-
Bi-Phase Skin Recovery ampúlan er djúpnærandi 2-fasa ampúla sem tryggir húðinni einstaka næringu og rakagjöf með tvíþættri virkni olíufasa og rakafasa. Olíufasi ampúlunnar er úr vönduðum blóma- og plöntuolíum og rakafasi ampúlunnar samanstendur af hýalúrónsýru og endurnýjandi runnasmárakjarna fyrir geislandi yfirbragð og endurnærða húð eftir hverja noktun. -
Orkugefandi og kælandi augnrollon fyrir herra, sérhönnuð formúla fyrir augnsvæðið sem dregur samstundis úr þreytumerkjum, dökkum baugum og bólgum í kringum augun með sýnilegum áhrifum. Smýgur fljótt niður í húðina með kælandi og frískandi áhrifum, sléttir úr fínum línum og veitir augnsvæðinu einstaka rakagjöf og næringu. -
Pro-Youth 7 daga ampúlukúr frá Janssen Cosmetics er háþróaður 7 daga meðferðarpakki með sérvöldum ampúlum sem auka endurnýjun húðar, styrkja húðvefi og gefa húðinni frísklegan ljóma allt frá fyrsta degi. Hver dagur meðferðarinnar inniheldur sértæka ampúlu með virkum innihaldsefnum sem vinna frá neðstu húðlögum að því að bæta áferð húðarinnar, auka rakafyllingu og draga úr þreytu og öldrunarmerkjum. -
Roll-On fyrir augun sem dregur samstundis úr þreytumerkjum með kælandi stálkúlu á endanum sem gefur raka og með koffíni sem frískar sýnilega uppá augnsvæðið!Með einstaklega sléttandi áhrifum og fyrirbyggir ótímabæra öldrun, hrukkur og línur í kringum augun.Samspil innihaldsefna m.a. koffín og sérþróuð anti-wrinkle peptíðblanda ásamt Silk Acacia þykkni draga sýnilega úr dökkum baugum og bólgum “puffiness” í kringum augnsvæði og vinna saman með einstökum áhrifum þegar formúlan er borin á með roll-on stálkúlu sem örvar sogæðahreinsun og veitir vellíðunar tilfinningu með kælandi áhrifum.Algjör draumur fyrir þreytt augu á morgnanna! -
Létt alhliða sólarvarnar-serum með SPF 30 og IR frumuvernd fyrir daglega noktun, hentar öllum húðgerðum. Svipað og útfjólubláir geislar valda innrauðir geislar sólarinnar einnig ótímabærri öldrun húðarinnar og geta leitt til óæskilegra húðskemmda síðar meir. Húðin í andlitinu er hvað mest berskjölduð fyrir geislum sólarinnar og er því ekki síður mikilvægt eins og að veita henni vörn gegn UVA og UVB geislum að tryggja húðinni þar einnig skilvirka hitavörn gegn IR geislum. -
Hver ampúla inniheldur hágæða efni í sínu hreinasta formi án allra aukaefna með hámarksvirkni á húð, öflug meðferð gegn djúpum línum/hrukkum og gefur samstundis lyftingu og aukinn þéttleika með Instensyl® 3-D Express Lifting tækni þar sem náttúrulegar sykrur tengjast á yfirborði húðarinnar og mynda á örskömmum tíma fjaðurkennt net sem togar upp slaka húðvefi með einstaklega þéttandi áhrifum.Inniheldur einnig Gatuline® lífrænt efni sem dregur saman og minnkar djúpar línur/hrukkur, eykur þéttleika, styrk og hægir á öldrunarferli húðarinnar með áberandi árángri!Húðin verður sýnilega þéttari og bjartari yfirlitum og endurheimtir teygjanleika og styrk með sýnilega lyftandi áhrifum. -
Stem Cell ampúlan frá Janssen er alveg einstök en hún inniheldur Epla-stofnfrumur úr sjaldgæfu svissnesku eplatré "Uttwiler Spätlauber" en þær líkjast og hafa sömu eiginleika og stofnfrumur manna. Húðin tekur vel á móti þessum merkilegu stofnfrumum og örvar sína eigin frumuskiptingu og framleiðir þar af leiðandi meira kollagen og eflir nýmyndun húðarinnar, húðin öðlast betri rakafyllingu og fær aukinn kraft og hægjir á náttúruleg öldrunarferli með hjálp frá Stem Cell Fluid. Árangurinn er aukin endurnýjun og bætt starfsemi húðar, sléttir úr fínum línum og grynnkar á hrukkum sannkallað orkuskot fyrir húðina! *Til gaman má geta þess að Svissneska Eplatréð "Uttwiler Spätlauber" er þekkt fyrir einstaklega stökk og bragðgóð epli sem þóttu haldast fersk mun lengur en önnur epli, vísindamönnum þótti þetta afar merkilegt og hófu rannsóknarvinnu og fundu út þessi einstöku tengsl og miklu virkni á húð manna. -
