-
25 sérvaldar ampúlur í 24 daga meðferð sem gefur húðinni ríkulegan raka, sléttari áferð og geislandi ljóma fyrir hátíðirnar. JANSSEN COSMETICS aðventudagatalið er dásamleg leið til þess að hleypa smá auka birtu inn í skammdegið og njóta aðventunnar enn frekar þar sem hver dagur verður dekurdagur. Nærandi niðurtalning til jóla með fullkomlega samsettum ampúlukúr sem svíkur engan. Dagatalið er gefið út í takmörkuðu upplagi á hverju ári og býður viðskiptavinum upp á einstakan 24 daga ampúlukúr á frábæru jólatilboði og er nú þegar orðið ómissandi partur af aðventunni fyrir marga. -
Light Mattifying Cream er létt 24-stunda krem fyrir olíukenndar húðgerðir, kremið stuðlar að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar og inniheldur Silica púður sem dregur samstundis í sig umfram húðfitu á yfirborði húðarinnar og gefur henni matta og flauelsmjúka áferð. Kremið inniheldur djúpvirkandi Equal-Refining Complex sem vinnur sérstaklega að því að minnka umfang á opnum/stórum húðholum og koma jafnvægji á framleiðslu fitukirtla húðarinnar, kremið vinnur þannig úr neðri lögum húðarinnar við að jafna út umfram fituframleiðslu og fyrirbyggir þannig stíflur í húðholum og bakteríusýkingar með sjáanlegum árángri en rannsóknir hafa sýnt stórar/opnar húðholur dragast saman um allt að 16% á aðeins 28 dögum. Létt formúlan smýgur fljótt niður húðina með kælandi og sefandi áhrifum frá hreinu Aloe Vera og fyllir húðlögin af dásamlegum raka með löngum og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru sem tryggir hámarks rakagjöf og fyllir uppí fínar línur af völdum rakaþurrks og eykur mýkt húðarinnar. -
Einstaklega virk og áhrifarík formúla gegn bólum, djúpum sýkingum og Acne húðgerðum. Microsilver Serum pH 4,2 er sérþróuð formúla sem vinnur bæði í neðri lögum sem og á yfirborði húðarinnar þar sem Glycolic ávaxtasýra smýgur niður í neðstu húðlögin og eykur náttúrulega endurnýjun og hreinsun húðarinnar og kemur á auknu jafnvægi á framleiðslu fitukirtlanna, á meðan Micro-Silfur agnir vinna á yfirborði húðarinnar og mynda einskonar skjöld á yfirborði húðarinnar og fyrirbyggja þannig að óhreinindi eða bakteríur nái að grassera í húðinni. Micro-Silfur er alveg einstakt innihaldsefni fyrir vandamálahúð þar sem það innsíast ekki niður í húðina heldur vinnur einungis á yfirborðinu og hefur þann sérstaka eiginleika að fjarlægja bakteríur og óæskilegar örverur af yfirborði húðarinnar sem myndu annars valda bólum, bólgum eða djúpum húðsýkingum hjá húð með mikla fituframleiðslu. Serumið inniheldur einnig D-Panthenol, Provitamin B 5 sem örvar fumuendurnýjun og bætir þannig gróandaferli húðarinnar og fyrirbyggir sáramyndun með rakagefandi áhrifum. Inniheldur: 3,5% Glycolic sýru og 0,2% Micro-Silfur með pH gildi 4,2 -
Alkahól-frítt andlitsvatn sem fullkomnar hreinsun húðar, dregur úr olíuglans með mattandi eiginleikum og hefur einnig samherpandi áhrif á opnar/stórar húðholur sem dregur úr stíflumyndun. Inniheldur Equal Refining Complex sem stuðlar að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar með einstaklega samherpandi áhrifum á opnar/stórar húðholur. Með reglulegri noktun dragast opnar húðholur saman með sjáanlegum árángri og yfirborð húðarinnar verður sléttara. Fullkomið par með Purifying Cleansing Gel fyrir olíkenndar og grófar húðgerðir. -
Hreinsigel fyrir olíukenndar húðgerðir með tvíþættri virkni. Frískandi gelið leysir upp óhreinindi og umframhúðfitu af yfirborði húðarinnar og veitir ásamt því að varðveita rakamagn hennar með Panthenol:Provitamin B5 sem hefur einnig verndandi og sefandi áhrif á roða og bólgur í húð. Gelið hefur mildan en frísklegan ilm og gefur húðinni matta og fallega áferð. -
