• Nærandi og verndandi handáburður fyrir hendur og naglabönd. Dásamlega mjúkur handáburður sem byggir upp varnarlag og mýkir upp þurrar hendur og naglabönd með græðandi eiginleikum. Smýgur fljótt niður í húðina og er alveg smitfrír þannig hendunar haldast mjúkar og mattar viðkomu og smita ekki útfrá sér í fatnað, pappírsvinnu eða annað. Inniheldur næringarríka jurtablöndu sem dregur úr óþægindum vegna þurrks og græðir sár eða rifin naglabönd og hefur styrkjandi áhrif á neglunar. Mildur hlutlaus ilmur er af kreminu og hentar því vel fyrir alla markhópa. Inniheldur: Echinacea: Purple coneflower, endurnýjandi og uppbyggjandi. Alpha-bisabolol: Virka efni kamillujurtarinnar dregur úr ertingu og roða, nærir. Glycerine: Bindur raka og eykur mýkt húðarinnar.
  • SPF 50 ANTI-AGEING SÓlARVÖRN FYRIR ANDLIT OG LÍKAMA Sólarvörn er eitt það mikilvægasta sem við getum notað til þess að vernda húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar, sólarskemmdum og ótímabærri öldrun húðarinnar hvort sem er á ströndinni, skíðaferðalögum, útiveru eða daglegu amstri og ætti að vera hluti af húðumhirðu allan ársins hring. High Protection Sun Care SPF 50 sameinar fullkomna blöndu af sólavörn og umönnun fyrir húðina í einni vöru. Létt en jafnframt áhrifarík formúla veitir húðinni hámarks vörn gegn UVA og UVB geislum með verndandi eiginleikum gegn sólarskemmdum, litabreytingum og ótímabærri öldrun húðarinnar. Hentar öllum húðgerðum fyrir hámarks vörn, þá sérstaklega viðkvæmum húðgerðum/eða þau svæði sem eiga það til að brenna í sólinni. Kremið er létt og smýgur fljótt niður í húðina og ásamt SPF vörninni inniheldur kremið einnig rakagefandi Hyaluronic Sýru sem nærir húðina, eykur rakamagn og viðheldur náttúrulegri fyllingu og þéttleika ásamt frumuverndandi Ectoin® sem er einstakt lífrænt efni sem hefur þann eiginleika að efla og styrkja náttúrulegar varnir húðfrumna innan frá gegn ytra áreiti eins og hita/kulda og UV geislum. Með því myndar húðin öflugri vörn gegn sólargeislum og minnkar líkunar á sólarskemmdum/litabreytingum síðar meir. *Vörn gegn UVA og UVB geislum *Fyrirbyggir sólarskemmdir af völdum sólbruna *Fyrirbyggir litabletti/breytingar af völdum sólargeisla *Hentar öllum húðgerðum, einnig veiðkvæmum *Létt formúla sem smýgur hratt niður í húðina *Rakagefandi formúla sem getur komið í staðinn fyrir dagkrem yfir sumartímann Noktun - Berið ríkulegt magn á húðina c.a. 30min áður en farið er í sólarljós, bætið á eftir þörfum yfir daginn til þess að viðhalda vörn sérstaklega eftir sundferðir eða hreyfingu þar sem er mikið svitnað.
  • 3x2stk. í pakka
    Kælandi augnmaski tilbúin til noktunar, dregur samstundis úr þrota og bólgum og örvar sogæðahreinsun með mild örvandi áhrifum frá koffíni, með því minnkar blámi undir augunum og húðin verður bjartari.
    Maskinn hefur einstaklega sléttandi áhrif með virku Paracress extract sem hefur Botox lík áhrif á húðina en það slakar á herping í litlum vöðvum undir augunum og sléttir þannig úr húðinni með sýnilegum áhrifum sem fletur út fínar línur og minnkar umfang á djúpum línum/hrukkum, saman með löngum og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru sem fylla húðlögin af langavarandi raka og fyllingu. Maskanir eru úr 100% viscose fleece, biogradable efni með oeko-tex standard 100 sem brotnar niður án þess að valda skaða í náttúrunni.