FLAWLESS ampúla Janssen Cosmetics gefur húðinni aukna lyftingu og þèttleika með ESP - elastin-stimulating peptides. Elastin örvandi peptíð styrkja og efla náttúrulega elastin þræði húðarinnar og auka þannig tog og þéttleika húðarinnar með lyftandi áhrifum. Inniheldur einnig SORR Plant Extract sem hefur sefandi áhrif og stuðlar að jafnari húðtón og auknum húðljóma. -
Multi Action Cleansing Balm fullkomnar hreinsun húðarinnar með margföldu notagildi. Hefur dúnmjúka kremkennda áferð sem umbreytist í næringarríka olíu þegar húðin er nudduð fjarlægir þannig allan farða, óhreinindi ásamt því að veita djúpa næringu og raka. Það þarf aðeins örlítið magn eða dropa á stærð við heslinetu þar sem magnið margfaldast þegar það er nuddað í húðina. Hér er engin sápa á ferðinni heldur sjá næringarríkar olíur um að leysa af öll óhreinindi af yfirborði húðarinnar og fyrir þurra húð eða húð sem vantar meiri raka og fyllingu er einnig hægt að nota Multi Action Balm sem næringanríkan maska eða næturkrem. Murumuru smjör, kvöldrósarolía og E – vitamin veita næringu í dýpstu lög húðarinnar og hafa einstaklega andoxandi áhrif og styrkja ytri varnir húðarinnar. Noktun: -Fyrir hreinsun húðarinnar pumpið á fingurgómanna og nuddið yfir andlit með hringlaga hreyfingum þar til olíukennt, hreinsið af með volgu vatni og þvottapoka. Frábær farðahreinsir og augnfarðahreinsir leysir upp vatnsheldan farða og maskara. - Sem maska berið meðal-þunnt lag á húðina, látið liggja á í 15 til 20 min, nuddið umfram olíum létt í húðina og hreinsið síðan af með heitu vatni og þvottastykki. -Sem næturkrem berið þunnt lag á húðina, dampið aðeins yfir með fingrum og látið liggja á yfir nótt. Einnig er Multi action balm fullkomin næring á þráláta þurrkublætti, berið staðbundið á þurrkublett á undan öðru kremi. Innih. Murumuru smjör, Aprikósuolíu, Kvöldrósarolíu, E – vitamin og Hindberjaþykkni. -
CBD Calming Fluid ampúlan er áhrifarík meðferð gegn hverskonar húðertingu, roða eða viðkvæmni. Ampúlan samanstendur af CBD-olíu og trufflusveppum sem saman með einstakri virkni róa ertingu og roða í húð ásamt því að styrkja náttúrulegt varnarlag og auka viðnám húðarinnar. Ampúlan inniheldur einnig tvíþætta hýalúrónsýru og aloe vera sem veita húðinni djúpvirkandi raka og næringu. CBD (kannabídíól) er vinsælt virkt innihaldsefni sem er unnið úr hampjurtinni og býr yfir einstökum eiginleikum og heilandi áhrifum á húðina. Kannabídíól (sem hefur ekki hugbreytandi áhrif) er þekkt fyrir að hafa sefandi áhrif á hitatilfinningu, roða eða hverskonar húðertingu og er frábær til meðhöndlunar á viðkvæmri húð. Til viðbótar við CBD olíuna inniheldur ampúlan sveppa-extract sem hefur bein áhrif á taugaenda húðarinnar með því að hamla virkni ákveðinna sársaukanema á yfirborði húðarinnar og dregur þannig með virkum hætti úr viðkvæmni húðarinnar. Saman með rakagefandi Hýalúrónsýru og Aloe Vera gefur CBD Calming Fluid ampúlan húðinni samstundis létti og fullkomna slökunartilfinningu. -
Flauelsmjúkt og létt litað dagkrem, kemur í einum lit með litapigmentum sem aðlagast mismunandi húðtón hjá hverjum og einum með mildum bronze áhrifum sem gera húðina enn frísklegri.
