• 3x2stk. í pakka
    Kælandi augnmaski tilbúin til noktunar, dregur samstundis úr þrota og bólgum og örvar sogæðahreinsun með mild örvandi áhrifum frá koffíni, með því minnkar blámi undir augunum og húðin verður bjartari.
    Maskinn hefur einstaklega sléttandi áhrif með virku Paracress extract sem hefur Botox lík áhrif á húðina en það slakar á herping í litlum vöðvum undir augunum og sléttir þannig úr húðinni með sýnilegum áhrifum sem fletur út fínar línur og minnkar umfang á djúpum línum/hrukkum, saman með löngum og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru sem fylla húðlögin af langavarandi raka og fyllingu. Maskanir eru úr 100% viscose fleece, biogradable efni með oeko-tex standard 100 sem brotnar niður án þess að valda skaða í náttúrunni.
  • Næringarríkt krem fyrir þurra húð, húð sem finnur vel fyrir þurrk og/eða herpingstilfinningu, húðin fær samstundis létti við fyrstu viðkomu og djúpvirkandi næringu með langvarandi eiginleikum. Hyaluron³ Replenish Cream er einnig frábær kostur sem næturkrem á móti léttara dagkremi. Húðin í andlitinu er fyrir stöðugum umhverfisáhrifum bæði frá geislum sólar, mengun, veðri og vind sem getur valdið ótímabærri öldrun, þurrki, viðkvæmni og öðrum óþægindum. Við getum auðveldlega varið húðina á líkamanum með fatnaði en viðkvæm húðin í andlitinu er yfirleitt berskjölduð og því ber að huga að öðrum ráðum. Hyaluron³ Replenish Cream er einstaklega næringarríkt og baðar húðina uppúr náttúrulegum gersemum á borð við hreina Avocado Olíu og Plöntuþykkni úr Hvítum Lúpínum verndar einnig frumunar fyrir skaðlegum áhrifum sindurefna og ótímabærri öldrun með andoxandi eiginleikum frá E-Vítamíni, samsetning þessa lykil efna sér um að veita húðinni djúpan raka, bæta starfsemi og þannig styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar bæði sem 24stunda- eða næturkrem eftir þörfum húðarinnar.
  • Rakagefandi gelkrem sérstaklega þróað fyrir rakaþurrar húðgerðir sem þurfa samstundis rakabúst! Frískandi gel formúlan smýgur hratt niður húðina og fyllir húðlögin samstundis af raka sem eykur fyllingu og dregur sýnilega úr fínum línum vegna yfirborðsþurrks og losar um herpingstilfinningu sem gefur húðinni samstundis frísklegra yfirbragð og líflegri litatón. Hydro Active Gel er samsett úr djúpnærandi virkum efnum sem eykur rakamagn hjá þurrum húðgerðum og viðheldur rakastigi í efri húðlögum og eykur þannig mýkt og náttúrlegan þéttleika húðarinnar.
  • Gefur eins og nafnið gefur til kynna “instant” lyftingu! Kælandi og frískandi húðdropar hlaðnir af hreinu sjávarkollageni sem gefur húðinni fyllingu og frísklegra yfirbragð á aðeins örfáum mínútum. Kollagenið smýgur hratt niður í neðstu húðlög í gelkenndri formúlu sem fyllir á og bindur sig við náttúrulegt kollagen húðarinnar. Kælandi gelið virkar einstaklega frískandi og húðin lifnar við á aðeins örskömmum tíma. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha) og Marine Collagen(Sjávarkollagen)
  • S.O.S viðgerðarmaski sem hefur eins og nafnið gefur til kynna samstundis kælandi áhrif, minnkar bólgu, roða og róar niður alla ertingu og hitatilfinningu í húðinni á sem skemmstum tíma sem mögulegt er! Eftir aðeins 5mín hefur dregið sýnilega úr roða og viðnám húðarinnar betrumbæst með Fucogel® sem hefur samstundis sefandi áhrif og kælir niður húðina. Næringarrík formúla smýgur hratt niður og hleður húðlögin af raka sem gefa henni aukna fyllingu og sléttari áferð og Skin Defense Complex+ styrkir viðkvæmt háræðanet húðarinnar með græðandi eiginleikum sem draga úr viðkvæmni. Hraðvirkandi og áhrifarík virkni gefa húðinni aukinn húðljóma og silkimjúka áferð
  • Stem Cell ampúlan frá Janssen er alveg einstök en hún inniheldur Epla-stofnfrumur úr sjaldgæfu svissnesku eplatré "Uttwiler Spätlauber" en þær líkjast og hafa sömu eiginleika og stofnfrumur manna. Húðin tekur vel á móti þessum merkilegu stofnfrumum og örvar sína eigin frumuskiptingu og framleiðir þar af leiðandi meira kollagen og eflir nýmyndun húðarinnar, húðin öðlast betri rakafyllingu og fær aukinn kraft og hægjir á náttúruleg öldrunarferli með hjálp frá Stem Cell Fluid. Árangurinn er aukin endurnýjun og bætt starfsemi húðar, sléttir úr fínum línum og grynnkar á hrukkum sannkallað orkuskot fyrir húðina! *Til gaman má geta þess að Svissneska Eplatréð "Uttwiler Spätlauber" er þekkt fyrir einstaklega stökk og bragðgóð epli sem þóttu haldast fersk mun lengur en önnur epli, vísindamönnum þótti þetta afar merkilegt og hófu rannsóknarvinnu og fundu út þessi einstöku tengsl og miklu virkni á húð manna.
