• Sannkallað vítaminboost fyrir allar húðgerðir sem vantar aukna orku, þéttingu og ljóma.
    Caviar er löngu þekkt munaðarvara og inniheldur einstaka samsetningu af steinefnum, vítamínum og aminosýrum.
    Kremið inniheldur hreint Caviar Extract og er áhrifarìk međferđ fyrir þreytta og orkulausa húđ þar sem  samsetning vìtamìna, steinefna og aminosýra glæđa húđina nýjum og orkumeiri ljóma.
    Frumustarfsemi húđarinnar eykst og hrađar nýmyndun kollagens sem gefur húđinni aukinn þèttleika með djúpvirkandi næringu sem fyllir húđlögin af raka og nauđsynlegum fitusýrum sem auka fyllingu, slétta yfirborð húðarinnar og gefur henni flauelsmjúka áferđ.
    Fölt yfirbragđ og þreytumerki vìkja fyrir frìsklegum ljóma og bjartara yfirbragđi.
  • Fullkomin kúr til að styrkja og endurstilla varnarhjúp húðarinnar, frábær tvenna til að viðhalda árángri eftir andlitsmeðferðir eða sem öflug viðgerð heima fyrir viðkvæmar, þurrar húðgerðir eða húð sem vantar aukið jafnvægi. Styrkir. Endurbyggir. Verndar. Ceramide Beauty Duo frá Janssen Cosmetics er öflug húðumhirðutvenna með serum og kremi sem vinnur markvisst að því að styrkja og endurbyggja náttúrulegan varnarhjúp húðarinnar. Heilbrigð húð byggir á réttu jafnvægi raka og fitusýra í yfirborði húðarinnar, en þegar það jafnvægi raskast verður húðin viðkvæmari, tapar raka hraðar og bregst auðveldlega við með þurrki, roða, kláða og herpingstilfinningu sem getur valdið óþægindum. Ceramide Beauty Duo er sérstaklega þróað til að styðja húðina einmitt við þessar aðstæður og hjálpa henni að endurheimta jafnvægi, aukna mýkt og heilbrigðara yfirbragð. Seramíðar gegna þar lykilhlutverki, enda eru þeir náttúrulegur hluti af varnarhjúp húðarinnar. Þeir hjálpa til við að styrkja samheldni húðarinnar, draga úr rakatapi og styðja við getu hennar til að verja sig gegn ytri ertingu og umhverfisáhrifum. Með markvissri blöndu seramíða hjálpar Ceramide Beauty Duo til við að auka jafnvægi og efla náttúrulegar varnir húðarinnar, fyllir á rakabirgðir, sefar roða og ertingu og gefur húðinni aukna léttleikatilfinningu.
  • CBD Calming Fluid ampúlan er áhrifarík meðferð gegn hverskonar húðertingu, roða eða viðkvæmni. Ampúlan samanstendur af CBD-olíu og trufflusveppum sem saman með einstakri virkni róa ertingu og roða í húð ásamt því að styrkja náttúrulegt varnarlag og auka viðnám húðarinnar. Ampúlan inniheldur einnig tvíþætta hýalúrónsýru og aloe vera sem veita húðinni djúpvirkandi raka og næringu. CBD (kannabídíól) er vinsælt virkt innihaldsefni sem er unnið úr hampjurtinni og býr yfir einstökum eiginleikum og heilandi áhrifum á húðina. Kannabídíól (sem hefur ekki hugbreytandi áhrif) er þekkt fyrir að hafa sefandi áhrif á hitatilfinningu, roða eða hverskonar húðertingu og er frábær til meðhöndlunar á viðkvæmri húð. Til viðbótar við CBD olíuna inniheldur ampúlan sveppa-extract sem hefur bein áhrif á taugaenda húðarinnar með því að hamla virkni ákveðinna sársaukanema á yfirborði húðarinnar og dregur þannig með virkum hætti úr viðkvæmni húðarinnar. Saman með rakagefandi Hýalúrónsýru og Aloe Vera gefur CBD Calming Fluid ampúlan húðinni samstundis létti og fullkomna slökunartilfinningu.
