-
Orkumikið og djúpnærandi krem fyrir húð sem er byrjuð að eldast. Djúpvirkandi formúla sem gefur húðinni samstundis orku og hraustlegan ljóma. Virk innihaldsefni auka nýmyndun húðar og þéttleika, fínar línur og áferð húðarinnar verða jafnari og náttúrulegt varnarlag fyrir utanaðkomandi áreiti og sindurefnum(free radicals) styrkist. Smýgur fljótt niður í húðina þannig húðin helst þurr viðkomu, með frísklegum herrailm. -
24h Body Moisturizer einstaklega næringarríkt og frískandi líkamskrem með langvarandi nærandi og verndandi eiginleikum. Létt en jafnframt djúpnærandi formúla með Black Orchid Extract sem verndar húðina gegn þurrki með náttúrulegum fitusýrum og gefur húðinni frísklegra yfirbragð með léttum en dásamlegum blómailm. Kremið inniheldur einnig nærandi Shea Butter, Hyaluronic Sýru og Aquaderm® Complex blanda af náttúrulegum efnum með nærandi eiginleika og virkni sem næra þurra húðina í allt að 8klst eftir að kremið er borið á. Létt formúlan losar samstundis um herping í húðinni og inniheldur Allantoin sem veitir létt kælandi áhrif og sefar roða. Kremið smýgur fljótt niður húðina og smitar ekki út frá sér heldur helst húðin mött og silkimjúk. Inniheldur: Black Orchid Extract: Oily extract; auðugt af fitusýrum, verndar húðina gegn þurrki og styrkir varnarlag húðarinnar með frískandi áhrifum. Aquaderm®:Complex samanstendur af nærandi og mýkjandi efnum (pyrrolidone carboxylic acid, lactic acid lactate, fructose, glycine, niacinamide)Vísindalegar rannsóknir sýna virkni í húðinni í allt að 8tíma þar sem húðin viðheldur mýkt og næringu. Hyaluronic acid:Viðheldur raka með langvarandi áhrifum. Shea butter: Nærir og mýkir húðina og myndar varnarlag í efstu húðlögum. Allantoin: Sefar viðkvæma húð og dregur úr roða. -
Intensíf 40 daga C vítamín meðferð, gegn litabreytingum og öðrum ójöfnum. Virkt efni í 2-fasa ampúlum með vítamín C fosfati (duftfasi) ásamt lipoamínósýru, SORR og útdrætti úr mulberry rót (vökva fasi). Inniheldur 4x 10ml ampúlur og 1x pípettu lok Intensíf 40 daga C vítamín meðferð, gegn litabreytingum og öðrum ójöfnum. Virkt efni í 2-fasa ampúlum með vítamín C fosfati (duftfasi) ásamt lipoamínósýru, SORR og útdrætti úr mulberry rót (vökva fasi). Inniheldur 4x 10ml ampúlur og 1x pípettu lok Vítamín C fosfat í mjög háum styrk hemur melanin vöxt og verndar húðina einnig gegn oxunarálagi. Það stuðlar einnig að náttúrulegum viðgerðarferlum húðarinnar og örvar kollagenmyndun og bætir húðstrúktúr. 2-Phase Melafadin Concentrate býður uppá einstaka virkni með tveggja fasa ampúlum til heimameðferðar með hreinu C vítamíni. Vítamín C duftið (fasi 1) er blandað og leyst upp af innihaldsríkum activator (fasa 2). Báðir fasanir sameinast í blöndu með hámarks virkni af styrkjandi eiginleikum og óviðjafnanlegum húðljóma. Kúrinn er ætlaður sem meðferð fyrir alhliða betrumbætta áferð húðarinnar, styrkleika, jafnari húðlit og geislandi fallegan húðljóma . Kúrinn inniheldur 4 x 10 ml flöskur sem eru nauðsynlegar fyrir u.þ.b. 40 daga meðferðarferli. Ampúlunar koma með praktísku pípettu loki sem mælir hvern skammt fyrir sig fyrir daglega notkun og endingu. 2-Phase Melafadin Concentrate er 40 daga meðferð. Innihald einnar ampúlu dugar í u.þ.b. 10 daga og samanstendur af dufti og vökva. Báðir hlutanir eru blandaðir saman fyrir fyrstu notkun. Til að blanda ampúluna, ýttu einfaldlega á hnappinn á lokinu með smá afli, það kemur smellur. Hristið innihaldið vel saman, fjarlægið hnappinn og setjið pipettu lokið á ampúluna. Berið u.þ.b. 1 ml af lausninni á hreina húð á morgnana og kvöldin. Innihaldsefni: Duft fasi: • Vítamín C fosfat: Stöðug askorbínsýra; stöðug í vatni; umbreytist í C vítamín í húðinni með náttúrulegum ensímum húðarinnar (esterösum); hamlar melanin vöxt, styrkir kollagenþræði, eflir kollagenframleiðslu. Vökva fasi: • Lipoamínósýra: (INCI: undecylenoyl phenylalanine), áhrifaríkt húðlýsingarefni, blokkar α-MSH viðtaka á yfirborði melanósíta. • Plant extract SORR: Mjög virkur útdráttur úr Siegesbeckia orientalis og Rabdosia rubescens; hindrar upptöku melanins í keratínsítum, hefur sefandi og andoxandi áhrif, stuðlar að jafnri, geislandi húð. • Morus alba: extrakt úr rótum hvíta mullberry trésins; hemur tyrosinasa og heldur þeim í óvirkri stöðu og hamlar þannig melanin framleiðslu -
ACTIVATING sturtugel fyrir karlmenn 2 in 1 fyrir hár og líkama. Active Shower Gel frá JANSSEN COSMETICS er fullkomin byrjun á deginum. Endurlífgandi og frískandi formúlan tryggir milda en áhrifaríka hreinsun á húð og hári og skilur eftir frábæra ferskleikatilfinningu. Active Shower Gel hreinsar yfirborð húðarinnar á áhrifaríkan hátt án þess að virka þurrkandi þökk sé mildum yfirborðsvirkum efnum úr kókos og sykrum sem koma í veg fyrir að húðin þorni. Gagnsæ geláferðin dreifist auðveldlega og myndar mjúka froðu þegar það er blandað saman við vatn og eykur þannig endingu þar sem ekki þarf að nota mikið af gelinu fyrir ríkulegt magn af froðu. Gelið er með mildum en herralegum blæ sem lífgar upp á skynfærin og skilur eftir sig mjúka angan af krydduðum sandalviði, sítrus og jasmine. -
After Sun frá Janssen Cosmetics er fullkomið líkamskrem eftir sólríka daga, sund og útiveru. Kælandi formúlan gefur húðinni samstundis létti með græðandi áhrifum, hefur djúpnærandi virkni og smýgur fljótt niður húðina og fyllir á tóma rakatanka sem gefur húðinni dásamlega mýkt og vellíðan. Janssen Cosmetics After Sun hefur einnig einstaklega verndandi áhrif og eflir náttúrulegar varnir húðarinnar gegn sólarskemmdum, ótímabærri öldrun og öðrum húðskemmdum sem geta myndast við sólbruna. Húðin verður jafnari og fær fallegri lit með sólkysstum ljóma.- Er kælandi, græðandi og gefur húðinni mýkt og vellíðan
- Smýgur fljótt niður í neðstu húðlögin
- Hefur verndandi áhrif og eflir náttúrulegar varnir húðarinnar gegn ótímabærri öldrun og öðrum húðskemmdum sem geta myndast við sólbruna
- Inniheldur:
- Aloe Vera : kælandi og græðandi
- Alpha bisabolol: dregur úr bólgum og roða
-
Þegar húðin byrjar að eldast hægist á náttúrulegri starfsemi og endurnýjun húðarinnar, húðin verður slakari og þráir örvun og orku. Age Perfecting Serum er akkurat þetta auka orkuskot með plöntustofnfrumum sem húðin tekur vel á móti og eykur náttúrulega frumustarfsemi og endurnújun húðarinnar. Sérhönnuð formúla sem eykur virkni og innsíun virkra efna og passar fullkomnlega með Perfect Lift og Rich Recovery Cream úr Mature Skin línunni frá Janssen Cosmetics fyrir enn sýnilegri árángur. TIP: Serumið má bera alveg upp undir augu undir annað augnkrem fyrir djúpvirkandi lyftingu og sléttara yfirbragð húðarinnar í kringum augnsvæðið. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha), Hyaluron Sýru, Vitamin C og E og Plöntustofnfrumur (Alpine Rose) -
AHA + BHA Cleanser pH 4,2 AHA + BHA Cleanser er áhrifarík hreinsimjólk fyrir olíukennda, bólugjarna og Acne húðgerðir og einnig fyrir grófgerða/eldri húð með opnar/stórar húðholur. Hreinsimjólkin inniheldur ávaxtasýrur sem hreinsa burt farða, óhreinindi og dauðar húðfrumur á áhrifaríkan hátt af yfirborði húðarinnar. AHA + BHA hreinsimjólkin inniheldur blöndu af AHA glycolic, malic, citric og tartaric sýru og BHA salicylic sýru sem vinna fullkomnlega saman í baráttunni við opnar/stíflaðar húðholur, bólur og bakteríusýkingar (Acne) í húðinni. AHA sýrunar leysa upp dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar og opna fyrir stíflaðar húðholur sem gefur húðinni tækifæri að losa um umfram húðfitu og dregur þannig úr að húðholur stíflist og myndi djúpar bólgur eða bólur. BHA salicylic sýran styður svo enn betur við þetta ferli þar sem hún fer ennþá dýpra niður í húðholunar með fituleysanlegum áhrifum og hreinsar upp stíflaðar húðholur og fílapensla með bakteríudrepandi eiginleikum, salicylic sýran hefur einnig bólgueyðandi áhrif á Acne húðgerðir þar sem húðin getur oft verið viðkvæm og aum viðkomu. Við reglulega noktun á AHA + BHA Cleanser öðlast húðin betra jafnvægi sem styður við náttúrulega endurnýjun og heilbrigði húðarinnar, opnar/stórar húðholur dragast saman og minnka með sýnilegum árángri og sléttir úr yfirborði húðarinnar. Noktun: Dreifið mjólkinni vel yfir andlit, háls og bringu og hreinsið með léttum hringlaga hreyfingum í 3-5min, hreinsið síðan af með volgu vatni/þvottapoka og ljúkið hreinsun með andlitsvatni Purifying Tonic. *Hafa ber í huga að pH gildi vörunnar sem er 4,2 ekki hafa mjólkina lengur á húðinni en 3-5min -
