-
Orkumikið og djúpnærandi krem fyrir húð sem er byrjuð að eldast. Djúpvirkandi formúla sem gefur húðinni samstundis orku og hraustlegan ljóma. Virk innihaldsefni auka nýmyndun húðar og þéttleika, fínar línur og áferð húðarinnar verða jafnari og náttúrulegt varnarlag fyrir utanaðkomandi áreiti og sindurefnum(free radicals) styrkist. Smýgur fljótt niður í húðina þannig húðin helst þurr viðkomu, með frísklegum herrailm. -
24h Body Moisturizer einstaklega næringarríkt og frískandi líkamskrem með langvarandi nærandi og verndandi eiginleikum. Létt en jafnframt djúpnærandi formúla með Black Orchid Extract sem verndar húðina gegn þurrki með náttúrulegum fitusýrum og gefur húðinni frísklegra yfirbragð með léttum en dásamlegum blómailm. Kremið inniheldur einnig nærandi Shea Butter, Hyaluronic Sýru og Aquaderm® Complex blanda af náttúrulegum efnum með nærandi eiginleika og virkni sem næra þurra húðina í allt að 8klst eftir að kremið er borið á. Létt formúlan losar samstundis um herping í húðinni og inniheldur Allantoin sem veitir létt kælandi áhrif og sefar roða. Kremið smýgur fljótt niður húðina og smitar ekki út frá sér heldur helst húðin mött og silkimjúk. Inniheldur: Black Orchid Extract: Oily extract; auðugt af fitusýrum, verndar húðina gegn þurrki og styrkir varnarlag húðarinnar með frískandi áhrifum. Aquaderm®:Complex samanstendur af nærandi og mýkjandi efnum (pyrrolidone carboxylic acid, lactic acid lactate, fructose, glycine, niacinamide)Vísindalegar rannsóknir sýna virkni í húðinni í allt að 8tíma þar sem húðin viðheldur mýkt og næringu. Hyaluronic acid:Viðheldur raka með langvarandi áhrifum. Shea butter: Nærir og mýkir húðina og myndar varnarlag í efstu húðlögum. Allantoin: Sefar viðkvæma húð og dregur úr roða. -
Intensíf 40 daga C vítamín meðferð, gegn litabreytingum og öðrum ójöfnum. Virkt efni í 2-fasa ampúlum með vítamín C fosfati (duftfasi) ásamt lipoamínósýru, SORR og útdrætti úr mulberry rót (vökva fasi). Inniheldur 4x 10ml ampúlur og 1x pípettu lok Intensíf 40 daga C vítamín meðferð, gegn litabreytingum og öðrum ójöfnum. Virkt efni í 2-fasa ampúlum með vítamín C fosfati (duftfasi) ásamt lipoamínósýru, SORR og útdrætti úr mulberry rót (vökva fasi). Inniheldur 4x 10ml ampúlur og 1x pípettu lok Vítamín C fosfat í mjög háum styrk hemur melanin vöxt og verndar húðina einnig gegn oxunarálagi. Það stuðlar einnig að náttúrulegum viðgerðarferlum húðarinnar og örvar kollagenmyndun og bætir húðstrúktúr. 2-Phase Melafadin Concentrate býður uppá einstaka virkni með tveggja fasa ampúlum til heimameðferðar með hreinu C vítamíni. Vítamín C duftið (fasi 1) er blandað og leyst upp af innihaldsríkum activator (fasa 2). Báðir fasanir sameinast í blöndu með hámarks virkni af styrkjandi eiginleikum og óviðjafnanlegum húðljóma. Kúrinn er ætlaður sem meðferð fyrir alhliða betrumbætta áferð húðarinnar, styrkleika, jafnari húðlit og geislandi fallegan húðljóma . Kúrinn inniheldur 4 x 10 ml flöskur sem eru nauðsynlegar fyrir u.þ.b. 40 daga meðferðarferli. Ampúlunar koma með praktísku pípettu loki sem mælir hvern skammt fyrir sig fyrir daglega notkun og endingu. 