  • Augnkrem með ríkulegu magni af Skin Defense Complex sem gefur góða næringu og raka með græðandi eiginleikum fyrir viðkvæmni, exemgjarni og þurri húð í kringum augnsvæðið með langavarandi kælandi áhrifum. Inniheldur einnig Hyaluronic Sýru og Saccharide Isomerate með djúpnærandi eiginleikum sem fylla uppí og slétta linur í kringum augum vegna yfirborðsþurrks og gefa þannig augnsvæðinu aukna lyftingu. Vinnur á bólgum og dökkum baugum með lífrænt ræktaðri jurt: Eyebright sem gefur augnsvæðinu eins og nafnið gefur til kynna bjartara yfirlit. Noktun: Berið á húðina í kringum augun kvölds og morgna.
  • Dagleg meðferð við háræðaslitum og rósroða. Létt en öflug formúla þéttir og styrkir blóðæðaveggi húðarinnar sem dregur úr hita og ertingu í húðinni. Inniheldur RSC-Neutralizer sem minnkar sýnilega roða í húð og dregur úr einkennum rósroða. Með reglulegri noktun dregur sjáanlega úr æðaslitum og háræðanet húðarinnar styrkist með fyrirbyggjandi og verndandi eiginlegum. Betrumbætir áferð rósroða húðar með auknu rakajafnvægi, sléttandi og mýkjandi áhrifum. Noktun: Berið á hreina húð, kvölds og morgna yfir andlit og háls. Má einnig nota staðbundið.
  • Dark Circle Eye Cream er sérstaklega þróað til að vinna gegn og birta upp dökka bauga í kringum augnsvæðið með sýnilegum og langavarandi áhrifum.
    Húðin í kringum augnsvæðið og sér í lagi undir augunum er þunn og viðkvæm og sýnir gjarnan örfínar blóðæðar í gegn sem eru gjarnan kallaðar undir daglegu tali baugar.
    Hversu miklir baugar þá gjarnan eftir hversu dökkir þeir virðast fer allt eftir blóðmagni í þessum örfínu blóðæðum.
    Svefnleysi, stress, mataræði geta haft neikvæð áhrif á blóðflæðið sem og getur einnig verið genatískt.
    Blóðæðar með litlu/hægu blóðflæði bera súrefnisminna blóð og verða dekkri fyrir vikið sem orsakar þennann dökka lit undir augunum sem við köllum dökka bauga.
    Dark Circle Eye Cream inniheldur birtu pigment sem lýsir upp og dregur samstundis úr dökkum lit undir augunum með langvarandi áhrifum um leið og kremið er borið á. Ef kremið er notað reglulega hlaðast upp þessi áhrif með hjálp frá öflugum innihaldsefnum “4-1 complex” sem samanstendur af tri-peptíðum, smáþörungum, panthenol og hyaluronic sýru sem saman örva flæði blóðæðanna, auka kollagenmyndun og lyftingu með djúpri næringu sem rakafyllir og sléttir viðkvæma húðina í kringum augun.
    *Eftir aðeins 7 daga eru fínar línur/hrukkur sjáanlega minni og sléttari.
    *Eftir aðeins 14 daga hefur dregið verulega með mælanlegum áhrifum úr dökkum baugum undir augunum.
  • Dark Spot Perfector er kröftugt serum sem er bæði fyrirbyggjandi og lýsandi meðferð fyrir litabletti og aðrar litabreytingar á húðinni og hentar öllum húðgerðum. Inniheldur sérþróaða Age Spot Corrector formúlu með blöndu af soyja og jurtaþykkni (Garden Cress/Lepidium sativum) sem draga úr nýmyndun melaníns og lýsa upp dökka bletti á húðinni án þess þó að lýsa upp húðina í kring!
    Umhverfisáhrif, mengun, sól geta haft gríðarleg áhrif á ásýnd húðarinnar og látið húðina virðast eldri en hún raunverulega er. Litabreytingar og sólarskemmdir byrja vanalega að birtast á yfirborði húðarinnar eftir 30 ára aldurinn og aukast með árunum.
    Dark Spot Perfector er kröftugt serum sem er bæði fyrirbyggjandi og lýsandi meðferð fyrir litabletti og aðrar litabreytingar á húðinni og hentar öllum húðgerðum. Inniheldur sérþróaða Age Spot Corrector formúlu með blöndu af soyja og jurtaþykkni (Garden Cress/Lepidium sativum) sem draga úr nýmyndun melaníns og lýsa upp dökka bletti á húðinni án þess þó að lýsa upp húðina í kring!
