-
Fallegt gjafasett úr Platinum vörulínu Janssen Cosmetics á einstöku gjafatilboði! Inniheldur hágæða Platinum Eye Care 15ml og 7stk Brilliance Shine Elixir ampúlur. Inniheldur sérþróaða Platinum MP Complex formúlu með peptíðblöndu sem fyllir uppí línur með einstakri virkni og hindrar niðurbrot kollagenþráða, verndar og hægir á öldrunarferli húðarinnar. Einstök virkni þar sem árángurinn er sléttari áferð í kringum augun og bjartara yfirbragð með auknum þéttleika. -
PREMIUM ANTI-AGING NIGHT CREAM Náttúrulegt nýmyndunar og viðgerðarferli húðarinnar nær hámarksvirkni í hvíld yfir nóttina, með Platinum Night Care fær húðin hágæða lúxús umönnun og virkni sem hámarkar starfsemi húðfrumna og styrkir húðina allt á meðan þú sefur. Byltingakennd Platinum-MP-Complex formúla fyllir uppí línur og ójöfnur, bætir áferð, þéttir og styrkir húðvefi frá neðri húðlögum sem gefur húðinni samstundis hraustlegra og unglegra yfirbragð. Kremið inniheldur MatrixylTM Synthe‘6 TM Petíð formúlu ásamt plöntuþykkni unnið úr persnesku silkitré sem saman vernda, gera við og fylla uppí skemmda/brotna kollegenþræði auk þess að strykja náttúrulegt afeitrunarkerfi húðarinnar. Dásamleg næring úr náttúrulegu Shea- og Mango Butter ásamt Macadamiu Olíu sjá til þess að fylla húðlögin með ríkulegu magni af raka og næringu, styrkja náttúrulegt varnarlag og gefa húðinni silkimjúka áferð og geislandi ljóma. Vísindalega sönnuð virkni þar sem hægt er á öldrunarferli húðarinnar með sýnilegum árángri, fínar línur, hrukkur og svipbrigðalínur minnka, húðin endurheimtir þéttleika, fær aukna lyftingu og styrk. Fölt yfirbragð og þreytumerki verða samstundis minni með frísklegum áhrifum þar sem húðin víbrar af orku og fær einstakann ljóma. Enn betri virkni og árángur næst samhliða öðrum vörum úr Platinum línu Janssen Cosmetics. Inniheldur: • Platinum-MP-Complex: • Colloidal platinum: Makes the skin feel noticeably better straight away • Matrixyl™ Synthe‘6™ (palmitoyl tripeptide-38): Highly-effective anti-wrinkle active ingredient, smoothes lines and wrinkles • Silk acacia extract: Extract from the bark of the Persian silk acacia (Albizia julibrissin), helps against signs of skin fatigue (e.g. dull complexion, haggard facial skin) • Lipid complex: A rich lipid complex of premium shea and mango butter and caring macadamia nut oil creates a gentle, caring protective layer and supports the barrier function of the epidermal horny layer • Vitamin E acetate: Is converted to free vitamin E in the skin and neutralises damaging free radicals • Short and long chain hyaluronic acid: Provides intense moisture -
Pro Glow Selection – 7 daga ampúlukúr Ljómagefandi ampúlukúr sem veitir húðinni samstundis ferskara, jafnara og geislandi yfirbragð. Pro Glow Selection er sérvalin ampúlupakki sem sameinar þrjár öflugar ampúlur í 7 daga kúr fyrir húð sem vantar aukinn ljóma, rakafyllingu og frísklegra yfirbragð. Kúrinn er hannaður til að auka ljóma og útgeislun húðarinnar með sýnilegum árangri, draga úr þreytumerkjum og gefa húðinni sléttara, stinnara og unglegra útlit. Í pakkanum eru 2 x Brilliance Shine Elixir, 2 x Marine Collagen Fluid og 3 x Radiant Skin Fluid. -