  • Frábært 24-stunda krem fyrir viðkvæmar og/eða þurrar húðgerðir þar sem herpingstilfinning og pirringur í húðinni hverfur samstundis með kælandi og frísklegum áhrifum um leið og kremið er borið á. Rakamikið og djúpnærandi krem með Skin Defence Complex náttúrulegu plöntuþykkni sem styrkir varnarkerfi húðarinnar og verndar viðkvæmt háræðanetið fyrir utanaðkomandi áreiti. Kremið smýgur hratt niður á milli húðlaga og gefur einstaka mýkt og fyllingu án þess að yfirborð húðarinnar verði fitugt. Húðin fær hraustlegra yfirbragð og húðlitur verður jafnari, verndandi virkni og alhliða betrumbætandi áhrif á húðina.
  • Intense Calming Lotion er létt kremformúla fyrir viðkvæma húð, frábært fyrir yngri húðgerðir eða þá sem vilja léttari krem. Djúpvirkandi 24stunda formúla sem bæði verndar húðina á daginn og stuðlar að bættri endurnýjun á nóttunni. Fyrir enn betri virkni og árangur Intense Calming Lotion notið samhliða Intense Calming Serum.
  • Öflugt viðgerðar-serum fyrir viðkvæmar húðgerðir sem styrkir náttúrulegt varnarlag og kemur jafnvægi á húðina. Sérþróuð Skin Defence Complex+ formúla Janssen Cosmetics hefur breiðvirk græðandi áhrif t.d. á exem og ofnæmisgjarna húð, rósroða, háræðaslit og acne. Dregur úr hitatilfinningu, kláða, ertingu og minnkar sjáanlega roða og styrkir viðkvæmt háræðanet húðarinnar. Létt formúlan smýgur hratt niður í húðina eykur rakamagn og mýkt húðarinnar þannig að áferðin verður flauelsmjúk.
  • Djúphreinsandi maski með græðandi áhrifum fyrir olíukennda, bólugjarna og grófar húðgerðir með opnar/stórar húðholur. Maskinn inniheldur djúpvirkandi Equal-Refining Complex sem vinnur sérstaklega að því að minnka umfang á opnum/stórum húðholum og koma jafnvægji á framleiðslu fitukirtla húðarinnar, maskinn vinnur þannig úr neðri lögum húðarinnar við að jafna út umfram fituframleiðslu og fyrirbyggir þannig stíflur í húðholum og bakteríusýkingar. Til stuðnings á yfirborðinu dregur Kaolin í sig alla umfram húðfitu og minnkar þannig verulega olíuglans og mattar yfirborð húðarinnar. Aloe Vera og Bisabolol minnka samstundis bólgur og roða í húðinni með græðandi áhrifum sem dregur úr ertingu, hita og óþægindi í húðinni. Húðin fær samstundis létti og öðlast auka birtu og frísklegra yfirbragð.
  • Orkugefandi kornakrem fyrir þurra, þreytta, líflausa og grófar húðgerðir. Hreinsar dauðar húðfrumur og óhreinindi af yfirborði húðar á árángursríkann hátt. Endurlífgar starfsemi húðarinnar og eykur blóðflæði með örvandi áhrifum, húðin verður flauelsmjúk og geislar af orku. Nuddið yfir andlitið með hringlaga hreyfingum þangað til kremið er orðið olíukennt. Helstu innihaldsefni : Fínmalaðir ferskjukjarnar, Makadamíuolía
  • Roll-On fyrir augun sem dregur samstundis úr þreytumerkjum með kælandi stálkúlu á endanum sem gefur raka og með koffíni sem frískar sýnilega uppá augnsvæðið!