    Pakkað af hyaluronic sýru löngum og stuttum keðjum sem heldur húðinni fylltri og sléttri ásamt E-Vitamíni sem sér um að verja húðina gegn skaðlegum áhrifum sindurefna.
    Niðurstöður vísindalegrar rannsóknar: *Age Spot Corrector Sönnun fengin úr klínískri rannsókn: Með notkun á Age Spot Corrector í 4% styrkleika, munurinn á litstyrk milli litabletta (age spots) og húðinni umhverfis sýndi allt að 50% minni litstyrk eftir aðeins 2 mánuði af reglubundinni notkun. Rannsóknin sýndi einnig að varan getur hnitmiðað virkni með sérlega lýsandi áhrifum á litabletti. Eftir átta vikur voru blettinir búnir að lýsast um 30% en húðin umhverfis hafði ekki orðið fyrir sömu áhrifum. (Heimild: Mibelle AG Biochemistry)
  • Húðin fær samstundis frískandi áhrif með kælandi eiginleikum og losnar um leið við alla herpingstillfinningu og ónot af völdum rakaþurrks um leið og djúpnærandi gelformúlan er borin yfir andlitið. Fullkominn maski eftir sólríka daga! Deep Xpress Hydro Mask inniheldur háþróaða Hydro Express Complex formúlu sem myndar ósýnilegt en jafnframt sterkt og ótrúlega virkt net virkra efna sem sameinast í efstu lögum húðarinnar og gefa húðinni jafnt og þétt skammta af raka og næringu með virkni sem endist í allt að 5 daga frá síðustu ásetningu. Þannig viðheldur húðin auknu rakamagni, mýkt og fyllingu og öðlast einstaka frumuvernd gegn umhverfisáhrifum svo sem veðurfarsbreytingum og öðru sem valda rakatapi húðarinnar. Vísindalegar rannsóknir hafa sýnt fram á 25% aukningu rakamagns húðarinnar eftir aðeins 30min eftir ásetningu Deep Xpress Hydro Mask með langvarandi áhrifum í allt að 48tíma frá ásetningu. Formúlan byggir á tímastjórnun og veitir húðinni næringu og virk efni yfir langan tíma. Húðin öðlast allt að 25% meiri raka á aðeins 30min og aukin virkni rakamagns helst í allt að 5 daga frá síðustu ásetningu. Noktun: Berið maskann á yfir andlit, má einnig fara undir augu, háls og bringu leyfið maskanum að vinna í 5-20min eða yfir nótt fyrir hámarksárángur. Helstu innihaldsefni: Hydro Express Complex =Samsetning virkra efna m.a. Hyaluronic Sýru, Þara, Glycerin o.fl. Formúlan byggir á tímastjórnun og veitir húðinni næringu og virk efni yfir langan tíma. Húðin öðlast allt að 25% meiri raka á aðeins 30min og aukin virkni rakamagns helst í allt að 5 daga frá síðustu ásetningu.