Pro-Youth 7 daga ampúlukúr frá Janssen Cosmetics er háþróaður 7 daga meðferðarpakki með sérvöldum ampúlum sem auka endurnýjun húðar, styrkja húðvefi og gefa húðinni frísklegan ljóma allt frá fyrsta degi. Hver dagur meðferðarinnar inniheldur sértæka ampúlu með virkum innihaldsefnum sem vinna frá neðstu húðlögum að því að bæta áferð húðarinnar, auka rakafyllingu og draga úr þreytu og öldrunarmerkjum. -
Pro-Lift Cream er öflugt djúpnærandi og endurnýjandi krem sem inniheldur þykkni úr „ofurávöxtum“ eins og trönuberjum og rambútanlaufum sem stuðla að endurnýjun húðarinnar og draga úr fyrstu línum og hrukkum. Kremið þéttir og bætir teygjanleika húðarinnar með lyftandi áhrifum sem gerir hana unglegri og frísklegri. Streita, svefnleysi og skaðleg umhverfisáhrif setja mark sitt á andlitið, en þetta er hægt að minnka sýnilega með reglulegri umönnun. Þetta ríkulega og silkimjúka krem smýgur auðveldlega inn í húðina og færir henni mýkra og jafnara yfirlag með auknum þéttleika og lyftingu. Frábært alhliða 24.stunda krem, parast einnig fullkomnlega við Vitalizing Skin Refiner sem léttari kost á móti hvort sem er fyrir dag eða næturumhirðu. -
Serum með djúphreinsandi áhrifum, inniheldur BHA Salicylic sýru sem leysir upp og fjarlægir dauðar húðfumur af yfirborði húðarinnar og opnar þannig fyrir stíflaðar húðholur og losar upp safnaða húðfitu, fílapensla og önnur óhreinindi með bakteríudrepandi eiginleikum. Equal-Refining Complex stuðlar að auknu jafnvægi framleiðslu fitukirtla og dregur úr olíuglans á yfirborði húðarinnar á meðan Hyaluronic sýra veitir nauðsynlega rakagjöf sem eykur heilbrigði og náttúrulega endurnýjun húðarinnar. Frábær meðferð fyrir staðbundin svæði eins og T-svæði eða sem blettameðferð á einstaka svæði fyrir áhrifamikla hreinsun og sem fyrirbyggjandi meðferð gegn stíflum og bólumyndun. Berið serumið á þau svæði sem á að meðhöndla og leyfið að síast niður í húðina og setið svo viðeigandi krem yfir. -
Hreinsigel fyrir olíukenndar húðgerðir með tvíþættri virkni. Frískandi gelið leysir upp óhreinindi og umframhúðfitu af yfirborði húðarinnar og veitir ásamt því að varðveita rakamagn hennar með Panthenol:Provitamin B5 sem hefur einnig verndandi og sefandi áhrif á roða og bólgur í húð. Gelið hefur mildan en frísklegan ilm og gefur húðinni matta og fallega áferð. -
Alkahól-frítt andlitsvatn sem fullkomnar hreinsun húðar, dregur úr olíuglans með mattandi eiginleikum og hefur einnig samherpandi áhrif á opnar/stórar húðholur sem dregur úr stíflumyndun. Inniheldur Equal Refining Complex sem stuðlar að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar með einstaklega samherpandi áhrifum á opnar/stórar húðholur. Með reglulegri noktun dragast opnar húðholur saman með sjáanlegum árángri og yfirborð húðarinnar verður sléttara. Fullkomið par með Purifying Cleansing Gel fyrir olíkenndar og grófar húðgerðir. -
Gelkennd raksápa og hreinsir í einni vöru með frísklegum herrailm, hentar öllum húðgerðum einnig viðkvæmum. Einstaklega handægt og drjúgt hreinsigel sem breytist í kremkennda froðu þegar það er blandað með volgu vatni. Kemur í veg fyrir roða og ertingu af völdum raksturs, hreinsar og mattar yfirborð húðarinnar ásamt því að gefa góðan raka og frísklegra yfirbragð. -