  • Næringarríkt krem fyrir þurra húð, húð sem finnur vel fyrir þurrk og/eða herpingstilfinningu, húðin fær samstundis létti við fyrstu viðkomu og djúpvirkandi næringu með langvarandi eiginleikum. Hyaluron³ Replenish Cream er einnig frábær kostur sem næturkrem á móti léttara dagkremi. Húðin í andlitinu er fyrir stöðugum umhverfisáhrifum bæði frá geislum sólar, mengun, veðri og vind sem getur valdið ótímabærri öldrun, þurrki, viðkvæmni og öðrum óþægindum. Við getum auðveldlega varið húðina á líkamanum með fatnaði en viðkvæm húðin í andlitinu er yfirleitt berskjölduð og því ber að huga að öðrum ráðum. Hyaluron³ Replenish Cream er einstaklega næringarríkt og baðar húðina uppúr náttúrulegum gersemum á borð við hreina Avocado Olíu og Plöntuþykkni úr Hvítum Lúpínum verndar einnig frumunar fyrir skaðlegum áhrifum sindurefna og ótímabærri öldrun með andoxandi eiginleikum frá E-Vítamíni, samsetning þessa lykil efna sér um að veita húðinni djúpan raka, bæta starfsemi og þannig styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar bæði sem 24stunda- eða næturkrem eftir þörfum húðarinnar. - Helstu innihaldsefni: White lupin extract= Stuðlar að auknu jafnvægi á frumustarfsemi húðarinnar sem sjá húðinni fyrir næringu og raka og takmarka rakatap húðarinnar. Rannsóknir hafa sýnt að húðin hefur öðlast allt að 11% meiri stöðugleika eftir aðeins 14 daga. Imperata cylindrica =Næringarríkt plöntuþykkni úr einstakri plöntu sem finnst í eyðimörkum bæði í Ástralíu og Asíu, plantan er einstaklega rík af potassium og þekkt fyrir rakabindandi eiginlega til að lifa af þurrk og harðindi. Rannsóknir sýna að húðin hefur aukið rakamagn sitt um 20% eftir aðeins 24klst. Hyaluronic Sýra „langar keðjur og stuttar keðjur (cross-linked)“=Einstakur rakagjafi sem hefur þann eiginleika að þúsundfalda þyngd sína í vatni og bindur þannig raka í húðinni þannig hún heldur mýkt og fyllingu. Avocado Oil= Nærandi, mýkir og eykur nýmyndun húðarinnar. Vitamin E -Acetate= Verndar húðfrumunar gegn skaðlegum sindurefnum.
  • Rakagefandi gelkrem sérstaklega þróað fyrir rakaþurrar húðgerðir sem þurfa samstundis rakabúst! Frískandi gel formúlan smýgur hratt niður húðina og fyllir húðlögin samstundis af raka sem eykur fyllingu og dregur sýnilega úr fínum línum vegna yfirborðsþurrks og losar um herpingstilfinningu sem gefur húðinni samstundis frísklegra yfirbragð og líflegri litatón. Hydro Active Gel er samsett úr djúpnærandi virkum efnum sem eykur rakamagn hjá þurrum húðgerðum og viðheldur rakastigi í efri húðlögum og eykur þannig mýkt og náttúrlegan þéttleika húðarinnar. - Helstu innihaldsefni: Wild Pansy Extract=Eykur boðleiðir og flytur raka á milli húðfrumna í efri lögum húðarinnar. Hyaluronic Sýra „langar keðjur“=Einstakur rakagjafi sem hefur þann eiginleika að þúsundfalda þyngd sína í vatni og bindur þannig raka í húðinni þannig hún heldur mýkt og fyllingu. Imperata cylindrica =Næringarríkt plöntuþykkni úr einstakri plöntu sem finnst í eyðimörkum bæði í Ástralíu og Asíu, plantan er einstaklega rík af potassium og þekkt fyrir rakabindandi eiginlega til að lifa af þurrk og harðindi. Rannsóknir sýna að húðin hefur aukið rakamagn sitt um 20% eftir aðeins 24klst. Shea Butter =Nærir húðina, losar um herpingstilfinningu og gerir húðina mjúka viðkomu. D-Phantenol =Styður við náttúrulega endurnýjun og styrkir ytra byrði húðarinnar með sefandi áhrifum sem draga úr óþægindum eða ertingu í húð.