Tinted Balancing Cream er sérstaklega þróað til að mæta þörfum blandaðrar húðgerðar með tvöfaldri virkni þar sem kremið veitir bæði góða rakagjöf auk þess að stuðla að auknu jafnvægi á olíuframleiðslu húðarinnar, staðbundið allt eftir þörfum húðarinnar.
-
Marine Collagen Fluid fyrir þéttari og frísklegri húð. Inniheldur hátt hlutfall af hreinu sjávarkollageni, löngum- og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru ásamt granateplaþykkni. ACTIVATE Marine Collagen ampúlunar gefa húðinni samstundis aukinn þéttleika með langvarandi eiginleikum þar sem kollagenþræðir húðarinnar taka vel á móti aðstoð og utanaðkomandi styrk frá sjávarkollageni ampúlunnar. Hyaluronic sýran sér um að gefa húðinni aukinn raka og passar uppá að virk efni nái á áfángastað niður neðstu húðlögin. Að auki fær húðin frísklegra yfirbragð og litarhaft húðarinnar verður líflegra með öflugri andoxun frá hreinni ofurfæðu fyrir húðina úr grantateplunum. -
Lúxús Olíuhreinsir úr 100% náttúrulegum olíum með muldum gullflögum sem fær húðina til ađ glòa! Fullkominn fyrir þurrar húðgerðir sem vantar, næringu og auka orkuljóma. Hreinsar vandlega yfirborð húðarinnar og olíunar næra og mýkja upp húðina, má einnig nota á augnsvæði. Hreinsar vatnsheldan farða og maskara án vandræða og nærir húðina með ríkulegu magni af omega 3 og 6 fitusýrum og steinefnaríkum gullflögum sem fær húðina til að glóa. Innih. • Gold of Pleasure Oil: (INCI: Camelina Sativa Oil) -
Pro Glow Selection – 7 daga ampúlukúr Ljómagefandi ampúlukúr sem veitir húðinni samstundis ferskara, jafnara og geislandi yfirbragð. Pro Glow Selection er sérvalin ampúlupakki sem sameinar þrjár öflugar ampúlur í 7 daga kúr fyrir húð sem vantar aukinn ljóma, rakafyllingu og frísklegra yfirbragð. Kúrinn er hannaður til að auka ljóma og útgeislun húðarinnar með sýnilegum árangri, draga úr þreytumerkjum og gefa húðinni sléttara, stinnara og unglegra útlit. Í pakkanum eru 2 x Brilliance Shine Elixir, 2 x Marine Collagen Fluid og 3 x Radiant Skin Fluid. -
Kælandi augngel með djúpnærandi rakagefandi eiginleikum. Aqualift Eye Gel er einstaklega kælandi fyrir augnsvæðið og minnkar sýnilega þrota og þreytumerki í kringum augun og dregur úr dökkum baugum með Sensitive Complex plöntuþykkni sem inniheldur m.a. hestakastaníu og lakkrísrót sem vinna að því að styrkja örfínar blóðæðar undir augunum og draga þannig úr bláma og auka birtu undir augunum. Gelið vinnur í öllum lögum húðarinnar með einstakri samsetningu stuttra og langar keðja af Hyaluronic sýru þar sem stuttar keðjur síast niður í neðstu lög húðarinnar og binda rakamagn húðarinnar sem slétta yfirborð augnsvæðisins að innanverðu á meðan langar keðjur Hyaluron sýrunnar liggja í efri lögum húðarinnar með nærandi eiginleikum sem slétta úr þunnri húðinni í kringum augun og fylla uppí fínar línur af völdum þurrks. Gelið veitir einnig viðkvæmu augnsvæðinu vörn gegn UV geislum með Grape Stem Cell Extract sem verndar húðfrumunar fyrir skaðlegum áhrifum sólageisla og ótímabærri öldrun húðarinnar. -
