• Vitamin C Glow Set - Kraftur C-vítamíns fyrir sléttari húð og geislandi ljóma

     
    Glæsilegt gjafasett fyrir húð sem vantar ferskleika, raka og ljóma. Vitaforce C Skin Complex og Vitaforce C Cream úr Demanding Skin vörulínu JANSSEN COSMETICS sameina markvissa virkni þar sem kraftur C-vítamíns og hyaluronsýru spila lykilhlutverk.
  • Vitalizing Skin Refiner er einstaklega rakagefandi húðmeðferð sem færir húðinni nýjan þrótt og ljóma með lífrænum trönuberjapeptíðum og þykkni úr camu camu-berjum. Kremið hefur létta og silkimjúka áferð sem frásogast hratt niður húðlögin og gefur húðinni líflega útgeislun og ferskara útlit dag eftir dag. Vitalizing Skin Refiner er einstaklega rakagefandi húðmeðferð sem færir húðinni nýjan þrótt og ljóma með lífrænum trönuberjapeptíðum og þykkni úr camu camu-berjum. Kremið hefur létta og silkimjúka áferð sem frásogast hratt niður húðlögin og gefur húðinni líflega útgeislun og ferskara útlit dag eftir dag. Vitalizing Skin Refiner er frábært alhliða 24stunda krem, parast einnig fullkomnlega sem dagkrem á móti Pro Lift Cream sem næturkrem ef þörf er á dýpri næringu fyrir nóttina.
  • Kröftugt C-Vítamín krem sem sléttir og bætir áferð húðarinnar, fyrirbyggir og dregur úr öldrunareinkennum ásamt því að vera einstaklega andoxandi og góð vörn gegn sindurefnum. Kremið bæði þéttir og styrkir húðvefi og örvar C-Vítamín náttúrulega endurnýjun og kollagen framleiðslu húðar,hefur lýsandi áhrif á litaflekki og dregur úr litabreytingum. Kremið er einstaklega frískandi með léttum ávaxtailm og fær húðina til að ljóma! Helstu innihaldsefni : C-Vitamin, Hyaluronic Sýra, Sítrónu-þykkni
  • Öflugt C-vítamínkrem fyrir bjartari húð og ferskan ljóma.  Vitaforce C Cream sameinar ríkulega rakagjöf, andoxunarvörn og kraft C-vítamíns til að jafna húðlit og draga úr sýnilegum öldrunareinkennum. Þrjú af vinsælustu kremunum frá Janssen Cosmetics koma í fallegri jólaútgáfu og á sérstöku tilboði núna fyrir jólin. Hvert um sig býður upp á einstaka húðumhirðu í 20 ml ferðastærð.
  • Öflugt serum fyrir húð sem þarfnast orku, aukna lyftingu og bjartara útlit. Húð sem er byrjuð að eldast og slakna á það til að verða föl og þreytuleg með tímanum þar sem hægst hefur á frumustarfsemi húðarinnar. Hátt hlutfall C Vítamíns í Vitaforce C Complex hefur þríþætt áhrif við að endurvekja frumustarfsemi og hægja á öldrunarferli húðarinnar.
    • C vítamín er það efni sem er hvað mest áhrifaríkast í snyrtivörum við að styrkja og styðja við kollagenþræði húðarinnar. Það bæði eykur náttúrulega kollagenframleiðslu húðarinnar sem eykur þéttleika og styrkir varnir húðarinnar fyrir skaðlegum sindurefnum og öðrum umhverfis áhrifum sem herja á húðina.
    • C vítamin hefur djúpvirkandi áhrif í neðri húðlögum þar sem húðfrumur framleiða elastinþræði sem hafa áhrif á teygjanleika húðarinnar, hátt hlutfall C vítamins í Vitaforce C Complex styrkir við og hægjir á niðurbroti elastins í húðinni auk þess sem náttúruleg frumustarfsemi eykst og örvar nýmyndun nýrra þráða sem hafa stinnandi og lyftandi áhrif á húðvefi.