  • Gefur eins og nafnið gefur til kynna “instant” lyftingu! Kælandi og frískandi húðdropar hlaðnir af hreinu sjávarkollageni sem gefur húðinni fyllingu og frísklegra yfirbragð á aðeins örfáum mínútum. Kollagenið smýgur hratt niður í neðstu húðlög í gelkenndri formúlu sem fyllir á og bindur sig við náttúrulegt kollagen húðarinnar. Kælandi gelið virkar einstaklega frískandi og húðin lifnar við á aðeins örskömmum tíma. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha) og Marine Collagen(Sjávarkollagen)
  • S.O.S viðgerðarmaski sem hefur eins og nafnið gefur til kynna samstundis kælandi áhrif, minnkar bólgu, roða og róar niður alla ertingu og hitatilfinningu í húðinni á sem skemmstum tíma sem mögulegt er! Eftir aðeins 5mín hefur dregið sýnilega úr roða og viðnám húðarinnar betrumbæst með Fucogel® sem hefur samstundis sefandi áhrif og kælir niður húðina. Næringarrík formúla smýgur hratt niður og hleður húðlögin af raka sem gefa henni aukna fyllingu og sléttari áferð og Skin Defense Complex+ styrkir viðkvæmt háræðanet húðarinnar með græðandi eiginleikum sem draga úr viðkvæmni. Hraðvirkandi og áhrifarík virkni gefa húðinni aukinn húðljóma og silkimjúka áferð Noktun: Berið á hreina húðina og leyfið að liggja á í a.m.k. 15mín, nuddið restinni niður í húðina með rökum bómull.
  • Stem Cell ampúlan frá Janssen er alveg einstök en hún inniheldur Epla-stofnfrumur úr sjaldgæfu svissnesku eplatré "Uttwiler Spätlauber" en þær líkjast og hafa sömu eiginleika og stofnfrumur manna. Húðin tekur vel á móti þessum merkilegu stofnfrumum og örvar sína eigin frumuskiptingu og framleiðir þar af leiðandi meira kollagen og eflir nýmyndun húðarinnar, húðin öðlast betri rakafyllingu og fær aukinn kraft og hægjir á náttúrruleg öldrunarferli með hjálp frá Stem Cell Fluid. Árangurinn er aukin endurnýjun og bætt starfsemi húðar, sléttir úr fínum línum og grynnkar á hrukkum sannkallað orkuskot fyrir húðina! *Til gaman má geta þess að Svissneska Eplatréð "Uttwiler Spätlauber" er þekkt fyrir einstaklega stökk og bragðgóð epli sem þóttu haldast fersk mun lengur en önnur epli, vísindamönnum þótti þetta afar merkilegt og hófu rannsóknarvinnu og fundu út þessi einstöku tengsl og miklu virkni á húð manna.    
  • Frábært 24-stunda krem fyrir viðkvæmar og/eða þurrar húðgerðir þar sem herpingstilfinning og pirringur í húðinni hverfur samstundis með kælandi og frísklegum áhrifum um leið og kremið er borið á. Rakamikið og djúpnærandi krem með Skin Defence Complex náttúrulegu plöntuþykkni sem styrkir varnarkerfi húðarinnar og verndar viðkvæmt háræðanetið fyrir utanaðkomandi áreiti. Kremið smýgur hratt niður á milli húðlaga og gefur einstaka mýkt og fyllingu án þess að yfirborð húðarinnar verði fitugt. Húðin fær hraustlegra yfirbragð og húðlitur verður jafnari, verndandi virkni og alhliða betrumbætandi áhrif á húðina. Noktun: Berið á hreina húð kvölds og morgna, yfir andlit og háls eitt og sér eða yfir serum. Tip: Fyrir enn meiri virkni og árángur notið samhliða Intense Calming Serum.
