Dry Skin

Markviss rakagjöf og næring fyrir þurra og rakaþyrsta húð.

Dry Skin vörulínan frá JANSSEN COSMETICS er sérstaklega þróuð fyrir húð sem skortir raka og næringu. Háþróaðar formúlur veita húðinni djúpa og langvarandi rakagjöf, styrkja náttúrulegan varnarhjúp hennar og slétta fínar línur af völdum þurrks. Húðin verður mýkri, teygjanlegri og betur varin gegn áreiti úr umhverfinu.

Línan býður upp á allt frá mildum hreinsivörum og rakagefandi serumum til nærandi krema og frískandi gelmaska. Heildstæð rakameðferð sem færir húðinni mýkt, ljóma og betra rakajafnvægi.

Janssen Cosmetics eru fáanlegar á snyrtistofum. Finndu söluaðila nálægt þér og fáðu ráðgjöf fyrir þína húðgerð.