    • C vítamín eykur birtu í húðinni og minnkar ásýnd litabletta og vinnur á móti nýmyndun litabletta.
     
  • Silkimjúkt, orkugefandi og stinnandi líkamskrem með kröftugri blöndu af vitamin A, C og E, ásamt shea butter, hyaluronic sýru og Pentavitin®. Húðin verður sléttari og stinnari viðkomu og viðheldur náttúrulegri lyftingu og ljóma.
  • Mjög áhrifaríkt augnkrem fyrir þroskaða húð með rauðsmárakjarna og kombucha ásamt A- og E-vítamínum, löngum og stuttum keðjum hýalúrónsýru og olíu úr makadamíuhnetum sem veitir djúpvirkandi endurnýjun. Öldrun húðarinnar þreyta, bólgur og dökkir baugar er oft það sem er mest sýnilegt í kringum augnsvæðið eftir því sem við eldumst, húðin er þynnri og viðkvæmari í kringum augnsvæðið og þarf sérstakt aðhald. Tri-Care augnkremið er með þrefalda virkni og tekur á öllum þessum kvillum í einu öflugasta augnkreminu frá Janssen Cosmetics. Inniheldur m.a A-Vitamín sem eykur endurnýjun og sléttir húðina, Sensitive Complex sem herjar sérstaklega á þrota og dökka bauga og E-Vítamín sem styrkir húðfrumunar og hægir á öldrun húðarinnar.
  • SERUM SEM LÝSIR OG JAFNAR LITARHÁTT HÚÐARINNAR Litabreytingar á húð, blettir, Acne ör eða aðrar ójöfnur eftir bólur sem og rósroði geta verið hvimleitt vandamál. Tranexamic Acid Serum dregur með sýnilegum hætti úr ýmsum litabreytingum á húð, þar á meðal dökkum blettum vegna skemmda af völdum sólarinnar, með áhrifaríkri en mildri efnasamsetningu. Tranexamsýra (tranexamic acid) er virkt innihaldsefni unnið úr amínósýrunni lýsíni, sem er um allan heim álitið það efni sem hefur mest lýsandi áhrif á húðina. Hún kemur í veg fyrir víxlverkun milli sortufrumna og hyrnisfrumna og hamlar þannig myndun melaníns og þar með nýmyndun dökkra bletta. Auk þess að vinna á þeim litabreytingum sem hafa nú þegar myndast.
  • Flauelsmjúkt og létt litað dagkrem, kemur í einum lit með litapigmentum sem aðlagast mismunandi húðtón hjá hverjum og einum með mildum bronze áhrifum sem gera húðina enn frísklegri.

    Tinted Balancing Cream er sérstaklega þróað til að mæta þörfum blandaðrar húðgerðar með tvöfaldri virkni þar sem kremið veitir bæði góða rakagjöf auk þess að stuðla að auknu jafnvægi á olíuframleiðslu húðarinnar, staðbundið allt eftir þörfum húðarinnar.

  • Mjúkt og einstaklega rakagefandi krem sem gefur rakaþurrum húðgerðum hámarks virkni af næringarríkum innihaldsefnum sem auka þéttleika og gera yfirborð húðarinnar slétt og silkimjúkt. Allar húðgerðir þurfa raka til að viðhalda fyllingu og heilbrigði húðar, Super Hydrating Cream er hið fullkomna rakakrem fyrir allar húðgerðir til að gefa húðinni daglega næringu og auka rakamagn sem veitir vörn gegn ytra áreiti og ótímabærri öldrun húðarinnar. Kremið veitir djúpa rakagjöf niður í neðstu húðlög og fyllir húðina af raka líkt og þegar þurr svampur kemst í snertingu við vatn með sérþróaðri tækni þar sem krosstengdar samsetningar af Hyaluronic sýru mynda einskonar raka-net í húðinni með “plumping” áhrifum. Kremið einstaklega frískandi viðkomu og gefur húðinni létta kælitilfinningu sem frískar samstundis uppá húðlitinn með mildum og náttúrulegum ilm. Super Hydrating Cream er einnig einstaklega gott undir farða, fyrir sléttari áferð, meiri fyllingu og betri endingu farðans.