  • Intense Calming Lotion er létt kremformúla fyrir viðkvæma húð, frábært fyrir yngri húðgerðir eða þá sem vilja léttari krem. Djúpvirkandi 24stunda formúla sem bæði verndar húðina á daginn og stuðlar að bættri endurnýjun á nóttunni. Fyrir enn betri virkni og árángur Intense Calming Lotion notið samhliða Intense Calming Serum. Kremið inniheldur sérþróað Skin Defense Complex+ sem samanstendur af virkum plöntuefnum og nauðsynlegum fitusýrum fyrir náttúrulega endurnýjun og heilbrigðan varnarhjúp húðarinnar. Létt formúlan inniheldur einnig náttúrulegt alpha bisabolol og allantoin sem dregur verulega úr bólgum, roða og viðkvæmni og bætir áferð húðarinnar með sýnilegum árángri. Saccharide isomerate og hýalúrónsýra veita húðinni djúpvirkandi rakagjöf og stuðla að auknu rakajafnvægi með langvarandi árángri fyrir viðkvæmar húðgerðir. Intense Calming Lotion er einnig tilvalið sumarkrem fyrir þau sem kjósa léttara krem yfir sumartímann, ef herpingur er enn til staðar í húðinni er hægt að nota Intense Calming Cream sem næturkrem. Inniheldur:
    • Skin Defense Complex+: Mjög virk plöntublanda með sólberjafræolíu (rík af ómega-3 og ómega-6 fitusýrum, dregur úr bólguferlum og bætir varnarvirkni húðarinnar), belgplöntukjarni (ríkur af plöntusterólum, talinn vera náttúrulegur valkostur í stað hýdrókortisóns, dregur úr bólgu) og hlutum sólblómaolíu sem ekki er hægt að mynda sápu úr (rík af nauðsynlegum fitusýrum; verndar og bætir skaddað varnarlag húðarinnar, dregur úr ofnæmisviðbrögðum)
    • Langar og stuttar keðjur af hýalúrónsýru: Gefur mikinn raka og bindur hann í húðinni
    • Shea-smjör: Nærir húðina og styður við varnarvirkni hennar
    • Isostearyl Isostearate: Mýkjandi efni úr jurtahráefnum; klínískar rannsóknir sýna að það samlagast fituefnum milli frumna, styrkir þau og eykur varnarvirkni húðarinnar
    • Squalane: Líkist náttúrulegum olíum í húðinni; kemur í veg fyrir þurrk, sléttir húðina
    • Saccharide Isomerate: Kolvetnablanda sem er eins og húðin og veitir húðinni langvarandi raka (72 klukkustunda áhrif)
    • α-Bisabolol: Róandi, bólgueyðandi og dregur úr ertingu
    • Allantoin: Sefar erta húð og dregur úr roða
    • E-vítamín asetat: Andoxandi, verndar húðfrumur gegn skaða af völdum sindurefna
  • Öflugt viðgerðar-serum fyrir viðkvæmar húðgerðir sem styrkir náttúrulegt varnarlag og kemur jafnvægi á húðina. Sérþróuð Skin Defence Complex+ formúla Janssen Cosmetics hefur breiðvirk græðandi áhrif t.d. á exem og ofnæmisgjarna húð, rósroða, háræðaslit og acne. Dregur úr hitatilfinningu, kláða, ertingu og minnkar sjáanlega roða og styrkir viðkvæmt háræðanet húðarinnar. Létt formúlan smýgur hratt niður í húðina eykur rakamagn og mýkt húðarinnar þannig að áferðin verður flauelsmjúk. Noktun: Berið á hreina húð kvölds og morgna, yfir andlit og háls eitt og sér eða undir krem. Tip: Fyrir enn meiri virkni og árángur notið samhliða Intense Calming Cream.
