• Pro-Youth 7 daga ampúlukúr frá Janssen Cosmetics er háþróaður 7 daga meðferðarpakki með sérvöldum ampúlum sem auka endurnýjun húðar, styrkja húðvefi og gefa húðinni frísklegan ljóma allt frá fyrsta degi. Hver dagur meðferðarinnar inniheldur sértæka ampúlu með virkum innihaldsefnum sem vinna frá neðstu húðlögum að því að bæta áferð húðarinnar, auka rakafyllingu og draga úr þreytu og öldrunarmerkjum.
  • Öflugt C-vítamínkrem fyrir bjartari húð og ferskan ljóma.  Vitaforce C Cream sameinar ríkulega rakagjöf, andoxunarvörn og kraft C-vítamíns til að jafna húðlit og draga úr sýnilegum öldrunareinkennum. Þrjú af vinsælustu kremunum frá Janssen Cosmetics koma í fallegri jólaútgáfu og á sérstöku tilboði núna fyrir jólin. Hvert um sig býður upp á einstaka húðumhirðu í 20 ml ferðastærð.
  • Sensational Glow Cream 24 stunda rakakrem fyrir sléttari húð og ferskan, náttúrulegan ljóma. Ferskleiki sem sést strax. Sensational Glow Cream gefur daufri húð ljómandi yfirbragð með Soft Focus Pigments sem endurkasta ljósi og gera fínar línur og ójöfnur minna áberandi. Létt áferðin smýgur fljótt inn í húðina og skapar sléttan grunn undir farða. Þrjú af vinsælustu kremunum frá Janssen Cosmetics koma í fallegri jólaútgáfu og á sérstöku tilboði núna fyrir jólin. Hvert um sig býður upp á einstaka húðumhirðu í 20 ml ferðastærð.
  • Caviar Luxury Cream er nærandi lúxuskrem með kavíarþykkni sem endurvekur þurra og þreytta húð. Það gefur húðinni fyllingu, dregur úr sýnilegum línum og hrukkum og skilur hana eftir silkimjúka og ljómandi. Ríkuleg áferðin bráðnar inn í húðina og veitir strax þægilega mýkt.

    Þrjú af vinsælustu kremunum frá Janssen Cosmetics koma í fallegri jólaútgáfu og á sérstöku tilboði núna fyrir jólin. Hvert um sig býður upp á einstaka húðumhirðu í 20 ml ferðastærð.

  • Næring, raki og ljómi í tveimur fösum

    Lúxus tvífasa olíuserum með kavíarþykkni og perludufti sem veitir þurri húð ríkulega næringu og raka. Húðin verður silkimjúk og sléttari með ferskara yfirbragði og fallegum ljóma. Á sérstöku jólatilboði – falleg gjöf og kærkomin viðbót við daglega húðmeðferð yfir vetrarmánuðina.
  • Vitamin C Glow Set - Kraftur C-vítamíns fyrir sléttari húð og geislandi ljóma