  • SPF 30 TRANSPARENT SUN SPRAY FYRIR LÍKAMA Sólarvörn er eitt það mikilvægasta sem við getum notað til þess að vernda húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar, sólarskemmdum og ótímabærri öldrun húðarinnar hvort sem er á ströndinni, skíðaferðalögum, útiveru eða daglegu amstri. Sun Protection Spray SPF 30 er létt og gegnsæ sólarvörn sem veitir hágæða vörn gegn UVA og UVB geislum og hefur verndandi eiginleika gegn sólarskemmdum með Ectoin® frumuvernd. *Kemur í handhægum sprey brúsa *Verndar húðina gegn UVA/UVB geislum og sólbruna *Létt formúlan smýgur hratt niður í húðina og skilur ekki eftir sig hvítar rákir*Húðin verður ekki klístruð eða olíukennd *Inniheldur Ectoin® sem er einstakt lífrænt efni sem smýgur niður í neðri lög húðarinnar þar sem það eflir náttúrulegar varnir húðfrumna gegn ytra áreiti eins og hita/kulda og UV geislum. Með því myndar húðin öflugri vörn gegn sólargeislum og minnkar líkunar á sólarskemmdum/litabreytingum síðar meir. *Hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmum Noktun - Hristið brúsan vel fyrir hverja noktun dreifið ríkulegi magni á húðina c.a. 30min áður en farið er í sólarljós, bætið á eftir þörfum yfir daginn til þess að viðhalda vörn sérstaklega eftir sundferðir eða hreyfingu þar sem er mikið svitnað.  
  • Sérhannað andlitsvatn fyrir viðkvæma húð dregur samstundis úr roða, ertingu og minnkar hitatilfinningu með einstaklega kælandi og sefandi áhrifum. Soft Soothing Tonic er alkahólfrítt og inniheldur Skin Defense Complex+ sem styrkir háræðanar með langvarandi áhrifum. Noktun: Strjúkið yfir með bómullarskífu á hreina húð yfir andlit og háls.
  • Mild p-H neutral hreinsifroða án allra rotvarna eða skaðlegra aukaefna. Létt froðan flæðir um yfirborð húðarinnar og dregur samstundis úr allri ertingu eða pirring í húðinni með kælandi áhrifum, inniheldur allantoin sem dregur sýnilega úr roða og sefar viðkvæma húð. Noktun: Hristið og notið 2 til 3 pumpur af froðunni, dreifið jafnt yfir andlit og háls með hringlaga hreyfingum og skolið af með volgu vatni. Ljúkið hreinsun með Soft Soothing Tonic/andlitsvatni til að auka virkni og fullkomna hreinsun húðar.
  • Smooth + Lift Eye Cream er einstök formúla með hágæða virkum innihaldsefnum eins og lífrænum trönuberjapeptíðum, Soft Focus Pigments og amínósýru complex fyrir hámarks ummönnun og virkni fyrir augnsvæðið. AUGNKREM MEÐ ÁHRIFARÍKUM OG LANGVARANDI EIGINLEIKUM Smooth + Lift Eye Cream er einstök formúla með hágæða virkum innihaldsefnum eins og lífrænum trönuberjapeptíðum, Soft Focus Pigments og amínósýru complex fyrir hámarks ummönnun og virkni fyrir augnsvæðið. Dagleg umhirða augnsvæðisins kvölds og morgna er nauðsynlegur hluti af fyrirbyggjandi meðferð til að hægja á öldrunarferli húðarinnar, viðhalda styrk og jafnframt draga úr línum og fyrstu öldrunarmerkjum með djúpnærandi eiginleikum sem slétta húðina umhverfis augun og vinna gegn sinduráhrifum. Silkimjúk áferð Smooth + Lift Eye Cream frásogast hratt niður húðlögin og tryggir aukinn styrkleika og sléttara yfirbragð húðarinnar með djúpvirkandi rakagjöf og auknum frískleika. Trönuber hafa öfluga virkni á húðina og stuðla að auknum þéttleika og kollagenframleiðslu sem viðheldur fyllingu húðarinnar með langvarandi eiginleikum. Tvíþætt hýalúrónsýra færir húðinni djúpvirkandii raka og gerir hana sýnilega sléttari. Að auki er þessi fjölvirka fyrirbyggjandi formúla auðguð með nauðsynlegum fitusýrum og amínósýrum sem styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar og vinna gegn öldrunarmerkjum húðarinnar. Soft Focus Pigments gefa húðinni samstundis jafnari áferð og fylla uppí fíngerðar línur og hrukkur sem gefur augnsvæðinu silkimjúka slétta og matta áferð.