Light Mattifying Cream er létt 24-stunda krem fyrir olíukenndar húðgerðir, kremið stuðlar að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar og inniheldur Silica púður sem dregur samstundis í sig umfram húðfitu á yfirborði húðarinnar og gefur henni matta og flauelsmjúka áferð. Kremið inniheldur djúpvirkandi Equal-Refining Complex sem vinnur sérstaklega að því að minnka umfang á opnum/stórum húðholum og koma jafnvægji á framleiðslu fitukirtla húðarinnar, kremið vinnur þannig úr neðri lögum húðarinnar við að jafna út umfram fituframleiðslu og fyrirbyggir þannig stíflur í húðholum og bakteríusýkingar með sjáanlegum árángri en rannsóknir hafa sýnt stórar/opnar húðholur dragast saman um allt að 16% á aðeins 28 dögum. Létt formúlan smýgur fljótt niður húðina með kælandi og sefandi áhrifum frá hreinu Aloe Vera og fyllir húðlögin af dásamlegum raka með löngum og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru sem tryggir hámarks rakagjöf og fyllir uppí fínar línur af völdum rakaþurrks og eykur mýkt húðarinnar. -
Djúphreinsandi maski með græðandi áhrifum fyrir olíukennda, bólugjarna og grófar húðgerðir með opnar/stórar húðholur. Maskinn inniheldur djúpvirkandi Equal-Refining Complex sem vinnur sérstaklega að því að minnka umfang á opnum/stórum húðholum og koma jafnvægji á framleiðslu fitukirtla húðarinnar, maskinn vinnur þannig úr neðri lögum húðarinnar við að jafna út umfram fituframleiðslu og fyrirbyggir þannig stíflur í húðholum og bakteríusýkingar. Til stuðnings á yfirborðinu dregur Kaolin í sig alla umfram húðfitu og minnkar þannig verulega olíuglans og mattar yfirborð húðarinnar. Aloe Vera og Bisabolol minnka samstundis bólgur og roða í húðinni með græðandi áhrifum sem dregur úr ertingu, hita og óþægindi í húðinni. Húðin fær samstundis létti og öðlast auka birtu og frísklegra yfirbragð. -
Augnkrem með ríkulegu magni af Skin Defense Complex sem gefur góða næringu og raka með græðandi eiginleikum fyrir viðkvæmni, exemgjarni og þurri húð í kringum augnsvæðið með langavarandi kælandi áhrifum. Inniheldur einnig Hyaluronic Sýru og Saccharide Isomerate með djúpnærandi eiginleikum sem fylla uppí og slétta linur í kringum augum vegna yfirborðsþurrks og gefa þannig augnsvæðinu aukna lyftingu. Vinnur á bólgum og dökkum baugum með lífrænt ræktaðri jurt: Eyebright sem gefur augnsvæðinu eins og nafnið gefur til kynna bjartara yfirlit. -
