-
Fallegt gjafasett úr Platinum vörulínu Janssen Cosmetics á einstöku gjafatilboði! Inniheldur hágæða Platinum Eye Care 15ml og 7stk Brilliance Shine Elixir ampúlur. Inniheldur sérþróaða Platinum MP Complex formúlu með peptíðblöndu sem fyllir uppí línur með einstakri virkni og hindrar niðurbrot kollagenþráða, verndar og hægir á öldrunarferli húðarinnar. Einstök virkni þar sem árángurinn er sléttari áferð í kringum augun og bjartara yfirbragð með auknum þéttleika. -
LONGEVITY CARE Cream er hágæða dag- og næturkrem sem hjálpar húðinni að viðhalda styrk sínum, mýkt og náttúrulegum ljóma með tímanum. Silkimjúk áferðin fellur vel að húðinni og veitir henni ríkulega, endurnýjandi og verndandi umhirðu án þess að virka þung. Í hjarta formúlunnar eru Clotho, ashwagandha-rótarþykkni og resveratrol sem styðja við endurnýjun húðarinnar, styrkja varnarhjúp hennar og vernda gegn daglegu umhverfisálagi. Natural Contour Lifting úr stráblómi og Majestic Beauty, frumuræktarþykkni úr edelweiss, styðja við þéttari húð og betur mótaðar andlitslínur. Samsetning hýalúrónsýru í mismunandi sameindastærðum og rakagefandi sykrusambanda veitir húðinni mikinn og langvarandi raka. Húðin verður mýkri, sléttari og fyllri, með ferskara og ljómandi yfirbragði dag frá degi. Helstu eiginleikar- Styður við langlífi og endurnýjun húðfrumna
- Styrkir varnarhjúp og mótstöðukraft húðarinnar
- Veitir mikinn og langvarandi raka
- Styður við aukinn þéttleika og betur mótaðar andlitslínur
- Mýkir og sléttir yfirborð húðarinnar
- Eykur náttúrulegan ljóma
-
Fallegt gjafasett úr Platinum vörulínu Janssen Cosmetics á einstöku gjafatilboði! Inniheldur hágæða Platinum Eye Care 15ml og 7stk Brilliance Shine Elixir ampúlur. Inniheldur sérþróaða Platinum MP Complex formúlu með peptíðblöndu sem fyllir uppí línur með einstakri virkni og hindrar niðurbrot kollagenþráða, verndar og hægir á öldrunarferli húðarinnar. Einstök virkni þar sem árángurinn er sléttari áferð í kringum augun og bjartara yfirbragð með auknum þéttleika. -
LONGEVITY CARE Serum leggur grunninn að allri Longevity Care húðumhirðunni. Háþróuð samsetning þess vinnur markvisst að þeim líffræðilegu ferlum sem hafa áhrif á öldrun húðarinnar og hjálpar henni að endurheimta lífskraft, styrk og ferskara yfirbragð. Clotho, ashwagandha-rótarþykkni og Evergreen styðja við náttúrulega endurnýjun húðarinnar, styrkja varnarhjúp hennar og auka mótstöðukraft gegn daglegu álagi og umhverfisáhrifum. Rakagefandi efni sem líkjast náttúrulegum rakabindandi efnum húðarinnar veita mikinn og langvarandi raka, slétta áferð hennar og draga úr ásýnd fínna lína. Létt serumið smýgur hratt inn í húðina og undirbýr hana fyrir umhirðuna sem á eftir fylgir. Húðin virðist strax fyllri, ferskari og ljómandi en með reglulegri notkun styrkist varnarhjúpur hennar og stinnleiki, lífskraftur og viðnámsþróttur aukast. Helstu eiginleikar- Styður við langlífi og endurnýjun húðfrumna
- Styrkir varnarhjúp húðarinnar
- Dregur úr áhrifum daglegs umhverfisálags
- Veitir mikinn og langvarandi raka
- Sléttir áferð og dregur úr ásýnd fínna lína
- Eykur lífskraft og ljóma
-