  • Instant Soothing Oil - Olíukennd formúlan gefur mýkri og áferðafallegri húð, efstu húðlögin drekka í sig næringuna og húðljómi eykst með sýnilegum áhrifum, ampúlan styrkir einnig náttúrulegar varnir húðarinnar og dregur samstundis úr ertingu og roða í húð.
  • Græðandi krem til noktunar sem heimameðferð fyrir húð sem hefur gengist undir kraftmiklar húðmeðferðir á borð við ávaxtasýrur, dermapen eða lazer þar sem yfirborð húðarinnar verður meira berskjaldað viðkvæmt. Kremið flýtir fyrir gróanda húðarinnar og dregur úr óþægindum svo sem þurrki/herping og hitatilfinningu með græðandi jurtablöndu sem samanstendur m.a. af Calendula Officinalis og Hestakastaníu sem styrkja háræðakerfið og draga sýnilega úr roða,  minnka hitatilfinningu og ertingu í húðinni. Kremið inniheldur einnig bakteríuverndandi Farnesol  sem veitir húðinni vörn á meðan hún byggir sig upp að nýju og er að jafna sig eftir meðferð með frumuendurnýjandi áhrifum.      
  • Öflugt djúphreinsigel með virkum Enzymes sem losa um og hreinsa burt dauðar húðfrumur á yfirborði húðarinnar á mildan en áhrifaríkan hátt. Með reglulegri noktun verður yfirborð húðarinnar sléttara og náttúruleg húðendurnýjun eykst sem styður við aukna frumustarfsemi og heilbrigðri húðarinnar. Inniheldur engar olíur eða stíflandi efni og er því afar hentugt sem undirbúningur fyrir virkar húðmeðferðir. Frábær kostur fyrir allar húðgerðir líka viðkvæma og acne húð. Helstu innihaldsefni : Subtilisin(enzim) Tip : Smyrjið þunnu lagi á húðina undir maska eða krem, enzímin greiða leiðina fyrir virk efni lengst niður húðlögin.
  • Skin Contour Cream er sérhannað til þess að endurbyggja stinnleika húðarinnar og lyfta slökum húðvefjum frá neðstu húðlögum með einstakri formúlu! Kremið er einstaklega næringarríkt og rakamikið og vætir uppí húðlögunum eins og þegar þurr svampur er bleyttur í vatni. Sama og með svampinn þenst húðin út og húðrumunar fá aukinn kraft til endurnýjunar. A – Vítamin, Elastin örvandi peptíð og Japanskt Silki mynda auka styrk og endurnýja stinnleika húðarinnar og gefa henni hreinna og unglegra yfirbragð. Inniheldur að auki E vitamin, Macadamiu Olíu og SORR plöntuþykkni. Inniheldur:
    • ESP:Elastin-örvandi peptid; örva myndun elastins í bandvef húðarinnar, styrkja þannig uppbyggingu og lyfta upp húðvefjum.
    • Plant extract SORR:Einstaklega virkt plöntu-þykkni unnið úr Siegesbeckia orientalis og Rabdosia rubescens; dregur úr roða og ertingu í húð ásamt því að vera einstaklega andoxandi, jafnar þannig húðlit og eykur útgeislun.