Djúpvirkandi og einstaklega nærandi formúla sléttir varinar, losar um herping og fyllir uppí fínar línur af völdum þurrks ásamt því að gefa aukna fyllingu “plump”. Dásamleg næturmeðferð fyrir mjúkar varir en hentar einnig vel sem varanæring yfir daginn fyrir þurrar varir og er einnig frábær primer undir varaliti. Varinar fá samstundis fylltara yfirbragð og frísklegri litatón með mildri glansáferð. Lip Mask inniheldur blöndu af hágæða náttúrulegum innihaldsefnum eins og sólkjarna- og hörfræjarolíu með ríkulegu magni af Omega 3 og 6 fitusýrum sem gefa einstaka næringu og verja varnar fyrir þurrk. Maskinn inniheldur einnig plöntuþykkni (Paracress Extract) unnið úr jurt sem heitir Spilanthes Acmella sem er vel þekkt fyrir einstaka eiginlega á húðina gegn svipbrigðalínum (hrukkum) og er gjarnan kölluð “Botox” Jurtin þar sem hún slakar á spennu og herping í húðinni og hefur einstaklega sléttandi áhrif. Fyrir hámarksárángur yfir nóttina er mikilvægt að bera maskann vel útfyrir varinar, og alveg yfir efri vörina ef það er mikill þurrkur eða línur byrjaðar að myndast í húðinni. Þannig nær maskinn hámarksvirkni og varinar fá aukna fyllingu þar sem allur herpingur hefur slaknað og djúpnærandi innihaldsefnin fylla uppí varinar sem verða silkimjúkar. -
Eftir því sem húðin eldist verður hún þynnri, missir fyllingu og húðvefir slakna. Til þess að viðhalda náttúrulegri starfsemi og spyrna aðeins við þessu ferli er mikilvægt að velja vörur með djúpvirkandi næringu og nauðsynlegum fitusýrum sem viðhalda og auka náttúrulega fyllingu húðarinnar. Samspil virkra efna í Rich Recovery Cream gera akkurat það, ríkulega hlaðið af Omega fitusýrum, A- Vitamíni, Kombucha, Isoflavoníða og Hyaluronic Sýru sem örva náttúrulega endurnýjun húðarinnar og byggja upp sterkari húðvefi með auknum þéttleika og lyftingu. Kremið er ríkt af nærandi Shea Butter, Squalene og Makadamíu Olíu sem fylla húðina af djúpvirkandi næringu og veita einstaka fyllingu og auka mýkt húðarinnar. Vegna sérstakar blöndunar á Rich Recovery Cream “water-in-oil þeyta” myndast varnarfilma í efstu húðlögunum sem veita vörn gegn ytra áreiti og hentar því fullkomnlega sem kuldakrem yfir vetratímann. Rich Recovery Cream er hefur sömu virkni og Perfect Lift Cream í Mature Skin nema er næringarríkara og því frábær kostur fyrir fituþurra húð eða sem næturkrem á móti Perfect Lift Cream. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha), Vitamin A – Palmitate, Shea Butter, Squalene, Makadamía Olía -
Pro-Youth 7 daga ampúlukúr frá Janssen Cosmetics er háþróaður 7 daga meðferðarpakki með sérvöldum ampúlum sem auka endurnýjun húðar, styrkja húðvefi og gefa húðinni frísklegan ljóma allt frá fyrsta degi. Hver dagur meðferðarinnar inniheldur sértæka ampúlu með virkum innihaldsefnum sem vinna frá neðstu húðlögum að því að bæta áferð húðarinnar, auka rakafyllingu og draga úr þreytu og öldrunarmerkjum. -
Öflugt C-vítamínkrem fyrir bjartari húð og ferskan ljóma. Vitaforce C Cream sameinar ríkulega rakagjöf, andoxunarvörn og kraft C-vítamíns til að jafna húðlit og draga úr sýnilegum öldrunareinkennum. Þrjú af vinsælustu kremunum frá Janssen Cosmetics koma í fallegri jólaútgáfu og á sérstöku tilboði núna fyrir jólin. Hvert um sig býður upp á einstaka húðumhirðu í 20 ml ferðastærð. -
Sensational Glow Cream 24 stunda rakakrem fyrir sléttari húð og ferskan, náttúrulegan ljóma. Ferskleiki sem sést strax. Sensational Glow Cream gefur daufri húð ljómandi yfirbragð með Soft Focus Pigments sem endurkasta ljósi og gera fínar línur og ójöfnur minna áberandi. Létt áferðin smýgur fljótt inn í húðina og skapar sléttan grunn undir farða. Þrjú af vinsælustu kremunum frá Janssen Cosmetics koma í fallegri jólaútgáfu og á sérstöku tilboði núna fyrir jólin. Hvert um sig býður upp á einstaka húðumhirðu í 20 ml ferðastærð. -
Caviar Luxury Cream er nærandi lúxuskrem með kavíarþykkni sem endurvekur þurra og þreytta húð. Það gefur húðinni fyllingu, dregur úr sýnilegum línum og hrukkum og skilur hana eftir silkimjúka og ljómandi. Ríkuleg áferðin bráðnar inn í húðina og veitir strax þægilega mýkt.Þrjú af vinsælustu kremunum frá Janssen Cosmetics koma í fallegri jólaútgáfu og á sérstöku tilboði núna fyrir jólin. Hvert um sig býður upp á einstaka húðumhirðu í 20 ml ferðastærð.