AHA + BHA Exfoliator er djúphreinsandi ávaxtasýru gel með einstaka og áhrifamikla virkni fyrir olíukennda, bólugjarna og acne húðgerðir. Gelið inniheldur hátt hlutfall af sérvalinni blöndu af fjórum ávaxtasýrum (AHA) glycolic, malic, citric og tartaric sem og hreinni (BHA) salicylic sýru sem leysa upp og fjarlægja dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar og losa um stíflur í húðholum á áhrifaríkan hátt með bakteríudrepandi og bólgueyðandi áhrifum frá salicylic sýrunni. AHA + BHA Exfoliator er þó ekki einungis bara frábær vara í baráttunni gegn bólum þar sem ávaxtasýrunar hafa breiðvirk áhrif á húðina og virkjar lúnar húðfrumur og náttúrulegt endurnýjunarferli, þar á meðal eykst nýmyndun kollagens sem viðheldur og eykur þéttleika húðarinnar. Með reglulegri noktun verður yfirborð húðarinnar sléttara, fínar línur, hrukkur og opnar húðholur dragast saman og minnka með sjánlegum árangri auk þess sem litabreytingar/elliblettir og dökkir blettir vegna sólarskemmda lýsast eða hverfa alveg. NB. AHA + BHA Exfoliator kemur í tveimur mismunandi styrkleikum annarsvegar 30% AHA+BHA styrkleika í stofuvöru og 20% AHA+BHA styrkleika í söluvöru. -
Sérvalin blanda af ávaxtasýrum örvar húðflögnun og náttúrulega endurnýjun húðarinnar. Ótrúlega gott sem viðgerðarkrem þar sem ávaxtasýrunar hafa leiðréttandi áhrif og betrumbæta alla starfsemi húðarinnar. *Hreinsa stíflaðar húðholur, jafna fituframleiðslu og draga úr fílapensla og bólumyndun *Rakagefandi með örvandi áhrifum á náttúrulega rakaframleiðslu húðarinnar *Jafna misfellur og slétta yfirborð húðarinnar *Jafna náttúrlegan litarhátt húðarinnar, dregur úr litabreytingum og hefur lýsandi áhrif á dökka bletti Gefur samstundis frískandi áhrif þar sem þú finnur bókstaflega fyrir virkni og örvun sem fær húðina til að geisla af ljóma. Kremið innih. Blöndu af glycolic, malic, tartaric og citric sýru og hefur pH-gildi uppá 4,4 og 10% styrk ávaxtasýra sem gefur hámarks virkni án þess að vera of ertandi fyrir daglega noktun. Hafa ber í huga að húðin verður ljósnæmari og viðkvæmari fyrir ytra áreiti á meðan noktun stendur. Helstu innihaldsefni : Glycolic, Malic, Tartaric og Citric Ávaxtasýrur -
Hver ampúla inniheldur hágæða efni í sínu hreinasta formi án allra aukaefna með hámarksvirkni á húð, öflug meðferð gegn djúpum línum/hrukkum og gefur samstundis lyftingu og aukinn þéttleika með Instensyl® 3-D Express Lifting tækni þar sem náttúrulegar sykrur tengjast á yfirborði húðarinnar og mynda á örskömmum tíma fjaðurkennt net sem togar upp slaka húðvefi með einstaklega þéttandi áhrifum.Inniheldur einnig Gatuline® lífrænt efni sem dregur saman og minnkar djúpar línur/hrukkur, eykur þéttleika, styrk og hægir á öldrunarferli húðarinnar með áberandi árángri!Húðin verður sýnilega þéttari og bjartari yfirlitum og endurheimtir teygjanleika og styrk með sýnilega lyftandi áhrifum. -
Kælandi augngel með djúpnærandi rakagefandi eiginleikum. Aqualift Eye Gel er einstaklega kælandi fyrir augnsvæðið og minnkar sýnilega þrota og þreytumerki í kringum augun og dregur úr dökkum baugum með Sensitive Complex plöntuþykkni sem inniheldur m.a. hestakastaníu og lakkrísrót sem vinna að því að styrkja örfínar blóðæðar undir augunum og draga þannig úr bláma og auka birtu undir augunum. Gelið vinnur í öllum lögum húðarinnar með einstakri samsetningu stuttra og langar keðja af Hyaluronic sýru þar sem stuttar keðjur síast niður í neðstu lög húðarinnar og binda rakamagn húðarinnar sem slétta yfirborð augnsvæðisins að innanverðu á meðan langar keðjur Hyaluron sýrunnar liggja í efri lögum húðarinnar með nærandi eiginleikum sem slétta úr þunnri húðinni í kringum augun og fylla uppí fínar línur af völdum þurrks. Gelið veitir einnig viðkvæmu augnsvæðinu vörn gegn UV geislum með Grape Stem Cell Extract sem verndar húðfrumunar fyrir skaðlegum áhrifum sólageisla og ótímabærri öldrun húðarinnar. Helstu innihaldsefni: Sensitive Skin Complex = Plöntuþyknni með styrkjandi og verndandi áhrifum fyrir örfínar blóðæðar undir augunum, dregur úr dökkum baugum og slær á þrota með sýnilegum áhrifum. Hyaluronic Sýra „langar og stuttar keðjur“=Einstakur rakagjafi sem hefur þann eiginleika að þúsundfalda þyngd sína í vatni og bindur þannig raka í húðinni þannig hún heldur mýkt og fyllingu. Imperata cylindrica =Næringarríkt plöntuþykkni úr einstakri plöntu sem finnst í eyðimörkum bæði í Ástralíu og Asíu, plantan er einstaklega rík af potassium og þekkt fyrir rakabindandi eiginlega til að lifa af þurrk og harðindi. Rannsóknir sýna að húðin hefur aukið rakamagn sitt um 20% eftir aðeins 24klst. Grape Stem Cell Extract = Vernda stofnfrumur húðarinnar fyrir skaðlegum UV geislum, auka þol og náttúrulega vernd frumna við UV geislum og ótímabærri öldrun húðarinnar. -
Eye Flash Fluid - Hyaluronic sýra og virk peptíð gefa augnsvæðinu aukna lyftingu, draga úr þreytumerkjum og dökkum baugum með einstaklega frískandi áhrifum sem eykur birtu og ljóma í kringum augun. Janssen Cosmetics hefur sérhæft sig í framleiðslu á virkum ampúlum fyrir andlitsmeðferðir og er fjölbreytt úrval í boði fyrir allar þarfir húðarinnar hvort sem það sé að þétta og lyfta slöppum húðvefum, auka húðflögnun og draga úr bakteríu- og bólumyndun, minnka stórar húðholur, draga úr háræðaslitum og sérmeðferð fyrir rósroða.Ampúlur innihalda virk efni með ólíkum markmiðum fyrir leiðréttandi og uppbyggjandi áhrif á húðvefi.
Hver ampúla inniheldur virk efni í vökvaformi án allra auka- eða rotvarnarefna og kemur því í litlum einingum sem þarf að nota samstundis eftir að ampúlan hefur verið opnuð þar sem innihaldsefni missa virkni eftir stuttan tíma í snertingu við súrefni.
-
LEAVE-ON DJÚPHREINSANDI SERUM FYRIR JAFNARI ÁFERÐ HÚÐARINNAR Ójöfnur, fílapenslamyndun og uppsöfnuð óhreinindi geta komið fram í húðinni hjá ólíkum húðgerðum jafnvel hjá fólki sem er ekki með olíukennda eða blandaða húð þar sem húðinni vantar aukna endurnýjun og hreinsun. Stíflaðar húðholur, bólur og fílapenslar eru eitthvað sem flestir væru til í að losna sem fyrst við með einföldum hætti og er Azelaic sýran frábær valkostur þar sem húðin fær örugga djúphreinsun og endurnýjun án þess að hafa of ertandi áhrif. Azelaic Acid Serum inniheldur aselsýru (azelaic acid) og aselsýruafleiðu (azelaic acid derivative) sem auka birtu húðarinnar og stuðla að jafnari húðlit með djúphreinsandi eiginleikum sem sléttir og gefur jafnari yfirborðsáferð. -
24stunda krem með tvöfaldri virkni fyrir blandaðar húðgerðir, kremið hefur hreinsandi og mattandi eiginleika en nærir jafnframt húðina þar sem þarf og kemur þannig jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar allt í einni vöru. Blönduð húðgerð getur átt erfitt með að finna jafnvægi þar sem þarfir húðarinnar eru misjafnar eftir svæðum, yfirleitt er T-Svæði húðarinnar olíukennt, húðholur opnar og með fílapenslamyndun á meðan önnur svæði virka þurr og vantar aukna næringu og raka. Olíuglans og fílapenslamyndun getur verið hvimleitt ástand og er oftast tilhneiging til þess að einblína á að reyna koma jafnvægji á fituframleiðslu húðarinnar sem getur haft enn meiri þurrkandi áhrif á þau svæði þar sem húðin þarfnast meiri raka og næringar og skapar þannig ójafnvægi, ertingu og ónotatilfinningu í húðinni. Balancing Cream mætir þarna mismunandi þörfum húðarinnar á áhrifaríkan hátt og jafnar starfsemi fitukirtlanna bæði á olíukenndari svæðum þar sem fituframleiðsla er mikil og á þurrari svæðum sem vantar meiri næringu og rakafyllingu. Árángurinn er jafnari húð þar sem opnar húðholur dragast saman og fílapenslamyndun minnkar með sjáanlegum árángri, húðin endurheimtir mýkt og losnar við ertingu og ónot af völdum þurrks. Kremið er létt og silkimjúkt viðkomu og gefur húðinni frísklega tilfinningu en hefur jafnframt mattandi áhrif á yfirborð húðarinnar þar sem örfínt Polyamide púður dregur í sig umfram húðfitu þannig húðin helst þurr og mött viðkomu. -
Kröftugt líkamskrem međ detox þara og koffìni, kremiđ er međ hitaáhrifum sem fá þrjóskustu fitufrumur til ađ taka smá kipp! Inniheldur einnig elastìn örvandi peptíđ sem auka teygjanleika og styrk húđarinnar gegn þyngdarlögmálinu međ lyftandi áhrifum.•Frábær kostur fyrir þreytta og þunga fætur sem þurfa aukiđ blóđflæđi fyrir enn betri árángur og fituniđurbrot.Hitaáhrifin og aukiđ blòđflæđi er oft lìka mjög mikill lèttir og kærkomin hvìld fyrir þreytta fætur eftir langann vinnudag, göngu og svo framvegis....•Fyrir slappa og lausa húđ, veitir auka styrk og styđur viđ lausa húđ ađ dragast saman og endurheimta þèttleika.•Fyrir þrjòskusvæđi sem ætla ađ vera međ erfiđi geggjađ ađ smyrja á maga, rass og læri og skella sèr svo á góđa æfingu.-Sama hvađ markmiđiđ er þá eykst náttúrlegt blóđflæđi húđarinnar og aukiđ afeitrunrferli (detox)Húđin verđur lìflegri og fær sjáanlega slèttari áferđ og auknum þèttleika. -
