-
Augnkrem með ríkulegu magni af Skin Defense Complex sem gefur góða næringu og raka með græðandi eiginleikum fyrir viðkvæmni, exemgjarni og þurri húð í kringum augnsvæðið með langavarandi kælandi áhrifum. Inniheldur einnig Hyaluronic Sýru og Saccharide Isomerate með djúpnærandi eiginleikum sem fylla uppí og slétta linur í kringum augum vegna yfirborðsþurrks og gefa þannig augnsvæðinu aukna lyftingu. Vinnur á bólgum og dökkum baugum með lífrænt ræktaðri jurt: Eyebright sem gefur augnsvæðinu eins og nafnið gefur til kynna bjartara yfirlit. -
Dagleg meðferð við háræðaslitum og rósroða. Létt en öflug formúla þéttir og styrkir blóðæðaveggi húðarinnar sem dregur úr hita og ertingu í húðinni. Inniheldur RSC-Neutralizer sem minnkar sýnilega roða í húð og dregur úr einkennum rósroða. Með reglulegri noktun dregur sjáanlega úr æðaslitum og háræðanet húðarinnar styrkist með fyrirbyggjandi og verndandi eiginlegum. Betrumbætir áferð rósroða húðar með auknu rakajafnvægi, sléttandi og mýkjandi áhrifum. -
S.O.S viðgerðarmaski sem hefur eins og nafnið gefur til kynna samstundis kælandi áhrif, minnkar bólgu, roða og róar niður alla ertingu og hitatilfinningu í húðinni á sem skemmstum tíma sem mögulegt er! Eftir aðeins 5mín hefur dregið sýnilega úr roða og viðnám húðarinnar betrumbæst með Fucogel® sem hefur samstundis sefandi áhrif og kælir niður húðina. Næringarrík formúla smýgur hratt niður og hleður húðlögin af raka sem gefa henni aukna fyllingu og sléttari áferð og Skin Defense Complex+ styrkir viðkvæmt háræðanet húðarinnar með græðandi eiginleikum sem draga úr viðkvæmni. Hraðvirkandi og áhrifarík virkni gefa húðinni aukinn húðljóma og silkimjúka áferð -
Frábært 24-stunda krem fyrir viðkvæmar og/eða þurrar húðgerðir þar sem herpingstilfinning og pirringur í húðinni hverfur samstundis með kælandi og frísklegum áhrifum um leið og kremið er borið á. Rakamikið og djúpnærandi krem með Skin Defence Complex náttúrulegu plöntuþykkni sem styrkir varnarkerfi húðarinnar og verndar viðkvæmt háræðanetið fyrir utanaðkomandi áreiti. Kremið smýgur hratt niður á milli húðlaga og gefur einstaka mýkt og fyllingu án þess að yfirborð húðarinnar verði fitugt. Húðin fær hraustlegra yfirbragð og húðlitur verður jafnari, verndandi virkni og alhliða betrumbætandi áhrif á húðina. -
Intense Calming Lotion er létt kremformúla fyrir viðkvæma húð, frábært fyrir yngri húðgerðir eða þá sem vilja léttari krem. Djúpvirkandi 24stunda formúla sem bæði verndar húðina á daginn og stuðlar að bættri endurnýjun á nóttunni. Fyrir enn betri virkni og árangur Intense Calming Lotion notið samhliða Intense Calming Serum. -
Öflugt viðgerðar-serum fyrir viðkvæmar húðgerðir sem styrkir náttúrulegt varnarlag og kemur jafnvægi á húðina. Sérþróuð Skin Defence Complex+ formúla Janssen Cosmetics hefur breiðvirk græðandi áhrif t.d. á exem og ofnæmisgjarna húð, rósroða, háræðaslit og acne. Dregur úr hitatilfinningu, kláða, ertingu og minnkar sjáanlega roða og styrkir viðkvæmt háræðanet húðarinnar. Létt formúlan smýgur hratt niður í húðina eykur rakamagn og mýkt húðarinnar þannig að áferðin verður flauelsmjúk. -
Róandi sérumhirða fyrir mjög þurra, viðkvæma og kláðagjarna húð
Neuro Skin Balm er sérstaklega þróað fyrir viðkvæma, exemgjarna húð sem á það til að mynda þurra, ertandi og kláðagjarna bletti. Slík húð þarfnast mildrar en áhrifaríkrar umhirðu sem hjálpar til við að róa óþægindi, draga úr þurrki og styrkja náttúrulegan varnarhjúp húðarinnar. Viðvarandi kláði getur skapað vítahring þar sem klór eykur ertingu og gerir húðina enn viðkvæmari. Með tímanum getur húðin orðið grófari og þykkari á þeim svæðum sem verða fyrir endurteknu klóri. Neuro Skin Balm veitir markvissa umhirðu fyrir þessi viðkvæmu húðsvæði. Róandi formúlan hjálpar til við að draga úr kláða, roða og ertingu ásamt því að næra húðina og veita henni aukna vellíðan. Með reglulegri notkun hjálpar Neuro Skin Balm til við að styrkja varnarhjúp húðarinnar, viðhalda raka og draga úr þurrki sem getur ýtt undir ertingu og kláða. Árangurinn er rólegri, mýkri og betur varin húð með minni óþægindum og aukinni vellíðan. -
Mild p-H neutral hreinsifroða án allra rotvarna eða skaðlegra aukaefna. Létt froðan flæðir um yfirborð húðarinnar og dregur samstundis úr allri ertingu eða pirring í húðinni með kælandi áhrifum, inniheldur allantoin sem dregur sýnilega úr roða og sefar viðkvæma húð. Noktun: Hristið og notið 2 til 3 pumpur af froðunni, dreifið jafnt yfir andlit og háls með hringlaga hreyfingum og skolið af með volgu vatni. Ljúkið hreinsun með Soft Soothing Tonic/andlitsvatni til að auka virkni og fullkomna hreinsun húðar. -
Sérhannað andlitsvatn fyrir viðkvæma húð dregur samstundis úr roða, ertingu og minnkar hitatilfinningu með einstaklega kælandi og sefandi áhrifum. Soft Soothing Tonic er alkahólfrítt og inniheldur Skin Defense Complex+ sem styrkir háræðanar með langvarandi áhrifum. Noktun: Strjúkið yfir með bómullarskífu á hreina húð yfir andlit og háls.