Húðin í kringum augun er fíngerð og viðkvæm og þarfnast markvissrar umhirðu. LONGEVITY CARE Eye Cream endurlífgar augnsvæðið, styrkir húðina og veitir henni raka án þess að íþyngja henni. Silkimjúk áferðin fellur létt að húðinni og skilur hana eftir einstaklega mjúka og slétta. Samsetning ashwagandha-rótarþykknis, Majestic Beauty, Clotho og resveratrols vinnur markvisst að því að varðveita unglegt útlit augnsvæðisins. Eye Beautifier, líftæknilega unnið þykkni úr sjávarörverunni E. crustaceum, hjálpar til við að draga úr dökkum baugum, en Majestic Beauty stinnir húðina og dregur úr ásýnd hrukka í kringum augun. Við reglulega notkun verður augnsvæðið sléttara, ferskara og ljómandi og þreytumerki verða minna áberandi. Helstu eiginleikar- Dregur úr ásýnd hrukka í kringum augun
- Hjálpar til við að draga úr dökkum baugum
- Dregur úr þrota og þreytumerkjum
- Veitir mikinn og langvarandi raka
- Styrkir viðkvæma húð augnsvæðisins
- Gefur sléttara og bjartara yfirbragð
-
Fullkomið duo fyrir ljómandi húð! Nú á frábæru tilboði saman með glæsilegum kaupauka, vönduð og rúmgóð Janssen Cosmetics taska með rennilás fylgir með ásamt demants vasaspegli. Spegillinn er tvískiptur með stækkun á annari hliðinni. Magic Glow Serum og Sensational Glow Cream gefa húđinni dásamlega rakafyllingu og highlight glampa án þess ađ húđin glansi eđa virki olíukennd, hlaðið næringaríkum efnum eins og þara extrakti úr Indverska hafinu sem hefur sannað virkni á aukna húðendurnýjun og aukinn ljóma húðarinnar. -
Intensíf 40 daga C vítamín meðferð, gegn litabreytingum og öðrum ójöfnum. Virkt efni í 2-fasa ampúlum með vítamín C fosfati (duftfasi) ásamt lipoamínósýru, SORR og útdrætti úr mulberry rót (vökva fasi). Inniheldur 4x 10ml ampúlur og 1x pípettu lok Vítamín C fosfat í mjög háum styrk hemur melanin vöxt og verndar húðina einnig gegn oxunarálagi. Það stuðlar einnig að náttúrulegum viðgerðarferlum húðarinnar og örvar kollagenmyndun og bætir húðstrúktúr. 2-Phase Melafadin Concentrate býður uppá einstaka virkni með tveggja fasa ampúlum til heimameðferðar með hreinu C vítamíni. Vítamín C duftið (fasi 1) er blandað og leyst upp af innihaldsríkum activator (fasa 2). Báðir fasanir sameinast í blöndu með hámarks virkni af styrkjandi eiginleikum og óviðjafnanlegum húðljóma. Kúrinn er ætlaður sem meðferð fyrir alhliða betrumbætta áferð húðarinnar, styrkleika, jafnari húðlit og geislandi fallegan húðljóma. Kúrinn inniheldur 4 x 10 ml flöskur sem eru nauðsynlegar fyrir u.þ.b. 40 daga meðferðarferli. Ampúlunar koma með praktísku pípettu loki sem mælir hvern skammt fyrir sig fyrir daglega notkun og endingu. -
Eftir því sem húðin eldist verður hún þynnri, missir fyllingu og húðvefir slakna. Til þess að viðhalda náttúrulegri starfsemi og spyrna aðeins við þessu ferli er mikilvægt að velja vörur með djúpvirkandi næringu og nauðsynlegum fitusýrum sem viðhalda og auka náttúrulega fyllingu húðarinnar. Samspil virkra efna í Rich Recovery Cream gera akkurat það, ríkulega hlaðið af Omega fitusýrum, A- Vitamíni, Kombucha, Isoflavoníða og Hyaluronic Sýru sem örva náttúrulega endurnýjun húðarinnar og byggja upp sterkari húðvefi með auknum þéttleika og lyftingu. Kremið er ríkt af nærandi Shea Butter, Squalene og Makadamíu Olíu sem fylla húðina af djúpvirkandi næringu og veita einstaka fyllingu og auka mýkt húðarinnar. Vegna sérstakar blöndunar á Rich Recovery Cream “water-in-oil þeyta” myndast varnarfilma í efstu húðlögunum sem veita vörn gegn ytra áreiti og hentar því fullkomnlega sem kuldakrem yfir vetratímann. Rich Recovery Cream er hefur sömu virkni og Perfect Lift Cream í Mature Skin nema er næringarríkara og því frábær kostur fyrir fituþurra húð eða sem næturkrem á móti Perfect Lift Cream. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha), Vitamin A – Palmitate, Shea Butter, Squalene, Makadamía Olía -