-
Out of stock
Tvær vörur úr MEN línu Janssen Cosmetics sem sameina milda hreinsun, þægilega notkun og fágaðan herrailm. Men’s Daily Duo inniheldur Active Shower Gel fyrir hár og líkama og Long Lasting Deodorant sem veitir langvarandi vörn gegn svitalykt. Falleg jólagjöf sem nýtist á hverjum degi, í glæsilegum gjafapoka frá Janssen Cosmetics. -
Lúxus kavíarmeðferð fyrir sléttari húð og unglegan ljóma Ríkuleg næring, silkimjúk áferð og sýnilega sléttari húð. Caviar Luxury Duo sameinar nýja 2-Phase Oil Serum Energizing og Caviar Luxury Cream í endurnærandi tvennu sem veitir húðinni langvarandi raka, dregur úr ásýnd lína og gefur henni ferskara og fyllra yfirbragð. -
Epigenetic Glow Duo – tímalaus fegurð og geislandi ljómi Háþróuð virkni gegn öldrunareinkennum og samstundis meiri húðljómi. Epigenetic Serum og Sensational Glow Cream sameina krafta sína í öflugu tvíeyki sem hjálpar húðinni að viðhalda unglegu yfirbragði með háþróaðri epigenetic tækni. Viðgerðarferli og varnarviðbragð húðfrumna er glætt nýrri orku sem styrkir mótstöðuafl og eykur lífsþrótt sem skilar af sér lengri líftíma húðfrumna. Við það fær húðin aukna seiglu sem hægir á náttúrulegu öldrunarferli og hrörnun líkt og tíminn standi í stað! Epigenetic Serum vinnur gegn áhrifum ytra álags á húðina og styður við mótstöðu hennar, á meðan Sensational Glow Cream eykur rakafyllingu og gefur yfirborðinu sléttari ásýnd. Saman mæta vörurnar þörfum húðar sem farin er að sýna fínar línur, rakaþurrk og minnkandi ljóma — falleg gjöf fyrir húðina og dekur til að njóta á hverjum degi. Settið kemur í fallegum gjafapoka frá Janssen Cosmetics. -
Öflug kvöld-húðrútína fyrir aukna endurnýjun og lyftingu í glæsilegu gjafasetti. Evening Beauty Edition frá JANSSEN COSMETICS sameinar hið vinsæla Retinol Lift Serum og Lift Contour Cream Mask í vönduðu gjafasetti á sérstöku jólatilboði. Öflug tvenna þar sem retínól og peptíð vinna saman að aukinni endurnýjun húðarinnar, sléttari yfirborðsáferð og bættum þéttleika með lyftandi áhrifum og sýnilegum árángri. Sérstaða Evening Beauty Edition gjafasettsins felst ekki síst í Lift Contour Cream Mask, sem er alla jafna eingöngu notaður í fagmeðferðum á snyrtistofum. Í þessari jólaútgáfu fæst maskinn í 30 ml stærð til notkunar heimafyrir, ásamt Retinol Lift seruminu. Lúxusgjöf fyrir húðvöruunnendur og freistandi tækifæri til að njóta sérhæfðrar húðmeðferðar heima! -
Húðin í kringum augun er fíngerð og viðkvæm og þarfnast markvissrar umhirðu. LONGEVITY CARE Eye Cream endurlífgar augnsvæðið, styrkir húðina og veitir henni raka án þess að íþyngja henni. Silkimjúk áferðin fellur létt að húðinni og skilur hana eftir einstaklega mjúka og slétta. Samsetning ashwagandha-rótarþykknis, Majestic Beauty, Clotho og resveratrols vinnur markvisst að því að varðveita unglegt útlit augnsvæðisins. Eye Beautifier, líftæknilega unnið þykkni úr sjávarörverunni E. crustaceum, hjálpar til við að draga úr dökkum baugum, en Majestic Beauty stinnir húðina og dregur úr ásýnd hrukka í kringum augun. Við reglulega notkun verður augnsvæðið sléttara, ferskara og ljómandi og þreytumerki verða minna áberandi. Helstu eiginleikar- Dregur úr ásýnd hrukka í kringum augun
- Hjálpar til við að draga úr dökkum baugum
- Dregur úr þrota og þreytumerkjum
- Veitir mikinn og langvarandi raka
- Styrkir viðkvæma húð augnsvæðisins
- Gefur sléttara og bjartara yfirbragð
-
