-
Sérhannað andlitsvatn fyrir viðkvæma húð dregur samstundis úr roða, ertingu og minnkar hitatilfinningu með einstaklega kælandi og sefandi áhrifum. Soft Soothing Tonic er alkahólfrítt og inniheldur Skin Defense Complex+ sem styrkir háræðanar með langvarandi áhrifum. Noktun: Strjúkið yfir með bómullarskífu á hreina húð yfir andlit og háls. -
Mild p-H neutral hreinsifroða án allra rotvarna eða skaðlegra aukaefna. Létt froðan flæðir um yfirborð húðarinnar og dregur samstundis úr allri ertingu eða pirring í húðinni með kælandi áhrifum, inniheldur allantoin sem dregur sýnilega úr roða og sefar viðkvæma húð. Noktun: Hristið og notið 2 til 3 pumpur af froðunni, dreifið jafnt yfir andlit og háls með hringlaga hreyfingum og skolið af með volgu vatni. Ljúkið hreinsun með Soft Soothing Tonic/andlitsvatni til að auka virkni og fullkomna hreinsun húðar. -
Húð sem á það til að mynda kláðabletti (taugaskinnsþrota eða neurodermatitis) þarf sérstaka meðhöndlun og reynist oft á tíðum nær ómögulegt að finna krem sem slær á þegar einkenni birtast. Margar ástæður eru fyrir myndun kláða í húðinni en sé klórað gegn kláðanum vill kláðinn gjarnan aukast á þeim stað sem getur leitt til aukins klórs og þannig vítahrings. Hægt og hægt þykknar húðin á þeim svæðum sem eru klóruð og myndar stundum eins og hnúta með miklum kláða sem kallast hér kláðablettir. Janssen Cosmetics hefur alltaf haft þarfir ólíkra húðgerða að leiðarljósi og lagt sérstaka vinnu í að finna lausnir gegn allskynd húðkvillum sem geta komið upp og kynna með stolti nýtt á markað Neuro Skin Balm sem veitir viðkvæmri, exem gjarni og húð sem á það til að mynda eða er stöðugt með kláðabletti einstaka meðhöndlun og virkni. Kláðablettir eru einstaklega hvimleitt fyrirbrigði og getur tekið mjög á tauganar að klóra ekki í viðkvæma blettina sem gerir ástandið yfirleitt verra. Berið Neuro Skin Balm á bletti og svæði þegar einkenni byrja að myndast sem dregur strax úr frekari kláðamyndun, hita og ertingu. Hentar einnig vel til daglegrar noktunar þegar við á því sérþróuð virkni Neuro Skin Balm syrkir varnarhjúp húðarinnar með reglulegri noktun og hefur fyrirbyggjandi áhrif við exem myndun og kláðabletta. Noktun: Berið staðbundið á bletti eða svæði daglega eða eftir þörfum. -
Öflugt viðgerðar-serum fyrir viðkvæmar húðgerðir sem styrkir náttúrulegt varnarlag og kemur jafnvægi á húðina. Sérþróuð Skin Defence Complex+ formúla Janssen Cosmetics hefur breiðvirk græðandi áhrif t.d. á exem og ofnæmisgjarna húð, rósroða, háræðaslit og acne. Dregur úr hitatilfinningu, kláða, ertingu og minnkar sjáanlega roða og styrkir viðkvæmt háræðanet húðarinnar. Létt formúlan smýgur hratt niður í húðina eykur rakamagn og mýkt húðarinnar þannig að áferðin verður flauelsmjúk. Noktun: Berið á hreina húð kvölds og morgna, yfir andlit og háls eitt og sér eða undir krem. Tip: Fyrir enn meiri virkni og árángur notið samhliða Intense Calming Cream. -
Intense Calming Lotion er létt kremformúla fyrir viðkvæma húð, frábært fyrir yngri húðgerðir eða þá sem vilja léttari krem. Djúpvirkandi 24stunda formúla sem bæði verndar húðina á daginn og stuðlar að bættri endurnýjun á nóttunni. Fyrir enn betri virkni og árángur Intense Calming Lotion notið samhliða Intense Calming Serum. Kremið inniheldur sérþróað Skin Defense Complex+ sem samanstendur af virkum plöntuefnum og nauðsynlegum fitusýrum fyrir náttúrulega endurnýjun og heilbrigðan varnarhjúp húðarinnar. Létt formúlan inniheldur einnig náttúrulegt alpha bisabolol og allantoin sem dregur verulega úr bólgum, roða og viðkvæmni og bætir áferð húðarinnar með sýnilegum árángri. Saccharide isomerate og hýalúrónsýra veita húðinni djúpvirkandi rakagjöf og stuðla að auknu rakajafnvægi með langvarandi árángri fyrir viðkvæmar húðgerðir. Intense Calming Lotion er einnig tilvalið sumarkrem fyrir þau sem kjósa léttara krem yfir sumartímann, ef herpingur er enn til staðar í húðinni er hægt að nota Intense Calming Cream sem næturkrem. Inniheldur:- Skin Defense Complex+: Mjög virk plöntublanda með sólberjafræolíu (rík af ómega-3 og ómega-6 fitusýrum, dregur úr bólguferlum og bætir varnarvirkni húðarinnar), belgplöntukjarni (ríkur af plöntusterólum, talinn vera náttúrulegur valkostur í stað hýdrókortisóns, dregur úr bólgu) og hlutum sólblómaolíu sem ekki er hægt að mynda sápu úr (rík af nauðsynlegum fitusýrum; verndar og bætir skaddað varnarlag húðarinnar, dregur úr ofnæmisviðbrögðum)
- Langar og stuttar keðjur af hýalúrónsýru: Gefur mikinn raka og bindur hann í húðinni