     
    Glæsilegt gjafasett fyrir húð sem vantar ferskleika, raka og ljóma. Vitaforce C Skin Complex og Vitaforce C Cream úr Demanding Skin vörulínu JANSSEN COSMETICS sameina markvissa virkni þar sem kraftur C-vítamíns og hyaluronsýru spila lykilhlutverk.
  • LONGEVITY CARE Cream er hágæða dag- og næturkrem sem hjálpar húðinni að viðhalda styrk sínum, mýkt og náttúrulegum ljóma með tímanum. Silkimjúk áferðin fellur vel að húðinni og veitir henni ríkulega, endurnýjandi og verndandi umhirðu án þess að virka þung. Í hjarta formúlunnar eru Clotho, ashwagandha-rótarþykkni og resveratrol sem styðja við endurnýjun húðarinnar, styrkja varnarhjúp hennar og vernda gegn daglegu umhverfisálagi. Natural Contour Lifting úr stráblómi og Majestic Beauty, frumuræktarþykkni úr edelweiss, styðja við þéttari húð og betur mótaðar andlitslínur. Samsetning hýalúrónsýru í mismunandi sameindastærðum og rakagefandi sykrusambanda veitir húðinni mikinn og langvarandi raka. Húðin verður mýkri, sléttari og fyllri, með ferskara og ljómandi yfirbragði dag frá degi. Helstu eiginleikar
    • Styður við langlífi og endurnýjun húðfrumna
    • Styrkir varnarhjúp og mótstöðukraft húðarinnar
    • Veitir mikinn og langvarandi raka
    • Styður við aukinn þéttleika og betur mótaðar andlitslínur
    • Mýkir og sléttir yfirborð húðarinnar
    • Eykur náttúrulegan ljóma
    Hentar húð sem sýnir öldrunareinkenni, skort á þéttleika, raka eða ljóma og öllum sem vilja styðja við heilbrigði og lífskraft húðarinnar til lengri tíma. Berið á hreina húð að morgni og kvöldi eftir serum og augnkrem.
  • Húðin í kringum augun er fíngerð og viðkvæm og þarfnast markvissrar umhirðu. LONGEVITY CARE Eye Cream endurlífgar augnsvæðið, styrkir húðina og veitir henni raka án þess að íþyngja henni. Silkimjúk áferðin fellur létt að húðinni og skilur hana eftir einstaklega mjúka og slétta. Samsetning ashwagandha-rótarþykknis, Majestic Beauty, Clotho og resveratrols vinnur markvisst að því að varðveita unglegt útlit augnsvæðisins. Eye Beautifier, líftæknilega unnið þykkni úr sjávarörverunni E. crustaceum, hjálpar til við að draga úr dökkum baugum, en Majestic Beauty stinnir húðina og dregur úr ásýnd hrukka í kringum augun. Við reglulega notkun verður augnsvæðið sléttara, ferskara og ljómandi og þreytumerki verða minna áberandi. Helstu eiginleikar
    • Dregur úr ásýnd hrukka í kringum augun
    • Hjálpar til við að draga úr dökkum baugum
    • Dregur úr þrota og þreytumerkjum
    • Veitir mikinn og langvarandi raka
    • Styrkir viðkvæma húð augnsvæðisins
    • Gefur sléttara og bjartara yfirbragð
    Hentar öllum húðgerðum og sérstaklega augnsvæði sem sýnir þurrk, þreytumerki, dökka bauga, þrota eða fínar línur. Berið lítið magn á hreint augnsvæðið að morgni og kvöldi og nuddið mjúklega inn í húðina.
  • LONGEVITY CARE Serum leggur grunninn að allri Longevity Care húðumhirðunni. Háþróuð samsetning þess vinnur markvisst að þeim líffræðilegu ferlum sem hafa áhrif á öldrun húðarinnar og hjálpar henni að endurheimta lífskraft, styrk og ferskara yfirbragð. Clotho, ashwagandha-rótarþykkni og Evergreen styðja við náttúrulega endurnýjun húðarinnar, styrkja varnarhjúp hennar og auka mótstöðukraft gegn daglegu álagi og umhverfisáhrifum. Rakagefandi efni sem líkjast náttúrulegum rakabindandi efnum húðarinnar veita mikinn og langvarandi raka, slétta áferð hennar og draga úr ásýnd fínna lína. Létt serumið smýgur hratt inn í húðina og undirbýr hana fyrir umhirðuna sem á eftir fylgir. Húðin virðist strax fyllri, ferskari og ljómandi en með reglulegri notkun styrkist varnarhjúpur hennar og stinnleiki, lífskraftur og viðnámsþróttur aukast. Helstu eiginleikar
    • Styður við langlífi og endurnýjun húðfrumna
    • Styrkir varnarhjúp húðarinnar
    • Dregur úr áhrifum daglegs umhverfisálags
    • Veitir mikinn og langvarandi raka
    • Sléttir áferð og dregur úr ásýnd fínna lína
    • Eykur lífskraft og ljóma
    Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega húð sem er þreytt, rakaþurr eða hefur misst styrk, fyllingu og ljóma. Berið á hreina húð að morgni og/eða kvöldi. Berið síðan á augnkrem og andlitskrem. Einnig má nota serumið sem kúrameðferð þegar húðin þarfnast aukins lífskrafts og ferskleika.