2-Phase Melafadin Concentrate er 40 daga meðferð. Innihald einnar ampúlu dugar í u.þ.b. 10 daga og samanstendur af dufti og vökva. Báðir hlutanir eru blandaðir saman fyrir fyrstu notkun. Til að blanda ampúluna, ýttu einfaldlega á hnappinn á lokinu með smá afli, það kemur smellur. Hristið innihaldið vel saman, fjarlægið hnappinn og setjið pipettu lokið á ampúluna. Berið u.þ.b. 1 ml af lausninni á hreina húð á morgnana og kvöldin. Innihaldsefni: Duft fasi: • Vítamín C fosfat: Stöðug askorbínsýra; stöðug í vatni; umbreytist í C vítamín í húðinni með náttúrulegum ensímum húðarinnar (esterösum); hamlar melanin vöxt, styrkir kollagenþræði, eflir kollagenframleiðslu. Vökva fasi: • Lipoamínósýra: (INCI: undecylenoyl phenylalanine), áhrifaríkt húðlýsingarefni, blokkar α-MSH viðtaka á yfirborði melanósíta. • Plant extract SORR: Mjög virkur útdráttur úr Siegesbeckia orientalis og Rabdosia rubescens; hindrar upptöku melanins í keratínsítum, hefur sefandi og andoxandi áhrif, stuðlar að jafnri, geislandi húð. • Morus alba: extrakt úr rótum hvíta mullberry trésins; hemur tyrosinasa og heldur þeim í óvirkri stöðu og hamlar þannig melanin framleiðslu -
ACTIVATING sturtugel fyrir karlmenn 2 in 1 fyrir hár og líkama. Active Shower Gel frá JANSSEN COSMETICS er fullkomin byrjun á deginum. Endurlífgandi og frískandi formúlan tryggir milda en áhrifaríka hreinsun á húð og hári og skilur eftir frábæra ferskleikatilfinningu. Active Shower Gel hreinsar yfirborð húðarinnar á áhrifaríkan hátt án þess að virka þurrkandi þökk sé mildum yfirborðsvirkum efnum úr kókos og sykrum sem koma í veg fyrir að húðin þorni. Gagnsæ geláferðin dreifist auðveldlega og myndar mjúka froðu þegar það er blandað saman við vatn og eykur þannig endingu þar sem ekki þarf að nota mikið af gelinu fyrir ríkulegt magn af froðu. Gelið er með mildum en herralegum blæ sem lífgar upp á skynfærin og skilur eftir sig mjúka angan af krydduðum sandalviði, sítrus og jasmine. -
After Sun frá Janssen Cosmetics er fullkomið líkamskrem eftir sólríka daga, sund og útiveru. Kælandi formúlan gefur húðinni samstundis létti með græðandi áhrifum, hefur djúpnærandi virkni og smýgur fljótt niður húðina og fyllir á tóma rakatanka sem gefur húðinni dásamlega mýkt og vellíðan. Janssen Cosmetics After Sun hefur einnig einstaklega verndandi áhrif og eflir náttúrulegar varnir húðarinnar gegn sólarskemmdum, ótímabærri öldrun og öðrum húðskemmdum sem geta myndast við sólbruna. Húðin verður jafnari og fær fallegri lit með sólkysstum ljóma.- Er kælandi, græðandi og gefur húðinni mýkt og vellíðan
- Smýgur fljótt niður í neðstu húðlögin
- Hefur verndandi áhrif og eflir náttúrulegar varnir húðarinnar gegn ótímabærri öldrun og öðrum húðskemmdum sem geta myndast við sólbruna
- Inniheldur:
- Aloe Vera : kælandi og græðandi
- Alpha bisabolol: dregur úr bólgum og roða
-