  • Djúphreinsandi maski með græðandi áhrifum fyrir olíukennda, bólugjarna og grófar húðgerðir með opnar/stórar húðholur. Maskinn inniheldur djúpvirkandi Equal-Refining Complex sem vinnur sérstaklega að því að minnka umfang á opnum/stórum húðholum og koma jafnvægji á framleiðslu fitukirtla húðarinnar, maskinn vinnur þannig úr neðri lögum húðarinnar við að jafna út umfram fituframleiðslu og fyrirbyggir þannig stíflur í húðholum og bakteríusýkingar. Til stuðnings á yfirborðinu dregur Kaolin í sig alla umfram húðfitu og minnkar þannig verulega olíuglans og mattar yfirborð húðarinnar. Aloe Vera og Bisabolol minnka samstundis bólgur og roða í húðinni með græðandi áhrifum sem dregur úr ertingu, hita og óþægindi í húðinni. Húðin fær samstundis létti og öðlast auka birtu og frísklegra yfirbragð. Noktun: Berið maskann á hreina húð . forðist augnsvæði og látið liggja á í 20min. Tip. Maskinn þornar örlítið upp á húðinni, gott er að leggja volgt þvottastykki upp við húðina og blyta maskann upp til að auðvelda hreinsun. Má einnig nota staðbundið á T-Svæði eða sem blettameðferð á bólur.
  • Orkugefandi kornakrem fyrir þurra, þreytta, líflausa og grófar húðgerðir. Hreinsar dauðar húðfrumur og óhreinindi af yfirborði húðar á árángursríkann hátt. Endurlífgar starfsemi húðarinnar og eykur blóðflæði með örvandi áhrifum, húðin verður flauelsmjúk og geislar af orku. Nuddið yfir andlitið með hringlaga hreyfingum þangað til kremið er orðið olíukennt. Helstu innihaldsefni : Fínmalaðir ferskjukjarnar, Makadamíuolía
  • Roll-On fyrir augun sem dregur samstundis úr þreytumerkjum með kælandi stálkúlu á endanum sem gefur raka og með koffíni sem frískar sýnilega uppá augnsvæðið!
    Með einstaklega sléttandi áhrifum og fyrirbyggir ótímabæra öldrun, hrukkur og línur í kringum augun.
    Samspil innihaldsefna m.a. koffín og sérþróuð anti-wrinkle peptíðblanda ásamt Silk Acacia þykkni draga sýnilega úr dökkum baugum og bólgum “puffiness” í kringum augnsvæði og vinna saman með einstökum áhrifum þegar formúlan er borin á með roll-on stálkúlu sem örvar sogæðahreinsun og veitir vellíðunar tilfinningu með kælandi áhrifum.
    Algjör draumur fyrir þreytt augu á morgnanna!
    Inniheldur:
    • Long-chain hyaluronic acid: Djúpvirkandi rakagjöf sem eykur og viðheldur rakamagni húðarinnar.
    • Matrixyl™3000: Peptíð formúla með sléttandi áhrifum gegn öldrun húðarinnar.
    • Silk acacia extract: Dregur úr dökkum lit (baugum) undir augum og minnkar bólgur og þrota.
    • Caffeine: Frískar og örvar sogæðahreinsun og blóðflæði með bólgueyðandi áhrifum
  • Light Mattifying Cream er létt 24-stunda krem fyrir olíukenndar húðgerðir, kremið stuðlar að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar og inniheldur Silica púður sem dregur samstundis í sig umfram húðfitu á yfirborði húðarinnar og gefur henni matta og flauelsmjúka áferð. Kremið inniheldur djúpvirkandi Equal-Refining Complex sem vinnur sérstaklega að því að minnka umfang á opnum/stórum húðholum og koma jafnvægji á framleiðslu fitukirtla húðarinnar, kremið vinnur þannig úr neðri lögum húðarinnar við að jafna út umfram fituframleiðslu og fyrirbyggir þannig stíflur í húðholum og bakteríusýkingar með sjáanlegum árángri en rannsóknir hafa sýnt stórar/opnar húðholur dragast saman um allt að 16% á aðeins 28 dögum. Létt formúlan smýgur fljótt niður húðina með kælandi og sefandi áhrifum frá hreinu Aloe Vera og fyllir húðlögin af dásamlegum raka með löngum og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru sem tryggir hámarks rakagjöf og fyllir uppí fínar línur af völdum rakaþurrks og eykur mýkt húðarinnar.