Dark Circle Eye Cream er sérstaklega þróað til að vinna gegn og birta upp dökka bauga í kringum augnsvæðið með sýnilegum og langavarandi áhrifum.Húðin í kringum augnsvæðið og sér í lagi undir augunum er þunn og viðkvæm og sýnir gjarnan örfínar blóðæðar í gegn sem eru gjarnan kallaðar undir daglegu tali baugar.Hversu miklir baugar þá gjarnan eftir hversu dökkir þeir virðast fer allt eftir blóðmagni í þessum örfínu blóðæðum. Svefnleysi, stress, mataræði geta haft neikvæð áhrif á blóðflæðið sem og getur einnig verið genatískt. Blóðæðar með litlu/hægu blóðflæði bera súrefnisminna blóð og verða dekkri fyrir vikið sem orsakar þennann dökka lit undir augunum sem við köllum dökka bauga.Dark Circle Eye Cream inniheldur birtu pigment sem lýsir upp og dregur samstundis úr dökkum lit undir augunum með langvarandi áhrifum um leið og kremið er borið á. Ef kremið er notað reglulega hlaðast upp þessi áhrif með hjálp frá öflugum innihaldsefnum “4-1 complex” sem samanstendur af tri-peptíðum, smáþörungum, panthenol og hyaluronic sýru sem saman örva flæði blóðæðanna, auka kollagenmyndun og lyftingu með djúpri næringu sem rakafyllir og sléttir viðkvæma húðina í kringum augun.*Eftir aðeins 7 daga eru fínar línur/hrukkur sjáanlega minni og sléttari.*Eftir aðeins 14 daga hefur dregið verulega með mælanlegum áhrifum úr dökkum baugum undir augunum. -
SPF 30 TRANSPARENT SUN SPRAY FYRIR LÍKAMA Sólarvörn er eitt það mikilvægasta sem við getum notað til þess að vernda húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar, sólarskemmdum og ótímabærri öldrun húðarinnar hvort sem er á ströndinni, skíðaferðalögum, útiveru eða daglegu amstri. Sun Protection Spray SPF 30 er létt og gegnsæ sólarvörn sem veitir hágæða vörn gegn UVA og UVB geislum og hefur verndandi eiginleika gegn sólarskemmdum með Ectoin® frumuvernd. *Kemur í handhægum sprey brúsa *Verndar húðina gegn UVA/UVB geislum og sólbruna *Létt formúlan smýgur hratt niður í húðina og skilur ekki eftir sig hvítar rákir*Húðin verður ekki klístruð eða olíukennd *Inniheldur Ectoin® sem er einstakt lífrænt efni sem smýgur niður í neðri lög húðarinnar þar sem það eflir náttúrulegar varnir húðfrumna gegn ytra áreiti eins og hita/kulda og UV geislum. Með því myndar húðin öflugri vörn gegn sólargeislum og minnkar líkunar á sólarskemmdum/litabreytingum síðar meir. *Hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmum Noktun - Hristið brúsan vel fyrir hverja noktun dreifið ríkulegi magni á húðina c.a. 30min áður en farið er í sólarljós, bætið á eftir þörfum yfir daginn til þess að viðhalda vörn sérstaklega eftir sundferðir eða hreyfingu þar sem er mikið svitnað. -
S.O.S viðgerðarmaski sem hefur eins og nafnið gefur til kynna samstundis kælandi áhrif, minnkar bólgu, roða og róar niður alla ertingu og hitatilfinningu í húðinni á sem skemmstum tíma sem mögulegt er! Eftir aðeins 5mín hefur dregið sýnilega úr roða og viðnám húðarinnar betrumbæst með Fucogel® sem hefur samstundis sefandi áhrif og kælir niður húðina. Næringarrík formúla smýgur hratt niður og hleður húðlögin af raka sem gefa henni aukna fyllingu og sléttari áferð og Skin Defense Complex+ styrkir viðkvæmt háræðanet húðarinnar með græðandi eiginleikum sem draga úr viðkvæmni. Hraðvirkandi og áhrifarík virkni gefa húðinni aukinn húðljóma og silkimjúka áferð