• Fullkomið húðumhirðusett fyrir allar húðgerðir með hreinum raka! Þessi pakki er frábært val fyrir yngri húðgerðir líka. Settið samanstendur af þremur sérvöldum vörum úr Dry Skin vörulínu Janssen Cosmetics allar með djúpvirkandi rakagefandi og nærandi eiginleikum.

    Settið iniheldur serum, dag- og næturkrem og kemur með fallegum kaupauka, vandaðri snyrtitösku frá Janssen Cosmetics.

    Ríkuleg rakagjöf endurlífgar húðina og veitir þurri húð samstundis létti, aukna mýkt og frísklegan húðljóma. Nærandi formúlurnar umvefja húðina vellíðan með langvarandi virkni og endingu.

    Settið kemur í fallegum gjafapoka og inniheldur 1x Deep Xpress Moist Serum 30ml, 1x Super Hydrating Cream 30ml & 1x Hyaluron3 Replenish Cream 30ml ásamt aukagjöf, vandaðri snyrtitösku frá Janssen Cosmetics. Deep Xpress Moist Serum inniheldur háþróaða Hydro Express Complex formúlu sem myndar ósýnilegt en jafnframt sterkt og ótrúlega virkt net virkra efna sem sameinast í efstu lögum húðarinnar og gefa húðinni jafnt og þétt skammta af raka og næringu með virkni sem endist í allt að 5 daga frá síðustu ásetningu. Þannig viðheldur húðin auknu rakamagni, mýkt og fyllingu og öðlast einstaka frumuvernd gegn umhverfisáhrifum svo sem veðurfarsbreytingum og öðru sem valda rakatapi húðarinnar. Ultra létt formúlan smýgur hratt niður húðlögin og skotstundu með samstundis kælandi og frískandi áhrifum þar sem þú bókstaflega finnur húðina taka við sér. Super Hydrating Cream er mjúkt og einstaklega rakagefandi krem sem gefur rakaþurrum húðgerðum hámarks virkni af næringarríkum innihaldsefnum sem auka þéttleika og gera yfirborð húðarinnar slétt og silkimjúkt. Allar húðgerðir þurfa raka til að viðhalda fyllingu og heilbrigði húðar, Super Hydrating Cream er hið fullkomna rakakrem fyrir allar húðgerðir til að gefa húðinni daglega næringu og auka rakamagn sem veitir vörn gegn ytra áreiti og ótímabærri öldrun húðarinnar. Kremið veitir djúpa rakagjöf niður í neðstu húðlög og fyllir húðina af raka líkt og þegar þurr svampur kemst í snertingu við vatn með sérþróaðri tækni þar sem krosstengdar samsetningar af Hyaluronic sýru mynda einskonar raka-net í húðinni með “plumping” áhrifum. Hyaluron3 Replenish Cream er einstaklega næringarríkt og baðar húðina uppúr náttúrulegum gersemum á borð við hreina Avocado Olíu og Plöntuþykkni úr Hvítum Lúpínum verndar einnig frumunar fyrir skaðlegum áhrifum sindurefna og ótímabærri öldrun með andoxandi eiginleikum frá E-Vítamíni, samsetning þessa lykil efna sér um að veita húðinni djúpan raka, bæta starfsemi og þannig styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar bæði sem 24stunda- eða næturkrem eftir þörfum húðarinnar.
  • Sale!

    Ampoule Advent Calendar 2025

    Original price was: 12.500 kr..Current price is: 10.500 kr..
    24-daga einstök húðmeðferð sem fær húðina til þess að geisla af ljóma og orku! Aðventan er fullkominn tími til að dekra við húðina - dag eftir dag. Vinsæla ampúlu-dagatalið frá Janssen Cosmetics sameinar hátíðlegt yfirbragð með áhrifaríkri húðumhirðu sem gerir jólaundirbúninginn enn meira sérstakan. Bak við hvern glugga leynist sérvalin ampúla sem endurnærir og gefur húðinni nýjan ljóma. Ampúlunum er raðað niður eftir virkni þannig að sem bestur árangur náist og hápunkturinn bíður að sjálfsögðu á bak við 24. gluggann með tvöfaldri mini booster meðferð þar sem tvær ampúlur eru notaðar í einu sem innsiglar kúrinn og veitir sjáanlegan og áþreifanlegan árangur á sjálfan aðfangadag. Á hverju ári hefur dagatalið slegið í gegn og er orðið ómissandi hluti af jólahefð margra. Það er fullkomin gjöf - hvort sem þú vilt gleðja aðra eða leyfa þér gulltryggð lúxus augnablik í annasömum desember. Fylgdu Janssen Cosmetics á Íslandi á Instagram fyrir meiri fróðleik og virkni um vörunar og vertu með okkur í uppáhalds ampúlukúr ársins byrjum 1.des!
  • Orkumikil, djúpvirk meðferð sem gefur húðinni frísklegra og líflegra yfirbragð

    Einstaklega áhrifaríkt og endurlífgandi tvíeyki fyrir hámarks orku og ferskleika húðarinnar! Lúxus samsetning með kavíarþykkni, hýalúrónsýru og sjávarplöntuþykkni örvar frumuendurnýjun, styður við náttúrulegt endurnýjunarferli húðarinnar og vinnur gegn ótímabærum öldrunareinkennum.