  • Fullkomin viðbót við hvaða krem sem er úr flóru Janssen Cosmetics fyrir þær húðgerðir sem vilja auka rakamagn húðarinnar með langvarandi verndandi áhrifum. Ultra létt formúlan smýgur hratt niður húðlögin og skotstundu með samstundis kælandi og frískandi áhrifum þar sem þú bókstaflega finnur húðina taka við sér. Deep Xpress Moist Serum inniheldur háþróaða Hydro Express Complex formúlu sem myndar ósýnilegt en jafnframt sterkt og ótrúlega virkt net virkra efna sem sameinast í efstu lögum húðarinnar og gefa húðinni jafnt og þétt skammta af raka og næringu með virkni sem endist í allt að 5 daga frá síðustu ásetningu. Þannig viðheldur húðin auknu rakamagni, mýkt og fyllingu og öðlast einstaka frumuvernd gegn umhverfisáhrifum svo sem veðurfarsbreytingum og öðru sem valda rakatapi húðarinnar. - Helstu innihaldsefni: Hydro Express Complex =Samsetning virkra efna m.a. Hyaluronic Sýru, Þara, Glycerin o.fl. Formúlan byggir á tímastjórnun og veitir húðinni næringu og virk efni yfir langan tíma. Húðin öðlast allt að 25% meiri raka á aðeins 30min og aukin virkni rakamagns helst í allt að 5 daga frá síðustu ásetningu. Wild viola extract =Gefur langvarandi næringu í neðstu húðlög, virkjar raka flæði á milli húðfrumna og stuðlar þannig að náttúrulegri virkni og frumustarfsemi húðarinnar. Hyaluronic Sýra „langar keðjur“=Einstakur rakagjafi sem hefur þann eiginleika að þúsundfalda þyngd sína í vatni og bindur þannig raka í húðinni þannig hún heldur mýkt og fyllingu. Imperata cylindrica =Næringarríkt plöntuþykkni úr einstakri plöntu sem finnst í eyðimörkum bæði í Ástralíu og Asíu, plantan er einstaklega rík af potassium og þekkt fyrir rakabindandi eiginlega til að lifa af þurrk og harðindi. Rannsóknir sýna að húðin hefur aukið rakamagn sitt um 20% eftir aðeins 24klst. Ectoine= Frumuvernd, verndar húðfrumur gegn langtíma umhverfisáhrifum og rakatapi og dregur úr myndun litabletta vegna sólarskemmda.
  • Orkugefandi og kælandi augnrollon fyrir herra, sérhönnuð formúla fyrir augnsvæðið sem dregur samstundis úr þreytumerkjum, dökkum baugum og bólgum í kringum augun með sýnilegum áhrifum. Smýgur fljótt niður í húðina með kælandi og frískandi áhrifum, sléttir úr fínum línum og veitir augnsvæðinu einstaka rakagjöf og næringu. Innih. Men’s Eye Perfecting Complex 4in1 formúlu, Hyaluronic sýru, Caffeine og Menthol.
  • Caviar Fluid - Veitir húðinni aukna orku, örvar nýmyndun húðar og er sérstaklega góð til þess að vekja upp líflausa húð og draga fram ljóma og orku.  Veitir vörn gegn ótímabærri öldrun húðarinnar og verndar húðina gegn skaðlegum áhrifum sindurefna og virkjar viðgerðarferli fyrir húð sem hefur verið undir miklu álagi, stressi og streitu. Janssen Cosmetics hefur sérhæft sig í framleiðslu á virkum ampúlum fyrir andlitsmeðferðir og er fjölbreytt úrval í boði fyrir allar þarfir húðarinnar hvort sem það sé að þétta og lyfta slöppum húðvefum, auka húðflögnun og draga úr bakteríu- og bólumyndun, minnka stórar húðholur, draga úr háræðaslitum og sérmeðferð fyrir rósroða.
  • Enzyme Peeling Powder losar um dauðar húðfrumur og umfram húðfitu af yfirborði húðarinnar á áhrifaríkan en jafnframt mildan hátt við djúphreinsun á yfirborðs viðkvæmum og Acne húðgerðum. Fínmalað púðrið myndar létta froðu þegar það er blandað við vatn og virkjar um leið Ensím sem vinna hörðum höndum á yfirborði húðarinnar við að brjóta niður keratin prótín og losa þannig dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar á áhrifaríkann hátt án þess að erta yfirborð húðarinnar. Húðin nær að losa um óhreinindi og umfram húðfitu með mattandi áhrifum frá Silica kísil sem stuðlar að auknu jafnvægi fituframleiðslu og heilbrigði húðarinnar. Noktun: Blandið c.a. teskeið af púðri við vatn og myndið létta froðu, dreifið jafnt yfir andlit og háls og nuddið létt yfir með hringlaga hreyfingum í c.a. 5min, leyfið síðan að liggja á húðinni í 3min og hreinsið af með volgu þvottastykki.
  • Epigenetic Serum inniheldur djúpvirkandi formúlu sérþróaða til að auka náttúrulegt varnarlag og heilbrigði húðfrumna.
    Háþróuð tækni sem styrkir náttúrulega frumustarfsemi og eykur varnarlag húðarinnar gegn skaðlegum ytri áhrifum og sporna gegn ótímabærri öldrun húðarinnar.
    Húðin fær sléttara yfirbragð, fallegri áferð og bjartara yfirbragð.