  • Epigenetic Glow Duo – tímalaus fegurð og geislandi ljómi Háþróuð virkni gegn öldrunareinkennum og samstundis meiri húðljómi. Epigenetic Serum og Sensational Glow Cream sameina krafta sína í öflugu tvíeyki sem hjálpar húðinni að viðhalda unglegu yfirbragði með háþróaðri epigenetic tækni. Viðgerðarferli og varnarviðbragð húðfrumna er glætt nýrri orku sem styrkir mótstöðuafl og eykur lífsþrótt sem skilar af sér lengri líftíma húðfrumna. Við það fær húðin aukna seiglu sem hægir á náttúrulegu öldrunarferli og hrörnun líkt og tíminn standi í stað! Epigenetic Serum vinnur gegn áhrifum ytra álags á húðina og styður við mótstöðu hennar, á meðan Sensational Glow Cream eykur rakafyllingu og gefur yfirborðinu sléttari ásýnd. Saman mæta vörurnar þörfum húðar sem farin er að sýna fínar línur, rakaþurrk og minnkandi ljóma — falleg gjöf fyrir húðina og dekur til að njóta á hverjum degi. Settið kemur í fallegum gjafapoka frá Janssen Cosmetics.
  • Out of stock
    Tvær vörur úr MEN línu Janssen Cosmetics sem sameina milda hreinsun, þægilega notkun og fágaðan herrailm. Men’s Daily Duo inniheldur Active Shower Gel fyrir hár og líkama og Long Lasting Deodorant sem veitir langvarandi vörn gegn svitalykt. Falleg jólagjöf sem nýtist á hverjum degi, í glæsilegum gjafapoka frá Janssen Cosmetics.
  • Lúxus kavíarmeðferð fyrir sléttari húð og unglegan ljóma Ríkuleg næring, silkimjúk áferð og sýnilega sléttari húð. Caviar Luxury Duo sameinar nýja 2-Phase Oil Serum Energizing og Caviar Luxury Cream í endurnærandi tvennu sem veitir húðinni langvarandi raka, dregur úr ásýnd lína og gefur henni ferskara og fyllra yfirbragð.
  • Öflug kvöld-húðrútína fyrir aukna endurnýjun og lyftingu í glæsilegu gjafasetti. Evening Beauty Edition frá JANSSEN COSMETICS sameinar hið vinsæla Retinol Lift Serum og Lift Contour Cream Mask í vönduðu gjafasetti á sérstöku jólatilboði. Öflug tvenna þar sem retínól og peptíð vinna saman að aukinni endurnýjun húðarinnar, sléttari yfirborðsáferð og bættum þéttleika með lyftandi áhrifum og sýnilegum árángri. Sérstaða Evening Beauty Edition gjafasettsins felst ekki síst í Lift Contour Cream Mask, sem er alla jafna eingöngu notaður í fagmeðferðum á snyrtistofum. Í þessari jólaútgáfu fæst maskinn í 30 ml stærð til notkunar heimafyrir, ásamt Retinol Lift seruminu. Lúxusgjöf fyrir húðvöruunnendur og freistandi tækifæri til að njóta sérhæfðrar húðmeðferðar heima!
  • 25 sérvaldar ampúlur í 24 daga meðferð sem gefur húðinni ríkulegan raka, sléttari áferð og geislandi ljóma fyrir hátíðirnar. JANSSEN COSMETICS aðventudagatalið er dásamleg leið til þess að hleypa smá auka birtu inn í skammdegið og njóta aðventunnar enn frekar þar sem hver dagur verður dekurdagur. Nærandi niðurtalning til jóla með fullkomlega samsettum ampúlukúr sem svíkur engan. Dagatalið er gefið út í takmörkuðu upplagi á hverju ári og býður viðskiptavinum upp á einstakan 24 daga ampúlukúr á frábæru jólatilboði og er nú þegar orðið ómissandi partur af aðventunni fyrir marga.
  • Rakagefandi andlitssprey með Skin Wall Care Complex, aloe vera og guarana sem eykur rakastig húðarinnar samstundis og veitir henni dásamlega frískandi tilfinningu með styrkjandi eiginleikum fyrir varnarhjúp húðarinnar. Fíngerður úðinn umlykur húðina með léttu verndarlagi sem gerir hana fallega ferska, vel nærða og náttúrulega ljómandi. Þökk sé upplífgandi ilmi af eucalyptus, myntu og grænum telaufum veitir Refreshing Face Mist þér aukinn ferskleika hvenær og hvar sem er – tilvalið þegar þú ert á ferðinni. REFRESHING FACE MIST má nota bæði undir og yfir farða. – Þegar það er notað undir farða gefur það raka, verndar og sefar húðina. – Þegar það er notað yfir farða hjálpar það til við að festa förðunina og gefur fallega, ferska og ljómandi áferð.
  • Pro Glow Selection – 7 daga ampúlukúr Ljómagefandi ampúlukúr sem veitir húðinni samstundis ferskara, jafnara og geislandi yfirbragð. Pro Glow Selection er sérvalin ampúlupakki sem sameinar þrjár öflugar ampúlur í 7 daga kúr fyrir húð sem vantar aukinn ljóma, rakafyllingu og frísklegra yfirbragð. Kúrinn er hannaður til að auka ljóma og útgeislun húðarinnar með sýnilegum árangri, draga úr þreytumerkjum og gefa húðinni sléttara, stinnara og unglegra útlit. Í pakkanum eru 2 x Brilliance Shine Elixir, 2 x Marine Collagen Fluid og 3 x Radiant Skin Fluid.
  • Sale!