Skaðlegir geislar sólarinnar, hormónaójafnvægi, aldur og lífsstíll geta haft áhrif á litabreytingar í húðinni með myndun dökkra bletta af mismunandi stærðum og gerðum. Þessar litabreytingar geta verið að myndast hægt og rólega með aldrinum eða komið skyndilega t.d. á meðgöngu, vegna p-pillunar eða eftir sólbruna. Melafadin Day Protection innih. Sérstaka formúlu unna úr plöntum sem vinnur að því að sundra litafrumunum í sundur þannig óæskilegir blettir virðast minni og hindra nýja í að myndast á yfirborði húðarinnar. Litarháttur húðarinnar verður jafnari, bjartari og unglegri. Kremið er sérlega andoxandi og veitir djúpa næringu með bl-ndu af rauðum þara og náttúrulegym sykrum sem bindast keratínlagi húðarinnar og halda raka. Fullkomin vörn allann daginn með Spf 20. -
Korna-djúphreinsir með tvöfalda virkni, inniheldur einnig citric og glycolic sýru fyrir enn betri húðflögnun og bjartara útlit.Smyrjið meðalþunnu lagi yfir andlit, háls og bringusvæði leyfið kreminu að liggja og vinna á húðinni í 3 til 5 min.Nuddið yfir með hringlaga hreyfingum og látið kornin vinna á húðinni í 2-3min þannig næst hámarks húðflögnun.Sýrunar losa um tengsl dauðra húðfruma á yfirborði húðarinnar þannig ná kornin að hreinsa enn betur dauðar húðfrumur og örva náttúrulega starfsemi húðarinnar.Stuðlar að jafnari húðlit og bjartara yfirbragði með auknum húðljóma. -
Létt örvandi hreinsimjólk hreinsar yfirborð húðarinnar fullkomnlega, lífgar uppá þreytta húð og gefur samstundis frísklegan orkuljóma. Fullkomið val fyrir húð sem sýnir fyrstu öldrunareinkenni, streitumerki, opnar og grófar húðgerðir sem vilja auka frískleika og birtu húðarinnar. Virk innihaldsefni Morus alba : plöntu-þykkni unnið úr White Mulberry trjárótum stuðlar að jafnari húðlit og eykur birtu og ljóma í húðinni. -
TILBOÐ 25% MEIRA INNIHALD! Brightening Face Cleanser andlitsmjólk úr Demanding Skin vörulínu Janssen Cosmetics nú á tilboði í stærri umbúðum með 25% meira innihaldi! Létt örvandi hreinsimjólk hreinsar yfirborð húðarinnar fullkomnlega, lífgar uppá þreytta húð og gefur samstundis frísklegan orkuljóma. Fullkomið val fyrir húð sem sýnir fyrstu öldrunareinkenni, streitumerki, opnar og grófar húðgerðir sem vilja auka frískleika og birtu húðarinnar. Virk innihaldsefni Morus alba : plöntu-þykkni unnið úr White Mulberry trjárótum stuðlar að jafnari húðlit og eykur birtu og ljóma í húðinni. -
Orkugefandi andlistsvatn, fullkomnar hreinsun húðar og jafnar pH gildi húðarinnar. Notið eftir hreinsun húðar með andlitshreinsi eða eitt og sér á hreina húð sem frískandi meðferð, fjarlægir umfram húðfitu og frískar uppá yfirbragð húðarinnar. Virk innihaldsefni Morus alba : plöntu-þykkni unnið úr White Mulberry trjárótum stuðla að jafnari húðlit og auka birtu í húðinni. Fullkomið val fyrir húð sem sýnir fyrstu öldrunareinkenni, streitumerki, líflausa, opna og grófar húðgerðir . -
TILBOÐ 25% MEIRA INNIHALD! Brightening Face Freshener er alkahólfrítt andlitvatn úr Demanding Skin vörulínu Janssen Cosmetics nú á tilboði í stærri umbúðum með 25% meira innihaldi! Orkugefandi andlistsvatn, fullkomnar hreinsun húðar og jafnar pH gildi húðarinnar. Notið eftir hreinsun húðar með andlitshreinsi eða eitt og sér á hreina húð sem frískandi meðferð, fjarlægir umfram húðfitu og frískar uppá yfirbragð húðarinnar. Virk innihaldsefni Morus alba : plöntu-þykkni unnið úr White Mulberry trjárótum stuðla að jafnari húðlit og auka birtu í húðinni. Fullkomið val fyrir húð sem sýnir fyrstu öldrunareinkenni, streitumerki, líflausa, opna og grófar húðgerðir . -
Næturkrem með tvöfalt öflugri virkni og langavarandi virkni gegn litabreytingum. Kröftug blanda af lipoamio sýru, diacetyl boldine og SORR plöntuþykkni vinna að því að sundra tengslum á milli melaninfrumna sem mynda litaflekki á yfirborði húðarinnar ásamt því að hindra nýmyndun þeirra. Kremið innih. einnig rauðan þara sem er einstaklega andoxandi og næringaríkur hann hefur þau áhrif á húðina að hún fær frísklegra yfirbragð og verður líflegri. Fullkomið krem gegn litabreytingum og fyrir þroskaða húð til þess að fyrirbyggja ellibletti-og sólarskemmdir sem koma með öldrun húðarinnar. Einnig hentar það mjög vel húð sem er þreytt og föl og þarfnast orku. Kremið innheldur einnig fíngert púður sem gefur húðinni matta og flauelskennda áferð. -
Einstaklega rakagefandi formúla með sefandi og græðandi áhrifum, fullkomið eftir rakstur!Örvar endurnýjun húðarinnar og græðir sár eða rispur af völdum raksturs. Styrkir náttúrulegt varnarlag húðarinnar og eykur húðljóma.Gelkennd áferð með frísklegum herrailm sem smýgur fljótt niður í húðina þannig að húðin helst mött og þurr viðkomu.Innih. Men´s SuperMoist næringarríka formúlu sérþróaða fyrir karlmannshúð, Hyaluronic Sýru, Men´s UltraCalm formúlu til að draga úr roða og ertingu, Aloe Vera og E-Vítamín. -
Sannkallað vítaminboost fyrir allar húðgerðir sem vantar aukna orku, þéttingu og ljóma.Caviar er löngu þekkt munaðarvara og inniheldur einstaka samsetningu af steinefnum, vítamínum og aminosýrum.Kremið inniheldur hreint Caviar Extract og er áhrifarìk međferđ fyrir þreytta og orkulausa húđ þar sem samsetning vìtamìna, steinefna og aminosýra glæđa húđina nýjum og orkumeiri ljóma.Frumustarfsemi húđarinnar eykst og hrađar nýmyndun kollagens sem gefur húđinni aukinn þèttleika með djúpvirkandi næringu sem fyllir húđlögin af raka og nauđsynlegum fitusýrum sem auka fyllingu, slétta yfirborð húðarinnar og gefur henni flauelsmjúka áferđ.Fölt yfirbragđ og þreytumerki vìkja fyrir frìsklegum ljóma og bjartara yfirbragđi. -
Fullkomin kúr til að styrkja og endurstilla varnarhjúp húðarinnar, frábær tvenna til að viðhalda árángri eftir andlitsmeðferðir eða sem öflug viðgerð heima fyrir viðkvæmar, þurrar húðgerðir eða húð sem vantar aukið jafnvægi. Styrkir. Endurbyggir. Verndar. Ceramide Beauty Duo frá Janssen Cosmetics er öflug húðumhirðutvenna með serum og kremi sem vinnur markvisst að því að styrkja og endurbyggja náttúrulegan varnarhjúp húðarinnar. Heilbrigð húð byggir á réttu jafnvægi raka og fitusýra í yfirborði húðarinnar, en þegar það jafnvægi raskast verður húðin viðkvæmari, tapar raka hraðar og bregst auðveldlega við með þurrki, roða, kláða og herpingstilfinningu sem getur valdið óþægindum. Ceramide Beauty Duo er sérstaklega þróað til að styðja húðina einmitt við þessar aðstæður og hjálpa henni að endurheimta jafnvægi, aukna mýkt og heilbrigðara yfirbragð. Seramíðar gegna þar lykilhlutverki, enda eru þeir náttúrulegur hluti af varnarhjúp húðarinnar. Þeir hjálpa til við að styrkja samheldni húðarinnar, draga úr rakatapi og styðja við getu hennar til að verja sig gegn ytri ertingu og umhverfisáhrifum. Með markvissri blöndu seramíða hjálpar Ceramide Beauty Duo til við að auka jafnvægi og efla náttúrulegar varnir húðarinnar, fyllir á rakabirgðir, sefar roða og ertingu og gefur húðinni aukna léttleikatilfinningu. -
CBD Calming Fluid ampúlan er áhrifarík meðferð gegn hverskonar húðertingu, roða eða viðkvæmni. Ampúlan samanstendur af CBD-olíu og trufflusveppum sem saman með einstakri virkni róa ertingu og roða í húð ásamt því að styrkja náttúrulegt varnarlag og auka viðnám húðarinnar. Ampúlan inniheldur einnig tvíþætta hýalúrónsýru og aloe vera sem veita húðinni djúpvirkandi raka og næringu. CBD (kannabídíól) er vinsælt virkt innihaldsefni sem er unnið úr hampjurtinni og býr yfir einstökum eiginleikum og heilandi áhrifum á húðina. Kannabídíól (sem hefur ekki hugbreytandi áhrif) er þekkt fyrir að hafa sefandi áhrif á hitatilfinningu, roða eða hverskonar húðertingu og er frábær til meðhöndlunar á viðkvæmri húð. Til viðbótar við CBD olíuna inniheldur ampúlan sveppa-extract sem hefur bein áhrif á taugaenda húðarinnar með því að hamla virkni ákveðinna sársaukanema á yfirborði húðarinnar og dregur þannig með virkum hætti úr viðkvæmni húðarinnar. Saman með rakagefandi Hýalúrónsýru og Aloe Vera gefur CBD Calming Fluid ampúlan húðinni samstundis létti og fullkomna slökunartilfinningu. -
Augnkrem með ríkulegu magni af Skin Defense Complex sem gefur góða næringu og raka með græðandi eiginleikum fyrir viðkvæmni, exemgjarni og þurri húð í kringum augnsvæðið með langavarandi kælandi áhrifum. Inniheldur einnig Hyaluronic Sýru og Saccharide Isomerate með djúpnærandi eiginleikum sem fylla uppí og slétta linur í kringum augum vegna yfirborðsþurrks og gefa þannig augnsvæðinu aukna lyftingu. Vinnur á bólgum og dökkum baugum með lífrænt ræktaðri jurt: Eyebright sem gefur augnsvæðinu eins og nafnið gefur til kynna bjartara yfirlit. Noktun: Berið á húðina í kringum augun kvölds og morgna. -
Dagleg meðferð við háræðaslitum og rósroða. Létt en öflug formúla þéttir og styrkir blóðæðaveggi húðarinnar sem dregur úr hita og ertingu í húðinni. Inniheldur RSC-Neutralizer sem minnkar sýnilega roða í húð og dregur úr einkennum rósroða. Með reglulegri noktun dregur sjáanlega úr æðaslitum og háræðanet húðarinnar styrkist með fyrirbyggjandi og verndandi eiginlegum. Betrumbætir áferð rósroða húðar með auknu rakajafnvægi, sléttandi og mýkjandi áhrifum. Noktun: Berið á hreina húð, kvölds og morgna yfir andlit og háls. Má einnig nota staðbundið. -