    Með einstaklega sléttandi áhrifum og fyrirbyggir ótímabæra öldrun, hrukkur og línur í kringum augun.
    Samspil innihaldsefna m.a. koffín og sérþróuð anti-wrinkle peptíðblanda ásamt Silk Acacia þykkni draga sýnilega úr dökkum baugum og bólgum “puffiness” í kringum augnsvæði og vinna saman með einstökum áhrifum þegar formúlan er borin á með roll-on stálkúlu sem örvar sogæðahreinsun og veitir vellíðunar tilfinningu með kælandi áhrifum.
    Algjör draumur fyrir þreytt augu á morgnanna!
  • Light Mattifying Cream er létt 24-stunda krem fyrir olíukenndar húðgerðir, kremið stuðlar að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar og inniheldur Silica púður sem dregur samstundis í sig umfram húðfitu á yfirborði húðarinnar og gefur henni matta og flauelsmjúka áferð. Kremið inniheldur djúpvirkandi Equal-Refining Complex sem vinnur sérstaklega að því að minnka umfang á opnum/stórum húðholum og koma jafnvægji á framleiðslu fitukirtla húðarinnar, kremið vinnur þannig úr neðri lögum húðarinnar við að jafna út umfram fituframleiðslu og fyrirbyggir þannig stíflur í húðholum og bakteríusýkingar með sjáanlegum árángri en rannsóknir hafa sýnt stórar/opnar húðholur dragast saman um allt að 16% á aðeins 28 dögum. Létt formúlan smýgur fljótt niður húðina með kælandi og sefandi áhrifum frá hreinu Aloe Vera og fyllir húðlögin af dásamlegum raka með löngum og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru sem tryggir hámarks rakagjöf og fyllir uppí fínar línur af völdum rakaþurrks og eykur mýkt húðarinnar.
  • Light Tightening Cream frá Janssen Cosmetics er fullkomiđ krem fyrir húđ sem þarf djúpa næringu međ uppbyggjandi áhrifum án þess ađ ofmetta húđina eða gefa olíuglans. •Létt en jafnframt orkumikið krem fyrir húð sem vantar aukna orku og þéttleika hentar fullkomnlega húðgerðum sem eru farna að missa teygjanleika og vantar líflegri húðlit og orku án þess að gefa húðinni glans eða olíkennda áferð. •Létt formúlan gefur samstundis frísklegri húðlit með mild örvandi áhrifum. Inniheldur Vitality-Equalizer sem er líftækni formúla og samanstendur af Euglena gracilis einfruma sjávarþara sem virkjar frumustarfsemi húðarinnar og örvar losun kalsíums og eykur þannig orkubúskap húðarinnar og endurheimtir þéttleika og unglegra yfirbragð. Vísindalegar rannsóknir sýna fram á að eftir aðeins 1 mánuð hefur húðin öðlast 4 sinnum betri teygjanleika og 3 sinnum meiri þéttleika. Kremið inniheldur einnig rakagefandi Aloe Vera og Bisabolol sem saman draga úr allri húðertingu, roða og bólgum í húðinni með mattandi Silica púðri sem dregur í sig allra umfram húðfitu þannig húðin helst mött og þurr viðkomu.
  • Alkahól frír svitalyktareyðir með langvarandi áhrifum. Kemur í þægilegu stifti sem rennur mjúklega yfir handakrikann án þess að valda ertingu eða óþægindum í húðinni með mildum og léttum herrailm. Inniheldur sérvalin plöntuþykkni sem hafa þau áhrif að eyða svitalykt og sporna gegn fyrir að svitalykt myndist með langvarandi eiginleikum.  
  • LONGEVITY CARE Cream er hágæða dag- og næturkrem sem hjálpar húðinni að viðhalda styrk sínum, mýkt og náttúrulegum ljóma með tímanum. Silkimjúk áferðin fellur vel að húðinni og veitir henni ríkulega, endurnýjandi og verndandi umhirðu án þess að virka þung. Í hjarta formúlunnar eru Clotho, ashwagandha-rótarþykkni og resveratrol sem styðja við endurnýjun húðarinnar, styrkja varnarhjúp hennar og vernda gegn daglegu umhverfisálagi. Natural Contour Lifting úr stráblómi og Majestic Beauty, frumuræktarþykkni úr edelweiss, styðja við þéttari húð og betur mótaðar andlitslínur. Samsetning hýalúrónsýru í mismunandi sameindastærðum og rakagefandi sykrusambanda veitir húðinni mikinn og langvarandi raka. Húðin verður mýkri, sléttari og fyllri, með ferskara og ljómandi yfirbragði dag frá degi. Helstu eiginleikar
    • Styður við langlífi og endurnýjun húðfrumna
    • Styrkir varnarhjúp og mótstöðukraft húðarinnar
    • Veitir mikinn og langvarandi raka
    • Styður við aukinn þéttleika og betur mótaðar andlitslínur
    • Mýkir og sléttir yfirborð húðarinnar
    • Eykur náttúrulegan ljóma
    Hentar húð sem sýnir öldrunareinkenni, skort á þéttleika, raka eða ljóma og öllum sem vilja styðja við heilbrigði og lífskraft húðarinnar til lengri tíma. Berið á hreina húð að morgni og kvöldi eftir serum og augnkrem.