Skin Contour Cream er sérhannað til þess að endurbyggja stinnleika húðarinnar og lyfta slökum húðvefjum frá neðstu húðlögum með einstakri formúlu! Kremið er einstaklega næringarríkt og rakamikið og vætir uppí húðlögunum eins og þegar þurr svampur er bleyttur í vatni. Sama og með svampinn þenst húðin út og húðrumunar fá aukinn kraft til endurnýjunar. A – Vítamin, Elastin örvandi peptíð og Japanskt Silki mynda auka styrk og endurnýja stinnleika húðarinnar og gefa henni hreinna og unglegra yfirbragð. Inniheldur að auki E vitamin, Macadamiu Olíu og SORR plöntuþykkni. Inniheldur:- ESP:Elastin-örvandi peptid; örva myndun elastins í bandvef húðarinnar, styrkja þannig uppbyggingu og lyfta upp húðvefjum.
- Plant extract SORR:Einstaklega virkt plöntu-þykkni unnið úr Siegesbeckia orientalis og Rabdosia rubescens; dregur úr roða og ertingu í húð ásamt því að vera einstaklega andoxandi, jafnar þannig húðlit og eykur útgeislun.
- Long- and short-chain hyaluronic acid:Langar og stuttar keðjur Hyaluronic sýrunnar veita einstakann raka og binda jafnframt raka í húðinni og halda henni vel fylltri.
- Genuine Japanese silk: Samlagast húðinni fullkomnlega, ver hana fyrir rakatapi, gefur húðinni einstaka mýkt og silkiáferð
- Macadamia nut oil:Er mýkjandi og nærandi, makadamíu olía inniheldur palmitoleic sýru sem eykur innsíun húðarinnar og greiðir farveg fyrir næringu úr olíunni niður í neðstu lög húðarinnar.
- Isostearyl-isostearate:Skammstafað ISIS; unnið úr raw plöntuefnum bætir samheldni lípiða í hornlagi húðarinnar og hindrar rakatap.
- Vitamin A palmitate:Örvar endurnýjun húðarinnar og bætir áferð.
- Vitamin E acetate:Er eitt það öflugugasta andoxunarefni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar og veitir einstakan varnarhjúp utan um húðfrumunnar.
-
Fullkomin meðferð fyrir húð sem þarfnast aukinnar lyftingar og unglegra yfirbragðs. Samspil virkra efna á borð við A- Vitamíns, Kombucha, Isoflavoníða og Hyaluronic Sýru örva náttúrulega endurnýjun húðarinnar og byggja upp styrkari húðvefi með auknum þéttleika og lyftingu. Með daglegri noktun og aukinni endurnýjun verður húðin fylltari, með frísklegri húðtón og unglegra yfirliti. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha), Vitamin A – Palmitate, Hyaluronic Sýru og Saccharide Isomerates -
Retinol Lift Serum er áhrifaríkt serum með margþætta eiginleika fyrir húðina þar sem hið margrómaða Retinol spilar lykilhlutverk. Retinol er eitt mest rannsakaða efni í heimi snyrtivara og klíniskar rannsóknir sanna það að Retinol er eitt það öflugasta efni sem hægt er að fá í húðsnyrtivörum sem hægir á öldrunarferli húðarinnar með sjánlegum árángri. Með aldrinum þá hægist á frumuendurnýjun húðarinnar og fínar línur, misfellur og litabreytingar fara gera vart um sig á yfirborði húðarinnar og með tímanum slaknar á teygjanleika og húðin verður slappari því kollagen framleiðsla fer minnkandi, þarna