Dark Circle Eye Cream er sérstaklega þróað til að vinna gegn og birta upp dökka bauga í kringum augnsvæðið með sýnilegum og langavarandi áhrifum.Húðin í kringum augnsvæðið og sér í lagi undir augunum er þunn og viðkvæm og sýnir gjarnan örfínar blóðæðar í gegn sem eru gjarnan kallaðar undir daglegu tali baugar.Hversu miklir baugar þá gjarnan eftir hversu dökkir þeir virðast fer allt eftir blóðmagni í þessum örfínu blóðæðum.Svefnleysi, stress, mataræði geta haft neikvæð áhrif á blóðflæðið sem og getur einnig verið genatískt.Blóðæðar með litlu/hægu blóðflæði bera súrefnisminna blóð og verða dekkri fyrir vikið sem orsakar þennann dökka lit undir augunum sem við köllum dökka bauga.Dark Circle Eye Cream inniheldur birtu pigment sem lýsir upp og dregur samstundis úr dökkum lit undir augunum með langvarandi áhrifum um leið og kremið er borið á. Ef kremið er notað reglulega hlaðast upp þessi áhrif með hjálp frá öflugum innihaldsefnum “4-1 complex” sem samanstendur af tri-peptíðum, smáþörungum, panthenol og hyaluronic sýru sem saman örva flæði blóðæðanna, auka kollagenmyndun og lyftingu með djúpri næringu sem rakafyllir og sléttir viðkvæma húðina í kringum augun.*Eftir aðeins 7 daga eru fínar línur/hrukkur sjáanlega minni og sléttari.*Eftir aðeins 14 daga hefur dregið verulega með mælanlegum áhrifum úr dökkum baugum undir augunum. -
Dark Spot Perfector er kröftugt serum sem er bæði fyrirbyggjandi og lýsandi meðferð fyrir litabletti og aðrar litabreytingar á húðinni og hentar öllum húðgerðum. Inniheldur sérþróaða Age Spot Corrector formúlu með blöndu af soyja og jurtaþykkni (Garden Cress/Lepidium sativum) sem draga úr nýmyndun melaníns og lýsa upp dökka bletti á húðinni án þess þó að lýsa upp húðina í kring!Umhverfisáhrif, mengun, sól geta haft gríðarleg áhrif á ásýnd húðarinnar og látið húðina virðast eldri en hún raunverulega er. Litabreytingar og sólarskemmdir byrja vanalega að birtast á yfirborði húðarinnar eftir 30 ára aldurinn og aukast með árunum.Dark Spot Perfector er kröftugt serum sem er bæði fyrirbyggjandi og lýsandi meðferð fyrir litabletti og aðrar litabreytingar á húðinni og hentar öllum húðgerðum. Inniheldur sérþróaða Age Spot Corrector formúlu með blöndu af soyja og jurtaþykkni (Garden Cress/Lepidium sativum) sem draga úr nýmyndun melaníns og lýsa upp dökka bletti á húðinni án þess þó að lýsa upp húðina í kring!Pakkað af hyaluronic sýru löngum og stuttum keðjum sem heldur húðinni fylltri og sléttri ásamt E-Vitamíni sem sér um að verja húðina gegn skaðlegum áhrifum sindurefna.Niðurstöður vísindalegrar rannsóknar: *Age Spot Corrector Sönnun fengin úr klínískri rannsókn: Með notkun á Age Spot Corrector í 4% styrkleika, munurinn á litstyrk milli litabletta (age spots) og húðinni umhverfis sýndi allt að 50% minni litstyrk eftir aðeins 2 mánuði af reglubundinni notkun. Rannsóknin sýndi einnig að varan getur hnitmiðað virkni með sérlega lýsandi áhrifum á litabletti. Eftir átta vikur voru blettinir búnir að lýsast um 30% en húðin umhverfis hafði ekki orðið fyrir sömu áhrifum. (Heimild: Mibelle AG Biochemistry) -
Húðin fær samstundis frískandi áhrif með kælandi eiginleikum og losnar um leið við alla herpingstillfinningu og ónot af völdum rakaþurrks um leið og djúpnærandi gelformúlan er borin yfir andlitið. Fullkominn maski eftir sólríka daga! Deep Xpress Hydro Mask inniheldur háþróaða Hydro Express Complex formúlu sem myndar ósýnilegt en jafnframt sterkt og ótrúlega virkt net virkra efna sem sameinast í efstu lögum húðarinnar og gefa húðinni jafnt og þétt skammta af raka og næringu með virkni sem endist í allt að 5 daga frá síðustu ásetningu. Þannig viðheldur húðin auknu rakamagni, mýkt og fyllingu og öðlast einstaka frumuvernd gegn umhverfisáhrifum svo sem veðurfarsbreytingum og öðru sem valda rakatapi húðarinnar. Vísindalegar rannsóknir hafa sýnt fram á 25% aukningu rakamagns húðarinnar eftir aðeins 30min eftir ásetningu Deep Xpress Hydro Mask með langvarandi áhrifum í allt að 48tíma frá ásetningu. Formúlan byggir á tímastjórnun og veitir húðinni næringu og virk efni yfir langan tíma. Húðin öðlast allt að 25% meiri raka á aðeins 30min og aukin virkni rakamagns helst í allt að 5 daga frá síðustu ásetningu. Noktun: Berið maskann á yfir andlit, má einnig fara undir augu, háls og bringu leyfið maskanum að vinna í 5-20min eða yfir nótt fyrir hámarksárángur. Helstu innihaldsefni: Hydro Express Complex =Samsetning virkra efna m.a. Hyaluronic Sýru, Þara, Glycerin o.fl. Formúlan byggir á tímastjórnun og veitir húðinni næringu og virk efni yfir langan tíma. Húðin öðlast allt að 25% meiri raka á aðeins 30min og aukin virkni rakamagns helst í allt að 5 daga frá síðustu ásetningu. -
Fullkomin viðbót við hvaða krem sem er úr flóru Janssen Cosmetics fyrir þær húðgerðir sem vilja auka rakamagn húðarinnar með langvarandi verndandi áhrifum. Ultra létt formúlan smýgur hratt niður húðlögin og skotstundu með samstundis kælandi og frískandi áhrifum þar sem þú bókstaflega finnur húðina taka við sér. Deep Xpress Moist Serum inniheldur háþróaða Hydro Express Complex formúlu sem myndar ósýnilegt en jafnframt sterkt og ótrúlega virkt net virkra efna sem sameinast í efstu lögum húðarinnar og gefa húðinni jafnt og þétt skammta af raka og næringu með virkni sem endist í allt að 5 daga frá síðustu ásetningu. Þannig viðheldur húðin auknu rakamagni, mýkt og fyllingu og öðlast einstaka frumuvernd gegn umhverfisáhrifum svo sem veðurfarsbreytingum og öðru sem valda rakatapi húðarinnar. - Helstu innihaldsefni: Hydro Express Complex =Samsetning virkra efna m.a. Hyaluronic Sýru, Þara, Glycerin o.fl. Formúlan byggir á tímastjórnun og veitir húðinni næringu og virk efni yfir langan tíma. Húðin öðlast allt að 25% meiri raka á aðeins 30min og aukin virkni rakamagns helst í allt að 5 daga frá síðustu ásetningu. Wild viola extract =Gefur langvarandi næringu í neðstu húðlög, virkjar raka flæði á milli húðfrumna og stuðlar þannig að náttúrulegri virkni og frumustarfsemi húðarinnar. Hyaluronic Sýra „langar keðjur“=Einstakur rakagjafi sem hefur þann eiginleika að þúsundfalda þyngd sína í vatni og bindur þannig raka í húðinni þannig hún heldur mýkt og fyllingu. Imperata cylindrica =Næringarríkt plöntuþykkni úr einstakri plöntu sem finnst í eyðimörkum bæði í Ástralíu og Asíu, plantan er einstaklega rík af potassium og þekkt fyrir rakabindandi eiginlega til að lifa af þurrk og harðindi. Rannsóknir sýna að húðin hefur aukið rakamagn sitt um 20% eftir aðeins 24klst. Ectoine= Frumuvernd, verndar húðfrumur gegn langtíma umhverfisáhrifum og rakatapi og dregur úr myndun litabletta vegna sólarskemmda. -
Orkugefandi og kælandi augnrollon fyrir herra, sérhönnuð formúla fyrir augnsvæðið sem dregur samstundis úr þreytumerkjum, dökkum baugum og bólgum í kringum augun með sýnilegum áhrifum. Smýgur fljótt niður í húðina með kælandi og frískandi áhrifum, sléttir úr fínum línum og veitir augnsvæðinu einstaka rakagjöf og næringu. Innih. Men’s Eye Perfecting Complex 4in1 formúlu, Hyaluronic sýru, Caffeine og Menthol. -
Caviar Fluid - Veitir húðinni aukna orku, örvar nýmyndun húðar og er sérstaklega góð til þess að vekja upp líflausa húð og draga fram ljóma og orku. Veitir vörn gegn ótímabærri öldrun húðarinnar og verndar húðina gegn skaðlegum áhrifum sindurefna og virkjar viðgerðarferli fyrir húð sem hefur verið undir miklu álagi, stressi og streitu. Janssen Cosmetics hefur sérhæft sig í framleiðslu á virkum ampúlum fyrir andlitsmeðferðir og er fjölbreytt úrval í boði fyrir allar þarfir húðarinnar hvort sem það sé að þétta og lyfta slöppum húðvefum, auka húðflögnun og draga úr bakteríu- og bólumyndun, minnka stórar húðholur, draga úr háræðaslitum og sérmeðferð fyrir rósroða. -
Enzyme Peeling Powder losar um dauðar húðfrumur og umfram húðfitu af yfirborði húðarinnar á áhrifaríkan en jafnframt mildan hátt við djúphreinsun á yfirborðs viðkvæmum og Acne húðgerðum. Fínmalað púðrið myndar létta froðu þegar það er blandað við vatn og virkjar um leið Ensím sem vinna hörðum höndum á yfirborði húðarinnar við að brjóta niður keratin prótín og losa þannig dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar á áhrifaríkann hátt án þess að erta yfirborð húðarinnar. Húðin nær að losa um óhreinindi og umfram húðfitu með mattandi áhrifum frá Silica kísil sem stuðlar að auknu jafnvægi fituframleiðslu og heilbrigði húðarinnar. Noktun: Blandið c.a. teskeið af púðri við vatn og myndið létta froðu, dreifið jafnt yfir andlit og háls og nuddið létt yfir með hringlaga hreyfingum í c.a. 5min, leyfið síðan að liggja á húðinni í 3min og hreinsið af með volgu þvottastykki. -