LONGEVITY CARE Serum leggur grunninn að allri Longevity Care húðumhirðunni. Háþróuð samsetning þess vinnur markvisst að þeim líffræðilegu ferlum sem hafa áhrif á öldrun húðarinnar og hjálpar henni að endurheimta lífskraft, styrk og ferskara yfirbragð. Clotho, ashwagandha-rótarþykkni og Evergreen styðja við náttúrulega endurnýjun húðarinnar, styrkja varnarhjúp hennar og auka mótstöðukraft gegn daglegu álagi og umhverfisáhrifum. Rakagefandi efni sem líkjast náttúrulegum rakabindandi efnum húðarinnar veita mikinn og langvarandi raka, slétta áferð hennar og draga úr ásýnd fínna lína. Létt serumið smýgur hratt inn í húðina og undirbýr hana fyrir umhirðuna sem á eftir fylgir. Húðin virðist strax fyllri, ferskari og ljómandi en með reglulegri notkun styrkist varnarhjúpur hennar og stinnleiki, lífskraftur og viðnámsþróttur aukast. Helstu eiginleikar- Styður við langlífi og endurnýjun húðfrumna
- Styrkir varnarhjúp húðarinnar
- Dregur úr áhrifum daglegs umhverfisálags
- Veitir mikinn og langvarandi raka
- Sléttir áferð og dregur úr ásýnd fínna lína
- Eykur lífskraft og ljóma
-
LONGEVITY CARE Cream er hágæða dag- og næturkrem sem hjálpar húðinni að viðhalda styrk sínum, mýkt og náttúrulegum ljóma með tímanum. Silkimjúk áferðin fellur vel að húðinni og veitir henni ríkulega, endurnýjandi og verndandi umhirðu án þess að virka þung. Í hjarta formúlunnar eru Clotho, ashwagandha-rótarþykkni og resveratrol sem styðja við endurnýjun húðarinnar, styrkja varnarhjúp hennar og vernda gegn daglegu umhverfisálagi. Natural Contour Lifting úr stráblómi og Majestic Beauty, frumuræktarþykkni úr edelweiss, styðja við þéttari húð og betur mótaðar andlitslínur. Samsetning hýalúrónsýru í mismunandi sameindastærðum og rakagefandi sykrusambanda veitir húðinni mikinn og langvarandi raka. Húðin verður mýkri, sléttari og fyllri, með ferskara og ljómandi yfirbragði dag frá degi. Helstu eiginleikar- Styður við langlífi og endurnýjun húðfrumna
- Styrkir varnarhjúp og mótstöðukraft húðarinnar
- Veitir mikinn og langvarandi raka
- Styður við aukinn þéttleika og betur mótaðar andlitslínur
- Mýkir og sléttir yfirborð húðarinnar
- Eykur náttúrulegan ljóma
-
Rakagefandi andlitssprey með Skin Wall Care Complex, aloe vera og guarana sem eykur rakastig húðarinnar samstundis og veitir henni dásamlega frískandi tilfinningu með styrkjandi eiginleikum fyrir varnarhjúp húðarinnar. Fíngerður úðinn umlykur húðina með léttu verndarlagi sem gerir hana fallega ferska, vel nærða og náttúrulega ljómandi. Þökk sé upplífgandi ilmi af eucalyptus, myntu og grænum telaufum veitir Refreshing Face Mist þér aukinn ferskleika hvenær og hvar sem er – tilvalið þegar þú ert á ferðinni. REFRESHING FACE MIST má nota bæði undir og yfir farða. – Þegar það er notað undir farða gefur það raka, verndar og sefar húðina. – Þegar það er notað yfir farða hjálpar það til við að festa förðunina og gefur fallega, ferska og ljómandi áferð. -
Pro Glow Selection – 7 daga ampúlukúr Ljómagefandi ampúlukúr sem veitir húðinni samstundis ferskara, jafnara og geislandi yfirbragð. Pro Glow Selection er sérvalin ampúlupakki sem sameinar þrjár öflugar ampúlur í 7 daga kúr fyrir húð sem vantar aukinn ljóma, rakafyllingu og frísklegra yfirbragð. Kúrinn er hannaður til að auka ljóma og útgeislun húðarinnar með sýnilegum árangri, draga úr þreytumerkjum og gefa húðinni sléttara, stinnara og unglegra útlit. Í pakkanum eru 2 x Brilliance Shine Elixir, 2 x Marine Collagen Fluid og 3 x Radiant Skin Fluid. -
Sale!
Hreinn lúxús með dýrmætu kollageni í glæsilegri gjafaöskju fyrir jólin!
Öflug innihaldsefni í hámarksgæðum! Árangursríkt húðumhirðu tvíeyki með Marine Collagen Fluid og lúxus Marine Collagen Cream sem byggir á sjávarkollageni, hýalúrónsýru og granatepla extract.
Með reglulegri noktun getur húðin þrefaldað náttúrulegar kollagen birgðir sínar, sem eykur styrkleika, hald og lyftingu í húð sem er byrjuð að missa teygjanleika, varðveitir rakafyllingu og gefur húðinni ferskara og líflegra yfirbragð.Húðin fær aukna rakafyllingu og sléttara yfirbragð, aukinn þéttleika og dásamlegan ljóma!