    Marine Collagen Selection

    Original price was: 14.900 kr..Current price is: 11.900 kr..

    Hreinn lúxús með dýrmætu kollageni í glæsilegri gjafaöskju fyrir jólin!

    Öflug innihaldsefni í hámarksgæðum! Árangursríkt húðumhirðu tvíeyki með Marine Collagen Fluid og lúxus Marine Collagen Cream sem byggir á sjávar­kollageni, hýalúrónsýru og granatepla extract.

    Með reglulegri noktun getur húðin þrefaldað náttúrulegar kollagen birgðir sínar, sem eykur styrkleika, hald og lyftingu í húð sem er byrjuð að missa teygjanleika, varðveitir rakafyllingu og gefur húðinni ferskara og líflegra yfirbragð.

    Húðin fær aukna rakafyllingu og sléttara yfirbragð, aukinn þéttleika og dásamlegan ljóma!

    Inniheldur 1x Marine Collagen Cream 50ml & 7stk ACTIVATE Marine Collagen Fluid Ampúlur Hentar þurrum/rakaþurrum húðgerðum sem vantar aukinn þéttleika og fyllingu með lyftandi áhrifum og líflegum húðljóma. Fullkomið krem yfir veturinn!
  • Dark Spot Perfector er kröftugt serum sem er bæði fyrirbyggjandi og lýsandi meðferð fyrir litabletti og aðrar litabreytingar á húðinni og hentar öllum húðgerðum. Inniheldur sérþróaða Age Spot Corrector formúlu með blöndu af soyja og jurtaþykkni (Garden Cress/Lepidium sativum) sem draga úr nýmyndun melaníns og lýsa upp dökka bletti á húðinni án þess þó að lýsa upp húðina í kring!
     