Epigenetic Serum inniheldur djúpvirkandi formúlu sérþróaða til að auka náttúrulegt varnarlag og heilbrigði húðfrumna.Háþróuð tækni sem styrkir náttúrulega frumustarfsemi og eykur varnarlag húðarinnar gegn skaðlegum ytri áhrifum og sporna gegn ótímabærri öldrun húðarinnar.Húðin fær sléttara yfirbragð, fallegri áferð og bjartara yfirbragð.Inniheldur einungis hágæða hráefni með djúpa innsíunarhæfileika og hámarks virkni án þess að erta húðina.Epigenetic Serum hægir sýnilega á öldrunarferli húðarinnar, fyrirbyggir ótímabæra öldrun, dregur sýnilega úr hrukkum/línum í húðinni, eykur náttúrulegar varnir fyrir sindurefnum og niðurbroti, varðveitir hraustleika og unglegan ljóma húðarinnar.Epigenetic Serum 10ml kemur í einstaklega fallegum söluumbúðum með skemmtilegu ívafi þar sem líkt er eftir læknasprautu til að undirstrika virkni og áhrif vörunnar.Lítill skrúfutappi er á enda "sprautunnar" og pumpa á hinum endanum þannig ekkert súrefni kemst að vörunni og hámarksnýting af hverjum dropa!Inniheldur:· Epigenetic agent: Pot marigold (calendula officinalis) Plöntuþykkni; Einstaklega ríkt af oligosaccharides sem eru náttúrulegar fjölsykrur með tvennskonar áhrif á utanaðkomandi áreiti á húðfrumur. Virka bæði sem viðgerð á þegar laskaðar frumur og sem varnarhjúpur gegn óæskilegum sindurefnum og hrörnunar húðfrumna.· Long-chain hyaluronic acid: Langar keðjur af Hyaluron Sýru liggja eftir í efri lögum húðarinnar og mynda rakabindandi varnarfilmu á yfirborði húðarinnar og sporna gegn rakatapi og línum af völdum yfirborðsþurrks.· Short-chain hyaluronic acid: Stuttar keðjur af Hyaluron Sýru síast niður í neðri húðlögin og auka á náttúrulegar rakabirgðir húðarinnar sem gefur henni aukna fyllingu og unglegra yfirbragð.· Saccharide isomerate: Náttúrulegar sykrur sem tengjast og binda sig við náttúrulegt keratin húðarinnar líkt og segull og veitir húðinni næringu og mýkt. -
Melafadin Fluid er áhrifarík meðferð gegn litabreytingum á húðinni af völdum sólarskemmda, hormónabreytinga og ellibletta. Inniheldur kraftmikla blöndu af Vitamin-C, Lipoamino Acid og SORR-Plöntuþykkni sem vinna í sameiningu að því að hindra myndun og sundra upp dökku melanin litarefni húðarinnar og lýsa þar með og minnka/eyða dökkum blettum og jafna þannig litarhaft húðarinnar. Húðin fær dásamlega rakafyllingu og bjartara útlit með jafnari litarhafti. -
Olìulaus augnfarđahreinsir međ verndandi áhrifum.•Mýkjandi augnfarđahreinsir međ pH gildi 7,2 sem hefur einstaka verndandi eiginleika fyrir þunna og viđkvæma húđina ì kringum augun.•Kælandi gel-formúla leysir upp farđa á árángursrìkan hátt af augnsvæđi án þess ađ hafa skađleg eđa þurrkandi áhrif á náttúruleg augnhár heldur gefur þeim aukna mýkt og raka.-Noktun: Pumpiđ geli á bòmullarskìfu/mjúkan svamp og leggiđ yfir annađ auga ì einu, leyfiđ hreinsinum ađ virka ì 10-20sek og nuddiđ varlega farđann af.-Leyfiđ hreinsinum ađ liggja lengur eftir þvì hve mikill farđi er á augnsvæđi, mýkjandi efni ì hreinsinum leysa farđann sjálfkrafa af og þvì òþarfi ađ nudda mikiđ eđa erta húđina ì kringum augun.- Virkar jafnvel á vatnsheldan farđa.
- Má nota međ augnháralengingu.
- Hentar einnig þeim sem nota linsur.
-
Létt alhliða sólarvarnar-serum með SPF 30 og IR frumuvernd fyrir daglega noktun, hentar öllum húðgerðum. Svipað og útfjólubláir geislar valda innrauðir geislar sólarinnar einnig ótímabærri öldrun húðarinnar og geta leitt til óæskilegra húðskemmda síðar meir. Húðin í andlitinu er hvað mest berskjölduð fyrir geislum sólarinnar og er því ekki síður mikilvægt eins og að veita henni vörn gegn UVA og UVB geislum að tryggja húðinni þar einnig skilvirka hitavörn gegn IR geislum. FACE GUARD ADVANCED er létt alhliða formúla sem gefur húðinni góðann raka ásamt photostable UVA+UVB vörn og einstaka frumuvernd með virka efninu Ectoin®, sem hefur verið sannað að gefa húðinni skilvirka vörn gegn umhverfisáhrifum eins og þurrki, hita, kulda og útfjólubláum geislum að auki sjá líftæknilega fengin ensím um að hlutleysa sindurefni, og veita húðinni aukinn varnarskjöld ásamt hitavörn gegn innrauðum geislum (IR) FACE GUARD ADVANCED er frábær og einföld viðbót við morgunrútínuna og passar með öllum dagkremum eða farða fyrir alhliða vernd gegn UVA+UVB geislum, IR og aukinni frumuvernd. Noktun: Berið á hreina húð á morgnanna fyrir dagkrem eða farða. Tip: FACE GUARD ADVANCED er einnig frábær vörn á handarbökin og virkar eins og ósýnilegur hanski til að koma í veg fyrir óæskilegar litabreytingar og aldursbletti. Gott er að bera á handarbökin jafnt yfir daginn í útiveru eins og t.d. í golfi. -
Eykur birtu og jafnari húðlit með virkum innihaldsefnum gegn litabreytingum. Virk innihaldsefni:- Hexylresorcinol: Er mjög áhrifaríkt og öflugur týrósínasahemill sem hefur sannað virkni með sýnilegum áhrifum á dökka litabletti, jafnari húðlit og bjartari húðtón innan 8 vikna um allt að 37% Að auki hefur hexylresorcinol klínískt sönnuð áhrif gegn öldrun húðarinnar og árángur gegn ójöfnum í húðinni og fínum línum með auknum húðljóma.
- Samsetning af mórberjaþykkni(mulberry extract) og sodium phytate: Mórberjaþykkni og fýtínsýra hindra týrósínasa. Fýtínsýra örvar einnig endurnýjun frumna og náttúrulega húðflögnun. Dauðar húðfrumur (hærra melaníninnihald) losna af yfirborði húðarinnar á meðan nýjar frumur (með verulega lægra melaníninnihaldi) glæða yfirborð húðarinnar jafnari húðtón með einstakri birtu.
- Hýalúrónsýrur með stuttum og löngum keðjum: Auka rakamagn og viðhalda rakafyllingu húðarinnar.
- Sakkaríð ísómerat: Rakagefandi efni unnið úr náttúrulegum sykrum er þétt tengt við keratínlag húðarinnar og veitir vernd.
-
Háls-og bringusvæði er ekki síður mikilvægt í húðumhirðu þar sem húðin á þessum svæðum er oft berskjölduð fyrir sólarljósi, veðri og vind. Þyngdaraflið togar allt niður til sín og er húðin þar að engu undanskilin. Janssen Cosmetics hefur þróað einstaklega öfluga formúlu til þess að verjast þessum áhrifum og fyrirbyggja ótímabæra öldrun sem og viðhalda stinnleika og sléttri húð sérstaklega hannað fyrir háls- og bringusvæði. Kremið styrkir og þéttir húðvefi og hefur lyftandi áhrif, viðheldur unglegu útliti og veitir aukna fyllingu og raka einstaklega létt áferð og frískandi ilmur. -
FLAWLESS ampúla Janssen Cosmetics gefur húðinni aukna lyftingu og þèttleika með ESP - elastin-stimulating peptides. Elastin örvandi peptíð styrkja og efla náttúrulega elastin þræði húðarinnar og auka þannig tog og þéttleika húðarinnar með lyftandi áhrifum. Inniheldur einnig SORR Plant Extract sem hefur sefandi áhrif og stuðlar að jafnari húðtón og auknum húðljóma. -
Í tilfelli blandaðrar húðar getur aukin fituframleiðsla valdið óæskilegum glans á húðinni, sérstaklega á miðsvæði andlitsins, á meðan vangar og augnsvæðið eru þurrari. Sértækar hreinsivörur eru nauðsynlegar af þessari ástæðu, til þess að mæta ólíkum þörfum húðarinnar fyrir áhrifaríka hreinsun og aukið jafnvægi fyrir blandaðar húðgerðir. Gentle Cleansing Powder hefur verið þróað sérstaklega til þess að mæta þessum þörfum! Í tilfelli blandaðrar húðar getur aukin fituframleiðsla valdið óæskilegum glans á húðinni, sérstaklega á miðsvæði andlitsins, á meðan vangar og augnsvæðið eru þurrari. Sértækar hreinsivörur eru nauðsynlegar af þessari ástæðu, til þess að mæta ólíkum þörfum húðarinnar fyrir áhrifaríka hreinsun og aukið jafnvægi fyrir blandaðar húðgerðir. Gentle Cleansing Powder hefur verið þróað sérstaklega til þess að mæta þessum þörfum! Kemur í púðurformi og er blandað saman við vatn í lófunum fyrir ríkulega og kremkennda hreinsifroðu. Hreinsar farða og önnur óhreinindi af með áreynslulausum hætti sérstaklega fyrir blandaðar húðgerðir. Húðin verður silkimjúk án ertingar og öðlast betra jafnvægi, jafnvel fyrir viðkvæma blandaða húð sem fær matt yfirbragð og endurnærist á einstakan hátt. • Kremkennd froða, hreinsar húðina eykur mýkt og ferskleika • Fjarlægir farða, umfram fitu og óhreinindi af húðinni • Viðheldur náttúrulegum raka húðarinnar • Stuðlar að hreinni, jafnvægisríkri og mattri áferð • Mildur ilmur Notkun: Helltu púðrinu í lófann og blandaðu því með vatni þar til það myndar kremkennda froðu. Berðu jafnt á andlit og háls með hringlaga hreinsihreyfingum. Skolaðu af með ríkulegu magni af vatni eða rökum þvottapoka. Virk innihaldsefni:- Hydrolyzed maize starch: Náttúrulegt síuefni, hjálpar við hreinsun húðarinnar, dregur í sig umfram fitu og gefur mjúka áferð. • Silica: Náttúrulegt púðurefni, dregur í sig umfram fitu og bætir áferð húðarinnar. •Tenside based on amino acids: Yfirborðsvirk efni úr amínósýrum, hreinsa húðina með nærandi eiginleikum. • Biosynthetic polypeptide: Lífvirkt fjölpeptíð, eykur mýkt og vellíðan húðarinnar.