Inniheldur 1x Marine Collagen Cream 50ml & 7stk ACTIVATE Marine Collagen Fluid Ampúlur Hentar þurrum/rakaþurrum húðgerðum sem vantar aukinn þéttleika og fyllingu með lyftandi áhrifum og líflegum húðljóma. Fullkomið krem yfir veturinn! -
Dark Spot Perfector er kröftugt serum sem er bæði fyrirbyggjandi og lýsandi meðferð fyrir litabletti og aðrar litabreytingar á húðinni og hentar öllum húðgerðum. Inniheldur sérþróaða Age Spot Corrector formúlu með blöndu af soyja og jurtaþykkni (Garden Cress/Lepidium sativum) sem draga úr nýmyndun melaníns og lýsa upp dökka bletti á húðinni án þess þó að lýsa upp húðina í kring! -
Intensíf 40 daga C vítamín meðferð, gegn litabreytingum og öðrum ójöfnum. Virkt efni í 2-fasa ampúlum með vítamín C fosfati (duftfasi) ásamt lipoamínósýru, SORR og útdrætti úr mulberry rót (vökva fasi). Inniheldur 4x 10ml ampúlur og 1x pípettu lok Vítamín C fosfat í mjög háum styrk hemur melanin vöxt og verndar húðina einnig gegn oxunarálagi. Það stuðlar einnig að náttúrulegum viðgerðarferlum húðarinnar og örvar kollagenmyndun og bætir húðstrúktúr. 2-Phase Melafadin Concentrate býður uppá einstaka virkni með tveggja fasa ampúlum til heimameðferðar með hreinu C vítamíni. Vítamín C duftið (fasi 1) er blandað og leyst upp af innihaldsríkum activator (fasa 2). Báðir fasanir sameinast í blöndu með hámarks virkni af styrkjandi eiginleikum og óviðjafnanlegum húðljóma. Kúrinn er ætlaður sem meðferð fyrir alhliða betrumbætta áferð húðarinnar, styrkleika, jafnari húðlit og geislandi fallegan húðljóma. Kúrinn inniheldur 4 x 10 ml flöskur sem eru nauðsynlegar fyrir u.þ.b. 40 daga meðferðarferli. Ampúlunar koma með praktísku pípettu loki sem mælir hvern skammt fyrir sig fyrir daglega notkun og endingu. -
Í tilfelli blandaðrar húðar getur aukin fituframleiðsla valdið óæskilegum glans á húðinni, sérstaklega á miðsvæði andlitsins, á meðan vangar og augnsvæðið eru þurrari. Sértækar hreinsivörur eru nauðsynlegar af þessari ástæðu, til þess að mæta ólíkum þörfum húðarinnar fyrir áhrifaríka hreinsun og aukið jafnvægi fyrir blandaðar húðgerðir. Gentle Cleansing Powder hefur verið þróað sérstaklega til þess að mæta þessum þörfum! -
Vitalizing Skin Refiner er einstaklega rakagefandi húðmeðferð sem færir húðinni nýjan þrótt og ljóma með lífrænum trönuberjapeptíðum og þykkni úr camu camu-berjum. Kremið hefur létta og silkimjúka áferð sem frásogast hratt niður húðlögin og gefur húðinni líflega útgeislun og ferskara útlit dag eftir dag. Vitalizing Skin Refiner er einstaklega rakagefandi húðmeðferð sem færir húðinni nýjan þrótt og ljóma með lífrænum trönuberjapeptíðum og þykkni úr camu camu-berjum. Kremið hefur létta og silkimjúka áferð sem frásogast hratt niður húðlögin og gefur húðinni líflega útgeislun og ferskara útlit dag eftir dag. Vitalizing Skin Refiner er frábært alhliða 24stunda krem, parast einnig fullkomnlega sem dagkrem á móti Pro Lift Cream sem næturkrem ef þörf er á dýpri næringu fyrir nóttina. -
Smooth + Lift Eye Cream er einstök formúla með hágæða virkum innihaldsefnum eins og lífrænum trönuberjapeptíðum, Soft Focus Pigments og amínósýru complex fyrir hámarks ummönnun og virkni fyrir augnsvæðið. AUGNKREM MEÐ ÁHRIFARÍKUM OG LANGVARANDI EIGINLEIKUM Smooth + Lift Eye Cream er einstök formúla með hágæða virkum innihaldsefnum eins og lífrænum trönuberjapeptíðum, Soft Focus Pigments og amínósýru complex fyrir hámarks ummönnun og virkni fyrir augnsvæðið. Dagleg umhirða augnsvæðisins kvölds og morgna er nauðsynlegur hluti af fyrirbyggjandi meðferð til að hægja á öldrunarferli húðarinnar, viðhalda styrk og jafnframt draga úr línum og fyrstu öldrunarmerkjum með djúpnærandi eiginleikum sem slétta húðina umhverfis augun og vinna gegn sinduráhrifum. Silkimjúk áferð Smooth + Lift Eye Cream frásogast hratt niður húðlögin og tryggir aukinn styrkleika og sléttara yfirbragð húðarinnar með djúpvirkandi rakagjöf og auknum frískleika. Trönuber hafa öfluga virkni á húðina og stuðla að auknum þéttleika og kollagenframleiðslu sem viðheldur fyllingu húðarinnar með langvarandi eiginleikum. Tvíþætt hýalúrónsýra færir húðinni djúpvirkandii raka og gerir hana sýnilega sléttari. Að auki er þessi fjölvirka fyrirbyggjandi formúla auðguð með nauðsynlegum fitusýrum og amínósýrum sem styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar og vinna gegn öldrunarmerkjum húðarinnar. Soft Focus Pigments gefa húðinni samstundis jafnari áferð og fylla uppí fíngerðar línur og hrukkur sem gefur augnsvæðinu silkimjúka slétta og matta áferð. -