    • Long- and short-chain hyaluronic acid:Langar og stuttar keðjur Hyaluronic sýrunnar veita einstakann raka og binda jafnframt raka í húðinni og halda henni vel fylltri.
    • Genuine Japanese silk: Samlagast húðinni fullkomnlega, ver hana fyrir rakatapi, gefur húðinni einstaka mýkt og silkiáferð
    • Macadamia nut oil:Er mýkjandi og nærandi, makadamíu olía inniheldur palmitoleic sýru sem eykur innsíun húðarinnar og greiðir farveg fyrir næringu úr olíunni niður í neðstu lög húðarinnar.
    • Isostearyl-isostearate:Skammstafað ISIS; unnið úr raw plöntuefnum bætir samheldni lípiða í hornlagi húðarinnar og hindrar rakatap.
    • Vitamin A palmitate:Örvar endurnýjun húðarinnar og bætir áferð.
    • Vitamin E acetate:Er eitt það öflugugasta andoxunarefni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar og veitir einstakan varnarhjúp utan um húðfrumunnar.
  • Gefðu húðinni ljóma sem sést strax. Sensational Glow Cream er virkt 24 stunda rakakrem sem lífgar samstundis upp á þreytta húð, veitir djúpvirkandi raka og gerir fínar línur minna áberandi. Húðin fær ferskt, slétt og ljómandi yfirbragð og með reglulegri notkun verður áferð hennar jafnari.

    Meira en fallegur ljómi Sérstaða Sensational Glow Cream felst í samspili rakagjafar, virkra innihaldsefna og ljósendurkastandi Soft Focus Pigments. Þau fylla upp í og mýkja sýnilega fínar línur og ójöfnur svo húðin virðist strax sléttari og frísklegri. Húðin fær sýnilega sléttari áferð og fallegan húðljóma sem glampar án þess að virka olíukennd, kremið er fallegt eitt og sér en hentar einnig vel undir farða. Hyaluronsýra með löngum og stuttum keðjum bindur raka og gefur húðinni meiri fyllingu. Saccharide Isomerate hjálpar henni að halda rakanum, svo hún helst mjúk og rakafyllt lengur. Þessi samsetning nýtur sín sérstaklega vel þegar húðin er rakaþurr og virðist líflaus. Við reglulega notkun styður Bacillus Ferment úr sjávarþörungum við aukinn ljóma og bætt rakastig húðarinnar. Equal-Refining Complex dregur úr olíuglansi og gerir húðholur minna áberandi. Þannig fær húðin jafnari áferð og náttúrulegur ljómi hennar nýtur sín betur. Níasínamíð og sheasmjör styrkja varnarhjúp húðarinnar, á meðan aloe vera og allantóín veita raka og róandi áhrif. Létt og mjúk áferðin gerir kremið að ánægjulegum hluta af daglegri húðrútínu.
  • Sensational Glow Cream 24 stunda rakakrem fyrir sléttari húð og ferskan, náttúrulegan ljóma. Ferskleiki sem sést strax. Sensational Glow Cream gefur daufri húð ljómandi yfirbragð með Soft Focus Pigments sem endurkasta ljósi og gera fínar línur og ójöfnur minna áberandi. Létt áferðin smýgur fljótt inn í húðina og skapar sléttan grunn undir farða. Þrjú af vinsælustu kremunum frá Janssen Cosmetics koma í fallegri jólaútgáfu og á sérstöku tilboði núna fyrir jólin. Hvert um sig býður upp á einstaka húðumhirðu í 20 ml ferðastærð.
