Pro-Lift Cream er öflugt djúpnærandi og endurnýjandi krem sem inniheldur þykkni úr „ofurávöxtum“ eins og trönuberjum og rambútanlaufum sem stuðla að endurnýjun húðarinnar og draga úr fyrstu línum og hrukkum. Kremið þéttir og bætir teygjanleika húðarinnar með lyftandi áhrifum sem gerir hana unglegri og frísklegri. Pro-Lift Cream er öflugt djúpnærandi og endurnýjandi krem sem inniheldur þykkni úr „ofurávöxtum“ eins og trönuberjum og rambútanlaufum sem stuðla að endurnýjun húðarinnar og draga úr fyrstu línum og hrukkum. Kremið þéttir og bætir teygjanleika húðarinnar með lyftandi áhrifum sem gerir hana unglegri og frísklegri. Streita, svefnleysi og skaðleg umhverfisáhrif setja mark sitt á andlitið, en þetta er hægt að minnka sýnilega með reglulegri umönnun. Rambútanþykkni tryggir að húðin geti slakað á og náð dýrmætri endurheimt. Náttúrulegt efni úr laufum þessara gómsætu, suðrænu ávaxta dregur úr öldrun og styrkir kollagen og elastín þræði sem eykur teygjanleika húðarinnar og gerir hana unglegri. Um leið hjálpar öflugt lífrænt trönuberjapeptíð við að bæta þéttleika húðnetjunnar og draga úr línum og hrukkum. Tvíþætt hýalúrónsýra færir húðinni djúpnærandi raka og gerir hana sýnilega sléttari. Að auki er þessi fjölvirka öldrunarvarnarblanda auðguð með nauðsynlegum fitusýrum og amínósýrum sem styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar og vinna gegn ótímabærri öldrun húðarinnar. Þetta ríkulega og silkimjúka krem smýgur auðveldlega inn í húðina og færir henni mýkra og jafnara yfirlag með auknum þéttleika og lyftingu. Frábært alhliða 24.stunda krem, parast einnig fullkomnlega við Vitalizing Skin Refiner sem léttari kost á móti hvort sem er fyrir dag eða næturumhirðu.