- Shea-smjör: Nærir húðina og styður við varnarvirkni hennar
- Isostearyl Isostearate: Mýkjandi efni úr jurtahráefnum; klínískar rannsóknir sýna að það samlagast fituefnum milli frumna, styrkir þau og eykur varnarvirkni húðarinnar
- Squalane: Líkist náttúrulegum olíum í húðinni; kemur í veg fyrir þurrk, sléttir húðina
- Saccharide Isomerate: Kolvetnablanda sem er eins og húðin og veitir húðinni langvarandi raka (72 klukkustunda áhrif)
- α-Bisabolol: Róandi, bólgueyðandi og dregur úr ertingu
- Allantoin: Sefar erta húð og dregur úr roða
- E-vítamín asetat: Andoxandi, verndar húðfrumur gegn skaða af völdum sindurefna
-
Frábært 24-stunda krem fyrir viðkvæmar og/eða þurrar húðgerðir þar sem herpingstilfinning og pirringur í húðinni hverfur samstundis með kælandi og frísklegum áhrifum um leið og kremið er borið á. Rakamikið og djúpnærandi krem með Skin Defence Complex náttúrulegu plöntuþykkni sem styrkir varnarkerfi húðarinnar og verndar viðkvæmt háræðanetið fyrir utanaðkomandi áreiti. Kremið smýgur hratt niður á milli húðlaga og gefur einstaka mýkt og fyllingu án þess að yfirborð húðarinnar verði fitugt. Húðin fær hraustlegra yfirbragð og húðlitur verður jafnari, verndandi virkni og alhliða betrumbætandi áhrif á húðina. Noktun: Berið á hreina húð kvölds og morgna, yfir andlit og háls eitt og sér eða yfir serum. Tip: Fyrir enn meiri virkni og árángur notið samhliða Intense Calming Serum. -
S.O.S viðgerðarmaski sem hefur eins og nafnið gefur til kynna samstundis kælandi áhrif, minnkar bólgu, roða og róar niður alla ertingu og hitatilfinningu í húðinni á sem skemmstum tíma sem mögulegt er! Eftir aðeins 5mín hefur dregið sýnilega úr roða og viðnám húðarinnar betrumbæst með Fucogel® sem hefur samstundis sefandi áhrif og kælir niður húðina. Næringarrík formúla smýgur hratt niður og hleður húðlögin af raka sem gefa henni aukna fyllingu og sléttari áferð og Skin Defense Complex+ styrkir viðkvæmt háræðanet húðarinnar með græðandi eiginleikum sem draga úr viðkvæmni. Hraðvirkandi og áhrifarík virkni gefa húðinni aukinn húðljóma og silkimjúka áferð Noktun: Berið á hreina húðina og leyfið að liggja á í a.m.k. 15mín, nuddið restinni niður í húðina með rökum bómull. -
Dagleg meðferð við háræðaslitum og rósroða. Létt en öflug formúla þéttir og styrkir blóðæðaveggi húðarinnar sem dregur úr hita og ertingu í húðinni. Inniheldur RSC-Neutralizer sem minnkar sýnilega roða í húð og dregur úr einkennum rósroða. Með reglulegri noktun dregur sjáanlega úr æðaslitum og háræðanet húðarinnar styrkist með fyrirbyggjandi og verndandi eiginlegum. Betrumbætir áferð rósroða húðar með auknu rakajafnvægi, sléttandi og mýkjandi áhrifum. Noktun: Berið á hreina húð, kvölds og morgna yfir andlit og háls. Má einnig nota staðbundið. -
Augnkrem með ríkulegu magni af Skin Defense Complex sem gefur góða næringu og raka með græðandi eiginleikum fyrir viðkvæmni, exemgjarni og þurri húð í kringum augnsvæðið með langavarandi kælandi áhrifum. Inniheldur einnig Hyaluronic Sýru og Saccharide Isomerate með djúpnærandi eiginleikum sem fylla uppí og slétta linur í kringum augum vegna yfirborðsþurrks og gefa þannig augnsvæðinu aukna lyftingu. Vinnur á bólgum og dökkum baugum með lífrænt ræktaðri jurt: Eyebright sem gefur augnsvæðinu eins og nafnið gefur til kynna bjartara yfirlit. Noktun: Berið á húðina í kringum augun kvölds og morgna. -
2-phase Oil Serum Calming eru mildir en jafnframt áhrifaríkir 2-fasa Olíu-Húðdropar fyrir viðkvæmar húðgerðir. Grænn vinnur á móti rauðum og það er akkurat kjarninn í virkninni í græna hluta blöndunnar sem er hlaðin af dásamlegum náttúrulegum efnum eins og Aloe Vera, Allantoin og Tea-Extract sem öll hafa einstaklega sefandi áhrif á viðkvæmar húðgerðir, minnka roða, hita og aðra ertingu í húðinni. Blandað saman við sérvalda blöndu af hreinum kaldpressuðum olíum bæði Möndluolíu sem er náttúrulega rík af E-Vítamíni með viðbót af Vitamin E Complex sem veita húðinni djúpnæringu og frumuvernd gegn skaðlegum sinduráhrifum og ótímabærri öldrun húðarinnar. Vegna hreinleika olíanna smjúga dropanir lengst niður húðlögin og fylla þau af raka og næringu sem og styrkja ytra varnarlag án þess að yfirborð húðarinnar sé olíukennt og henta því fullkomnlega undir farða eða krem. Húðin fær aukna rakafyllingu og frumustarfsemi betrumbætist vegna djúpnærandi áhrifa, losar um herping og húðin fær sléttara yfirbragð. Noktun: Hristið serumið vel saman og berið 2-3 dropa á hreina húð.