  • Eftir því sem húðin eldist verður hún þynnri, missir fyllingu og húðvefir slakna. Til þess að viðhalda náttúrulegri starfsemi og spyrna aðeins við þessu ferli er mikilvægt að velja vörur með djúpvirkandi næringu og nauðsynlegum fitusýrum sem viðhalda og auka náttúrulega fyllingu húðarinnar. Samspil virkra efna í Rich Recovery Cream gera akkurat það, ríkulega hlaðið af Omega fitusýrum, A- Vitamíni, Kombucha, Isoflavoníða og Hyaluronic Sýru sem örva náttúrulega endurnýjun húðarinnar og byggja upp sterkari húðvefi með auknum þéttleika og lyftingu. Kremið er ríkt af nærandi Shea Butter, Squalene og Makadamíu Olíu sem fylla húðina af djúpvirkandi næringu og veita einstaka fyllingu og auka mýkt húðarinnar. Vegna sérstakar blöndunar á Rich Recovery Cream “water-in-oil þeyta” myndast varnarfilma í efstu húðlögunum sem veita vörn gegn ytra áreiti og hentar því fullkomnlega sem kuldakrem yfir vetratímann. Rich Recovery Cream er hefur sömu virkni og Perfect Lift Cream í Mature Skin nema er næringarríkara og því frábær kostur fyrir fituþurra húð eða sem næturkrem á móti Perfect Lift Cream. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha), Vitamin A – Palmitate, Shea Butter, Squalene, Makadamía Olía
  • Orkumikill maski fyrir húð sem hefur verið undir miklu álagi og er þreytuleg og slöpp.
    Maskinn inniheldur A og E vitamin ásamt Provitamin B5 og er sannkölluð vitaminbomba fyrir húðina, veitir samstundis orku og ferskleika. A-Vítamin eykur endurnýjun og sléttir húðina, E-Vítamin er sérlega andoxandi og viðheldur æskuljóma og B Vítamin sem hefur róandi og nærandi eiginleika.
    Látið maskann liggja á í 20 - 40 min veitir einstaka lyftingu og fyllingu eftir aðeins eitt skipti!
  • Retinol Lift Serum er áhrifaríkt serum með margþætta eiginleika fyrir húðina þar sem hið margrómaða Retinol spilar lykilhlutverk. Retinol er eitt mest rannsakaða efni í heimi snyrtivara og klíniskar rannsóknir sanna það að Retinol er eitt það öflugasta efni sem hægt er að fá í húðsnyrtivörum sem hægir á öldrunarferli húðarinnar með sjánlegum árángri. Með aldrinum þá hægist á frumuendurnýjun húðarinnar og fínar línur, misfellur og litabreytingar fara gera vart um sig á yfirborði húðarinnar og með tímanum slaknar á teygjanleika og húðin verður slappari því kollagen framleiðsla fer minnkandi, þarna kemur Retinol sterkt inn og skerst í leikinn og hraðar endurnýjunarferlinu á nýjan leik og örvar nýmyndun kollagens og viðheldur þannig þéttleika og eykur lyftingu í húðvefum sem eru byrjaðir að slakna. Með aukinni endurnýjun eykst náttúruleg húðflögnun og yfirborð húðarinnar verður sléttara þar sem fínar línur vegna þurrks hverfa og svipbrigðalínur grynnka, litamisfellur verða minna áberandi og húðin fær bjartara yfirbragð og frísklegan ljóma. Retinol stuðlar einnig að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar dregur þannig úr fílapensla myndun og dregur saman stórar húðholur.
  • Öflug kvöld-húðrútína fyrir aukna endurnýjun og lyftingu í glæsilegu gjafasetti. Evening Beauty Edition frá JANSSEN COSMETICS sameinar hið vinsæla Retinol Lift Serum og Lift Contour Cream Mask í vönduðu gjafasetti á sérstöku jólatilboði. Öflug tvenna þar sem retínól og peptíð vinna saman að aukinni endurnýjun húðarinnar, sléttari yfirborðsáferð og bættum þéttleika með lyftandi áhrifum og sýnilegum árángri. Sérstaða Evening Beauty Edition gjafasettsins felst ekki síst í Lift Contour Cream Mask, sem er alla jafna eingöngu notaður í fagmeðferðum á snyrtistofum. Í þessari jólaútgáfu fæst maskinn í 30 ml stærð til notkunar heimafyrir, ásamt Retinol Lift seruminu. Lúxusgjöf fyrir húðvöruunnendur og freistandi tækifæri til að njóta sérhæfðrar húðmeðferðar heima!
Go to Top