Pro-Lift Cream er öflugt djúpnærandi og endurnýjandi krem sem inniheldur þykkni úr „ofurávöxtum“ eins og trönuberjum og rambútanlaufum sem stuðla að endurnýjun húðarinnar og draga úr fyrstu línum og hrukkum. Kremið þéttir og bætir teygjanleika húðarinnar með lyftandi áhrifum sem gerir hana unglegri og frísklegri. Streita, svefnleysi og skaðleg umhverfisáhrif setja mark sitt á andlitið, en þetta er hægt að minnka sýnilega með reglulegri umönnun. Þetta ríkulega og silkimjúka krem smýgur auðveldlega inn í húðina og færir henni mýkra og jafnara yfirlag með auknum þéttleika og lyftingu. Frábært alhliða 24.stunda krem, parast einnig fullkomnlega við Vitalizing Skin Refiner sem léttari kost á móti hvort sem er fyrir dag eða næturumhirðu. -
Fullkomið duo fyrir ljómandi húð! Nú á frábæru tilboði saman með glæsilegum kaupauka, vönduð og rúmgóð Janssen Cosmetics taska með rennilás fylgir með ásamt demants vasaspegli. Spegillinn er tvískiptur með stækkun á annari hliðinni. Magic Glow Serum og Sensational Glow Cream gefa húđinni dásamlega rakafyllingu og highlight glampa án þess ađ húđin glansi eđa virki olíukennd, hlaðið næringaríkum efnum eins og þara extrakti úr Indverska hafinu sem hefur sannað virkni á aukna húðendurnýjun og aukinn ljóma húðarinnar. -
SERUM SEM LÝSIR OG JAFNAR LITARHÁTT HÚÐARINNAR Litabreytingar á húð, blettir, Acne ör eða aðrar ójöfnur eftir bólur sem og rósroði geta verið hvimleitt vandamál. Tranexamic Acid Serum dregur með sýnilegum hætti úr ýmsum litabreytingum á húð, þar á meðal dökkum blettum vegna skemmda af völdum sólarinnar, með áhrifaríkri en mildri efnasamsetningu. Tranexamsýra (tranexamic acid) er virkt innihaldsefni unnið úr amínósýrunni lýsíni, sem er um allan heim álitið það efni sem hefur mest lýsandi áhrif á húðina. Hún kemur í veg fyrir víxlverkun milli sortufrumna og hyrnisfrumna og hamlar þannig myndun melaníns og þar með nýmyndun dökkra bletta. Auk þess að vinna á þeim litabreytingum sem hafa nú þegar myndast. -
LEAVE-ON DJÚPHREINSANDI SERUM FYRIR JAFNARI ÁFERÐ HÚÐARINNAR Ójöfnur, fílapenslamyndun og uppsöfnuð óhreinindi geta komið fram í húðinni hjá ólíkum húðgerðum jafnvel hjá fólki sem er ekki með olíukennda eða blandaða húð þar sem húðinni vantar aukna endurnýjun og hreinsun. Stíflaðar húðholur, bólur og fílapenslar eru eitthvað sem flestir væru til í að losna sem fyrst við með einföldum hætti og er Azelaic sýran frábær valkostur þar sem húðin fær örugga djúphreinsun og endurnýjun án þess að hafa of ertandi áhrif. Azelaic Acid Serum inniheldur aselsýru (azelaic acid) og aselsýruafleiðu (azelaic acid derivative) sem auka birtu húðarinnar og stuðla að jafnari húðlit með djúphreinsandi eiginleikum sem sléttir og gefur jafnari yfirborðsáferð. -
Fallegt gjafasett úr Platinum vörulínu Janssen Cosmetics á einstöku gjafatilboði! Inniheldur hágæða Platinum Eye Care 15ml og 7stk Brilliance Shine Elixir ampúlur. Inniheldur sérþróaða Platinum MP Complex formúlu með peptíðblöndu sem fyllir uppí línur með einstakri virkni og hindrar niðurbrot kollagenþráða, verndar og hægir á öldrunarferli húðarinnar. Einstök virkni þar sem árángurinn er sléttari áferð í kringum augun og bjartara yfirbragð með auknum þéttleika. -
Fallegt gjafasett úr Platinum vörulínu Janssen Cosmetics á einstöku gjafatilboði! Inniheldur hágæða Platinum Eye Care 15ml og 7stk Brilliance Shine Elixir ampúlur. Inniheldur sérþróaða Platinum MP Complex formúlu með peptíðblöndu sem fyllir uppí línur með einstakri virkni og hindrar niðurbrot kollagenþráða, verndar og hægir á öldrunarferli húðarinnar. Einstök virkni þar sem árángurinn er sléttari áferð í kringum augun og bjartara yfirbragð með auknum þéttleika. -
*Nýr litur Almond nr.3 er dekksti liturinn af litatónum Paraben frír farði, SPF 15 með langvarandi endingu frá Janssen Cosmetics Kremkenndur og silkimjúkur farði sem samlagast húðinni fullkomnlega, hentar öllum húðgerðum. Létt flauelskennd formúla fyllir uppí stórar húðholur og misfellur í húðinni, samlagast hverjum húðtón og jafnar litarhátt húðarinnar með einstakri formúlu sem endist allan daginn. Farðinn veitir húðinni að auki vörn gegn skaðlegum geislum og ótímabærri öldrun með UVA og UVB filterum, Hyaluron Sýru og Pseudoalteromonas ferment extract sem eykur rakafyllingu, minnkar fínar línur og hrukkur. Farðinn inniheldur einnig sérstök amino-húðuð litapigment sem tengjast og samlagast efstu húðlögum, fylla þannig uppí misfellur og gefa húðinni flekklausa áferð, við þessa tengingu myndast einnig varnarfilma sem viðheldur endingu og ljóma í marga klukkutíma. -