    Inniheldur einungis hágæða hráefni með djúpa innsíunarhæfileika og hámarks virkni án þess að erta húðina.
    Epigenetic Serum hægir sýnilega á öldrunarferli húðarinnar, fyrirbyggir ótímabæra öldrun, dregur sýnilega úr hrukkum/línum í húðinni, eykur náttúrulegar varnir fyrir sindurefnum og niðurbroti, varðveitir hraustleika og unglegan ljóma húðarinnar.
    Epigenetic Serum 10ml kemur í einstaklega fallegum söluumbúðum með skemmtilegu ívafi þar sem líkt er eftir læknasprautu til að undirstrika virkni og áhrif vörunnar.
    Lítill skrúfutappi er á enda "sprautunnar" og pumpa á hinum endanum þannig ekkert súrefni kemst að vörunni og hámarksnýting af hverjum dropa!
    Inniheldur:
    · Epigenetic agent: Pot marigold (calendula officinalis) Plöntuþykkni; Einstaklega ríkt af oligosaccharides sem eru náttúrulegar fjölsykrur með tvennskonar áhrif á utanaðkomandi áreiti á húðfrumur. Virka bæði sem viðgerð á þegar laskaðar frumur og sem varnarhjúpur gegn óæskilegum sindurefnum og hrörnunar húðfrumna.
    · Long-chain hyaluronic acid: Langar keðjur af Hyaluron Sýru liggja eftir í efri lögum húðarinnar og mynda rakabindandi varnarfilmu á yfirborði húðarinnar og sporna gegn rakatapi og línum af völdum yfirborðsþurrks.
    · Short-chain hyaluronic acid: Stuttar keðjur af Hyaluron Sýru síast niður í neðri húðlögin og auka á náttúrulegar rakabirgðir húðarinnar sem gefur henni aukna fyllingu og unglegra yfirbragð.
    · Saccharide isomerate: Náttúrulegar sykrur sem tengjast og binda sig við náttúrulegt keratin húðarinnar líkt og segull og veitir húðinni næringu og mýkt.
  • Melafadin Fluid er áhrifarík meðferð gegn litabreytingum á húðinni af völdum sólarskemmda, hormónabreytinga og ellibletta. Inniheldur kraftmikla blöndu af Vitamin-C, Lipoamino Acid og SORR-Plöntuþykkni sem vinna í sameiningu að því að hindra myndun og sundra upp dökku melanin litarefni húðarinnar og lýsa þar með og minnka/eyða dökkum blettum og jafna þannig litarhaft húðarinnar. Húðin fær dásamlega rakafyllingu og bjartara útlit með jafnari litarhafti.
  • Olìulaus augnfarđahreinsir međ verndandi áhrifum.
    •Mýkjandi augnfarđahreinsir međ pH gildi 7,2 sem hefur einstaka verndandi eiginleika fyrir þunna og viđkvæma húđina ì kringum augun.
    •Kælandi gel-formúla leysir upp farđa á árángursrìkan hátt af augnsvæđi án þess ađ hafa skađleg eđa þurrkandi áhrif á náttúruleg augnhár heldur gefur þeim aukna mýkt og raka.
    -Noktun: Pumpiđ geli á bòmullarskìfu/mjúkan svamp og leggiđ yfir annađ auga ì einu, leyfiđ hreinsinum ađ virka ì 10-20sek og nuddiđ varlega farđann af.
    -Leyfiđ hreinsinum ađ liggja lengur eftir þvì hve mikill farđi er á augnsvæđi, mýkjandi efni ì hreinsinum leysa farđann sjálfkrafa af og þvì òþarfi ađ nudda mikiđ eđa erta húđina ì kringum augun.
    • Virkar jafnvel á vatnsheldan farđa.
    • Má nota međ augnháralengingu.
    • Hentar einnig þeim sem nota linsur.
