-
Augnkrem með ríkulegu magni af Skin Defense Complex sem gefur góða næringu og raka með græðandi eiginleikum fyrir viðkvæmni, exemgjarni og þurri húð í kringum augnsvæðið með langavarandi kælandi áhrifum. Inniheldur einnig Hyaluronic Sýru og Saccharide Isomerate með djúpnærandi eiginleikum sem fylla uppí og slétta linur í kringum augum vegna yfirborðsþurrks og gefa þannig augnsvæðinu aukna lyftingu. Vinnur á bólgum og dökkum baugum með lífrænt ræktaðri jurt: Eyebright sem gefur augnsvæðinu eins og nafnið gefur til kynna bjartara yfirlit. -
Dagleg meðferð við háræðaslitum og rósroða. Létt en öflug formúla þéttir og styrkir blóðæðaveggi húðarinnar sem dregur úr hita og ertingu í húðinni. Inniheldur RSC-Neutralizer sem minnkar sýnilega roða í húð og dregur úr einkennum rósroða. Með reglulegri noktun dregur sjáanlega úr æðaslitum og háræðanet húðarinnar styrkist með fyrirbyggjandi og verndandi eiginlegum. Betrumbætir áferð rósroða húðar með auknu rakajafnvægi, sléttandi og mýkjandi áhrifum. -
Dark Circle Eye Cream er sérstaklega þróað til að vinna gegn og birta upp dökka bauga í kringum augnsvæðið með sýnilegum og langavarandi áhrifum.Húðin í kringum augnsvæðið og sér í lagi undir augunum er þunn og viðkvæm og sýnir gjarnan örfínar blóðæðar í gegn sem eru gjarnan kallaðar undir daglegu tali baugar.Hversu miklir baugar þá gjarnan eftir hversu dökkir þeir virðast fer allt eftir blóðmagni í þessum örfínu blóðæðum. Svefnleysi, stress, mataræði geta haft neikvæð áhrif á blóðflæðið sem og getur einnig verið genatískt. Blóðæðar með litlu/hægu blóðflæði bera súrefnisminna blóð og verða dekkri fyrir vikið sem orsakar þennann dökka lit undir augunum sem við köllum dökka bauga.Dark Circle Eye Cream inniheldur birtu pigment sem lýsir upp og dregur samstundis úr dökkum lit undir augunum með langvarandi áhrifum um leið og kremið er borið á. Ef kremið er notað reglulega hlaðast upp þessi áhrif með hjálp frá öflugum innihaldsefnum “4-1 complex” sem samanstendur af tri-peptíðum, smáþörungum, panthenol og hyaluronic sýru sem saman örva flæði blóðæðanna, auka kollagenmyndun og lyftingu með djúpri næringu sem rakafyllir og sléttir viðkvæma húðina í kringum augun.*Eftir aðeins 7 daga eru fínar línur/hrukkur sjáanlega minni og sléttari.*Eftir aðeins 14 daga hefur dregið verulega með mælanlegum áhrifum úr dökkum baugum undir augunum. -
Dark Spot Perfector er kröftugt serum sem er bæði fyrirbyggjandi og lýsandi meðferð fyrir litabletti og aðrar litabreytingar á húðinni og hentar öllum húðgerðum. Inniheldur sérþróaða Age Spot Corrector formúlu með blöndu af soyja og jurtaþykkni (Garden Cress/Lepidium sativum) sem draga úr nýmyndun melaníns og lýsa upp dökka bletti á húðinni án þess þó að lýsa upp húðina í kring! -
Fullkomin viðbót við hvaða krem sem er úr flóru Janssen Cosmetics fyrir þær húðgerðir sem vilja auka rakamagn húðarinnar með langvarandi verndandi áhrifum. Ultra létt formúlan smýgur hratt niður húðlögin og skotstundu með samstundis kælandi og frískandi áhrifum þar sem þú bókstaflega finnur húðina taka við sér. Deep Xpress Moist Serum inniheldur háþróaða Hydro Express Complex formúlu sem myndar ósýnilegt en jafnframt sterkt og ótrúlega virkt net virkra efna sem sameinast í efstu lögum húðarinnar og gefa húðinni jafnt og þétt skammta af raka og næringu með virkni sem endist í allt að 5 daga frá síðustu ásetningu. Þannig viðheldur húðin auknu rakamagni, mýkt og fyllingu og öðlast einstaka frumuvernd gegn umhverfisáhrifum svo sem veðurfarsbreytingum og öðru sem valda rakatapi húðarinnar. -