Milt og rakagefandi andlitsvatn, alkahólfrítt Mild en áhrifarík alkahól frí formúla sem fullkomnar hreinsun húðarinnar, fjarlægir síðustu leifar af hreinsimjólk eða óhreinindum sem kann að hafa sest í húðholur og er lýkur þannig við hreinsun húðarinnar. Radiant Firming Tonic jafnar pH gildi húðarinnar og eykur innsíunarhæfileika og virkni á vörum sem á eftir koma. Inniheldur leysanlegt kollagen sem eykur rakamagn húðarinnar með þéttandi eiginleikum. Hentar einnig sem frískandi meðferð til að fjarlægja umfram fitu og óhreinindi af húð sem er án farða til að auka ferskleika og gefa húðinni matta og mjúka áferð. Noktun: Með bómullarskífu, strjúkið með mjúkum hreyfingum yfir andlit og háls. -
Refining Retinol Fluid hefur öfluga virkni á áferð húðarinnar með oleanolic acid sem hreinsar opnar/stórar húðholur og jafnar fituframleiðslu húðarinnar þannig húðholur dragast saman með sýnilegum áhrifum ásamt Enanta chlorantha með hinu kröftuga Retinoli sem vinnur gegn öldrun húðarinnar, örvar kollagen framleiðslu og eykur birtu og ljóma húðarinnar. -
Rakagefandi andlitssprey með Skin Wall Care Complex, aloe vera og guarana sem eykur rakastig húðarinnar samstundis og veitir henni dásamlega frískandi tilfinningu með styrkjandi eiginleikum fyrir varnarhjúp húðarinnar. Fíngerður úðinn umlykur húðina með léttu verndarlagi sem gerir hana fallega ferska, vel nærða og náttúrulega ljómandi. Þökk sé upplífgandi ilmi af eucalyptus, myntu og grænum telaufum veitir Refreshing Face Mist þér aukinn ferskleika hvenær og hvar sem er – tilvalið þegar þú ert á ferðinni. REFRESHING FACE MIST má nota bæði undir og yfir farða. – Þegar það er notað undir farða gefur það raka, verndar og sefar húðina. – Þegar það er notað yfir farða hjálpar það til við að festa förðunina og gefur fallega, ferska og ljómandi áferð. -
Regulating Retinol Cream er djúpvirkandi 24-stunda krem fyrir grófar og þykkar húðgerðir sem og eldri húðgerðir sem þurfa kröftuga endurnýjun, næringu og orku. Kremið hefur áhrifamikla virkni og hraðar öllu endurnýjunarferli húðarinnar með djúpnærandi eiginleikum, dregur saman og minnkar stórar/opnar húðholur og fyllir uppí fínar línur með sléttandi áhrifum á yfirborð húðarinnar. Inniheldur hjúpað Retinol sem helst stöðugt á ferð sinni niður húðlögin og tryggir þannig hámarksupptöku og virkni í neðstu húðlögum, Equal-Refining Complex sem dregur úr olíuglans og hefur samherpandi áhrif á stórar/opnar húðholur, rakagefandi Hyaluronic sýru og nærandi Shea butter sem eykur mýkt og fyllingu húðarinnar. Með aukinni nýmyndun öðlast húðin aukna orku og hreinleika sem eykur bæði birtu og náttúrulegan húðljóma, yfirborð húðarinnar þéttist eftir því sem húðholur og fínar línur dragast saman og náttúruleg kollagenframleiðsla eykst sem gefur húðinni aukna fyllingu og mýkt. -
Rejuvenating Mask gefur hámarks virkni á djúpnærandi innihaldsefnum sem endurlífga húðina, auka styrk með lyftandi áhrifum á slaka húðvefi. Sannkölluð orkubomba fyrir eldri, þreytta og húð sem vantar aukna orku og ljóma. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha), Sensitive Complex, Makadamíu olía, Cupuacu Butter, Bisabolol(Kamillujurt) og E - Vítamín. -
Bi-Phase Skin Recovery ampúlan er djúpnærandi 2-fasa ampúla sem tryggir húðinni einstaka næringu og rakagjöf með tvíþættri virkni olíufasa og rakafasa. Olíufasi ampúlunnar er úr vönduðum blóma- og plöntuolíum og rakafasi ampúlunnar samanstendur af hýalúrónsýru og endurnýjandi runnasmárakjarna fyrir geislandi yfirbragð og endurnærða húð eftir hverja noktun. -