  • Light Tightening Cream frá Janssen Cosmetics er fullkomiđ krem fyrir húđ sem þarf djúpa næringu međ uppbyggjandi áhrifum án þess ađ ofmetta húđina eða gefa olíuglans. •Létt en jafnframt orkumikið krem fyrir húð sem vantar aukna orku og þéttleika hentar fullkomnlega húðgerðum sem eru farna að missa teygjanleika og vantar líflegri húðlit og orku án þess að gefa húðinni glans eða olíkennda áferð. •Létt formúlan gefur samstundis frísklegri húðlit með mild örvandi áhrifum. Inniheldur Vitality-Equalizer sem er líftækni formúla og samanstendur af Euglena gracilis einfruma sjávarþara sem virkjar frumustarfsemi húðarinnar og örvar losun kalsíums og eykur þannig orkubúskap húðarinnar og endurheimtir þéttleika og unglegra yfirbragð. Vísindalegar rannsóknir sýna fram á að eftir aðeins 1 mánuð hefur húðin öðlast 4 sinnum betri teygjanleika og 3 sinnum meiri þéttleika. Kremið inniheldur einnig rakagefandi Aloe Vera og Bisabolol sem saman draga úr allri húðertingu, roða og bólgum í húðinni með mattandi Silica púðri sem dregur í sig allra umfram húðfitu þannig húðin helst mött og þurr viðkomu.
  • Alkahól frír svitalyktareyðir með langvarandi áhrifum. Kemur í þægilegu stifti sem rennur mjúklega yfir handakrikann án þess að valda ertingu eða óþægindum í húðinni með mildum og léttum herrailm. Inniheldur sérvalin plöntuþykkni sem hafa þau áhrif að eyða svitalykt og sporna gegn fyrir að svitalykt myndist með langvarandi eiginleikum.  
  • Lúxús Olíuhreinsir úr 100% náttúrulegum olíum með muldum gullflögum sem fær húđina til ađ glòa! Fullkominn fyrir þurrar húđgerđir sem vantar, næringu og auka orkuljóma. Hreinsar vandlega yfirborð húðarinnar og olìunar næra og mýkja upp húđina, má einnig nota á augnsvæđi. Hreinsar vatnsheldan farða og maskara án vandræđa og nærir húðina með ríkulegu magni af omega 3 og 6 fitusýrum og steinefnaríkum gullflögum sem fær húðina til að glóa. Innih. • Gold of Pleasure Oil: (INCI: Camelina Sativa Oil)
  • Magic Glow Serum gefur húðinni þetta “highlight” áhrif á náttúrulegan hátt án farða! Einstök rakagefandi formúla með næringarríkum þara úr Indverska hafinu sem hefur sannað 28% aukningu á ljóma húðarinnar á 28 dögum með aukinni rakafyllingu og þéttleika. Rakagefandi Hyaluronic Sýra og Soft Focus Pigments hylja fínar línur og fylla á rakabirgðir húðarinnar með “highlight” áhrifum þegar birtan glampar á húðina. Hentar fullkomnlega undir farða eða annað krem eða eitt og sér fyrir ljómandi húð. Pro Tip! Fyrir enn meiri ljómaáhrif notið undir Sensational Glow Cream
  • Þéttandi og lyftandi 24.stunda krem með sjávarkollageni og kollagen-booster sem vinnur gegn kollagen niðurbroti húðarinnar og eykur þéttleika með lyftandi áhrifum. Húðin fær samstundis aukna rakafyllingu (“plump”) og verður þéttari viðkomu þar sem virk innihaldsefni binda raka í efstu húðlögunum og mynda ósýnilega varnarfilmu sem fyllir uppí fínar línur vegna rakaþurrks með sléttandi áhrifum á yfirborð húðarinnar. Með reglulegri noktun getur húðin þrefaldað náttúrulegar kollagen birgðir sínar, sem eykur styrkleika, hald og lyftingu í húð sem er byrjuð að missa teygjanleika, varðveitir rakafyllingu og gefur húðinni ferskara og líflegra yfirbragð. -Virk innihaldsefni: *Marine Collagen (Sjávarkollagen): hefur lyftandi eiginlega á húðina og myndar varnarfilmu í efstu húðlögum sem bindur raka og eykur fyllingu húðarinnar með sléttandi áhrifum. *Pomegranate blóma þykkni og C vítamín virkja og styðja við aukna náttúrulega kollagen framleiðslu húðarinnar með andoxandi eiginleikum sem spornar gegn niðurbroti kollagenþráða og ótímabærri öldrun húðarinnar af völdum sindurefna (free radicals). -Til viðbótar fær húðin dásamlega mýkt og rakafyllingu með löngum keðjum af Hyaluronic sýru og nærandi Makadamíu olíu og frumuverndandi “anti aging” eiginleika E vítamíns. -Kremið hentar þurrum og rakaþurrum húðgerðum sem vantar aukinn þéttleika og fyllingu með lyftandi áhrifum.