Orkugefandi og kælandi augnrollon fyrir herra, sérhönnuð formúla fyrir augnsvæðið sem dregur samstundis úr þreytumerkjum, dökkum baugum og bólgum í kringum augun með sýnilegum áhrifum. Smýgur fljótt niður í húðina með kælandi og frískandi áhrifum, sléttir úr fínum línum og veitir augnsvæðinu einstaka rakagjöf og næringu. -
Caviar Fluid - Veitir húðinni aukna orku, örvar nýmyndun húðar og er sérstaklega góð til þess að vekja upp líflausa húð og draga fram ljóma og orku. Veitir vörn gegn ótímabærri öldrun húðarinnar og verndar húðina gegn skaðlegum áhrifum sindurefna og virkjar viðgerðarferli fyrir húð sem hefur verið undir miklu álagi, stressi og streitu. -
Enzyme Peeling Powder losar um dauðar húðfrumur og umfram húðfitu af yfirborði húðarinnar á áhrifaríkan en jafnframt mildan hátt við djúphreinsun á yfirborðs viðkvæmum og Acne húðgerðum. Fínmalað púðrið myndar létta froðu þegar það er blandað við vatn og virkjar um leið Ensím sem vinna hörðum höndum á yfirborði húðarinnar við að brjóta niður keratin prótín og losa þannig dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar á áhrifaríkann hátt án þess að erta yfirborð húðarinnar. Húðin nær að losa um óhreinindi og umfram húðfitu með mattandi áhrifum frá Silica kísil sem stuðlar að auknu jafnvægi fituframleiðslu og heilbrigði húðarinnar. -
Epigenetic Glow Duo – tímalaus fegurð og geislandi ljómi Háþróuð virkni gegn öldrunareinkennum og samstundis meiri húðljómi. Epigenetic Serum og Sensational Glow Cream sameina krafta sína í öflugu tvíeyki sem hjálpar húðinni að viðhalda unglegu yfirbragði með háþróaðri epigenetic tækni. Viðgerðarferli og varnarviðbragð húðfrumna er glætt nýrri orku sem styrkir mótstöðuafl og eykur lífsþrótt sem skilar af sér lengri líftíma húðfrumna. Við það fær húðin aukna seiglu sem hægir á náttúrulegu öldrunarferli og hrörnun líkt og tíminn standi í stað! Epigenetic Serum vinnur gegn áhrifum ytra álags á húðina og styður við mótstöðu hennar, á meðan Sensational Glow Cream eykur rakafyllingu og gefur yfirborðinu sléttari ásýnd. Saman mæta vörurnar þörfum húðar sem farin er að sýna fínar línur, rakaþurrk og minnkandi ljóma — falleg gjöf fyrir húðina og dekur til að njóta á hverjum degi. Settið kemur í fallegum gjafapoka frá Janssen Cosmetics. -
Melafadin Fluid er áhrifarík meðferð gegn litabreytingum á húðinni af völdum sólarskemmda, hormónabreytinga og ellibletta. Inniheldur kraftmikla blöndu af Vitamin-C, Lipoamino Acid og SORR-Plöntuþykkni sem vinna í sameiningu að því að hindra myndun og sundra upp dökku melanin litarefni húðarinnar og lýsa þar með og minnka/eyða dökkum blettum og jafna þannig litarhaft húðarinnar. Húðin fær dásamlega rakafyllingu og bjartara útlit með jafnari litarhafti. -
Olìulaus augnfarðahreinsir með verndandi áhrifum.•Mýkjandi augnfarðahreinsir með pH gildi 7,2 sem hefur einstaka verndandi eiginleika fyrir þunna og viðkvæma húðina í kringum augun.•Kælandi gel-formúla leysir upp farða á árángursríkan hátt af augnsvæði án þess að hafa skaðleg eða þurrkandi áhrif á náttúruleg augnhár heldur gefur þeim aukna mýkt og raka.Noktun: Pumpið geli á bómullarskífu/mjúkan svamp og leggið yfir annað auga í einu, leyfið hreinsinum að virka í 10-20sek og nuddið varlega farðann af.Leyfið hreinsinum að liggja lengur eftir því hve mikill farði er á augnsvæði, mýkjandi efni í hreinsinum leysa farðann sjálfkrafa af og því óþarfi að nudda mikið eða erta húðina í kringum augun.- Virkar jafnvel á vatnsheldan farða.
- Má nota með augnháralengingu.
- Hentar einnig þeim sem nota linsur.