kemur Retinol sterkt inn og skerst í leikinn og hraðar endurnýjunarferlinu á nýjan leik og örvar nýmyndun kollagens og viðheldur þannig þéttleika og eykur lyftingu í húðvefum sem eru byrjaðir að slakna. Með aukinni endurnýjun eykst náttúruleg húðflögnun og yfirborð húðarinnar verður sléttara þar sem fínar línur vegna þurrks hverfa og svipbrigðalínur grynnka, litamisfellur verða minna áberandi og húðin fær bjartara yfirbragð og frísklegan ljóma. Retinol stuðlar einnig að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar dregur þannig úr fílapensla myndun og dregur saman stórar húðholur. -
Gefur eins og nafnið gefur til kynna “instant” lyftingu! Kælandi og frískandi húðdropar hlaðnir af hreinu sjávarkollageni sem gefur húðinni fyllingu og frísklegra yfirbragð á aðeins örfáum mínútum. Kollagenið smýgur hratt niður í neðstu húðlög í gelkenndri formúlu sem fyllir á og bindur sig við náttúrulegt kollagen húðarinnar. Kælandi gelið virkar einstaklega frískandi og húðin lifnar við á aðeins örskömmum tíma. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha) og Marine Collagen(Sjávarkollagen) -
Þéttandi og lyftandi 24.stunda krem með sjávarkollageni og kollagen-booster sem vinnur gegn kollagen niðurbroti húðarinnar og eykur þéttleika með lyftandi áhrifum. Húðin fær samstundis aukna rakafyllingu (“plump”) og verður þéttari viðkomu þar sem virk innihaldsefni binda raka í efstu húðlögunum og mynda ósýnilega varnarfilmu sem fyllir uppí fínar línur vegna rakaþurrks með sléttandi áhrifum á yfirborð húðarinnar. Með reglulegri noktun getur húðin þrefaldað náttúrulegar kollagen birgðir sínar, sem eykur styrkleika, hald og lyftingu í húð sem er byrjuð að missa teygjanleika, varðveitir rakafyllingu og gefur húðinni ferskara og líflegra yfirbragð. -
Öflug kvöld-húðrútína fyrir aukna endurnýjun og lyftingu í glæsilegu gjafasetti. Evening Beauty Edition frá JANSSEN COSMETICS sameinar hið vinsæla Retinol Lift Serum og Lift Contour Cream Mask í vönduðu gjafasetti á sérstöku jólatilboði. Öflug tvenna þar sem retínól og peptíð vinna saman að aukinni endurnýjun húðarinnar, sléttari yfirborðsáferð og bættum þéttleika með lyftandi áhrifum og sýnilegum árángri. Sérstaða Evening Beauty Edition gjafasettsins felst ekki síst í Lift Contour Cream Mask, sem er alla jafna eingöngu notaður í fagmeðferðum á snyrtistofum. Í þessari jólaútgáfu fæst maskinn í 30 ml stærð til notkunar heimafyrir, ásamt Retinol Lift seruminu. Lúxusgjöf fyrir húðvöruunnendur og freistandi tækifæri til að njóta sérhæfðrar húðmeðferðar heima! -
25 sérvaldar ampúlur í 24 daga meðferð sem gefur húðinni ríkulegan raka, sléttari áferð og geislandi ljóma fyrir hátíðirnar. JANSSEN COSMETICS aðventudagatalið er dásamleg leið til þess að hleypa smá auka birtu inn í skammdegið og njóta aðventunnar enn frekar þar sem hver dagur verður dekurdagur. Nærandi niðurtalning til jóla með fullkomlega samsettum ampúlukúr sem svíkur engan. Dagatalið er gefið út í takmörkuðu upplagi á hverju ári og býður viðskiptavinum upp á einstakan 24 daga ampúlukúr á frábæru jólatilboði og er nú þegar orðið ómissandi partur af aðventunni fyrir marga. -