Þegar húðin byrjar að eldast hægist á náttúrulegri starfsemi og endurnýjun húðarinnar, húðin verður slakari og þráir örvun og orku. Age Perfecting Serum er akkurat þetta auka orkuskot með plöntustofnfrumum sem húðin tekur vel á móti og eykur náttúrulega frumustarfsemi og endurnújun húðarinnar. Sérhönnuð formúla sem eykur virkni og innsíun virkra efna og passar fullkomnlega með Perfect Lift og Rich Recovery Cream úr Mature Skin línunni frá Janssen Cosmetics fyrir enn sýnilegri árángur. TIP: Serumið má bera alveg upp undir augu undir annað augnkrem fyrir djúpvirkandi lyftingu og sléttara yfirbragð húðarinnar í kringum augnsvæðið. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha), Hyaluron Sýru, Vitamin C og E og Plöntustofnfrumur (Alpine Rose) -
AHA + BHA Cleanser pH 4,2 AHA + BHA Cleanser er áhrifarík hreinsimjólk fyrir olíukennda, bólugjarna og Acne húðgerðir og einnig fyrir grófgerða/eldri húð með opnar/stórar húðholur. Hreinsimjólkin inniheldur ávaxtasýrur sem hreinsa burt farða, óhreinindi og dauðar húðfrumur á áhrifaríkan hátt af yfirborði húðarinnar. AHA + BHA hreinsimjólkin inniheldur blöndu af AHA glycolic, malic, citric og tartaric sýru og BHA salicylic sýru sem vinna fullkomnlega saman í baráttunni við opnar/stíflaðar húðholur, bólur og bakteríusýkingar (Acne) í húðinni. AHA sýrunar leysa upp dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar og opna fyrir stíflaðar húðholur sem gefur húðinni tækifæri að losa um umfram húðfitu og dregur þannig úr að húðholur stíflist og myndi djúpar bólgur eða bólur. BHA salicylic sýran styður svo enn betur við þetta ferli þar sem hún fer ennþá dýpra niður í húðholunar með fituleysanlegum áhrifum og hreinsar upp stíflaðar húðholur og fílapensla með bakteríudrepandi eiginleikum, salicylic sýran hefur einnig bólgueyðandi áhrif á Acne húðgerðir þar sem húðin getur oft verið viðkvæm og aum viðkomu. Við reglulega noktun á AHA + BHA Cleanser öðlast húðin betra jafnvægi sem styður við náttúrulega endurnýjun og heilbrigði húðarinnar, opnar/stórar húðholur dragast saman og minnka með sýnilegum árángri og sléttir úr yfirborði húðarinnar. Noktun: Dreifið mjólkinni vel yfir andlit, háls og bringu og hreinsið með léttum hringlaga hreyfingum í 3-5min, hreinsið síðan af með volgu vatni/þvottapoka og ljúkið hreinsun með andlitsvatni Purifying Tonic. *Hafa ber í huga að pH gildi vörunnar sem er 4,2 ekki hafa mjólkina lengur á húðinni en 3-5min -
AHA + BHA Exfoliator er djúphreinsandi ávaxtasýru gel með einstaka og áhrifamikla virkni fyrir olíukennda, bólugjarna og acne húðgerðir. Gelið inniheldur hátt hlutfall af sérvalinni blöndu af fjórum ávaxtasýrum (AHA) glycolic, malic, citric og tartaric sem og hreinni (BHA) salicylic sýru sem leysa upp og fjarlægja dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar og losa um stíflur í húðholum á áhrifaríkan hátt með bakteríudrepandi og bólgueyðandi áhrifum frá salicylic sýrunni. AHA + BHA Exfoliator er þó ekki einungis bara frábær vara í baráttunni gegn bólum þar sem ávaxtasýrunar hafa breiðvirk áhrif á húðina og virkjar lúnar húðfrumur og náttúrulegt endurnýjunarferli, þar á meðal eykst nýmyndun kollagens sem viðheldur og eykur þéttleika húðarinnar. Með reglulegri noktun verður yfirborð húðarinnar sléttara, fínar línur, hrukkur og opnar húðholur dragast saman og minnka með sjánlegum árangri auk þess sem litabreytingar/elliblettir og dökkir blettir vegna sólarskemmda lýsast eða hverfa alveg. NB. AHA + BHA Exfoliator kemur í tveimur mismunandi styrkleikum annarsvegar 30% AHA+BHA styrkleika í stofuvöru og 20% AHA+BHA styrkleika í söluvöru. -