    Kemur í fallegum gjafapoka og með kaupauka, glæsileg og vönduð Janssen Cosmetics snyrtitaska fylgir öllum Caviar Luxury jólatilboðum í ár! Inniheldur 1stk. Caviar Luxury Cream 50ml & 7stk. ENERGY Caviar Extract Ampúlur Úrvals samsetning sérvalinna innihaldsefna og silkimjúk áferð eru einkennandi fyrir Caviar Luxury. Náttúrulegt endurnýjunarferli húðarinnar fær aukna orku með djúpnærandi áhrifum þar sem húðin er mettuð af ríkulegum skammti bæði af steinefnum, vítamínum og nauðsynlegum aminosýrum sem vernda húðina gegn sindurefnum. Caviar ampúlunar gefa húðinni sannkallað orkuskot með hámarks skammti af virkum efnum í hverri ampúlu og harmónerar fullkomnlega með silkimjúka Caviar kreminu sem hefur að auki einstaklega sefandi eiginleika og veitir húðinni ferska og notalega tilfinningu. Frábært fyrir húð sem er byrjuð að eldast og vantar aukna orku og húðljóma, hentar einnig viðkvæmari húðgerðum. Útkoman er dásamlega mjúk, sjáanlega sléttari og orkumeiri húð!
  • Tímalaus fegurð í þínum höndum!

