• 2-phase Oil Serum Calming eru mildir en jafnframt áhrifaríkir 2-fasa Olíu-Húðdropar fyrir viðkvæmar húðgerðir. Grænn vinnur á móti rauðum og það er akkurat kjarninn í virkninni í græna hluta blöndunnar sem er hlaðin af dásamlegum náttúrulegum efnum eins og Aloe Vera, Allantoin og Tea-Extract sem öll hafa einstaklega sefandi áhrif á viðkvæmar húðgerðir, minnka roða, hita og aðra ertingu í húðinni. Blandað saman við sérvalda blöndu af hreinum kaldpressuðum olíum bæði Möndluolíu sem er náttúrulega rík af E-Vítamíni með viðbót af Vitamin E Complex sem veita húðinni djúpnæringu og frumuvernd gegn skaðlegum sinduráhrifum og ótímabærri öldrun húðarinnar. Vegna hreinleika olíanna smjúga dropanir lengst niður húðlögin og fylla þau af raka og næringu sem og styrkja ytra varnarlag án þess að yfirborð húðarinnar sé olíukennt og henta því fullkomnlega undir farða eða krem. Húðin fær aukna rakafyllingu og frumustarfsemi betrumbætist vegna djúpnærandi áhrifa, losar um herping og húðin fær sléttara yfirbragð. Noktun: Hristið serumið vel saman og berið 2-3 dropa á hreina húð.
  • 2-phase Oil Serum Lifting eru 2-fasa húðdropar fyrir húð sem er byrjuð að missa teygjanleika og vantar aukna orku. Ung og heilbrigð húð hefur náttúrulegan bleikan undirtón, er þétt og sýnir engin þreytumerki sem koma eðlilega með tíð og tíma þar sem húðin verður fyrir stöðugu ytra áreiti svo sem mengun og geislum sólarinnar auk þess sem hún eldist og hægjist á frumustarfsemi. Með 2-phase Oil Serum Lifting er markmiðið einmitt að endurheimta brot af þessum æskuljóma aftur og er það akkurat það sem fagurbleiki fasin einblínir á með handvöldum áhrifaríkum jurtum og E-Vítamíni sem veitir einstaka frumuvernd gegn sindurefnum og ótímabærri öldrun húðarinnar. Húðin fyllist orku frá neðstu húðlögum og fyllist af næringarríkum innihaldsefnum blandað saman með dýrðlegri Argan Olíu sem veitir húðinni nauðsynlegar fitusýrur. Serumið má nota eitt og sér eða blanda nokkrum dropum saman við krem eða farða til að auka næringu og fá frísklegri húðtón. Vegna hreinleika olíanna smjúga dropanir lengst niður húðlögin og fylla þau af raka og næringu sem og styrkja ytra varnarlag án þess að yfirborð húðarinnar sé olíukennt og henta því fullkomnlega undir farða eða krem. Noktun: Hristið serumið vel saman og berið 2-3 dropa á hreina húð.
  • FLORAL ENERGY SERUM blandar saman hreinu blómaextrakti úr alpafíflum, fjallarósum, lúpínu og krossfararósum til að endurlífga húðina og styrkja náttúrulegt verndarlag húðarinnar. Fjallarós styrkir viðnám í stofnfrumum húðarinnar og verndar auk þess gegn áreiti frá útfjólubláum geislum. Alpafífils-extrakt styður einnig náttúrulega frumustarfsemi húðarinnar og stuðlar að auknu húðviðnámi gegn umhverfisáhrifum.
  • Pro-Lift Cream er öflugt djúpnærandi og endurnýjandi krem sem inniheldur þykkni úr „ofurávöxtum“ eins og trönuberjum og rambútanlaufum sem stuðla að endurnýjun húðarinnar og draga úr fyrstu línum og hrukkum. Kremið þéttir og bætir teygjanleika húðarinnar með lyftandi áhrifum sem gerir hana unglegri og frísklegri. Pro-Lift Cream er öflugt djúpnærandi og endurnýjandi krem sem inniheldur þykkni úr „ofurávöxtum“ eins og trönuberjum og rambútanlaufum sem stuðla að endurnýjun húðarinnar og draga úr fyrstu línum og hrukkum. Kremið þéttir og bætir teygjanleika húðarinnar með lyftandi áhrifum sem gerir hana unglegri og frísklegri. Streita, svefnleysi og skaðleg umhverfisáhrif setja mark sitt á andlitið, en þetta er hægt að minnka sýnilega með reglulegri umönnun. Rambútanþykkni tryggir að húðin geti slakað á og náð dýrmætri endurheimt. Náttúrulegt efni úr laufum þessara gómsætu, suðrænu ávaxta dregur úr öldrun og styrkir kollagen og elastín þræði sem eykur teygjanleika húðarinnar og gerir hana unglegri. Um leið hjálpar öflugt lífrænt trönuberjapeptíð við að bæta þéttleika húðnetjunnar og draga úr línum og hrukkum. Tvíþætt hýalúrónsýra færir húðinni djúpnærandi raka og gerir hana sýnilega sléttari. Að auki er þessi fjölvirka öldrunarvarnarblanda auðguð með nauðsynlegum fitusýrum og amínósýrum sem styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar og vinna gegn ótímabærri öldrun húðarinnar. Þetta ríkulega og silkimjúka krem smýgur auðveldlega inn í húðina og færir henni mýkra og jafnara yfirlag með auknum þéttleika og lyftingu. Frábært alhliða 24.stunda krem, parast einnig fullkomnlega við Vitalizing Skin Refiner sem léttari kost á móti hvort sem er fyrir dag eða næturumhirðu. INNIHALDSEFNI Cranberry Bio Peptide: Öflugt peptíð úr trönuberjum (vaccinium macrocarpon) sem hægir á öldrunarferli; bætir þéttleika húðnetjunnar, styrkir varnir og færir húðinni aukinn ljóma Well-Ageing Rambutan: Rambútan (nephelium lappaceum) er ljúffengur hitabeltisávöxtur sem vex í Malasíu og víða í flestum löndum Suðaustur-Asíu. Þessi ofurávöxtur hefur endurnærandi og betrumbætandi áhrif á húðina og er auðugur af andoxunarefnum og steinefnum. Well-Aging Rambutan er virkt innihaldsefni í formi þykknis úr laufum rambútanrunnans; dregur sýnilega úr hrukkum; bætir teygjanleika húðarinnar og gerir hana unglegri SLM-endurvaki:Inniheldur mjög öflug fosfórlípíð og er með þynnubyggingu sem er mjög lík byggingu fitusýrusamsetningu í hornlagi/varnarhjúp húðarinnar. Með þessari viðbót endurheimtir húðin styrk og eflir varnarhjúp sinn enn frekar. Amíno Acid Complex: Rakagefandi blanda sem inniheldur náttúrulega rakaþætti húðarinnar(NMF), sem eykur rakastig og styrkir varnarhjúp. Hýalúrónsýra (löng og stutt keðja): Húðin verður strax sléttari og raki eykst, sem dregur úr yfirborðslínum vegna þurrks Squalane: Squalane bindur raka, gerir húðina teygjanlegri, styrkir varnir hennar og dregur úr hrukkum og fínum línum    
Go to Top