-
Radiant Skin Fluid – Fyrir einstakann húðljóma og geislandi yfirbragð. Ampúlan inniheldur þörunga extract úr Indlandshafi sem gefur húðinni aukinn húðljóma á sjálfbæran hátt þ.e.a.s þörunganir láta húðina sjálfa framkalla aukinn húðljóma með því að hámarka frumuskiptingu í yfirborðslögum húðarinnar og stuðla þannig að jafnari uppbyggingu hennar sem eru fullkomin skilyrði fyrir geislandi og frísklegan húðljóma. Radiant Skin Fluid inniheldur að auki kjarna úr bóndarós sem tryggir að yfirbragð húðarinnar fær aukna birtu og jafnara litarhaft með hverjum deginum sem líður ásamt tvíþættri hýalúrónsýru sem gefur húðinni djúpnærandi raka frá neðstu húðlögum sem fyllir uppí fínar línur/ójöfnur með sléttandi áhrifum á yfirborði húðarinnar. Árángur: Húðin öðlast geislandi og náttúrulegan húðljómaljóma. *Með reglulegri noktun verður litarhaft húðarinnar enn jafnara með mælanlegum árángri. -
Fullkomið duo fyrir ljómandi húð! Nú á frábæru tilboði saman með glæsilegum kaupauka, vönduð og rúmgóð Janssen Cosmetics taska með rennilás fylgir með ásamt demants vasaspegli. Spegillinn er tvískiptur með stækkun á annari hliðinni. Magic Glow Serum og Sensational Glow Cream gefa húđinni dásamlega rakafyllingu og highlight glampa án þess ađ húđin glansi eđa virki olíukennd, hlaðið næringaríkum efnum eins og þara extrakti úr Indverska hafinu sem hefur sannað virkni á aukna húðendurnýjun og aukinn ljóma húðarinnar. ☆Magic Glow Serum létt og rakagefandi serum með highlight áhrifum sem gefa húðinni perlukenndan glampa, má einnig nota staðbundið yfir krem eða farða fyrir enn meiri highlight áhrif. Húðin fær dásamlegan raka og næringu og inniheldur m.a. næringarríkan þara úr Indverska hafinu sem hefur sannað 28% aukningu á ljóma húðarinnar á 28 dögum með aukinni rakafyllingu og þéttleika. ☆Sensational Glow Cream hefur flauelsmjúka áferđ og gefur húđinni djúpvirkandi næringu og ljóma. Kremið inniheldur náttúruleg virk efni eins og koffín sem örvar blóđrás húđarinnar á mildan hátt og betrumbætir þannig starfsemi húđarinnar og gerir hana móttækilegri fyrir virkum innihaldsefnum, Glow kremið inniheldur einnig eins og serumið þara úr Indverska hafinu og gefur húđinni fallega og slèttari áferð með einstökum húðljóma. -
Nærandi og uppbyggjandi meðferð fyrir hendur og neglur með verndandi eiginleikum.Áhrifarík næturmeðferð fyrir þurrar hendur, naglabönd og neglunar sjálfar, inniheldur ríkulegt magn af Biotin – B-Vítamíni sem styrkir neglunar og spornar gegn því að neglunar klofni eða brotna.Næringarrík formúlan græðir þurra húð og sprungur, mýkir upp naglaböndin og vinnur gegn sáramyndun og þeim óþægindum sem fylgja þurrum höndum.Maskinn hefur langvarandi áhrif og verndar hendur gegn þurrki og viðheldur sterkari og heilbrigðari nöglum með reglulegri noktun.Mælt er með að nota maskann 2svar í viku eða eftir þörfum, frábært að geyma hann á náttborðinu og bera á hendur og neglur rétt fyrir svefninn.Virkar einnig sem frábær sem daglegur handáburður fyrir mjög þurrar hendur þar sem maskinn smýgur fljótt niður í húðina þannig hendunar haldast vel nærðar en þurrar viðkomu. -
Djúpvirkandi og einstaklega nærandi formúla sléttir varinar, losar um herping og fyllir uppí fínar línur af völdum þurrks ásamt því að gefa aukna fyllingu “plump”. Dásamleg næturmeðferð fyrir mjúkar varir en hentar einnig vel sem varanæring yfir daginn fyrir þurrar varir og er einnig frábær primer undir varaliti. Varinar fá samstundis fylltara yfirbragð og frísklegri litatón með mildri glansáferð. Lip Mask inniheldur blöndu af hágæða náttúrulegum innihaldsefnum eins og sólkjarna- og hörfræjarolíu með ríkulegu magni af Omega 3 og 6 fitusýrum sem gefa einstaka næringu og verja varnar fyrir þurrk. Maskinn inniheldur einnig plöntuþykkni (Paracress Extract) unnið úr jurt sem heitir Spilanthes Acmella sem er vel þekkt fyrir einstaka eiginlega á húðina gegn svipbrigðalínum (hrukkum) og er gjarnan kölluð “Botox” Jurtin þar sem hún slakar á spennu og herping í húðinni og hefur einstaklega sléttandi áhrif. Fyrir hámarksárángur yfir nóttina er mikilvægt að bera maskann vel útfyrir varinar, og alveg yfir efri vörina ef það er mikill þurrkur eða línur byrjaðar að myndast í húðinni. Þannig nær maskinn hámarksvirkni og varinar fá aukna fyllingu þar sem allur herpingur hefur slaknað og djúpnærandi innihaldsefnin fylla uppí varinar sem verða silkimjúkar. Inniheldur: • Shea butter: (Butyrospermum Parkii) • Sunflower wax: (Unnið úr Sólkjarnafræjum) • Candelilla Wax: (Euphorbia antisyphilitica) • Linseed oil: (Hörfræjarolía, rík af Omega 3og6 fitusýrum) • Cottonseed oil: (E-Vítamín) • Paracress extract (Spilanthes Acmella) • Hyaluronic acid -
Nærandi og verndandi handáburður fyrir hendur og naglabönd. Dásamlega mjúkur handáburður sem byggir upp varnarlag og mýkir upp þurrar hendur og naglabönd með græðandi eiginleikum. Smýgur fljótt niður í húðina og er alveg smitfrír þannig hendunar haldast mjúkar og mattar viðkomu og smita ekki útfrá sér í fatnað, pappírsvinnu eða annað. Inniheldur næringarríka jurtablöndu sem dregur úr óþægindum vegna þurrks og græðir sár eða rifin naglabönd og hefur styrkjandi áhrif á neglunar. Mildur hlutlaus ilmur er af kreminu og hentar því vel fyrir alla markhópa. Inniheldur: Echinacea: Purple coneflower, endurnýjandi og uppbyggjandi. Alpha-bisabolol: Virka efni kamillujurtarinnar dregur úr ertingu og roða, nærir. Glycerine: Bindur raka og eykur mýkt húðarinnar. -
SPF 50 ANTI-AGEING SÓlARVÖRN FYRIR ANDLIT OG LÍKAMA Sólarvörn er eitt það mikilvægasta sem við getum notað til þess að vernda húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar, sólarskemmdum og ótímabærri öldrun húðarinnar hvort sem er á ströndinni, skíðaferðalögum, útiveru eða daglegu amstri og ætti að vera hluti af húðumhirðu allan ársins hring. High Protection Sun Care SPF 50 sameinar fullkomna blöndu af sólavörn og umönnun fyrir húðina í einni vöru. Létt en jafnframt áhrifarík formúla veitir húðinni hámarks vörn gegn UVA og UVB geislum með verndandi eiginleikum gegn sólarskemmdum, litabreytingum og ótímabærri öldrun húðarinnar. Hentar öllum húðgerðum fyrir hámarks vörn, þá sérstaklega viðkvæmum húðgerðum/eða þau svæði sem eiga það til að brenna í sólinni. Kremið er létt og smýgur fljótt niður í húðina og ásamt SPF vörninni inniheldur kremið einnig rakagefandi Hyaluronic Sýru sem nærir húðina, eykur rakamagn og viðheldur náttúrulegri fyllingu og þéttleika ásamt frumuverndandi Ectoin® sem er einstakt lífrænt efni sem hefur þann eiginleika að efla og styrkja náttúrulegar varnir húðfrumna innan frá gegn ytra áreiti eins og hita/kulda og UV geislum. Með því myndar húðin öflugri vörn gegn sólargeislum og minnkar líkunar á sólarskemmdum/litabreytingum síðar meir. *Vörn gegn UVA og UVB geislum *Fyrirbyggir sólarskemmdir af völdum sólbruna *Fyrirbyggir litabletti/breytingar af völdum sólargeisla *Hentar öllum húðgerðum, einnig veiðkvæmum *Létt formúla sem smýgur hratt niður í húðina *Rakagefandi formúla sem getur komið í staðinn fyrir dagkrem yfir sumartímann Noktun - Berið ríkulegt magn á húðina c.a. 30min áður en farið er í sólarljós, bætið á eftir þörfum yfir daginn til þess að viðhalda vörn sérstaklega eftir sundferðir eða hreyfingu þar sem er mikið svitnað. -
3x2stk. í pakkaKælandi augnmaski tilbúin til noktunar, dregur samstundis úr þrota og bólgum og örvar sogæðahreinsun með mild örvandi áhrifum frá koffíni, með því minnkar blámi undir augunum og húðin verður bjartari.Maskinn hefur einstaklega sléttandi áhrif með virku Paracress extract sem hefur Botox lík áhrif á húðina en það slakar á herping í litlum vöðvum undir augunum og sléttir þannig úr húðinni með sýnilegum áhrifum sem fletur út fínar línur og minnkar umfang á djúpum línum/hrukkum, saman með löngum og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru sem fylla húðlögin af langavarandi raka og fyllingu. Maskanir eru úr 100% viscose fleece, biogradable efni með oeko-tex standard 100 sem brotnar niður án þess að valda skaða í náttúrunni. -
Næringarríkt krem fyrir þurra húð, húð sem finnur vel fyrir þurrk og/eða herpingstilfinningu, húðin fær samstundis létti við fyrstu viðkomu og djúpvirkandi næringu með langvarandi eiginleikum. Hyaluron³ Replenish Cream er einnig frábær kostur sem næturkrem á móti léttara dagkremi. Húðin í andlitinu er fyrir stöðugum umhverfisáhrifum bæði frá geislum sólar, mengun, veðri og vind sem getur valdið ótímabærri öldrun, þurrki, viðkvæmni og öðrum óþægindum. Við getum auðveldlega varið húðina á líkamanum með fatnaði en viðkvæm húðin í andlitinu er yfirleitt berskjölduð og því ber að huga að öðrum ráðum. Hyaluron³ Replenish Cream er einstaklega næringarríkt og baðar húðina uppúr náttúrulegum gersemum á borð við hreina Avocado Olíu og Plöntuþykkni úr Hvítum Lúpínum verndar einnig frumunar fyrir skaðlegum áhrifum sindurefna og ótímabærri öldrun með andoxandi eiginleikum frá E-Vítamíni, samsetning þessa lykil efna sér um að veita húðinni djúpan raka, bæta starfsemi og þannig styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar bæði sem 24stunda- eða næturkrem eftir þörfum húðarinnar. - Helstu innihaldsefni: White lupin extract= Stuðlar að auknu jafnvægi á frumustarfsemi húðarinnar sem sjá húðinni fyrir næringu og raka og takmarka rakatap húðarinnar. Rannsóknir hafa sýnt að húðin hefur öðlast allt að 11% meiri stöðugleika eftir aðeins 14 daga. Imperata cylindrica =Næringarríkt plöntuþykkni úr einstakri plöntu sem finnst í eyðimörkum bæði í Ástralíu og Asíu, plantan er einstaklega rík af potassium og þekkt fyrir rakabindandi eiginlega til að lifa af þurrk og harðindi. Rannsóknir sýna að húðin hefur aukið rakamagn sitt um 20% eftir aðeins 24klst. Hyaluronic Sýra „langar keðjur og stuttar keðjur (cross-linked)“=Einstakur rakagjafi sem hefur þann eiginleika að þúsundfalda þyngd sína í vatni og bindur þannig raka í húðinni þannig hún heldur mýkt og fyllingu. Avocado Oil= Nærandi, mýkir og eykur nýmyndun húðarinnar. Vitamin E -Acetate= Verndar húðfrumunar gegn skaðlegum sindurefnum. -