    Byltingarkennd formúla Epigenetic Serum sameinar krafta sína við endurbætta formúlu Pro Lift Cream í öflugu tvíeyki sem vinnur djúpt í neðstu húðlögum með háþróaðri epigenetískri tækni á frumustigi húðarinnar. Viðgerðarferli og varnarviðbragð húðfrumna er glætt nýrri orku sem styrkir mótstöðuafl og eykur lífsþrótt sem skilar af sér lengri líftíma húðfrumna. Við það fær húðin aukna seiglu sem hægir á náttúrulegu öldrunarferli og hrörnun líkt og tíminn standi í stað! Kemur í fallegum gjafapoka og með kaupauka, glæsileg og vönduð Janssen Cosmetics snyrtitaska fylgir öllum Epigenetic Power Duo jólatilboðum í ár! Inniheldur 1x Epigenetic Serum 10ml & 1x Pro Lift Cream 50ml Epigenetic Serum hægir sýnilega á öldrunarferli húðarinnar með epigenetískri tækni á frumustigi, fyrirbyggir ótímabæra öldrun, dregur sýnilega úr hrukkum/línum í húðinni, eykur náttúrulegar varnir fyrir sindurefnum og niðurbroti og varðveitir hraustleika og unglegan ljóma húðarinnar.
    Virk innihaldsefni:
    · Epigenetic agent: Pot marigold (calendula officinalis) Plöntuþykkni; Einstaklega ríkt af oligosaccharides sem eru náttúrulegar fjölsykrur með tvennskonar áhrif á utanaðkomandi áreiti á húðfrumur. Virka bæði sem viðgerð á þegar laskaðar frumur og sem varnarhjúpur gegn óæskilegum sindurefnum og hrörnunar húðfrumna.
    · Long-chain hyaluronic acid: Langar keðjur af Hyaluron Sýru liggja eftir í efri lögum húðarinnar og mynda rakabindandi varnarfilmu á yfirborði húðarinnar og sporna gegn rakatapi og línum af völdum yfirborðsþurrks.
    · Short-chain hyaluronic acid: Stuttar keðjur af Hyaluron Sýru síast niður í neðri húðlögin og auka á náttúrulegar rakabirgðir húðarinnar sem gefur henni aukna fyllingu og unglegra yfirbragð.
    · Saccharide isomerate: Náttúrulegar sykrur sem tengjast og binda sig við náttúrulegt keratin húðarinnar líkt og segull og veitir húðinni næringu og mýkt.
    Pro Lift Cream er öflugt djúpnærandi og endurnýjandi krem með endurbættri formúlu úr Demanding Skin vörulínu Janssen Cosmetics. Inniheldur þykkni úr „ofurávöxtum“ eins og trönuberjum og rambútanlaufum sem örva endurnýjun húðarinnar og draga úr línum og hrukkum. Kremið þéttir og bætir teygjanleika húðarinnar með lyftandi áhrifum sem gerir hana unglegri og frísklegri. Streita, svefnleysi og skaðleg umhverfisáhrif setja mark sitt á andlitið, en þetta er hægt að minnka sýnilega með reglulegri umönnun. Rambútanþykkni tryggir að húðin geti slakað á og náð dýrmætri endurheimt. Náttúrulegt efni úr laufum þessara gómsætu, suðrænu ávaxta dregur úr öldrun og styrkir kollagen og elastín þræði sem eykur teygjanleika húðarinnar og gerir hana unglegri. Um leið hjálpar öflugt lífrænt trönuberjapeptíð við að bæta þéttleika húðnetjunnar og draga úr línum og hrukkum. Tvíþætt hýalúrónsýra færir húðinni djúpnærandi raka og gerir hana sýnilega sléttari. Að auki er þessi fjölvirka öldrunarvarnarblanda auðguð með nauðsynlegum fitusýrum og amínósýrum sem styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar og vinna gegn ótímabærri öldrun húðarinnar. Þetta ríkulega og silkimjúka krem smýgur auðveldlega inn í húðina og færir henni mýkra og jafnara yfirlag með auknum þéttleika og lyftingu. Húðin fær aukinn kraft aukna mýkt og unglegan ljóma.
  • Fullkomið duo fyrir ljómandi húð! Nú á frábæru tilboði saman með glæsilegum kaupauka, vönduð og rúmgóð Janssen Cosmetics taska með rennilás fylgir með ásamt demants vasaspegli. Spegillinn er tvískiptur með stækkun á annari hliðinni. Magic Glow Serum og Sensational Glow Cream gefa húđinni dásamlega rakafyllingu og highlight glampa án þess ađ húđin glansi eđa virki olíukennd, hlaðið næringaríkum efnum eins og þara extrakti úr Indverska hafinu sem hefur sannað virkni á aukna húðendurnýjun og aukinn ljóma húðarinnar. ☆Magic Glow Serum létt og rakagefandi serum með highlight áhrifum sem gefa húðinni perlukenndan glampa, má einnig nota staðbundið yfir krem eða farða fyrir enn meiri highlight áhrif. Húðin fær dásamlegan raka og næringu og inniheldur m.a. næringarríkan þara úr Indverska hafinu sem hefur sannað 28% aukningu á ljóma húðarinnar á 28 dögum með aukinni rakafyllingu og þéttleika. ☆Sensational Glow Cream hefur flauelsmjúka áferđ og gefur húđinni djúpvirkandi næringu og ljóma. Kremið inniheldur náttúruleg virk efni eins og koffín sem örvar blóđrás húđarinnar á mildan hátt og betrumbætir þannig starfsemi húđarinnar og gerir hana móttækilegri fyrir virkum innihaldsefnum, Glow kremið inniheldur einnig eins og serumið þara úr Indverska hafinu og gefur húđinni fallega og slèttari áferð með einstökum húðljóma.
  • Hreinn lúxús með dýrmætu kollageni í glæsilegri gjafaöskju fyrir jólin!

    Öflug innihaldsefni í hámarksgæðum! Háárangursríkt húðumhirðu tvíeyki með Marine Collagen Fluid og lúxus Marine Collagen Cream sem byggir á sjávar­kollageni, hýalúrónsýru og granatepla extract. Útkoman er áhrifarík: húðin verður sjáanlega sléttari, stinnari og fær dásamlegan ljóma!

    Inniheldur 1x Marine Collagen Cream 50ml & 7stk ACTIVATE Marine Collagen Fluid Ampúlur, vönduð Janssen Cosmetics snyrtitaska fylgir með öllum Marine Selection gjafasettum í kaupauka fyrir jólin!
    Þéttandi og lyftandi formúlur einkenna virkni í þessum vörum 24stunda krem og ampúlur með hreinu sjávarkollageni og kollagen-booster sem vinnur gegn kollagen niðurbroti húðarinnar og eykur þéttleika með lyftandi áhrifum. Með reglulegri noktun getur húðin þrefaldað náttúrulegar kollagen birgðir sínar, sem eykur styrkleika, hald og lyftingu í húð sem er byrjuð að missa teygjanleika, varðveitir rakafyllingu og gefur húðinni ferskara og líflegra yfirbragð. -Virk innihaldsefni: *Marine Collagen (Sjávarkollagen): hefur lyftandi eiginlega á húðina og myndar varnarfilmu í efstu húðlögum sem bindur raka og eykur fyllingu húðarinnar með sléttandi áhrifum. *Pomegranate blóma þykkni og C vítamín virkja og styðja við aukna náttúrulega kollagen framleiðslu húðarinnar með andoxandi eiginleikum sem spornar gegn niðurbroti kollagenþráða og ótímabærri öldrun húðarinnar af völdum sindurefna (free radicals). -Til viðbótar fær húðin dásamlega mýkt og rakafyllingu með löngum keðjum af Hyaluronic sýru og nærandi Makadamíu olíu og frumuverndandi “anti aging” eiginleika E vítamíns. Hentar þurrum/rakaþurrum húðgerðum sem vantar aukinn þéttleika og fyllingu með lyftandi áhrifum og líflegum húðljóma. Fullkomið krem yfir veturinn!
  • Nærandi og mýkjandi varanæring, fullkomin gjöf sem slær í gegn yfir kuldatímann!