  • Húðin í kringum augun er fíngerð og viðkvæm og þarfnast markvissrar umhirðu. LONGEVITY CARE Eye Cream endurlífgar augnsvæðið, styrkir húðina og veitir henni raka án þess að íþyngja henni. Silkimjúk áferðin fellur létt að húðinni og skilur hana eftir einstaklega mjúka og slétta. Samsetning ashwagandha-rótarþykknis, Majestic Beauty, Clotho og resveratrols vinnur markvisst að því að varðveita unglegt útlit augnsvæðisins. Eye Beautifier, líftæknilega unnið þykkni úr sjávarörverunni E. crustaceum, hjálpar til við að draga úr dökkum baugum, en Majestic Beauty stinnir húðina og dregur úr ásýnd hrukka í kringum augun. Við reglulega notkun verður augnsvæðið sléttara, ferskara og ljómandi og þreytumerki verða minna áberandi. Helstu eiginleikar
    • Dregur úr ásýnd hrukka í kringum augun
    • Hjálpar til við að draga úr dökkum baugum
    • Dregur úr þrota og þreytumerkjum
    • Veitir mikinn og langvarandi raka
    • Styrkir viðkvæma húð augnsvæðisins
    • Gefur sléttara og bjartara yfirbragð
    Hentar öllum húðgerðum og sérstaklega augnsvæði sem sýnir þurrk, þreytumerki, dökka bauga, þrota eða fínar línur. Berið lítið magn á hreint augnsvæðið að morgni og kvöldi og nuddið mjúklega inn í húðina.
  • LONGEVITY CARE Serum leggur grunninn að allri Longevity Care húðumhirðunni. Háþróuð samsetning þess vinnur markvisst að þeim líffræðilegu ferlum sem hafa áhrif á öldrun húðarinnar og hjálpar henni að endurheimta lífskraft, styrk og ferskara yfirbragð. Clotho, ashwagandha-rótarþykkni og Evergreen styðja við náttúrulega endurnýjun húðarinnar, styrkja varnarhjúp hennar og auka mótstöðukraft gegn daglegu álagi og umhverfisáhrifum. Rakagefandi efni sem líkjast náttúrulegum rakabindandi efnum húðarinnar veita mikinn og langvarandi raka, slétta áferð hennar og draga úr ásýnd fínna lína. Létt serumið smýgur hratt inn í húðina og undirbýr hana fyrir umhirðuna sem á eftir fylgir. Húðin virðist strax fyllri, ferskari og ljómandi en með reglulegri notkun styrkist varnarhjúpur hennar og stinnleiki, lífskraftur og viðnámsþróttur aukast. Helstu eiginleikar
    • Styður við langlífi og endurnýjun húðfrumna
    • Styrkir varnarhjúp húðarinnar
    • Dregur úr áhrifum daglegs umhverfisálags
    • Veitir mikinn og langvarandi raka
    • Sléttir áferð og dregur úr ásýnd fínna lína
    • Eykur lífskraft og ljóma
    Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega húð sem er þreytt, rakaþurr eða hefur misst styrk, fyllingu og ljóma. Berið á hreina húð að morgni og/eða kvöldi. Berið síðan á augnkrem og andlitskrem. Einnig má nota serumið sem kúrameðferð þegar húðin þarfnast aukins lífskrafts og ferskleika.