Rakagefandi gelkrem sérstaklega þróað fyrir rakaþurrar húðgerðir sem þurfa samstundis rakabúst! Frískandi gel formúlan smýgur hratt niður húðina og fyllir húðlögin samstundis af raka sem eykur fyllingu og dregur sýnilega úr fínum línum vegna yfirborðsþurrks og losar um herpingstilfinningu sem gefur húðinni samstundis frísklegra yfirbragð og líflegri litatón. Hydro Active Gel er samsett úr djúpnærandi virkum efnum sem eykur rakamagn hjá þurrum húðgerðum og viðheldur rakastigi í efri húðlögum og eykur þannig mýkt og náttúrlegan þéttleika húðarinnar. - Helstu innihaldsefni: Wild Pansy Extract=Eykur boðleiðir og flytur raka á milli húðfrumna í efri lögum húðarinnar. Hyaluronic Sýra „langar keðjur“=Einstakur rakagjafi sem hefur þann eiginleika að þúsundfalda þyngd sína í vatni og bindur þannig raka í húðinni þannig hún heldur mýkt og fyllingu. Imperata cylindrica =Næringarríkt plöntuþykkni úr einstakri plöntu sem finnst í eyðimörkum bæði í Ástralíu og Asíu, plantan er einstaklega rík af potassium og þekkt fyrir rakabindandi eiginlega til að lifa af þurrk og harðindi. Rannsóknir sýna að húðin hefur aukið rakamagn sitt um 20% eftir aðeins 24klst. Shea Butter =Nærir húðina, losar um herpingstilfinningu og gerir húðina mjúka viðkomu. D-Phantenol =Styður við náttúrulega endurnýjun og styrkir ytra byrði húðarinnar með sefandi áhrifum sem draga úr óþægindum eða ertingu í húð. -
Gefur eins og nafnið gefur til kynna “instant” lyftingu! Kælandi og frískandi húðdropar hlaðnir af hreinu sjávarkollageni sem gefur húðinni fyllingu og frísklegra yfirbragð á aðeins örfáum mínútum. Kollagenið smýgur hratt niður í neðstu húðlög í gelkenndri formúlu sem fyllir á og bindur sig við náttúrulegt kollagen húðarinnar. Kælandi gelið virkar einstaklega frískandi og húðin lifnar við á aðeins örskömmum tíma. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha) og Marine Collagen(Sjávarkollagen) -
S.O.S viðgerðarmaski sem hefur eins og nafnið gefur til kynna samstundis kælandi áhrif, minnkar bólgu, roða og róar niður alla ertingu og hitatilfinningu í húðinni á sem skemmstum tíma sem mögulegt er! Eftir aðeins 5mín hefur dregið sýnilega úr roða og viðnám húðarinnar betrumbæst með Fucogel® sem hefur samstundis sefandi áhrif og kælir niður húðina. Næringarrík formúla smýgur hratt niður og hleður húðlögin af raka sem gefa henni aukna fyllingu og sléttari áferð og Skin Defense Complex+ styrkir viðkvæmt háræðanet húðarinnar með græðandi eiginleikum sem draga úr viðkvæmni. Hraðvirkandi og áhrifarík virkni gefa húðinni aukinn húðljóma og silkimjúka áferð Noktun: Berið á hreina húðina og leyfið að liggja á í a.m.k. 15mín, nuddið restinni niður í húðina með rökum bómull. -
Stem Cell ampúlan frá Janssen er alveg einstök en hún inniheldur Epla-stofnfrumur úr sjaldgæfu svissnesku eplatré "Uttwiler Spätlauber" en þær líkjast og hafa sömu eiginleika og stofnfrumur manna. Húðin tekur vel á móti þessum merkilegu stofnfrumum og örvar sína eigin frumuskiptingu og framleiðir þar af leiðandi meira kollagen og eflir nýmyndun húðarinnar, húðin öðlast betri rakafyllingu og fær aukinn kraft og hægjir á náttúrruleg öldrunarferli með hjálp frá Stem Cell Fluid. Árangurinn er aukin endurnýjun og bætt starfsemi húðar, sléttir úr fínum línum og grynnkar á hrukkum sannkallað orkuskot fyrir húðina! *Til gaman má geta þess að Svissneska Eplatréð "Uttwiler Spätlauber" er þekkt fyrir einstaklega stökk og bragðgóð epli sem þóttu haldast fersk mun lengur en önnur epli, vísindamönnum þótti þetta afar merkilegt og hófu rannsóknarvinnu og fundu út þessi einstöku tengsl og miklu virkni á húð manna. -
Frábært 24-stunda krem fyrir viðkvæmar og/eða þurrar húðgerðir þar sem herpingstilfinning og pirringur í húðinni hverfur samstundis með kælandi og frísklegum áhrifum um leið og kremið er borið á. Rakamikið og djúpnærandi krem með Skin Defence Complex náttúrulegu plöntuþykkni sem styrkir varnarkerfi húðarinnar og verndar viðkvæmt háræðanetið fyrir utanaðkomandi áreiti. Kremið smýgur hratt niður á milli húðlaga og gefur einstaka mýkt og fyllingu án þess að yfirborð húðarinnar verði fitugt. Húðin fær hraustlegra yfirbragð og húðlitur verður jafnari, verndandi virkni og alhliða betrumbætandi áhrif á húðina. Noktun: Berið á hreina húð kvölds og morgna, yfir andlit og háls eitt og sér eða yfir serum. Tip: Fyrir enn meiri virkni og árángur notið samhliða Intense Calming Serum. -
Intense Calming Lotion er létt kremformúla fyrir viðkvæma húð, frábært fyrir yngri húðgerðir eða þá sem vilja léttari krem. Djúpvirkandi 24stunda formúla sem bæði verndar húðina á daginn og stuðlar að bættri endurnýjun á nóttunni. Fyrir enn betri virkni og árángur Intense Calming Lotion notið samhliða Intense Calming Serum. Kremið inniheldur sérþróað Skin Defense Complex+ sem samanstendur af virkum plöntuefnum og nauðsynlegum fitusýrum fyrir náttúrulega endurnýjun og heilbrigðan varnarhjúp húðarinnar. Létt formúlan inniheldur einnig náttúrulegt alpha bisabolol og allantoin sem dregur verulega úr bólgum, roða og viðkvæmni og bætir áferð húðarinnar með sýnilegum árángri. Saccharide isomerate og hýalúrónsýra veita húðinni djúpvirkandi rakagjöf og stuðla að auknu rakajafnvægi með langvarandi árángri fyrir viðkvæmar húðgerðir. Intense Calming Lotion er einnig tilvalið sumarkrem fyrir þau sem kjósa léttara krem yfir sumartímann, ef herpingur er enn til staðar í húðinni er hægt að nota Intense Calming Cream sem næturkrem. Inniheldur:- Skin Defense Complex+: Mjög virk plöntublanda með sólberjafræolíu (rík af ómega-3 og ómega-6 fitusýrum, dregur úr bólguferlum og bætir varnarvirkni húðarinnar), belgplöntukjarni (ríkur af plöntusterólum, talinn vera náttúrulegur valkostur í stað hýdrókortisóns, dregur úr bólgu) og hlutum sólblómaolíu sem ekki er hægt að mynda sápu úr (rík af nauðsynlegum fitusýrum; verndar og bætir skaddað varnarlag húðarinnar, dregur úr ofnæmisviðbrögðum)
- Langar og stuttar keðjur af hýalúrónsýru: Gefur mikinn raka og bindur hann í húðinni
- Shea-smjör: Nærir húðina og styður við varnarvirkni hennar
- Isostearyl Isostearate: Mýkjandi efni úr jurtahráefnum; klínískar rannsóknir sýna að það samlagast fituefnum milli frumna, styrkir þau og eykur varnarvirkni húðarinnar
- Squalane: Líkist náttúrulegum olíum í húðinni; kemur í veg fyrir þurrk, sléttir húðina
- Saccharide Isomerate: Kolvetnablanda sem er eins og húðin og veitir húðinni langvarandi raka (72 klukkustunda áhrif)
- α-Bisabolol: Róandi, bólgueyðandi og dregur úr ertingu
- Allantoin: Sefar erta húð og dregur úr roða
- E-vítamín asetat: Andoxandi, verndar húðfrumur gegn skaða af völdum sindurefna
-
Öflugt viðgerðar-serum fyrir viðkvæmar húðgerðir sem styrkir náttúrulegt varnarlag og kemur jafnvægi á húðina. Sérþróuð Skin Defence Complex+ formúla Janssen Cosmetics hefur breiðvirk græðandi áhrif t.d. á exem og ofnæmisgjarna húð, rósroða, háræðaslit og acne. Dregur úr hitatilfinningu, kláða, ertingu og minnkar sjáanlega roða og styrkir viðkvæmt háræðanet húðarinnar. Létt formúlan smýgur hratt niður í húðina eykur rakamagn og mýkt húðarinnar þannig að áferðin verður flauelsmjúk. Noktun: Berið á hreina húð kvölds og morgna, yfir andlit og háls eitt og sér eða undir krem. Tip: Fyrir enn meiri virkni og árángur notið samhliða Intense Calming Cream. -
Djúphreinsandi maski með græðandi áhrifum fyrir olíukennda, bólugjarna og grófar húðgerðir með opnar/stórar húðholur. Maskinn inniheldur djúpvirkandi Equal-Refining Complex sem vinnur sérstaklega að því að minnka umfang á opnum/stórum húðholum og koma jafnvægji á framleiðslu fitukirtla húðarinnar, maskinn vinnur þannig úr neðri lögum húðarinnar við að jafna út umfram fituframleiðslu og fyrirbyggir þannig stíflur í húðholum og bakteríusýkingar. Til stuðnings á yfirborðinu dregur Kaolin í sig alla umfram húðfitu og minnkar þannig verulega olíuglans og mattar yfirborð húðarinnar. Aloe Vera og Bisabolol minnka samstundis bólgur og roða í húðinni með græðandi áhrifum sem dregur úr ertingu, hita og óþægindi í húðinni. Húðin fær samstundis létti og öðlast auka birtu og frísklegra yfirbragð. Noktun: Berið maskann á hreina húð . forðist augnsvæði og látið liggja á í 20min. Tip. Maskinn þornar örlítið upp á húðinni, gott er að leggja volgt þvottastykki upp við húðina og blyta maskann upp til að auðvelda hreinsun. Má einnig nota staðbundið á T-Svæði eða sem blettameðferð á bólur. -