Night Recovery Serum er fullkomin viðbót við kvöldrútínuna og sér um að slétta og fylla húðina af raka og næringu allt á meðan þú sefur. Næturnar eru fullkominn meðferðartími fyrir húðina þar sem líkaminn er í hvíld og í vernduðu umhverfi burt frá sólargeislum, mengun og ytra áreiti. Inniheldur m.a Silk acacia plöntuþykkni sem dregur úr þreytumerkjum húðarinnar og eykur ljóma, Plöntustofnfrumur (Alpine Rose) sem styrkja húðvefnina og vernda gegn streituáhrifum og hina dásamlegu Hyaluronsýru sem sér um að fylla á raka og auka “plump” fyllingu húðarinnar. Berist undir krem á kvöldin, serumið má fara alveg upp undir augun og vinnur gegn þreytumerkjum á augnsvæðinu. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha), Hyaluron Sýru, Silk acacia þykkni og Plöntustofnfrumur (Alpine Rose) -
Sannkallað vítaminboost fyrir allar húðgerðir sem vantar aukna orku, þéttingu og ljóma.Caviar er löngu þekkt munaðarvara og inniheldur einstaka samsetningu af steinefnum, vítamínum og aminosýrum.Kremið inniheldur hreint Caviar Extract og er áhrifarík meðferð fyrir þreytta og orkulausa húð þar sem samsetning vítamína, steinefna og aminosýra glæða húðina nýjum og orkumeiri ljóma.Frumustarfsemi húðarinnar eykst og hraðar nýmyndun kollagens sem gefur húðinni aukinn þéttleika með djúpvirkandi næringu sem fyllir húðlögin af raka og nauðsynlegum fitusýrum sem auka fyllingu, slétta yfirborð húðarinnar og gefur henni flauelsmjúka áferð.Fölt yfirbragð og þreytumerki víkja fyrir frísklegum ljóma og bjartara yfirbragði. -
Þegar húðin byrjar að eldast hægist á náttúrulegri starfsemi og endurnýjun húðarinnar, húðin verður slakari og þráir örvun og orku. Age Perfecting Serum er akkurat þetta auka orkuskot með plöntustofnfrumum sem húðin tekur vel á móti og eykur náttúrulega frumustarfsemi og endurnújun húðarinnar. Sérhönnuð formúla sem eykur virkni og innsíun virkra efna og passar fullkomnlega með Perfect Lift og Rich Recovery Cream úr Mature Skin línunni frá Janssen Cosmetics fyrir enn sýnilegri árángur. TIP: Serumið má bera alveg upp undir augu undir annað augnkrem fyrir djúpvirkandi lyftingu og sléttara yfirbragð húðarinnar í kringum augnsvæðið. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha), Hyaluron Sýru, Vitamin C og E og Plöntustofnfrumur (Alpine Rose) -
Sale!
Hreinn lúxús með dýrmætu kollageni í glæsilegri gjafaöskju fyrir jólin!
Öflug innihaldsefni í hámarksgæðum! Árangursríkt húðumhirðu tvíeyki með Marine Collagen Fluid og lúxus Marine Collagen Cream sem byggir á sjávarkollageni, hýalúrónsýru og granatepla extract.
Með reglulegri noktun getur húðin þrefaldað náttúrulegar kollagen birgðir sínar, sem eykur styrkleika, hald og lyftingu í húð sem er byrjuð að missa teygjanleika, varðveitir rakafyllingu og gefur húðinni ferskara og líflegra yfirbragð.Húðin fær aukna rakafyllingu og sléttara yfirbragð, aukinn þéttleika og dásamlegan ljóma!
Inniheldur 1x Marine Collagen Cream 50ml & 7stk ACTIVATE Marine Collagen Fluid Ampúlur Hentar þurrum/rakaþurrum húðgerðum sem vantar aukinn þéttleika og fyllingu með lyftandi áhrifum og líflegum húðljóma. Fullkomið krem yfir veturinn! -
Gefðu húðinni ljóma sem sést strax. Sensational Glow Cream er virkt 24 stunda rakakrem sem lífgar samstundis upp á þreytta húð, veitir djúpvirkandi raka og gerir fínar línur minna áberandi. Húðin fær ferskt, slétt og ljómandi yfirbragð og með reglulegri notkun verður áferð hennar jafnari.