-
Létt alhliða sólarvarnar-serum með SPF 30 og IR frumuvernd fyrir daglega noktun, hentar öllum húðgerðum. Svipað og útfjólubláir geislar valda innrauðir geislar sólarinnar einnig ótímabærri öldrun húðarinnar og geta leitt til óæskilegra húðskemmda síðar meir. Húðin í andlitinu er hvað mest berskjölduð fyrir geislum sólarinnar og er því ekki síður mikilvægt eins og að veita henni vörn gegn UVA og UVB geislum að tryggja húðinni þar einnig skilvirka hitavörn gegn IR geislum. -
Háls-og bringusvæði er ekki síður mikilvægt í húðumhirðu þar sem húðin á þessum svæðum er oft berskjölduð fyrir sólarljósi, veðri og vind. Þyngdaraflið togar allt niður til sín og er húðin þar að engu undanskilin. Janssen Cosmetics hefur þróað einstaklega öfluga formúlu til þess að verjast þessum áhrifum og fyrirbyggja ótímabæra öldrun sem og viðhalda stinnleika og sléttri húð sérstaklega hannað fyrir háls- og bringusvæði. Kremið styrkir og þéttir húðvefi og hefur lyftandi áhrif, viðheldur unglegu útliti og veitir aukna fyllingu og raka einstaklega létt áferð og frískandi ilmur.- Styrkir og þéttir húðvefi með lyftandi eiginleikum fyrir háls og brinusvæði
- Eykur endurnýjunarferli húðarinnar, bætir húðlit og ljóma
- Kröftug endurnýjun og djúpvirkandi næring grynnkar á djúpum línum og viðheldur rakafyllingu húðarinnar með sléttari yfirborðsáferð
-
FLAWLESS ampúla Janssen Cosmetics gefur húðinni aukna lyftingu og þèttleika með ESP - elastin-stimulating peptides. Elastin örvandi peptíð styrkja og efla náttúrulega elastin þræði húðarinnar og auka þannig tog og þéttleika húðarinnar með lyftandi áhrifum. Inniheldur einnig SORR Plant Extract sem hefur sefandi áhrif og stuðlar að jafnari húðtón og auknum húðljóma. -
Í tilfelli blandaðrar húðar getur aukin fituframleiðsla valdið óæskilegum glans á húðinni, sérstaklega á miðsvæði andlitsins, á meðan vangar og augnsvæðið eru þurrari. Sértækar hreinsivörur eru nauðsynlegar af þessari ástæðu, til þess að mæta ólíkum þörfum húðarinnar fyrir áhrifaríka hreinsun og aukið jafnvægi fyrir blandaðar húðgerðir. Gentle Cleansing Powder hefur verið þróað sérstaklega til þess að mæta þessum þörfum! -
Radiant Skin Fluid – Fyrir einstakann húðljóma og geislandi yfirbragð. Ampúlan inniheldur þörunga extract úr Indlandshafi sem gefur húðinni aukinn húðljóma á sjálfbæran hátt þ.e.a.s þörunganir láta húðina sjálfa framkalla aukinn húðljóma með því að hámarka frumuskiptingu í yfirborðslögum húðarinnar og stuðla þannig að jafnari uppbyggingu hennar sem eru fullkomin skilyrði fyrir geislandi og frísklegan húðljóma. Radiant Skin Fluid inniheldur að auki kjarna úr bóndarós sem tryggir að yfirbragð húðarinnar fær aukna birtu og jafnara litarhaft með hverjum deginum sem líður ásamt tvíþættri hýalúrónsýru sem gefur húðinni djúpnærandi raka frá neðstu húðlögum sem fyllir uppí fínar línur/ójöfnur með sléttandi áhrifum á yfirborði húðarinnar. Árángur: Húðin öðlast geislandi og náttúrulegan húðljómaljóma. *Með reglulegri noktun verður litarhaft húðarinnar enn jafnara með mælanlegum árángri. -
Fullkomið duo fyrir ljómandi húð! Nú á frábæru tilboði saman með glæsilegum kaupauka, vönduð og rúmgóð Janssen Cosmetics taska með rennilás fylgir með ásamt demants vasaspegli. Spegillinn er tvískiptur með stækkun á annari hliðinni. Magic Glow Serum og Sensational Glow Cream gefa húđinni dásamlega rakafyllingu og highlight glampa án þess ađ húđin glansi eđa virki olíukennd, hlaðið næringaríkum efnum eins og þara extrakti úr Indverska hafinu sem hefur sannað virkni á aukna húðendurnýjun og aukinn ljóma húðarinnar. -
Nærandi og uppbyggjandi meðferð fyrir hendur og neglur með verndandi eiginleikum.Áhrifarík næturmeðferð fyrir þurrar hendur, naglabönd og neglunar sjálfar, inniheldur ríkulegt magn af Biotin – B-Vítamíni sem styrkir neglunar og spornar gegn því að neglunar klofni eða brotna.Næringarrík formúlan græðir þurra húð og sprungur, mýkir upp naglaböndin og vinnur gegn sáramyndun og þeim óþægindum sem fylgja þurrum höndum.Maskinn hefur langvarandi áhrif og verndar hendur gegn þurrki og viðheldur sterkari og heilbrigðari nöglum með reglulegri noktun. -