Orkugefandi kornakrem fyrir þurra, þreytta, líflausa og grófar húðgerðir. Hreinsar dauðar húðfrumur og óhreinindi af yfirborði húðar á árángursríkann hátt. Endurlífgar starfsemi húðarinnar og eykur blóðflæði með örvandi áhrifum, húðin verður flauelsmjúk og geislar af orku. Nuddið yfir andlitið með hringlaga hreyfingum þangað til kremið er orðið olíukennt. Helstu innihaldsefni : Fínmalaðir ferskjukjarnar, Makadamíuolía -
Roll-On fyrir augun sem dregur samstundis úr þreytumerkjum með kælandi stálkúlu á endanum sem gefur raka og með koffíni sem frískar sýnilega uppá augnsvæðið!Með einstaklega sléttandi áhrifum og fyrirbyggir ótímabæra öldrun, hrukkur og línur í kringum augun.Samspil innihaldsefna m.a. koffín og sérþróuð anti-wrinkle peptíðblanda ásamt Silk Acacia þykkni draga sýnilega úr dökkum baugum og bólgum “puffiness” í kringum augnsvæði og vinna saman með einstökum áhrifum þegar formúlan er borin á með roll-on stálkúlu sem örvar sogæðahreinsun og veitir vellíðunar tilfinningu með kælandi áhrifum.Algjör draumur fyrir þreytt augu á morgnanna!Inniheldur:• Long-chain hyaluronic acid: Djúpvirkandi rakagjöf sem eykur og viðheldur rakamagni húðarinnar.• Matrixyl™3000: Peptíð formúla með sléttandi áhrifum gegn öldrun húðarinnar.• Silk acacia extract: Dregur úr dökkum lit (baugum) undir augum og minnkar bólgur og þrota.• Caffeine: Frískar og örvar sogæðahreinsun og blóðflæði með bólgueyðandi áhrifum -
Light Mattifying Cream er létt 24-stunda krem fyrir olíukenndar húðgerðir, kremið stuðlar að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar og inniheldur Silica púður sem dregur samstundis í sig umfram húðfitu á yfirborði húðarinnar og gefur henni matta og flauelsmjúka áferð. Kremið inniheldur djúpvirkandi Equal-Refining Complex sem vinnur sérstaklega að því að minnka umfang á opnum/stórum húðholum og koma jafnvægji á framleiðslu fitukirtla húðarinnar, kremið vinnur þannig úr neðri lögum húðarinnar við að jafna út umfram fituframleiðslu og fyrirbyggir þannig stíflur í húðholum og bakteríusýkingar með sjáanlegum árángri en rannsóknir hafa sýnt stórar/opnar húðholur dragast saman um allt að 16% á aðeins 28 dögum. Létt formúlan smýgur fljótt niður húðina með kælandi og sefandi áhrifum frá hreinu Aloe Vera og fyllir húðlögin af dásamlegum raka með löngum og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru sem tryggir hámarks rakagjöf og fyllir uppí fínar línur af völdum rakaþurrks og eykur mýkt húðarinnar. -
Light Tightening Cream frá Janssen Cosmetics er fullkomiđ krem fyrir húđ sem þarf djúpa næringu međ uppbyggjandi áhrifum án þess ađ ofmetta húđina eða gefa olíuglans. •Létt en jafnframt orkumikið krem fyrir húð sem vantar aukna orku og þéttleika hentar fullkomnlega húðgerðum sem eru farna að missa teygjanleika og vantar líflegri húðlit og orku án þess að gefa húðinni glans eða olíkennda áferð. •Létt formúlan gefur samstundis frísklegri húðlit með mild örvandi áhrifum. Inniheldur Vitality-Equalizer sem er líftækni formúla og samanstendur af Euglena gracilis einfruma sjávarþara sem virkjar frumustarfsemi húðarinnar og örvar losun kalsíums og eykur þannig orkubúskap húðarinnar og endurheimtir þéttleika og unglegra yfirbragð. Vísindalegar rannsóknir sýna fram á að eftir aðeins 1 mánuð hefur húðin öðlast 4 sinnum betri teygjanleika og 3 sinnum meiri þéttleika. Kremið inniheldur einnig rakagefandi Aloe Vera og Bisabolol sem saman draga úr allri húðertingu, roða og bólgum í húðinni með mattandi Silica púðri sem dregur í sig allra umfram húðfitu þannig húðin helst mött og þurr viðkomu. -
Alkahól frír svitalyktareyðir með langvarandi áhrifum. Kemur í þægilegu stifti sem rennur mjúklega yfir handakrikann án þess að valda ertingu eða óþægindum í húðinni með mildum og léttum herrailm. Inniheldur sérvalin plöntuþykkni sem hafa þau áhrif að eyða svitalykt og sporna gegn fyrir að svitalykt myndist með langvarandi eiginleikum. -
Lúxús Olíuhreinsir úr 100% náttúrulegum olíum með muldum gullflögum sem fær húđina til ađ glòa! Fullkominn fyrir þurrar húđgerđir sem vantar, næringu og auka orkuljóma. Hreinsar vandlega yfirborð húðarinnar og olìunar næra og mýkja upp húđina, má einnig nota á augnsvæđi. Hreinsar vatnsheldan farða og maskara án vandræđa og nærir húðina með ríkulegu magni af omega 3 og 6 fitusýrum og steinefnaríkum gullflögum sem fær húðina til að glóa. Innih. • Gold of Pleasure Oil: (INCI: Camelina Sativa Oil) -
Magic Glow Serum gefur húðinni þetta “highlight” áhrif á náttúrulegan hátt án farða! Einstök rakagefandi formúla með næringarríkum þara úr Indverska hafinu sem hefur sannað 28% aukningu á ljóma húðarinnar á 28 dögum með aukinni rakafyllingu og þéttleika. Rakagefandi Hyaluronic Sýra og Soft Focus Pigments hylja fínar línur og fylla á rakabirgðir húðarinnar með “highlight” áhrifum þegar birtan glampar á húðina. Hentar fullkomnlega undir farða eða annað krem eða eitt og sér fyrir ljómandi húð. Pro Tip! Fyrir enn meiri ljómaáhrif notið undir Sensational Glow Cream -
Þéttandi og lyftandi 24.stunda krem með sjávarkollageni og kollagen-booster sem vinnur gegn kollagen niðurbroti húðarinnar og eykur þéttleika með lyftandi áhrifum. Húðin fær samstundis aukna rakafyllingu (“plump”) og verður þéttari viðkomu þar sem virk innihaldsefni binda raka í efstu húðlögunum og mynda ósýnilega varnarfilmu sem fyllir uppí fínar línur vegna rakaþurrks með sléttandi áhrifum á yfirborð húðarinnar. Með reglulegri noktun getur húðin þrefaldað náttúrulegar kollagen birgðir sínar, sem eykur styrkleika, hald og lyftingu í húð sem er byrjuð að missa teygjanleika, varðveitir rakafyllingu og gefur húðinni ferskara og líflegra yfirbragð. -Virk innihaldsefni: *Marine Collagen (Sjávarkollagen): hefur lyftandi eiginlega á húðina og myndar varnarfilmu í efstu húðlögum sem bindur raka og eykur fyllingu húðarinnar með sléttandi áhrifum. *Pomegranate blóma þykkni og C vítamín virkja og styðja við aukna náttúrulega kollagen framleiðslu húðarinnar með andoxandi eiginleikum sem spornar gegn niðurbroti kollagenþráða og ótímabærri öldrun húðarinnar af völdum sindurefna (free radicals). -Til viðbótar fær húðin dásamlega mýkt og rakafyllingu með löngum keðjum af Hyaluronic sýru og nærandi Makadamíu olíu og frumuverndandi “anti aging” eiginleika E vítamíns. -Kremið hentar þurrum og rakaþurrum húðgerðum sem vantar aukinn þéttleika og fyllingu með lyftandi áhrifum. -
Marine Collagen Fluid fyrir þéttari og frísklegri húð. Inniheldur hátt hlutfall af hreinu sjávarkollageni, löngum- og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru ásamt granateplaþykkni. ACTIVATE Marine Collagen ampúlunar gefa húðinni samstundis aukinn þéttleika með langvarandi eiginleikum þar sem kollagenþræðir húðarinnar taka vel á móti aðstoð og utanaðkomandi styrk frá sjávarkollageni ampúlunnar. Hyaluronic sýran sér um að gefa húðinni aukinn raka og passar uppá að virk efni nái á áfángastað niður neðstu húðlögin. Að auki fær húðin frísklegra yfirbragð og litarhaft húðarinnar verður líflegra með öflugri andoxun frá hreinni ofurfæðu fyrir húðina úr grantateplunum. -
Fíngert hreinsi-púður með hreinu C-Vítamini fyrir bjartari og þéttari húð. Einfalt í noktun, blandar dásamlega hreinsifroðu á örfáum sek í lófunum! Helltu c.a. 1/2 tsk af púðrinu í lófann og blandaðu með örlitlu vatni, gott er að nota fingurna til þess að dropa hreinu vatni yfir púðrið og blandaðu svo saman með báðum lófum í létta kremkennda froðu. Hreinsar farða og önnur óhreinindi af yfirborði húðarinnar með skilvirkum hætti auk þess sem virkni af hreinu C-Vitamini eykur birtu, ljóma og stuðlar að auknum þéttleika húðvefja. Fyrir enn léttari froðu mælum við með að nota pensil og Melafadin Toner til blöndunar og þeyta upp létta froðu. Inniheldur: • Pure vitamin C: Ascorbic acid, inhibits melanin maturation • Condensate consisting of coconut fatty acid and amino acid: Cleansing tenside based on replenishable raw plant materials • Titanium dioxide: White pigment for optically brightening the skin • Talcum: Absorbent • Silicone powder: Carrier substance -
Melafadin Toner er ómissandi hluti af húðrútínu fyrir bjartari húð og jafnari húðlit gegn litaflekkjum eða dökkum blettum vegna sólarskemmda.
Frískandi andlitsvatn sem fullkomnar hreinsun húðar, jafnar pH gildi og gerir húðina móttækilegri fyrir frekari meðhöndlun.
Virk innihaldsefni:
- Morus alba : plöntu-þykkni unnið úr White Mulberry trjárótum stuðla að jafnari húðlit og auka birtu í húðinni.
- Plant extract SORR: Einstök virkni frá náttúrunnar hendi hindrar frásog melaníns í keratínsítur húðarinnar sem mynda efstu húðlögin og hindra því myndun dökka bletta með andoxandi áhrifum frá plönturíkinu.
- Glycerin: Nærandi og mýkjandi áhrif.
- Aloe vera: Sefar og rakagefandi.
- Allantoin: Eykur endurnýjun og minnkar ertingu í húð.
-
Alkahólfrítt andlitsvatn með micellar tækni sem hreinsar upp umfram olíur og óhreinindi af yfirborði húðarinnar. Fullkomnar hreinsun húðar, jafnar pH gildi og gefur húðinni frísklegan ljóma, eykur virkni krema sem borin eru á eftir noktun og eykur rakamagn húðarinnar. Innih. Saccharide Isomerates og Hyaluronic Sýru.