Pro-Lift Cream er öflugt djúpnærandi og endurnýjandi krem sem inniheldur þykkni úr „ofurávöxtum“ eins og trönuberjum og rambútanlaufum sem stuðla að endurnýjun húðarinnar og draga úr fyrstu línum og hrukkum.
Kremið þéttir og bætir teygjanleika húðarinnar með lyftandi áhrifum sem gerir hana unglegri og frísklegri.
Pro-Lift Cream er öflugt djúpnærandi og endurnýjandi krem sem inniheldur þykkni úr „ofurávöxtum“ eins og trönuberjum og rambútanlaufum sem stuðla að endurnýjun húðarinnar og draga úr fyrstu línum og hrukkum.
Kremið þéttir og bætir teygjanleika húðarinnar með lyftandi áhrifum sem gerir hana unglegri og frísklegri. Streita, svefnleysi og skaðleg umhverfisáhrif setja mark sitt á andlitið, en þetta er hægt að minnka sýnilega með reglulegri umönnun.
Rambútanþykkni tryggir að húðin geti slakað á og náð dýrmætri endurheimt. Náttúrulegt efni úr laufum þessara gómsætu, suðrænu ávaxta dregur úr öldrun og styrkir kollagen og elastín þræði sem eykur teygjanleika húðarinnar og gerir hana unglegri. Um leið hjálpar öflugt lífrænt trönuberjapeptíð við að bæta þéttleika húðnetjunnar og draga úr línum og hrukkum. Tvíþætt hýalúrónsýra færir húðinni djúpnærandi raka og gerir hana sýnilega sléttari. Að auki er þessi fjölvirka öldrunarvarnarblanda auðguð með nauðsynlegum fitusýrum og amínósýrum sem styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar og vinna gegn ótímabærri öldrun húðarinnar.
Þetta ríkulega og silkimjúka krem smýgur auðveldlega inn í húðina og færir henni mýkra og jafnara yfirlag með auknum þéttleika og lyftingu.
Frábært alhliða 24.stunda krem, parast einnig fullkomnlega við Vitalizing Skin Refiner sem léttari kost á móti hvort sem er fyrir dag eða næturumhirðu.
INNIHALDSEFNI
Cranberry Bio Peptide: Öflugt peptíð úr trönuberjum (vaccinium macrocarpon) sem hægir á öldrunarferli; bætir þéttleika húðnetjunnar, styrkir varnir og færir húðinni aukinn ljóma
Well-Ageing Rambutan: Rambútan (nephelium lappaceum) er ljúffengur hitabeltisávöxtur sem vex í Malasíu og víða í flestum löndum Suðaustur-Asíu. Þessi ofurávöxtur hefur endurnærandi og betrumbætandi áhrif á húðina og er auðugur af andoxunarefnum og steinefnum. Well-Aging Rambutan er virkt innihaldsefni í formi þykknis úr laufum rambútanrunnans; dregur sýnilega úr hrukkum; bætir teygjanleika húðarinnar og gerir hana unglegri
SLM-endurvaki:Inniheldur mjög öflug fosfórlípíð og er með þynnubyggingu sem er mjög lík byggingu fitusýrusamsetningu í hornlagi/varnarhjúp húðarinnar. Með þessari viðbót endurheimtir húðin styrk og eflir varnarhjúp sinn enn frekar.
Amíno Acid Complex: Rakagefandi blanda sem inniheldur náttúrulega rakaþætti húðarinnar(NMF), sem eykur rakastig og styrkir varnarhjúp.
Hýalúrónsýra (löng og stutt keðja): Húðin verður strax sléttari og raki eykst, sem dregur úr yfirborðslínum vegna þurrks
Squalane: Squalane bindur raka, gerir húðina teygjanlegri, styrkir varnir hennar og dregur úr hrukkum og fínum línum