  • Lúxús Olíuhreinsir úr 100% náttúrulegum olíum með muldum gullflögum sem fær húðina til ađ glòa! Fullkominn fyrir þurrar húðgerðir sem vantar, næringu og auka orkuljóma. Hreinsar vandlega yfirborð húðarinnar og olíunar næra og mýkja upp húðina, má einnig nota á augnsvæði. Hreinsar vatnsheldan farða og maskara án vandræða og nærir húðina með ríkulegu magni af omega 3 og 6 fitusýrum og steinefnaríkum gullflögum sem fær húðina til að glóa. Innih. • Gold of Pleasure Oil: (INCI: Camelina Sativa Oil)
  • Magic Glow Serum gefur húðinni þetta “highlight” áhrif á náttúrulegan hátt án farða! Einstök rakagefandi formúla með næringarríkum þara úr Indverska hafinu sem hefur sannað 28% aukningu á ljóma húðarinnar á 28 dögum með aukinni rakafyllingu og þéttleika. Rakagefandi Hyaluronic Sýra og Soft Focus Pigments hylja fínar línur og fylla á rakabirgðir húðarinnar með “highlight” áhrifum þegar birtan glampar á húðina. Hentar fullkomnlega undir farða eða annað krem eða eitt og sér fyrir ljómandi húð. Pro Tip! Fyrir enn meiri ljómaáhrif notið undir Sensational Glow Cream
  • Þéttandi og lyftandi 24.stunda krem með sjávarkollageni og kollagen-booster sem vinnur gegn kollagen niðurbroti húðarinnar og eykur þéttleika með lyftandi áhrifum. Húðin fær samstundis aukna rakafyllingu (“plump”) og verður þéttari viðkomu þar sem virk innihaldsefni binda raka í efstu húðlögunum og mynda ósýnilega varnarfilmu sem fyllir uppí fínar línur vegna rakaþurrks með sléttandi áhrifum á yfirborð húðarinnar. Með reglulegri noktun getur húðin þrefaldað náttúrulegar kollagen birgðir sínar, sem eykur styrkleika, hald og lyftingu í húð sem er byrjuð að missa teygjanleika, varðveitir rakafyllingu og gefur húðinni ferskara og líflegra yfirbragð.  
  • Marine Collagen Fluid fyrir þéttari og frísklegri húð. Inniheldur hátt hlutfall af hreinu sjávarkollageni, löngum- og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru ásamt granateplaþykkni. ACTIVATE Marine Collagen ampúlunar gefa húðinni samstundis aukinn þéttleika með langvarandi eiginleikum þar sem kollagenþræðir húðarinnar taka vel á móti aðstoð og utanaðkomandi styrk frá sjávarkollageni ampúlunnar. Hyaluronic sýran sér um að gefa húðinni aukinn raka og passar uppá að virk efni nái á áfángastað niður neðstu húðlögin. Að auki fær húðin frísklegra yfirbragð og litarhaft húðarinnar verður líflegra með öflugri andoxun frá hreinni ofurfæðu fyrir húðina úr grantateplunum.
  • Sale!

    Marine Collagen Selection

    Original price was: 14.900 kr..Current price is: 11.900 kr..

    Hreinn lúxús með dýrmætu kollageni í glæsilegri gjafaöskju fyrir jólin!

    Öflug innihaldsefni í hámarksgæðum! Árangursríkt húðumhirðu tvíeyki með Marine Collagen Fluid og lúxus Marine Collagen Cream sem byggir á sjávar­kollageni, hýalúrónsýru og granatepla extract.

    Með reglulegri noktun getur húðin þrefaldað náttúrulegar kollagen birgðir sínar, sem eykur styrkleika, hald og lyftingu í húð sem er byrjuð að missa teygjanleika, varðveitir rakafyllingu og gefur húðinni ferskara og líflegra yfirbragð.

    Húðin fær aukna rakafyllingu og sléttara yfirbragð, aukinn þéttleika og dásamlegan ljóma!

    Inniheldur 1x Marine Collagen Cream 50ml & 7stk ACTIVATE Marine Collagen Fluid Ampúlur Hentar þurrum/rakaþurrum húðgerðum sem vantar aukinn þéttleika og fyllingu með lyftandi áhrifum og líflegum húðljóma. Fullkomið krem yfir veturinn!
  • Fíngert hreinsi-púður með hreinu C-Vítamini fyrir bjartari og þéttari húð. Einfalt í noktun, blandar dásamlega hreinsifroðu á örfáum sek í lófunum! Helltu c.a. 1/2 tsk af púðrinu í lófann og blandaðu með örlitlu vatni, gott er að nota fingurna til þess að dropa hreinu vatni yfir púðrið og blandaðu svo saman með báðum lófum í létta kremkennda froðu. Hreinsar farða og önnur óhreinindi af yfirborði húðarinnar með skilvirkum hætti auk þess sem virkni af hreinu C-Vitamini eykur birtu, ljóma og stuðlar að auknum þéttleika húðvefja. Fyrir enn léttari froðu mælum við með að nota pensil og Melafadin Toner til blöndunar og þeyta upp létta froðu.
Go to Top