Intense Calming Lotion er létt kremformúla fyrir viðkvæma húð, frábært fyrir yngri húðgerðir eða þá sem vilja léttari krem. Djúpvirkandi 24stunda formúla sem bæði verndar húðina á daginn og stuðlar að bættri endurnýjun á nóttunni. Fyrir enn betri virkni og árangur Intense Calming Lotion notið samhliða Intense Calming Serum. -
CBD Calming Fluid ampúlan er áhrifarík meðferð gegn hverskonar húðertingu, roða eða viðkvæmni. Ampúlan samanstendur af CBD-olíu og trufflusveppum sem saman með einstakri virkni róa ertingu og roða í húð ásamt því að styrkja náttúrulegt varnarlag og auka viðnám húðarinnar. Ampúlan inniheldur einnig tvíþætta hýalúrónsýru og aloe vera sem veita húðinni djúpvirkandi raka og næringu. CBD (kannabídíól) er vinsælt virkt innihaldsefni sem er unnið úr hampjurtinni og býr yfir einstökum eiginleikum og heilandi áhrifum á húðina. Kannabídíól (sem hefur ekki hugbreytandi áhrif) er þekkt fyrir að hafa sefandi áhrif á hitatilfinningu, roða eða hverskonar húðertingu og er frábær til meðhöndlunar á viðkvæmri húð. Til viðbótar við CBD olíuna inniheldur ampúlan sveppa-extract sem hefur bein áhrif á taugaenda húðarinnar með því að hamla virkni ákveðinna sársaukanema á yfirborði húðarinnar og dregur þannig með virkum hætti úr viðkvæmni húðarinnar. Saman með rakagefandi Hýalúrónsýru og Aloe Vera gefur CBD Calming Fluid ampúlan húðinni samstundis létti og fullkomna slökunartilfinningu. -
Bi-Phase Skin Recovery ampúlan er djúpnærandi 2-fasa ampúla sem tryggir húðinni einstaka næringu og rakagjöf með tvíþættri virkni olíufasa og rakafasa. Olíufasi ampúlunnar er úr vönduðum blóma- og plöntuolíum og rakafasi ampúlunnar samanstendur af hýalúrónsýru og endurnýjandi runnasmárakjarna fyrir geislandi yfirbragð og endurnærða húð eftir hverja noktun. -
Radiant Skin Fluid – Fyrir einstakann húðljóma og geislandi yfirbragð. Ampúlan inniheldur þörunga extract úr Indlandshafi sem gefur húðinni aukinn húðljóma á sjálfbæran hátt þ.e.a.s þörunganir láta húðina sjálfa framkalla aukinn húðljóma með því að hámarka frumuskiptingu í yfirborðslögum húðarinnar og stuðla þannig að jafnari uppbyggingu hennar sem eru fullkomin skilyrði fyrir geislandi og frísklegan húðljóma. Radiant Skin Fluid inniheldur að auki kjarna úr bóndarós sem tryggir að yfirbragð húðarinnar fær aukna birtu og jafnara litarhaft með hverjum deginum sem líður ásamt tvíþættri hýalúrónsýru sem gefur húðinni djúpnærandi raka frá neðstu húðlögum sem fyllir uppí fínar línur/ójöfnur með sléttandi áhrifum á yfirborði húðarinnar. Árángur: Húðin öðlast geislandi og náttúrulegan húðljómaljóma. *Með reglulegri noktun verður litarhaft húðarinnar enn jafnara með mælanlegum árángri. -
Marine Collagen Fluid fyrir þéttari og frísklegri húð. Inniheldur hátt hlutfall af hreinu sjávarkollageni, löngum- og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru ásamt granateplaþykkni. ACTIVATE Marine Collagen ampúlunar gefa húðinni samstundis aukinn þéttleika með langvarandi eiginleikum þar sem kollagenþræðir húðarinnar taka vel á móti aðstoð og utanaðkomandi styrk frá sjávarkollageni ampúlunnar. Hyaluronic sýran sér um að gefa húðinni aukinn raka og passar uppá að virk efni nái á áfángastað niður neðstu húðlögin. Að auki fær húðin frísklegra yfirbragð og litarhaft húðarinnar verður líflegra með öflugri andoxun frá hreinni ofurfæðu fyrir húðina úr grantateplunum. -
Dark Circle Eye Cream er sérstaklega þróað til að vinna gegn og birta upp dökka bauga í kringum augnsvæðið með sýnilegum og langavarandi áhrifum.Húðin í kringum augnsvæðið og sér í lagi undir augunum er þunn og viðkvæm og sýnir gjarnan örfínar blóðæðar í gegn sem eru gjarnan kallaðar undir daglegu tali baugar.Hversu miklir baugar þá gjarnan eftir hversu dökkir þeir virðast fer allt eftir blóðmagni í þessum örfínu blóðæðum. Svefnleysi, stress, mataræði geta haft neikvæð áhrif á blóðflæðið sem og getur einnig verið genatískt. Blóðæðar með litlu/hægu blóðflæði bera súrefnisminna blóð og verða dekkri fyrir vikið sem orsakar þennann dökka lit undir augunum sem við köllum dökka bauga.Dark Circle Eye Cream inniheldur birtu pigment sem lýsir upp og dregur samstundis úr dökkum lit undir augunum með langvarandi áhrifum um leið og kremið er borið á. Ef kremið er notað reglulega hlaðast upp þessi áhrif með hjálp frá öflugum innihaldsefnum “4-1 complex” sem samanstendur af tri-peptíðum, smáþörungum, panthenol og hyaluronic sýru sem saman örva flæði blóðæðanna, auka kollagenmyndun og lyftingu með djúpri næringu sem rakafyllir og sléttir viðkvæma húðina í kringum augun.