Meira en fallegur ljómi Sérstaða Sensational Glow Cream felst í samspili rakagjafar, virkra innihaldsefna og ljósendurkastandi Soft Focus Pigments. Þau fylla upp í og mýkja sýnilega fínar línur og ójöfnur svo húðin virðist strax sléttari og frísklegri. Húðin fær sýnilega sléttari áferð og fallegan húðljóma sem glampar án þess að virka olíukennd, kremið er fallegt eitt og sér en hentar einnig vel undir farða. Hyaluronsýra með löngum og stuttum keðjum bindur raka og gefur húðinni meiri fyllingu. Saccharide Isomerate hjálpar henni að halda rakanum, svo hún helst mjúk og rakafyllt lengur. Þessi samsetning nýtur sín sérstaklega vel þegar húðin er rakaþurr og virðist líflaus. Við reglulega notkun styður Bacillus Ferment úr sjávarþörungum við aukinn ljóma og bætt rakastig húðarinnar. Equal-Refining Complex dregur úr olíuglansi og gerir húðholur minna áberandi. Þannig fær húðin jafnari áferð og náttúrulegur ljómi hennar nýtur sín betur. Níasínamíð og sheasmjör styrkja varnarhjúp húðarinnar, á meðan aloe vera og allantóín veita raka og róandi áhrif. Létt og mjúk áferðin gerir kremið að ánægjulegum hluta af daglegri húðrútínu. -
Rejuvenating Mask gefur hámarks virkni á djúpnærandi innihaldsefnum sem endurlífga húðina, auka styrk með lyftandi áhrifum á slaka húðvefi. Sannkölluð orkubomba fyrir eldri, þreytta og húð sem vantar aukna orku og ljóma. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha), Sensitive Complex, Makadamíu olía, Cupuacu Butter, Bisabolol(Kamillujurt) og E - Vítamín. -
Light Tightening Cream frá Janssen Cosmetics er fullkomiđ krem fyrir húđ sem þarf djúpa næringu međ uppbyggjandi áhrifum án þess ađ ofmetta húđina eða gefa olíuglans. •Létt en jafnframt orkumikið krem fyrir húð sem vantar aukna orku og þéttleika hentar fullkomnlega húðgerðum sem eru farna að missa teygjanleika og vantar líflegri húðlit og orku án þess að gefa húðinni glans eða olíkennda áferð. •Létt formúlan gefur samstundis frísklegri húðlit með mild örvandi áhrifum. Inniheldur Vitality-Equalizer sem er líftækni formúla og samanstendur af Euglena gracilis einfruma sjávarþara sem virkjar frumustarfsemi húðarinnar og örvar losun kalsíums og eykur þannig orkubúskap húðarinnar og endurheimtir þéttleika og unglegra yfirbragð. Vísindalegar rannsóknir sýna fram á að eftir aðeins 1 mánuð hefur húðin öðlast 4 sinnum betri teygjanleika og 3 sinnum meiri þéttleika. Kremið inniheldur einnig rakagefandi Aloe Vera og Bisabolol sem saman draga úr allri húðertingu, roða og bólgum í húðinni með mattandi Silica púðri sem dregur í sig allra umfram húðfitu þannig húðin helst mött og þurr viðkomu. -
Öflugt serum fyrir húð sem þarfnast orku, aukna lyftingu og bjartara útlit. Húð sem er byrjuð að eldast og slakna á það til að verða föl og þreytuleg með tímanum þar sem hægst hefur á frumustarfsemi húðarinnar. Hátt hlutfall C Vítamíns í Vitaforce C Complex hefur þríþætt áhrif við að endurvekja frumustarfsemi og hægja á öldrunarferli húðarinnar.- C vítamín er það efni sem er hvað mest áhrifaríkast í snyrtivörum við að styrkja og styðja við kollagenþræði húðarinnar. Það bæði eykur náttúrulega kollagenframleiðslu húðarinnar sem eykur þéttleika og styrkir varnir húðarinnar fyrir skaðlegum sindurefnum og öðrum umhverfis áhrifum sem herja á húðina.
- C vítamin hefur djúpvirkandi áhrif í neðri húðlögum þar sem húðfrumur framleiða elastinþræði sem hafa áhrif á teygjanleika húðarinnar, hátt hlutfall C vítamins í Vitaforce C Complex styrkir við og hægjir á niðurbroti elastins í húðinni auk þess sem náttúruleg frumustarfsemi eykst og örvar nýmyndun nýrra þráða sem hafa stinnandi og lyftandi áhrif á húðvefi.
- C vítamín eykur birtu í húðinni og minnkar ásýnd litabletta og vinnur á móti nýmyndun litabletta.