Djúpvirkandi og einstaklega nærandi formúla sléttir varinar, losar um herping og fyllir uppí fínar línur af völdum þurrks ásamt því að gefa aukna fyllingu “plump”. Dásamleg næturmeðferð fyrir mjúkar varir en hentar einnig vel sem varanæring yfir daginn fyrir þurrar varir og er einnig frábær primer undir varaliti. Varinar fá samstundis fylltara yfirbragð og frísklegri litatón með mildri glansáferð. Lip Mask inniheldur blöndu af hágæða náttúrulegum innihaldsefnum eins og sólkjarna- og hörfræjarolíu með ríkulegu magni af Omega 3 og 6 fitusýrum sem gefa einstaka næringu og verja varnar fyrir þurrk. Maskinn inniheldur einnig plöntuþykkni (Paracress Extract) unnið úr jurt sem heitir Spilanthes Acmella sem er vel þekkt fyrir einstaka eiginlega á húðina gegn svipbrigðalínum (hrukkum) og er gjarnan kölluð “Botox” Jurtin þar sem hún slakar á spennu og herping í húðinni og hefur einstaklega sléttandi áhrif. Fyrir hámarksárángur yfir nóttina er mikilvægt að bera maskann vel útfyrir varinar, og alveg yfir efri vörina ef það er mikill þurrkur eða línur byrjaðar að myndast í húðinni. Þannig nær maskinn hámarksvirkni og varinar fá aukna fyllingu þar sem allur herpingur hefur slaknað og djúpnærandi innihaldsefnin fylla uppí varinar sem verða silkimjúkar. -
Nærandi og verndandi handáburður fyrir hendur og naglabönd. Dásamlega mjúkur handáburður sem byggir upp varnarlag og mýkir upp þurrar hendur og naglabönd með græðandi eiginleikum. Smýgur fljótt niður í húðina og er alveg smitfrír þannig hendunar haldast mjúkar og mattar viðkomu og smita ekki útfrá sér í fatnað, pappírsvinnu eða annað. Inniheldur næringarríka jurtablöndu sem dregur úr óþægindum vegna þurrks og græðir sár eða rifin naglabönd og hefur styrkjandi áhrif á neglunar. Mildur hlutlaus ilmur er af kreminu og hentar því vel fyrir alla markhópa. -
SPF 50 ANTI-AGEING SÓlARVÖRN FYRIR ANDLIT OG LÍKAMA Sólarvörn er eitt það mikilvægasta sem við getum notað til þess að vernda húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar, sólarskemmdum og ótímabærri öldrun húðarinnar hvort sem er á ströndinni, skíðaferðalögum, útiveru eða daglegu amstri og ætti að vera hluti af húðumhirðu allan ársins hring. High Protection Sun Care SPF 50 sameinar fullkomna blöndu af sólavörn og umönnun fyrir húðina í einni vöru. Létt en jafnframt áhrifarík formúla veitir húðinni hámarks vörn gegn UVA og UVB geislum með verndandi eiginleikum gegn sólarskemmdum, litabreytingum og ótímabærri öldrun húðarinnar. Hentar öllum húðgerðum fyrir hámarks vörn, þá sérstaklega viðkvæmum húðgerðum/eða þau svæði sem eiga það til að brenna í sólinni. Kremið er létt og smýgur fljótt niður í húðina og ásamt SPF vörninni inniheldur kremið einnig rakagefandi Hyaluronic Sýru sem nærir húðina, eykur rakamagn og viðheldur náttúrulegri fyllingu og þéttleika ásamt frumuverndandi Ectoin® sem er einstakt lífrænt efni sem hefur þann eiginleika að efla og styrkja náttúrulegar varnir húðfrumna innan frá gegn ytra áreiti eins og hita/kulda og UV geislum. Með því myndar húðin öflugri vörn gegn sólargeislum og minnkar líkunar á sólarskemmdum/litabreytingum síðar meir. *Vörn gegn UVA og UVB geislum *Fyrirbyggir sólarskemmdir af völdum sólbruna *Fyrirbyggir litabletti/breytingar af völdum sólargeisla *Hentar öllum húðgerðum, einnig veiðkvæmum *Létt formúla sem smýgur hratt niður í húðina *Rakagefandi formúla sem getur komið í staðinn fyrir dagkrem yfir sumartímann Noktun - Berið ríkulegt magn á húðina c.a. 30min áður en farið er í sólarljós, bætið á eftir þörfum yfir daginn til þess að viðhalda vörn sérstaklega eftir sundferðir eða hreyfingu þar sem er mikið svitnað.