  • Intensíf 40 daga C vítamín meðferð, gegn litabreytingum og öðrum ójöfnum. Virkt efni í 2-fasa ampúlum með vítamín C fosfati (duftfasi) ásamt lipoamínósýru, SORR og útdrætti úr mulberry rót (vökva fasi). Inniheldur 4x 10ml ampúlur og 1x pípettu lok Vítamín C fosfat í mjög háum styrk hemur melanin vöxt og verndar húðina einnig gegn oxunarálagi. Það stuðlar einnig að náttúrulegum viðgerðarferlum húðarinnar og örvar kollagenmyndun og bætir húðstrúktúr. 2-Phase Melafadin Concentrate býður uppá einstaka virkni með tveggja fasa ampúlum til heimameðferðar með hreinu C vítamíni. Vítamín C duftið (fasi 1) er blandað og leyst upp af innihaldsríkum activator (fasa 2). Báðir fasanir sameinast í blöndu með hámarks virkni af styrkjandi eiginleikum og óviðjafnanlegum húðljóma. Kúrinn er ætlaður sem meðferð fyrir alhliða betrumbætta áferð húðarinnar, styrkleika, jafnari húðlit og geislandi fallegan húðljóma. Kúrinn inniheldur 4 x 10 ml flöskur sem eru nauðsynlegar fyrir u.þ.b. 40 daga meðferðarferli. Ampúlunar koma með praktísku pípettu loki sem mælir hvern skammt fyrir sig fyrir daglega notkun og endingu.
  • Í tilfelli blandaðrar húðar getur aukin fituframleiðsla valdið óæskilegum glans á húðinni, sérstaklega á miðsvæði andlitsins, á meðan vangar og augnsvæðið eru þurrari. Sértækar hreinsivörur eru nauðsynlegar af þessari ástæðu, til þess að mæta ólíkum þörfum húðarinnar fyrir áhrifaríka hreinsun og aukið jafnvægi fyrir blandaðar húðgerðir. Gentle Cleansing Powder hefur verið þróað sérstaklega til þess að mæta þessum þörfum!
  • Vitalizing Skin Refiner er einstaklega rakagefandi húðmeðferð sem færir húðinni nýjan þrótt og ljóma með lífrænum trönuberjapeptíðum og þykkni úr camu camu-berjum. Kremið hefur létta og silkimjúka áferð sem frásogast hratt niður húðlögin og gefur húðinni líflega útgeislun og ferskara útlit dag eftir dag. Vitalizing Skin Refiner er einstaklega rakagefandi húðmeðferð sem færir húðinni nýjan þrótt og ljóma með lífrænum trönuberjapeptíðum og þykkni úr camu camu-berjum. Kremið hefur létta og silkimjúka áferð sem frásogast hratt niður húðlögin og gefur húðinni líflega útgeislun og ferskara útlit dag eftir dag. Vitalizing Skin Refiner er frábært alhliða 24stunda krem, parast einnig fullkomnlega sem dagkrem á móti Pro Lift Cream sem næturkrem ef þörf er á dýpri næringu fyrir nóttina.
  • Smooth + Lift Eye Cream er einstök formúla með hágæða virkum innihaldsefnum eins og lífrænum trönuberjapeptíðum, Soft Focus Pigments og amínósýru complex fyrir hámarks ummönnun og virkni fyrir augnsvæðið. AUGNKREM MEÐ ÁHRIFARÍKUM OG LANGVARANDI EIGINLEIKUM Smooth + Lift Eye Cream er einstök formúla með hágæða virkum innihaldsefnum eins og lífrænum trönuberjapeptíðum, Soft Focus Pigments og amínósýru complex fyrir hámarks ummönnun og virkni fyrir augnsvæðið. Dagleg umhirða augnsvæðisins kvölds og morgna er nauðsynlegur hluti af fyrirbyggjandi meðferð til að hægja á öldrunarferli húðarinnar, viðhalda styrk og jafnframt draga úr línum og fyrstu öldrunarmerkjum með djúpnærandi eiginleikum sem slétta húðina umhverfis augun og vinna gegn sinduráhrifum. Silkimjúk áferð Smooth + Lift Eye Cream frásogast hratt niður húðlögin og tryggir aukinn styrkleika og sléttara yfirbragð húðarinnar með djúpvirkandi rakagjöf og auknum frískleika. Trönuber hafa öfluga virkni á húðina og stuðla að auknum þéttleika og kollagenframleiðslu sem viðheldur fyllingu húðarinnar með langvarandi eiginleikum. Tvíþætt hýalúrónsýra færir húðinni djúpvirkandii raka og gerir hana sýnilega sléttari. Að auki er þessi fjölvirka fyrirbyggjandi formúla auðguð með nauðsynlegum fitusýrum og amínósýrum sem styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar og vinna gegn öldrunarmerkjum húðarinnar. Soft Focus Pigments gefa húðinni samstundis jafnari áferð og fylla uppí fíngerðar línur og hrukkur sem gefur augnsvæðinu silkimjúka slétta og matta áferð.
  • Pro-Lift Cream er öflugt djúpnærandi og endurnýjandi krem sem inniheldur þykkni úr „ofurávöxtum“ eins og trönuberjum og rambútanlaufum sem stuðla að endurnýjun húðarinnar og draga úr fyrstu línum og hrukkum. Kremið þéttir og bætir teygjanleika húðarinnar með lyftandi áhrifum sem gerir hana unglegri og frísklegri. Streita, svefnleysi og skaðleg umhverfisáhrif setja mark sitt á andlitið, en þetta er hægt að minnka sýnilega með reglulegri umönnun. Þetta ríkulega og silkimjúka krem smýgur auðveldlega inn í húðina og færir henni mýkra og jafnara yfirlag með auknum þéttleika og lyftingu. Frábært alhliða 24.stunda krem, parast einnig fullkomnlega við Vitalizing Skin Refiner sem léttari kost á móti hvort sem er fyrir dag eða næturumhirðu.
  • Fullkomið duo fyrir ljómandi húð! Nú á frábæru tilboði saman með glæsilegum kaupauka, vönduð og rúmgóð Janssen Cosmetics taska með rennilás fylgir með ásamt demants vasaspegli. Spegillinn er tvískiptur með stækkun á annari hliðinni. Magic Glow Serum og Sensational Glow Cream gefa húđinni dásamlega rakafyllingu og highlight glampa án þess ađ húđin glansi eđa virki olíukennd, hlaðið næringaríkum efnum eins og þara extrakti úr Indverska hafinu sem hefur sannað virkni á aukna húðendurnýjun og aukinn ljóma húðarinnar.
Go to Top