• AHA + BHA Exfoliator er djúphreinsandi ávaxtasýru gel með einstaka og áhrifamikla virkni fyrir olíukennda, bólugjarna og acne húðgerðir. Gelið inniheldur hátt hlutfall af sérvalinni blöndu af fjórum ávaxtasýrum (AHA) glycolic, malic, citric og tartaric sem og hreinni (BHA) salicylic sýru sem leysa upp og fjarlægja dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar og losa um stíflur í húðholum á áhrifaríkan hátt með bakteríudrepandi og bólgueyðandi áhrifum frá salicylic sýrunni. AHA + BHA Exfoliator er þó ekki einungis bara frábær vara í baráttunni gegn bólum þar sem ávaxtasýrunar hafa breiðvirk áhrif á húðina og virkjar lúnar húðfrumur og náttúrulegt endurnýjunarferli, þar á meðal eykst nýmyndun kollagens sem viðheldur og eykur þéttleika húðarinnar. Með reglulegri noktun verður yfirborð húðarinnar sléttara, fínar línur, hrukkur og opnar húðholur dragast saman og minnka með sjánlegum árangri auk þess sem litabreytingar/elliblettir og dökkir blettir vegna sólarskemmda lýsast eða hverfa alveg. NB. AHA + BHA Exfoliator kemur í tveimur mismunandi styrkleikum annarsvegar 30% AHA+BHA styrkleika í stofuvöru og 20% AHA+BHA styrkleika í söluvöru.
  • Korna-djúphreinsir með tvöfalda virkni, inniheldur  einnig citric og glycolic sýru fyrir enn betri húðflögnun og bjartara útlit.
    Smyrjið meðalþunnu lagi yfir andlit, háls og bringusvæði leyfið kreminu að liggja og vinna á húðinni í 3 til 5 min.
    Nuddið yfir með hringlaga hreyfingum og látið kornin vinna á húðinni í 2-3min þannig næst hámarks húðflögnun.
    Sýrunar losa um tengsl dauðra húðfruma á yfirborði húðarinnar þannig ná kornin að hreinsa enn betur dauðar húðfrumur og örva náttúrulega starfsemi húðarinnar.
    Stuðlar að jafnari húðlit og bjartara yfirbragði með auknum húðljóma.
  • Enzyme Peeling Powder losar um dauðar húðfrumur og umfram húðfitu af yfirborði húðarinnar á áhrifaríkan en jafnframt mildan hátt við djúphreinsun á yfirborðs viðkvæmum og Acne húðgerðum. Fínmalað púðrið myndar létta froðu þegar það er blandað við vatn og virkjar um leið Ensím sem vinna hörðum höndum á yfirborði húðarinnar við að brjóta niður keratin prótín og losa þannig dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar á áhrifaríkann hátt án þess að erta yfirborð húðarinnar. Húðin nær að losa um óhreinindi og umfram húðfitu með mattandi áhrifum frá Silica kísil sem stuðlar að auknu jafnvægi fituframleiðslu og heilbrigði húðarinnar. Noktun: Blandið c.a. teskeið af púðri við vatn og myndið létta froðu, dreifið jafnt yfir andlit og háls og nuddið létt yfir með hringlaga hreyfingum í c.a. 5min, leyfið síðan að liggja á húðinni í 3min og hreinsið af með volgu þvottastykki.
  • Orkugefandi kornakrem fyrir þurra, þreytta, líflausa og grófar húðgerðir. Hreinsar dauðar húðfrumur og óhreinindi af yfirborði húðar á árángursríkann hátt. Endurlífgar starfsemi húðarinnar og eykur blóðflæði með örvandi áhrifum, húðin verður flauelsmjúk og geislar af orku. Nuddið yfir andlitið með hringlaga hreyfingum þangað til kremið er orðið olíukennt. Helstu innihaldsefni : Fínmalaðir ferskjukjarnar, Makadamíuolía
  • Milt djúphreinsandi kornakrem með nærandi eiginleikum. Næringarríkt og flauelsmjúkt kornakrem með kornum úr Jojoba sem hreinsa burt dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar, við hreinsun bráðna Jojoba kornin á yfirborði húðarinnar og gefa húðinni dásamlega mýkt og næringu ásamt verndandi Avocado olíu, A og E vitamíni.
  • Öflugt djúphreinsigel með virkum Enzymes sem losa um og hreinsa burt dauðar húðfrumur á yfirborði húðarinnar á mildan en áhrifaríkan hátt. Með reglulegri noktun verður yfirborð húðarinnar sléttara og náttúruleg húðendurnýjun eykst sem styður við aukna frumustarfsemi og heilbrigðri húðarinnar. Inniheldur engar olíur eða stíflandi efni og er því afar hentugt sem undirbúningur fyrir virkar húðmeðferðir. Frábær kostur fyrir allar húðgerðir líka viðkvæma og acne húð. Helstu innihaldsefni : Subtilisin(enzim) Tip : Smyrjið þunnu lagi á húðina undir maska eða krem, enzímin greiða leiðina fyrir virk efni lengst niður húðlögin.
Go to Top