*Eftir aðeins 7 daga eru fínar línur/hrukkur sjáanlega minni og sléttari.*Eftir aðeins 14 daga hefur dregið verulega með mælanlegum áhrifum úr dökkum baugum undir augunum. -
Næturkrem með tvöfalt öflugri virkni og langavarandi virkni gegn litabreytingum. Kröftug blanda af lipoamio sýru, diacetyl boldine og SORR plöntuþykkni vinna að því að sundra tengslum á milli melaninfrumna sem mynda litaflekki á yfirborði húðarinnar ásamt því að hindra nýmyndun þeirra. Kremið inniheldur einnig rauðan þara sem er einstaklega andoxandi og næringaríkur hann hefur þau áhrif á húðina að hún fær frísklegra yfirbragð og verður líflegri. Fullkomið krem gegn litabreytingum og fyrir þroskaða húð til þess að fyrirbyggja ellibletti-og sólarskemmdir sem koma með öldrun húðarinnar. Einnig hentar það mjög vel húð sem er þreytt og föl og þarfnast orku. Kremið innheldur einnig fíngert púður sem gefur húðinni matta og flauelskennda áferð. -
Skaðlegir geislar sólarinnar, hormónaójafnvægi, aldur og lífsstíll geta haft áhrif á litabreytingar í húðinni með myndun dökkra bletta af mismunandi stærðum og gerðum. Þessar litabreytingar geta verið að myndast hægt og rólega með aldrinum eða komið skyndilega t.d. á meðgöngu, vegna p-pillunar eða eftir sólbruna. Melafadin Day Protection inniheldur sérstaka formúlu unna úr plöntum sem vinnur að því að sundra litafrumunum í sundur þannig óæskilegir blettir virðast minni og hindra nýja í að myndast á yfirborði húðarinnar. Litarháttur húðarinnar verður jafnari, bjartari og unglegri. Kremið er sérlega andoxandi og veitir djúpa næringu með bl-ndu af rauðum þara og náttúrulegym sykrum sem bindast keratínlagi húðarinnar og halda raka. Fullkomin vörn allann daginn með Spf 20. -
Korna-djúphreinsir með tvöfalda virkni, inniheldur einnig citric og glycolic sýru fyrir enn betri húðflögnun og bjartara útlit.Smyrjið meðalþunnu lagi yfir andlit, háls og bringusvæði leyfið kreminu að liggja og vinna á húðinni í 3 til 5 min.Nuddið yfir með hringlaga hreyfingum og látið kornin vinna á húðinni í 2-3min þannig næst hámarks húðflögnun.Sýrunar losa um tengsl dauðra húðfruma á yfirborði húðarinnar þannig ná kornin að hreinsa enn betur dauðar húðfrumur og örva náttúrulega starfsemi húðarinnar.Stuðlar að jafnari húðlit og bjartara yfirbragði með auknum húðljóma. -
3x2stk. í pakkaKælandi augnmaski tilbúin til noktunar, dregur samstundis úr þrota og bólgum og örvar sogæðahreinsun með mild örvandi áhrifum frá koffíni, með því minnkar blámi undir augunum og húðin verður bjartari.Maskinn hefur einstaklega sléttandi áhrif með virku Paracress extract sem hefur Botox lík áhrif á húðina en það slakar á herping í litlum vöðvum undir augunum og sléttir þannig úr húðinni með sýnilegum áhrifum sem fletur út fínar línur og minnkar umfang á djúpum línum/hrukkum, saman með löngum og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru sem fylla húðlögin af langavarandi raka og fyllingu. Maskanir eru úr 100% viscose fleece, biogradable efni með oeko-tex standard 100 sem brotnar niður án þess að valda skaða í náttúrunni. -
Out of stock
ACTIVATING sturtugel fyrir karlmenn 2 in 1 fyrir hár og líkama. Active Shower Gel frá JANSSEN COSMETICS er fullkomin byrjun á deginum. Endurlífgandi og frískandi formúlan tryggir milda en áhrifaríka hreinsun á húð og hári og skilur eftir frábæra ferskleikatilfinningu. Active Shower Gel hreinsar yfirborð húðarinnar á áhrifaríkan hátt án þess að virka þurrkandi þökk sé mildum yfirborðsvirkum efnum úr kókos og sykrum sem koma í veg fyrir að húðin þorni. Gagnsæ geláferðin dreifist auðveldlega og myndar mjúka froðu þegar það er blandað saman við vatn og eykur þannig endingu þar sem ekki þarf að nota mikið af gelinu fyrir ríkulegt magn af froðu. Gelið er með mildum en herralegum blæ sem lífgar upp á skynfærin og skilur eftir sig mjúka angan af krydduðum sandalviði, sítrus og jasmine.