  • Létt alhliða sólarvarnar-serum með SPF 30 og IR frumuvernd fyrir daglega noktun, hentar öllum húðgerðum. Svipað og útfjólubláir geislar valda innrauðir geislar sólarinnar einnig ótímabærri öldrun húðarinnar og geta leitt til óæskilegra húðskemmda síðar meir. Húðin í andlitinu er hvað mest berskjölduð fyrir geislum sólarinnar og er því ekki síður mikilvægt eins og að veita henni vörn gegn UVA og UVB geislum að tryggja húðinni þar einnig skilvirka hitavörn gegn IR geislum. FACE GUARD ADVANCED er létt alhliða formúla sem gefur húðinni góðann raka ásamt photostable UVA+UVB vörn og einstaka frumuvernd með virka efninu Ectoin®, sem hefur verið sannað að gefa húðinni skilvirka vörn gegn umhverfisáhrifum eins og þurrki, hita, kulda og útfjólubláum geislum að auki sjá  líftæknilega fengin ensím um að hlutleysa sindurefni, og veita húðinni aukinn varnarskjöld ásamt hitavörn gegn innrauðum geislum (IR) FACE GUARD ADVANCED er frábær og einföld viðbót við morgunrútínuna og passar með öllum dagkremum eða farða fyrir alhliða vernd gegn UVA+UVB geislum, IR og aukinni frumuvernd. Noktun: Berið á hreina húð á morgnanna fyrir dagkrem eða farða. Tip: FACE GUARD ADVANCED er einnig frábær vörn á handarbökin og virkar eins og ósýnilegur hanski til að koma í veg fyrir óæskilegar litabreytingar og aldursbletti. Gott er að bera á handarbökin jafnt yfir daginn í útiveru eins og t.d. í golfi.
  • Eykur birtu og jafnari húðlit með virkum innihaldsefnum gegn litabreytingum. Virk innihaldsefni:
    • Hexylresorcinol: Er mjög áhrifaríkt og öflugur týrósínasahemill sem hefur sannað virkni með sýnilegum áhrifum á dökka litabletti, jafnari húðlit og bjartari húðtón innan 8 vikna um allt að 37% Að auki hefur hexylresorcinol klínískt sönnuð áhrif gegn öldrun húðarinnar og árángur gegn ójöfnum í húðinni og fínum línum með auknum húðljóma.
    • Samsetning af mórberjaþykkni(mulberry extract) og sodium phytate: Mórberjaþykkni og fýtínsýra hindra týrósínasa. Fýtínsýra örvar einnig endurnýjun frumna og náttúrulega húðflögnun. Dauðar húðfrumur (hærra melaníninnihald) losna af yfirborði húðarinnar á meðan nýjar frumur (með verulega lægra melaníninnihaldi) glæða yfirborð húðarinnar jafnari húðtón með einstakri birtu.
    • Hýalúrónsýrur með stuttum og löngum keðjum: Auka rakamagn og viðhalda rakafyllingu húðarinnar.
    • Sakkaríð ísómerat: Rakagefandi efni unnið úr náttúrulegum sykrum er þétt tengt við keratínlag húðarinnar og veitir vernd.
  • Háls-og bringusvæði er ekki síður mikilvægt í húðumhirðu þar sem húðin á þessum svæðum er oft berskjölduð fyrir sólarljósi, veðri og vind. Þyngdaraflið togar allt niður til sín og er húðin þar að engu undanskilin. Janssen Cosmetics hefur þróað einstaklega öfluga formúlu til þess að verjast þessum áhrifum og fyrirbyggja ótímabæra öldrun sem og viðhalda stinnleika og sléttri húð sérstaklega hannað fyrir háls- og bringusvæði. Kremið styrkir og þéttir húðvefi og hefur lyftandi áhrif, viðheldur unglegu útliti og veitir aukna fyllingu og raka einstaklega létt áferð og frískandi ilmur.  
  • FLAWLESS ampúla Janssen Cosmetics gefur húðinni aukna lyftingu og þèttleika með ESP - elastin-stimulating peptides. Elastin örvandi peptíð styrkja og efla náttúrulega elastin þræði húðarinnar og auka þannig tog og þéttleika húðarinnar með lyftandi áhrifum. Inniheldur einnig SORR Plant Extract sem hefur sefandi áhrif og stuðlar að jafnari húðtón og auknum húðljóma.
