• After Sun frá Janssen Cosmetics er fullkomið líkamskrem eftir sólríka daga, sund og útiveru. Kælandi formúlan gefur húðinni samstundis létti með græðandi áhrifum, hefur djúpnærandi virkni og smýgur fljótt niður húðina og fyllir á tóma rakatanka sem gefur húðinni dásamlega mýkt og vellíðan. Janssen Cosmetics After Sun hefur einnig einstaklega verndandi áhrif og eflir náttúrulegar varnir húðarinnar gegn sólarskemmdum, ótímabærri öldrun og öðrum húðskemmdum sem geta myndast við sólbruna. Húðin verður jafnari og fær fallegri lit með sólkysstum ljóma.
    • Er kælandi, græðandi og gefur húðinni mýkt og vellíðan
    • Smýgur fljótt niður í neðstu húðlögin
    • Hefur verndandi áhrif og eflir náttúrulegar varnir húðarinnar gegn ótímabærri öldrun og öðrum húðskemmdum sem geta myndast við sólbruna
    • Inniheldur:
      • Aloe Vera : kælandi og græðandi
      • Alpha bisabolol: dregur úr bólgum og roða
  • SPF 50 ANTI-AGEING SÓlARVÖRN FYRIR ANDLIT OG LÍKAMA Sólarvörn er eitt það mikilvægasta sem við getum notað til þess að vernda húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar, sólarskemmdum og ótímabærri öldrun húðarinnar hvort sem er á ströndinni, skíðaferðalögum, útiveru eða daglegu amstri og ætti að vera hluti af húðumhirðu allan ársins hring. High Protection Sun Care SPF 50 sameinar fullkomna blöndu af sólavörn og umönnun fyrir húðina í einni vöru. Létt en jafnframt áhrifarík formúla veitir húðinni hámarks vörn gegn UVA og UVB geislum með verndandi eiginleikum gegn sólarskemmdum, litabreytingum og ótímabærri öldrun húðarinnar. Hentar öllum húðgerðum fyrir hámarks vörn, þá sérstaklega viðkvæmum húðgerðum/eða þau svæði sem eiga það til að brenna í sólinni. Kremið er létt og smýgur fljótt niður í húðina og ásamt SPF vörninni inniheldur kremið einnig rakagefandi Hyaluronic Sýru sem nærir húðina, eykur rakamagn og viðheldur náttúrulegri fyllingu og þéttleika ásamt frumuverndandi Ectoin® sem er einstakt lífrænt efni sem hefur þann eiginleika að efla og styrkja náttúrulegar varnir húðfrumna innan frá gegn ytra áreiti eins og hita/kulda og UV geislum. Með því myndar húðin öflugri vörn gegn sólargeislum og minnkar líkunar á sólarskemmdum/litabreytingum síðar meir. *Vörn gegn UVA og UVB geislum *Fyrirbyggir sólarskemmdir af völdum sólbruna *Fyrirbyggir litabletti/breytingar af völdum sólargeisla *Hentar öllum húðgerðum, einnig veiðkvæmum *Létt formúla sem smýgur hratt niður í húðina *Rakagefandi formúla sem getur komið í staðinn fyrir dagkrem yfir sumartímann Noktun - Berið ríkulegt magn á húðina c.a. 30min áður en farið er í sólarljós, bætið á eftir þörfum yfir daginn til þess að viðhalda vörn sérstaklega eftir sundferðir eða hreyfingu þar sem er mikið svitnað.
  • SPF 30 TRANSPARENT SUN SPRAY FYRIR LÍKAMA Sólarvörn er eitt það mikilvægasta sem við getum notað til þess að vernda húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar, sólarskemmdum og ótímabærri öldrun húðarinnar hvort sem er á ströndinni, skíðaferðalögum, útiveru eða daglegu amstri. Sun Protection Spray SPF 30 er létt og gegnsæ sólarvörn sem veitir hágæða vörn gegn UVA og UVB geislum og hefur verndandi eiginleika gegn sólarskemmdum með Ectoin® frumuvernd. *Kemur í handhægum sprey brúsa *Verndar húðina gegn UVA/UVB geislum og sólbruna *Létt formúlan smýgur hratt niður í húðina og skilur ekki eftir sig hvítar rákir*Húðin verður ekki klístruð eða olíukennd *Inniheldur Ectoin® sem er einstakt lífrænt efni sem smýgur niður í neðri lög húðarinnar þar sem það eflir náttúrulegar varnir húðfrumna gegn ytra áreiti eins og hita/kulda og UV geislum. Með því myndar húðin öflugri vörn gegn sólargeislum og minnkar líkunar á sólarskemmdum/litabreytingum síðar meir. *Hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmum Noktun - Hristið brúsan vel fyrir hverja noktun dreifið ríkulegi magni á húðina c.a. 30min áður en farið er í sólarljós, bætið á eftir þörfum yfir daginn til þess að viðhalda vörn sérstaklega eftir sundferðir eða hreyfingu þar sem er mikið svitnað.  
Go to Top