Öflug kvöld-húðrútína fyrir aukna endurnýjun og lyftingu í glæsilegu gjafasetti. Evening Beauty Edition frá JANSSEN COSMETICS sameinar hið vinsæla Retinol Lift Serum og Lift Contour Cream Mask í vönduðu gjafasetti á sérstöku jólatilboði. Öflug tvenna þar sem retínól og peptíð vinna saman að aukinni endurnýjun húðarinnar, sléttari yfirborðsáferð og bættum þéttleika með lyftandi áhrifum og sýnilegum árángri. Sérstaða Evening Beauty Edition gjafasettsins felst ekki síst í Lift Contour Cream Mask, sem er alla jafna eingöngu notaður í fagmeðferðum á snyrtistofum. Í þessari jólaútgáfu fæst maskinn í 30 ml stærð til notkunar heimafyrir, ásamt Retinol Lift seruminu. Lúxusgjöf fyrir húðvöruunnendur og freistandi tækifæri til að njóta sérhæfðrar húðmeðferðar heima! -
Retinol Lift Serum er áhrifaríkt serum með margþætta eiginleika fyrir húðina þar sem hið margrómaða Retinol spilar lykilhlutverk. Retinol er eitt mest rannsakaða efni í heimi snyrtivara og klíniskar rannsóknir sanna það að Retinol er eitt það öflugasta efni sem hægt er að fá í húðsnyrtivörum sem hægir á öldrunarferli húðarinnar með sjánlegum árángri. Með aldrinum þá hægist á frumuendurnýjun húðarinnar og fínar línur, misfellur og litabreytingar fara gera vart um sig á yfirborði húðarinnar og með tímanum slaknar á teygjanleika og húðin verður slappari því kollagen framleiðsla fer minnkandi, þarna kemur Retinol sterkt inn og skerst í leikinn og hraðar endurnýjunarferlinu á nýjan leik og örvar nýmyndun kollagens og viðheldur þannig þéttleika og eykur lyftingu í húðvefum sem eru byrjaðir að slakna. Með aukinni endurnýjun eykst náttúruleg húðflögnun og yfirborð húðarinnar verður sléttara þar sem fínar línur vegna þurrks hverfa og svipbrigðalínur grynnka, litamisfellur verða minna áberandi og húðin fær bjartara yfirbragð og frísklegan ljóma. Retinol stuðlar einnig að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar dregur þannig úr fílapensla myndun og dregur saman stórar húðholur. -
Orkumikill maski fyrir húð sem hefur verið undir miklu álagi og er þreytuleg og slöpp.Maskinn inniheldur A og E vitamin ásamt Provitamin B5 og er sannkölluð vitaminbomba fyrir húðina, veitir samstundis orku og ferskleika. A-Vítamin eykur endurnýjun og sléttir húðina, E-Vítamin er sérlega andoxandi og viðheldur æskuljóma og B Vítamin sem hefur róandi og nærandi eiginleika.Látið maskann liggja á í 20 - 40 min veitir einstaka lyftingu og fyllingu eftir aðeins eitt skipti! -
Eftir því sem húðin eldist verður hún þynnri, missir fyllingu og húðvefir slakna. Til þess að viðhalda náttúrulegri starfsemi og spyrna aðeins við þessu ferli er mikilvægt að velja vörur með djúpvirkandi næringu og nauðsynlegum fitusýrum sem viðhalda og auka náttúrulega fyllingu húðarinnar. Samspil virkra efna í Rich Recovery Cream gera akkurat það, ríkulega hlaðið af Omega fitusýrum, A- Vitamíni, Kombucha, Isoflavoníða og Hyaluronic Sýru sem örva náttúrulega endurnýjun húðarinnar og byggja upp sterkari húðvefi með auknum þéttleika og lyftingu. Kremið er ríkt af nærandi Shea Butter, Squalene og Makadamíu Olíu sem fylla húðina af djúpvirkandi næringu og veita einstaka fyllingu og auka mýkt húðarinnar. Vegna sérstakar blöndunar á Rich Recovery Cream “water-in-oil þeyta” myndast varnarfilma í efstu húðlögunum sem veita vörn gegn ytra áreiti og hentar því fullkomnlega sem kuldakrem yfir vetratímann. Rich Recovery Cream er hefur sömu virkni og Perfect Lift Cream í Mature Skin nema er næringarríkara og því frábær kostur fyrir fituþurra húð eða sem næturkrem á móti Perfect Lift Cream. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha), Vitamin A – Palmitate, Shea Butter, Squalene, Makadamía Olía -
Sensational Glow Cream 24 stunda rakakrem fyrir sléttari húð og ferskan, náttúrulegan ljóma. Ferskleiki sem sést strax. Sensational Glow Cream gefur daufri húð ljómandi yfirbragð með Soft Focus Pigments sem endurkasta ljósi og gera fínar línur og ójöfnur minna áberandi. Létt áferðin smýgur fljótt inn í húðina og skapar sléttan grunn undir farða. Þrjú af vinsælustu kremunum frá Janssen Cosmetics koma í fallegri jólaútgáfu og á sérstöku tilboði núna fyrir jólin. Hvert um sig býður upp á einstaka húðumhirðu í 20 ml ferðastærð. -
Gefðu húðinni ljóma sem sést strax. Sensational Glow Cream er virkt 24 stunda rakakrem sem lífgar samstundis upp á þreytta húð, veitir djúpvirkandi raka og gerir fínar línur minna áberandi. Húðin fær ferskt, slétt og ljómandi yfirbragð og með reglulegri notkun verður áferð hennar jafnari.
Meira en fallegur ljómi Sérstaða Sensational Glow Cream felst í samspili rakagjafar, virkra innihaldsefna og ljósendurkastandi Soft Focus Pigments. Þau fylla upp í og mýkja sýnilega fínar línur og ójöfnur svo húðin virðist strax sléttari og frísklegri. Húðin fær sýnilega sléttari áferð og fallegan húðljóma sem glampar án þess að virka olíukennd, kremið er fallegt eitt og sér en hentar einnig vel undir farða. Hyaluronsýra með löngum og stuttum keðjum bindur raka og gefur húðinni meiri fyllingu. Saccharide Isomerate hjálpar henni að halda rakanum, svo hún helst mjúk og rakafyllt lengur. Þessi samsetning nýtur sín sérstaklega vel þegar húðin er rakaþurr og virðist líflaus. Við reglulega notkun styður Bacillus Ferment úr sjávarþörungum við aukinn ljóma og bætt rakastig húðarinnar. Equal-Refining Complex dregur úr olíuglansi og gerir húðholur minna áberandi. Þannig fær húðin jafnari áferð og náttúrulegur ljómi hennar nýtur sín betur. Níasínamíð og sheasmjör styrkja varnarhjúp húðarinnar, á meðan aloe vera og allantóín veita raka og róandi áhrif. Létt og mjúk áferðin gerir kremið að ánægjulegum hluta af daglegri húðrútínu. -
Skin Contour Cream er sérhannað til þess að endurbyggja stinnleika húðarinnar og lyfta slökum húðvefjum frá neðstu húðlögum með einstakri formúlu! Kremið er einstaklega næringarríkt og rakamikið og vætir uppí húðlögunum eins og þegar þurr svampur er bleyttur í vatni. Sama og með svampinn þenst húðin út og húðrumunar fá aukinn kraft til endurnýjunar. A – Vítamin, Elastin örvandi peptíð og Japanskt Silki mynda auka styrk og endurnýja stinnleika húðarinnar og gefa henni hreinna og unglegra yfirbragð. Inniheldur að auki E vitamin, Macadamiu Olíu og SORR plöntuþykkni. Inniheldur:- ESP:Elastin-örvandi peptid; örva myndun elastins í bandvef húðarinnar, styrkja þannig uppbyggingu og lyfta upp húðvefjum.