  • Í tilfelli blandaðrar húðar getur aukin fituframleiðsla valdið óæskilegum glans á húðinni, sérstaklega á miðsvæði andlitsins, á meðan vangar og augnsvæðið eru þurrari. Sértækar hreinsivörur eru nauðsynlegar af þessari ástæðu, til þess að mæta ólíkum þörfum húðarinnar fyrir áhrifaríka hreinsun og aukið jafnvægi fyrir blandaðar húðgerðir. Gentle Cleansing Powder hefur verið þróað sérstaklega til þess að mæta þessum þörfum! Í tilfelli blandaðrar húðar getur aukin fituframleiðsla valdið óæskilegum glans á húðinni, sérstaklega á miðsvæði andlitsins, á meðan vangar og augnsvæðið eru þurrari. Sértækar hreinsivörur eru nauðsynlegar af þessari ástæðu, til þess að mæta ólíkum þörfum húðarinnar fyrir áhrifaríka hreinsun og aukið jafnvægi fyrir blandaðar húðgerðir. Gentle Cleansing Powder hefur verið þróað sérstaklega til þess að mæta þessum þörfum! Kemur í púðurformi og er blandað saman við vatn í lófunum fyrir ríkulega og kremkennda hreinsifroðu. Hreinsar farða og önnur óhreinindi af með áreynslulausum hætti sérstaklega fyrir blandaðar húðgerðir. Húðin verður silkimjúk án ertingar og öðlast betra jafnvægi, jafnvel fyrir viðkvæma blandaða húð sem fær matt yfirbragð og endurnærist á einstakan hátt. • Kremkennd froða, hreinsar húðina eykur mýkt og ferskleika • Fjarlægir farða, umfram fitu og óhreinindi af húðinni • Viðheldur náttúrulegum raka húðarinnar • Stuðlar að hreinni, jafnvægisríkri og mattri áferð • Mildur ilmur Notkun: Helltu púðrinu í lófann og blandaðu því með vatni þar til það myndar kremkennda froðu. Berðu jafnt á andlit og háls með hringlaga hreinsihreyfingum. Skolaðu af með ríkulegu magni af vatni eða rökum þvottapoka. Virk innihaldsefni:
    • Hydrolyzed maize starch: Náttúrulegt síuefni, hjálpar við hreinsun húðarinnar, dregur í sig umfram fitu og gefur mjúka áferð. • Silica: Náttúrulegt púðurefni, dregur í sig umfram fitu og bætir áferð húðarinnar. •Tenside based on amino acids: Yfirborðsvirk efni úr amínósýrum, hreinsa húðina með nærandi eiginleikum. • Biosynthetic polypeptide: Lífvirkt fjölpeptíð, eykur mýkt og vellíðan húðarinnar.
     
  • Radiant Skin Fluid – Fyrir einstakann húðljóma og geislandi yfirbragð. Ampúlan inniheldur þörunga extract úr Indlandshafi sem gefur húðinni aukinn húðljóma á sjálfbæran hátt þ.e.a.s þörunganir láta húðina sjálfa framkalla aukinn húðljóma með því að hámarka frumuskiptingu í yfirborðslögum húðarinnar og stuðla þannig að jafnari uppbyggingu hennar sem eru fullkomin skilyrði fyrir geislandi og frísklegan húðljóma. Radiant Skin Fluid inniheldur að auki kjarna úr bóndarós sem tryggir að yfirbragð húðarinnar fær aukna birtu og jafnara litarhaft með hverjum deginum sem líður ásamt tvíþættri hýalúrónsýru sem gefur húðinni djúpnærandi raka frá neðstu húðlögum sem fyllir uppí fínar línur/ójöfnur með sléttandi áhrifum á yfirborði húðarinnar. Árángur: Húðin öðlast geislandi og náttúrulegan húðljómaljóma. *Með reglulegri noktun verður litarhaft húðarinnar enn jafnara með mælanlegum árángri.