Sérvalin blanda af ávaxtasýrum örvar húðflögnun og náttúrulega endurnýjun húðarinnar. Ótrúlega gott sem viðgerðarkrem þar sem ávaxtasýrunar hafa leiðréttandi áhrif og betrumbæta alla starfsemi húðarinnar. *Hreinsa stíflaðar húðholur, jafna fituframleiðslu og draga úr fílapensla og bólumyndun *Rakagefandi með örvandi áhrifum á náttúrulega rakaframleiðslu húðarinnar *Jafna misfellur og slétta yfirborð húðarinnar *Jafna náttúrlegan litarhátt húðarinnar, dregur úr litabreytingum og hefur lýsandi áhrif á dökka bletti Gefur samstundis frískandi áhrif þar sem þú finnur bókstaflega fyrir virkni og örvun sem fær húðina til að geisla af ljóma. Kremið innih. Blöndu af glycolic, malic, tartaric og citric sýru og hefur pH-gildi uppá 4,4 og 10% styrk ávaxtasýra sem gefur hámarks virkni án þess að vera of ertandi fyrir daglega noktun. Hafa ber í huga að húðin verður ljósnæmari og viðkvæmari fyrir ytra áreiti á meðan noktun stendur. Helstu innihaldsefni : Glycolic, Malic, Tartaric og Citric Ávaxtasýrur -
Hver ampúla inniheldur hágæða efni í sínu hreinasta formi án allra aukaefna með hámarksvirkni á húð, öflug meðferð gegn djúpum línum/hrukkum og gefur samstundis lyftingu og aukinn þéttleika með Instensyl® 3-D Express Lifting tækni þar sem náttúrulegar sykrur tengjast á yfirborði húðarinnar og mynda á örskömmum tíma fjaðurkennt net sem togar upp slaka húðvefi með einstaklega þéttandi áhrifum.Inniheldur einnig Gatuline® lífrænt efni sem dregur saman og minnkar djúpar línur/hrukkur, eykur þéttleika, styrk og hægir á öldrunarferli húðarinnar með áberandi árángri!Húðin verður sýnilega þéttari og bjartari yfirlitum og endurheimtir teygjanleika og styrk með sýnilega lyftandi áhrifum. -
Kælandi augngel með djúpnærandi rakagefandi eiginleikum. Aqualift Eye Gel er einstaklega kælandi fyrir augnsvæðið og minnkar sýnilega þrota og þreytumerki í kringum augun og dregur úr dökkum baugum með Sensitive Complex plöntuþykkni sem inniheldur m.a. hestakastaníu og lakkrísrót sem vinna að því að styrkja örfínar blóðæðar undir augunum og draga þannig úr bláma og auka birtu undir augunum. Gelið vinnur í öllum lögum húðarinnar með einstakri samsetningu stuttra og langar keðja af Hyaluronic sýru þar sem stuttar keðjur síast niður í neðstu lög húðarinnar og binda rakamagn húðarinnar sem slétta yfirborð augnsvæðisins að innanverðu á meðan langar keðjur Hyaluron sýrunnar liggja í efri lögum húðarinnar með nærandi eiginleikum sem slétta úr þunnri húðinni í kringum augun og fylla uppí fínar línur af völdum þurrks. Gelið veitir einnig viðkvæmu augnsvæðinu vörn gegn UV geislum með Grape Stem Cell Extract sem verndar húðfrumunar fyrir skaðlegum áhrifum sólageisla og ótímabærri öldrun húðarinnar. Helstu innihaldsefni: Sensitive Skin Complex = Plöntuþyknni með styrkjandi og verndandi áhrifum fyrir örfínar blóðæðar undir augunum, dregur úr dökkum baugum og slær á þrota með sýnilegum áhrifum. Hyaluronic Sýra „langar og stuttar keðjur“=Einstakur rakagjafi sem hefur þann eiginleika að