  • Marine Collagen Fluid fyrir þéttari og frísklegri húð. Inniheldur hátt hlutfall af hreinu sjávarkollageni, löngum- og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru ásamt granateplaþykkni. ACTIVATE Marine Collagen ampúlunar gefa húðinni samstundis aukinn þéttleika með langvarandi eiginleikum þar sem kollagenþræðir húðarinnar taka vel á móti aðstoð og utanaðkomandi styrk frá sjávarkollageni ampúlunnar. Hyaluronic sýran sér um að gefa húðinni aukinn raka og passar uppá að virk efni nái á áfángastað niður neðstu húðlögin. Að auki fær húðin frísklegra yfirbragð og litarhaft húðarinnar verður líflegra með öflugri andoxun frá hreinni ofurfæðu fyrir húðina úr grantateplunum.
  • Fíngert hreinsi-púður með hreinu C-Vítamini fyrir bjartari og þéttari húð. Einfalt í noktun, blandar dásamlega hreinsifroðu á örfáum sek í lófunum! Helltu c.a. 1/2 tsk af púðrinu í lófann og blandaðu með örlitlu vatni, gott er að nota fingurna til þess að dropa hreinu vatni yfir púðrið og blandaðu svo saman með báðum lófum í létta kremkennda froðu. Hreinsar farða og önnur óhreinindi af yfirborði húðarinnar með skilvirkum hætti auk þess sem virkni af hreinu C-Vitamini eykur birtu, ljóma og stuðlar að auknum þéttleika húðvefja. Fyrir enn léttari froðu mælum við með að nota pensil og Melafadin Toner til blöndunar og þeyta upp létta froðu.   Inniheldur: Pure vitamin C: Ascorbic acid, inhibits melanin maturation • Condensate consisting of coconut fatty acid and amino acid: Cleansing tenside based on replenishable raw plant materials • Titanium dioxide: White pigment for optically brightening the skin • Talcum: Absorbent • Silicone powder: Carrier substance
  • Melafadin Toner er ómissandi hluti af húðrútínu fyrir bjartari húð og jafnari húðlit gegn litaflekkjum eða dökkum blettum vegna sólarskemmda.

    Frískandi andlitsvatn sem fullkomnar hreinsun húðar, jafnar pH gildi og gerir húðina móttækilegri fyrir frekari meðhöndlun.

    Virk innihaldsefni:

    • Morus alba : plöntu-þykkni unnið úr White Mulberry trjárótum stuðla að jafnari húðlit og auka birtu í húðinni.
    • Plant extract SORR: Einstök virkni frá náttúrunnar hendi hindrar frásog melaníns í keratínsítur húðarinnar sem mynda efstu húðlögin og hindra því myndun dökka bletta með andoxandi áhrifum frá plönturíkinu.
    • Glycerin: Nærandi og mýkjandi áhrif.
    • Aloe vera: Sefar og rakagefandi.
    • Allantoin: Eykur endurnýjun og minnkar ertingu í húð.
  • Alkahólfrítt andlitsvatn með micellar tækni sem hreinsar upp umfram olíur og óhreinindi af yfirborði húðarinnar. Fullkomnar hreinsun húðar, jafnar pH gildi og gefur húðinni frísklegan ljóma, eykur virkni krema sem borin eru á eftir noktun og eykur rakamagn húðarinnar. Innih. Saccharide Isomerates og Hyaluronic Sýru.
Go to Top