir með hringlaga hreyfingum í c.a. 5min, leyfið síðan að liggja á húðinni í 3min og hreinsið af með volgu þvottastykki.
  • Sérvalin blanda af ávaxtasýrum örvar húðflögnun og náttúrulega endurnýjun húðarinnar. Ótrúlega gott sem viðgerðarkrem þar sem ávaxtasýrunar hafa leiðréttandi áhrif og betrumbæta alla starfsemi húðarinnar. *Hreinsa stíflaðar húðholur, jafna fituframleiðslu og draga úr fílapensla og bólumyndun *Rakagefandi með örvandi áhrifum á náttúrulega rakaframleiðslu húðarinnar *Jafna misfellur og slétta yfirborð húðarinnar *Jafna náttúrlegan litarhátt húðarinnar, dregur úr litabreytingum og hefur lýsandi áhrif á dökka bletti Gefur samstundis frískandi áhrif þar sem þú finnur bókstaflega fyrir virkni og örvun sem fær húðina til að geisla af ljóma. Kremið innih. Blöndu af glycolic, malic, tartaric og citric sýru og hefur pH-gildi uppá 4,4 og 10% styrk ávaxtasýra sem gefur hámarks virkni án þess að vera of ertandi fyrir daglega noktun. Hafa ber í huga að húðin verður ljósnæmari og viðkvæmari fyrir ytra áreiti á meðan noktun stendur. Helstu innihaldsefni : Glycolic, Malic, Tartaric og Citric Ávaxtasýrur
  • AHA + BHA Exfoliator er djúphreinsandi ávaxtasýru gel með einstaka og áhrifamikla virkni fyrir olíukennda, bólugjarna og acne húðgerðir. Gelið inniheldur hátt hlutfall af sérvalinni blöndu af fjórum ávaxtasýrum (AHA) glycolic, malic, citric og tartaric sem og hreinni (BHA) salicylic sýru sem leysa upp og fjarlægja dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar og losa um stíflur í húðholum á áhrifaríkan hátt með bakteríudrepandi og bólgueyðandi áhrifum frá salicylic sýrunni. AHA + BHA Exfoliator er þó ekki einungis bara frábær vara í baráttunni gegn bólum þar sem ávaxtasýrunar hafa breiðvirk áhrif á húðina og virkjar lúnar húðfrumur og náttúrulegt endurnýjunarferli, þar á meðal eykst nýmyndun kollagens sem viðheldur og eykur þéttleika húðarinnar. Með reglulegri noktun verður yfirborð húðarinnar sléttara, fínar línur, hrukkur og opnar húðholur dragast saman og minnka með sjánlegum árangri auk þess sem litabreytingar/elliblettir og dökkir blettir vegna sólarskemmda lýsast eða hverfa alveg. NB. AHA + BHA Exfoliator kemur í tveimur mismunandi styrkleikum annarsvegar 30% AHA+BHA styrkleika í stofuvöru og 20% AHA+BHA styrkleika í söluvöru.
  • AHA + BHA Cleanser pH 4,2 AHA + BHA Cleanser er áhrifarík hreinsimjólk fyrir olíukennda, bólugjarna og Acne húðgerðir og einnig fyrir grófgerða/eldri húð með opnar/stórar húðholur. Hreinsimjólkin inniheldur ávaxtasýrur sem hreinsa burt farða, óhreinindi og dauðar húðfrumur á áhrifaríkan hátt af yfirborði húðarinnar. AHA + BHA hreinsimjólkin inniheldur blöndu af AHA glycolic, malic, citric og tartaric sýru og BHA salicylic sýru sem vinna fullkomnlega saman í baráttunni við opnar/stíflaðar húðholur, bólur og bakteríusýkingar (Acne) í húðinni. AHA sýrunar leysa upp dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar og opna fyrir stíflaðar húðholur sem gefur húðinni tækifæri að losa um umfram húðfitu og dregur þannig úr að húðholur stíflist og myndi djúpar bólgur eða bólur. BHA salicylic sýran styður svo enn betur við þetta ferli þar sem hún fer ennþá dýpra niður í húðholunar með fituleysanlegum áhrifum og hreinsar upp stíflaðar húðholur og fílapensla með bakteríudrepandi eiginleikum, salicylic sýran hefur einnig bólgueyðandi áhrif á Acne húðgerðir þar sem húðin getur oft verið viðkvæm og aum viðkomu. Við reglulega noktun á AHA + BHA Cleanser öðlast húðin betra jafnvægi sem styður við náttúrulega endurnýjun og heilbrigði húðarinnar, opnar/stórar húðholur dragast saman og minnka með sýnilegum árángri og sléttir úr yfirborði húðarinnar. Noktun: Dreifið mjólkinni vel yfir andlit, háls og bringu og hreinsið með léttum hringlaga hreyfingum í 3-5min, hreinsið síðan af með volgu vatni/þvottapoka og ljúkið hreinsun með andlitsvatni Purifying Tonic. *Hafa ber í huga að pH gildi vörunnar sem er 4,2 ekki hafa mjólkina lengur á húðinni en 3-5min
Go to Top