þúsundfalda þyngd sína í vatni og bindur þannig raka í húðinni þannig hún heldur mýkt og fyllingu. Imperata cylindrica =Næringarríkt plöntuþykkni úr einstakri plöntu sem finnst í eyðimörkum bæði í Ástralíu og Asíu, plantan er einstaklega rík af potassium og þekkt fyrir rakabindandi eiginlega til að lifa af þurrk og harðindi. Rannsóknir sýna að húðin hefur aukið rakamagn sitt um 20% eftir aðeins 24klst. Grape Stem Cell Extract = Vernda stofnfrumur húðarinnar fyrir skaðlegum UV geislum, auka þol og náttúrulega vernd frumna við UV geislum og ótímabærri öldrun húðarinnar. -
Eye Flash Fluid - Hyaluronic sýra og virk peptíð gefa augnsvæðinu aukna lyftingu, draga úr þreytumerkjum og dökkum baugum með einstaklega frískandi áhrifum sem eykur birtu og ljóma í kringum augun. Janssen Cosmetics hefur sérhæft sig í framleiðslu á virkum ampúlum fyrir andlitsmeðferðir og er fjölbreytt úrval í boði fyrir allar þarfir húðarinnar hvort sem það sé að þétta og lyfta slöppum húðvefum, auka húðflögnun og draga úr bakteríu- og bólumyndun, minnka stórar húðholur, draga úr háræðaslitum og sérmeðferð fyrir rósroða.Ampúlur innihalda virk efni með ólíkum markmiðum fyrir leiðréttandi og uppbyggjandi áhrif á húðvefi.
Hver ampúla inniheldur virk efni í vökvaformi án allra auka- eða rotvarnarefna og kemur því í litlum einingum sem þarf að nota samstundis eftir að ampúlan hefur verið opnuð þar sem innihaldsefni missa virkni eftir stuttan tíma í snertingu við súrefni.
-
LEAVE-ON DJÚPHREINSANDI SERUM FYRIR JAFNARI ÁFERÐ HÚÐARINNAR Ójöfnur, fílapenslamyndun og uppsöfnuð óhreinindi geta komið fram í húðinni hjá ólíkum húðgerðum jafnvel hjá fólki sem er ekki með olíukennda eða blandaða húð þar sem húðinni vantar aukna endurnýjun og hreinsun. Stíflaðar húðholur, bólur og fílapenslar eru eitthvað sem flestir væru til í að losna sem fyrst við með einföldum hætti og er Azelaic sýran frábær valkostur þar sem húðin fær örugga djúphreinsun og endurnýjun án þess að hafa of ertandi áhrif. Azelaic Acid Serum inniheldur aselsýru (azelaic acid) og aselsýruafleiðu (azelaic acid derivative) sem auka birtu húðarinnar og stuðla að jafnari húðlit með djúphreinsandi eiginleikum sem sléttir og gefur jafnari yfirborðsáferð. -
24stunda krem með tvöfaldri virkni fyrir blandaðar húðgerðir, kremið hefur hreinsandi og mattandi eiginleika en nærir jafnframt húðina þar sem þarf og kemur þannig jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar allt í einni vöru. Blönduð húðgerð getur átt erfitt með að finna jafnvægi þar sem þarfir húðarinnar eru misjafnar eftir svæðum, yfirleitt er T-Svæði húðarinnar olíukennt, húðholur opnar og með fílapenslamyndun á meðan önnur svæði virka þurr og vantar aukna næringu og raka. Olíuglans og fílapenslamyndun getur verið hvimleitt ástand og er oftast tilhneiging til þess að einblína á að reyna koma jafnvægji á fituframleiðslu húðarinnar sem getur haft enn meiri þurrkandi áhrif á þau svæði þar sem húðin þarfnast meiri raka og næringar og skapar þannig ójafnvægi, ertingu og ónotatilfinningu í húðinni. Balancing Cream mætir þarna mismunandi þörfum húðarinnar á áhrifaríkan hátt og jafnar starfsemi