  • Fullkomið duo fyrir ljómandi húð! Nú á frábæru tilboði saman með glæsilegum kaupauka, vönduð og rúmgóð Janssen Cosmetics taska með rennilás fylgir með ásamt demants vasaspegli. Spegillinn er tvískiptur með stækkun á annari hliðinni. Magic Glow Serum og Sensational Glow Cream gefa húđinni dásamlega rakafyllingu og highlight glampa án þess ađ húđin glansi eđa virki olíukennd, hlaðið næringaríkum efnum eins og þara extrakti úr Indverska hafinu sem hefur sannað virkni á aukna húðendurnýjun og aukinn ljóma húðarinnar. ☆Magic Glow Serum létt og rakagefandi serum með highlight áhrifum sem gefa húðinni perlukenndan glampa, má einnig nota staðbundið yfir krem eða farða fyrir enn meiri highlight áhrif. Húðin fær dásamlegan raka og næringu og inniheldur m.a. næringarríkan þara úr Indverska hafinu sem hefur sannað 28% aukningu á ljóma húðarinnar á 28 dögum með aukinni rakafyllingu og þéttleika. ☆Sensational Glow Cream hefur flauelsmjúka áferđ og gefur húđinni djúpvirkandi næringu og ljóma. Kremið inniheldur náttúruleg virk efni eins og koffín sem örvar blóđrás húđarinnar á mildan hátt og betrumbætir þannig starfsemi húđarinnar og gerir hana móttækilegri fyrir virkum innihaldsefnum, Glow kremið inniheldur einnig eins og serumið þara úr Indverska hafinu og gefur húđinni fallega og slèttari áferð með einstökum húðljóma.
  • Nærandi og uppbyggjandi meðferð fyrir hendur og neglur með verndandi eiginleikum.
    Áhrifarík næturmeðferð fyrir þurrar hendur, naglabönd og neglunar sjálfar, inniheldur ríkulegt magn af Biotin – B-Vítamíni sem styrkir neglunar og spornar gegn því að neglunar klofni eða brotna.
    Næringarrík formúlan græðir þurra húð og sprungur, mýkir upp naglaböndin og vinnur gegn sáramyndun og þeim óþægindum sem fylgja þurrum höndum.
    Maskinn hefur langvarandi áhrif og verndar hendur gegn þurrki og viðheldur sterkari og heilbrigðari nöglum með reglulegri noktun.
    Mælt er með að nota maskann 2svar í viku eða eftir þörfum, frábært að geyma hann á náttborðinu og bera á hendur og neglur rétt fyrir svefninn.
    Virkar einnig sem frábær sem daglegur handáburður fyrir mjög þurrar hendur þar sem maskinn smýgur fljótt niður í húðina þannig hendunar haldast vel nærðar en þurrar viðkomu.
  • Djúpvirkandi og einstaklega nærandi formúla sléttir varinar, losar um herping og fyllir uppí fínar línur af völdum þurrks ásamt því að gefa aukna fyllingu “plump”. Dásamleg næturmeðferð fyrir mjúkar varir en hentar einnig vel sem varanæring yfir daginn fyrir þurrar varir og er einnig frábær primer undir varaliti. Varinar fá samstundis fylltara yfirbragð og frísklegri litatón með mildri glansáferð. Lip Mask inniheldur blöndu af hágæða náttúrulegum innihaldsefnum eins og sólkjarna- og hörfræjarolíu með ríkulegu magni af Omega 3 og 6 fitusýrum sem gefa einstaka næringu og verja varnar fyrir þurrk. Maskinn inniheldur einnig plöntuþykkni (Paracress Extract) unnið úr jurt sem heitir Spilanthes Acmella sem er vel þekkt fyrir einstaka eiginlega á húðina gegn svipbrigðalínum (hrukkum) og er gjarnan kölluð “Botox” Jurtin þar sem hún slakar á spennu og herping í húðinni og hefur einstaklega sléttandi áhrif. Fyrir hámarksárángur yfir nóttina er mikilvægt að bera maskann vel  útfyrir varinar, og alveg yfir efri vörina ef það er mikill þurrkur eða línur byrjaðar að myndast í húðinni. Þannig nær maskinn hámarksvirkni og varinar fá aukna fyllingu þar sem allur herpingur hefur slaknað og djúpnærandi innihaldsefnin fylla uppí varinar sem verða silkimjúkar. Inniheldur: • Shea butter: (Butyrospermum Parkii) • Sunflower wax: (Unnið úr Sólkjarnafræjum) • Candelilla Wax: (Euphorbia antisyphilitica) • Linseed oil: (Hörfræjarolía, rík af Omega 3og6 fitusýrum) • Cottonseed oil: (E-Vítamín) • Paracress extract (Spilanthes Acmella) • Hyaluronic acid
Go to Top