    Hágæða silkimjúk formúla sem verndar og nærir þurrar varir yfir vetrartímann. Inniheldur næringarríkar olíur á borð við castor olíu, möndluolíu og verndandi shea­smjör, náttúrulegt bývax, carnauba-vax og candelilla-vax sem gefa vörunum silkimjúka áferð og veita fullkomna vörn gegn kulda. Varinar verða silkimjúkar og vel nærðar!

    Frábær gjafahugmynd sem hentar öllum, hvort sem er augagjöf til að bæta við jólapakkann eða sem lítil gjöf á litlu jólum vinahópsins eða vinnustaðarins.

  • Fallegt gjafasett úr Platinum vörulínu Janssen Cosmetics á einstöku gjafatilboði! Inniheldur hágæða Platinum Eye Care 15ml og 7stk Brilliance Shine Elixir ampúlur. Inniheldur sérþróaða Platinum MP Complex formúlu með peptíðblöndu sem fyllir uppí línur með einstakri virkni og hindrar niðurbrot kollagenþráða, verndar og hægir á öldrunarferli húðarinnar. Einstök virkni þar sem árángurinn er sléttari áferð í  kringum augun og  bjartara yfirbragð með auknum þéttleika.
  • Fallegt gjafasett úr Platinum vörulínu Janssen Cosmetics á einstöku gjafatilboði! Inniheldur hágæða Platinum Eye Care 15ml og 7stk Brilliance Shine Elixir ampúlur. Inniheldur sérþróaða Platinum MP Complex formúlu með peptíðblöndu sem fyllir uppí línur með einstakri virkni og hindrar niðurbrot kollagenþráða, verndar og hægir á öldrunarferli húðarinnar. Einstök virkni þar sem árángurinn er sléttari áferð í  kringum augun og  bjartara yfirbragð með auknum þéttleika.
  • Öflug cosmeceutical virkni og kraftur fyrir þroskaða húð!

    Þéttir, lyftir og sléttir: Þetta háárangursríka húðumhirðu tvíeyki er sérhannað fyrir þroskaða húð og tryggir sjáanlega þéttari og stinnari andlitsdrætti.

    Húðin fær aukinn lífsþrótt og styrk með djúpvirkandi endurnýjun sem gefur henni jafnari og sléttari áferð með óviðjafnanlegum ljóma.

    Kemur í fallegum gjafapoka og með kaupauka, glæsileg og vönduð Janssen Cosmetics snyrtitaska fylgir öllum Sensational Flawless jólatilboðum í ár! Inniheldur 1x Skin Contour Cream 50ml & 7stk. FLAWLESS Skin Contour Fluid Ampúlur FlAWLESS Ampúlunar veita húðinni hámarks skammt af virkum efnum og gefa áhrifaríka meðhöndlun með elastin örvandi peptíðum og virkum plöntuefnum sem bæði styrkja og lyfta upp slökum húðvefum með sýnilegum árangri. Húðin  fær aukna rakafyllingu og næringu frá neðstu húðlögum sem sléttir úr og fyllir uppí línur á yfirborðinu með sýnilegum árángri. Nýstárlegt plöntuþykkni úr Sigesbeckia orientalis og Rabdosia rubescens hefur andoxandi áhrif, dregur úr litabreytingum og tryggir jafnt og stinnara yfirbragð húðarinnar. Skin Contour Cream er silkimjúkt og djúpnærandi andlitskrem sem vinnur markvisst gegn þyngdarlögmálinu um öldrun húðarinnar og hefur sérstaklega þéttandi og styrkjandi áhrif á slaka húðvefi þar sem elastin örvandi peptíð og japanskt silki gera við og bæta elastin þræði húðarinnar og toga upp slaka húðvefi og betrumbæta húðstrúktur. Djúpvirkandi formúlan lífgar uppá þreytta húðvefi frá innstu húðlögum og endurvekur náttúrulegan og unglegan ljóma húðarinnar með sýnilegum árángri. Húðin öðlast aukna mýkt og fyllingu með sléttara yfirbragði og frískandi húðljóma.
Go to Top