fitukirtlanna bæði á olíukenndari svæðum þar sem fituframleiðsla er mikil og á þurrari svæðum sem vantar meiri næringu og rakafyllingu. Árángurinn er jafnari húð þar sem opnar húðholur dragast saman og fílapenslamyndun minnkar með sjáanlegum árángri, húðin endurheimtir mýkt og losnar við ertingu og ónot af völdum þurrks. Kremið er létt og silkimjúkt viðkomu og gefur húðinni frísklega tilfinningu en hefur jafnframt mattandi áhrif á yfirborð húðarinnar þar sem örfínt Polyamide púður dregur í sig umfram húðfitu þannig húðin helst þurr og mött viðkomu. -
Kröftugt líkamskrem međ detox þara og koffìni, kremiđ er međ hitaáhrifum sem fá þrjóskustu fitufrumur til ađ taka smá kipp! Inniheldur einnig elastìn örvandi peptíđ sem auka teygjanleika og styrk húđarinnar gegn þyngdarlögmálinu međ lyftandi áhrifum.•Frábær kostur fyrir þreytta og þunga fætur sem þurfa aukiđ blóđflæđi fyrir enn betri árángur og fituniđurbrot.Hitaáhrifin og aukiđ blòđflæđi er oft lìka mjög mikill lèttir og kærkomin hvìld fyrir þreytta fætur eftir langann vinnudag, göngu og svo framvegis....•Fyrir slappa og lausa húđ, veitir auka styrk og styđur viđ lausa húđ ađ dragast saman og endurheimta þèttleika.•Fyrir þrjòskusvæđi sem ætla ađ vera međ erfiđi geggjađ ađ smyrja á maga, rass og læri og skella sèr svo á góđa æfingu.-Sama hvađ markmiđiđ er þá eykst náttúrlegt blóđflæđi húđarinnar og aukiđ afeitrunrferli (detox)Húđin verđur lìflegri og fær sjáanlega slèttari áferđ og auknum þèttleika. -
Skaðlegir geislar sólarinnar, hormónaójafnvægi, aldur og lífsstíll geta haft áhrif á litabreytingar í húðinni með myndun dökkra bletta af mismunandi stærðum og gerðum. Þessar litabreytingar geta verið að myndast hægt og rólega með aldrinum eða komið skyndilega t.d. á meðgöngu, vegna p-pillunar eða eftir sólbruna. Melafadin Day Protection innih. Sérstaka formúlu unna úr plöntum sem vinnur að því að sundra litafrumunum í sundur þannig óæskilegir blettir virðast minni og hindra nýja í að myndast á yfirborði húðarinnar. Litarháttur húðarinnar verður jafnari, bjartari og unglegri. Kremið er sérlega andoxandi og veitir djúpa næringu með bl-ndu af rauðum þara og náttúrulegym sykrum sem bindast keratínlagi húðarinnar og halda raka. Fullkomin vörn allann daginn með Spf 20. -
Korna-djúphreinsir með tvöfalda virkni, inniheldur einnig citric og glycolic sýru fyrir enn betri húðflögnun og bjartara útlit.Smyrjið meðalþunnu lagi yfir andlit, háls og bringusvæði leyfið kreminu að liggja og vinna á húðinni í 3 til 5 min.Nuddið yfir með hringlaga hreyfingum og látið kornin vinna á húðinni í 2-3min þannig næst hámarks húðflögnun.Sýrunar losa um tengsl dauðra húðfruma á yfirborði húðarinnar þannig ná kornin að hreinsa enn betur dauðar húðfrumur og örva náttúrulega starfsemi húðarinnar.Stuðlar að jafnari húðlit og bjartara yfirbragði með auknum húðljóma. -
Létt örvandi hreinsimjólk hreinsar yfirborð húðarinnar fullkomnlega, lífgar uppá þreytta húð og gefur samstundis frísklegan orkuljóma. Fullkomið val fyrir húð sem sýnir fyrstu öldrunareinkenni, streitumerki, opnar og grófar húðgerðir sem vilja auka frískleika og birtu húðarinnar. Virk innihaldsefni Morus alba : plöntu-þykkni unnið úr White Mulberry trjárótum stuðlar að jafnari húðlit og eykur birtu og ljóma í húðinni. -