- Plant extract SORR:Einstaklega virkt plöntu-þykkni unnið úr Siegesbeckia orientalis og Rabdosia rubescens; dregur úr roða og ertingu í húð ásamt því að vera einstaklega andoxandi, jafnar þannig húðlit og eykur útgeislun.
- Long- and short-chain hyaluronic acid:Langar og stuttar keðjur Hyaluronic sýrunnar veita einstakann raka og binda jafnframt raka í húðinni og halda henni vel fylltri.
- Genuine Japanese silk: Samlagast húðinni fullkomnlega, ver hana fyrir rakatapi, gefur húðinni einstaka mýkt og silkiáferð
- Macadamia nut oil:Er mýkjandi og nærandi, makadamíu olía inniheldur palmitoleic sýru sem eykur innsíun húðarinnar og greiðir farveg fyrir næringu úr olíunni niður í neðstu lög húðarinnar.
- Isostearyl-isostearate:Skammstafað ISIS; unnið úr raw plöntuefnum bætir samheldni lípiða í hornlagi húðarinnar og hindrar rakatap.
- Vitamin A palmitate:Örvar endurnýjun húðarinnar og bætir áferð.
- Vitamin E acetate:Er eitt það öflugugasta andoxunarefni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar og veitir einstakan varnarhjúp utan um húðfrumunnar.
-
Öflugt djúphreinsigel með virkum Enzymes sem losa um og hreinsa burt dauðar húðfrumur á yfirborði húðarinnar á mildan en áhrifaríkan hátt. Með reglulegri noktun verður yfirborð húðarinnar sléttara og náttúruleg húðendurnýjun eykst sem styður við aukna frumustarfsemi og heilbrigðri húðarinnar. Inniheldur engar olíur eða stíflandi efni og er því afar hentugt sem undirbúningur fyrir virkar húðmeðferðir. Frábær kostur fyrir allar húðgerðir líka viðkvæma og acne húð. Helstu innihaldsefni : Subtilisin(enzim) Tip : Smyrjið þunnu lagi á húðina undir maska eða krem, enzímin greiða leiðina fyrir virk efni lengst niður húðlögin. -
Græðandi krem til noktunar sem heimameðferð fyrir húð sem hefur gengist undir kraftmiklar húðmeðferðir á borð við ávaxtasýrur, dermapen eða lazer þar sem yfirborð húðarinnar verður meira berskjaldað viðkvæmt. Kremið flýtir fyrir gróanda húðarinnar og dregur úr óþægindum svo sem þurrki/herping og hitatilfinningu með græðandi jurtablöndu sem samanstendur m.a. af Calendula Officinalis og Hestakastaníu sem styrkja háræðakerfið og draga sýnilega úr roða, minnka hitatilfinningu og ertingu í húðinni. Kremið inniheldur einnig bakteríuverndandi Farnesol sem veitir húðinni vörn á meðan hún byggir sig upp að nýju og er að jafna sig eftir meðferð með frumuendurnýjandi áhrifum.