TILBOÐ 25% MEIRA INNIHALD! Brightening Face Cleanser andlitsmjólk úr Demanding Skin vörulínu Janssen Cosmetics nú á tilboði í stærri umbúðum með 25% meira innihaldi! Létt örvandi hreinsimjólk hreinsar yfirborð húðarinnar fullkomnlega, lífgar uppá þreytta húð og gefur samstundis frísklegan orkuljóma. Fullkomið val fyrir húð sem sýnir fyrstu öldrunareinkenni, streitumerki, opnar og grófar húðgerðir sem vilja auka frískleika og birtu húðarinnar. Virk innihaldsefni Morus alba : plöntu-þykkni unnið úr White Mulberry trjárótum stuðlar að jafnari húðlit og eykur birtu og ljóma í húðinni. -
Orkugefandi andlistsvatn, fullkomnar hreinsun húðar og jafnar pH gildi húðarinnar. Notið eftir hreinsun húðar með andlitshreinsi eða eitt og sér á hreina húð sem frískandi meðferð, fjarlægir umfram húðfitu og frískar uppá yfirbragð húðarinnar. Virk innihaldsefni Morus alba : plöntu-þykkni unnið úr White Mulberry trjárótum stuðla að jafnari húðlit og auka birtu í húðinni. Fullkomið val fyrir húð sem sýnir fyrstu öldrunareinkenni, streitumerki, líflausa, opna og grófar húðgerðir . -
TILBOÐ 25% MEIRA INNIHALD! Brightening Face Freshener er alkahólfrítt andlitvatn úr Demanding Skin vörulínu Janssen Cosmetics nú á tilboði í stærri umbúðum með 25% meira innihaldi! Orkugefandi andlistsvatn, fullkomnar hreinsun húðar og jafnar pH gildi húðarinnar. Notið eftir hreinsun húðar með andlitshreinsi eða eitt og sér á hreina húð sem frískandi meðferð, fjarlægir umfram húðfitu og frískar uppá yfirbragð húðarinnar. Virk innihaldsefni Morus alba : plöntu-þykkni unnið úr White Mulberry trjárótum stuðla að jafnari húðlit og auka birtu í húðinni. Fullkomið val fyrir húð sem sýnir fyrstu öldrunareinkenni, streitumerki, líflausa, opna og grófar húðgerðir . -
Næturkrem með tvöfalt öflugri virkni og langavarandi virkni gegn litabreytingum. Kröftug blanda af lipoamio sýru, diacetyl boldine og SORR plöntuþykkni vinna að því að sundra tengslum á milli melaninfrumna sem mynda litaflekki á yfirborði húðarinnar ásamt því að hindra nýmyndun þeirra. Kremið innih. einnig rauðan þara sem er einstaklega andoxandi og næringaríkur hann hefur þau áhrif á húðina að hún fær frísklegra yfirbragð og verður líflegri. Fullkomið krem gegn litabreytingum og fyrir þroskaða húð til þess að fyrirbyggja ellibletti-og sólarskemmdir sem koma með öldrun húðarinnar. Einnig hentar það mjög vel húð sem er þreytt og föl og þarfnast orku. Kremið innheldur einnig fíngert púður sem gefur húðinni matta og flauelskennda áferð. -
Einstaklega rakagefandi formúla með sefandi og græðandi áhrifum, fullkomið eftir rakstur!Örvar endurnýjun húðarinnar og græðir sár eða rispur af völdum raksturs. Styrkir náttúrulegt varnarlag húðarinnar og eykur húðljóma.Gelkennd áferð með frísklegum herrailm sem smýgur fljótt niður í húðina þannig að húðin helst mött og þurr viðkomu.Innih. Men´s SuperMoist næringarríka formúlu sérþróaða fyrir karlmannshúð, Hyaluronic Sýru, Men´s UltraCalm formúlu til að draga úr roða og ertingu, Aloe Vera og E-Vítamín.