- Styrkir og þéttir húðvefi með lyftandi eiginleikum fyrir háls og brinusvæði
- Eykur endurnýjunarferli húðarinnar, bætir húðlit og ljóma
- Kröftug endurnýjun og djúpvirkandi næring grynnkar á djúpum línum og viðheldur rakafyllingu húðarinnar með sléttari yfirborðsáferð
-
Háls-og bringusvæði er ekki síður mikilvægt í húðumhirðu þar sem húðin á þessum svæðum er oft berskjölduð fyrir sólarljósi, veðri og vind. Þyngdaraflið togar allt niður til sín og er húðin þar að engu undanskilin. Janssen Cosmetics hefur þróað einstaklega öfluga formúlu til þess að verjast þessum áhrifum og fyrirbyggja ótímabæra öldrun sem og viðhalda stinnleika og sléttri húð sérstaklega hannað fyrir háls- og bringusvæði. Kremið styrkir og þéttir húðvefi og hefur lyftandi áhrif, viðheldur unglegu útliti og veitir aukna fyllingu og raka einstaklega létt áferð og frískandi ilmur. -
Létt alhliða sólarvarnar-serum með SPF 30 og IR frumuvernd fyrir daglega noktun, hentar öllum húðgerðum. Svipað og útfjólubláir geislar valda innrauðir geislar sólarinnar einnig ótímabærri öldrun húðarinnar og geta leitt til óæskilegra húðskemmda síðar meir. Húðin í andlitinu er hvað mest berskjölduð fyrir geislum sólarinnar og er því ekki síður mikilvægt eins og að veita henni vörn gegn UVA og UVB geislum að tryggja húðinni þar einnig skilvirka hitavörn gegn IR geislum. -
Olìulaus augnfarðahreinsir með verndandi áhrifum.•Mýkjandi augnfarðahreinsir með pH gildi 7,2 sem hefur einstaka verndandi eiginleika fyrir þunna og viðkvæma húðina í kringum augun.•Kælandi gel-formúla leysir upp farða á árángursríkan hátt af augnsvæði án þess að hafa skaðleg eða þurrkandi áhrif á náttúruleg augnhár heldur gefur þeim aukna mýkt og raka.Noktun: Pumpið geli á bómullarskífu/mjúkan svamp og leggið yfir annað auga í einu, leyfið hreinsinum að virka í 10-20sek og nuddið varlega farðann af.Leyfið hreinsinum að liggja lengur eftir því hve mikill farði er á augnsvæði, mýkjandi efni í hreinsinum leysa farðann sjálfkrafa af og því óþarfi að nudda mikið eða erta húðina í kringum augun.- Virkar jafnvel á vatnsheldan farða.
- Má nota með augnháralengingu.
- Hentar einnig þeim sem nota linsur.
-
Melafadin Fluid er áhrifarík meðferð gegn litabreytingum á húðinni af völdum sólarskemmda, hormónabreytinga og ellibletta. Inniheldur kraftmikla blöndu af Vitamin-C, Lipoamino Acid og SORR-Plöntuþykkni sem vinna í sameiningu að því að hindra myndun og sundra upp dökku melanin litarefni húðarinnar og lýsa þar með og minnka/eyða dökkum blettum og jafna þannig litarhaft húðarinnar. Húðin fær dásamlega rakafyllingu og bjartara útlit með jafnari litarhafti. -
Epigenetic Glow Duo – tímalaus fegurð og geislandi ljómi Háþróuð virkni gegn öldrunareinkennum og samstundis meiri húðljómi. Epigenetic Serum og Sensational Glow Cream sameina krafta sína í öflugu tvíeyki sem hjálpar húðinni að viðhalda unglegu yfirbragði með háþróaðri epigenetic tækni. Viðgerðarferli og varnarviðbragð húðfrumna er glætt nýrri orku sem styrkir mótstöðuafl og eykur lífsþrótt sem skilar af sér lengri líftíma húðfrumna. Við það fær húðin aukna seiglu sem hægir á náttúrulegu öldrunarferli og hrörnun líkt og tíminn standi í stað! Epigenetic Serum vinnur gegn áhrifum ytra álags á húðina og styður við mótstöðu hennar, á meðan Sensational Glow Cream eykur rakafyllingu og gefur yfirborðinu sléttari ásýnd. Saman mæta vörurnar þörfum húðar sem farin er að sýna fínar línur, rakaþurrk og minnkandi ljóma — falleg gjöf fyrir húðina og dekur til að njóta á hverjum degi. Settið kemur í fallegum gjafapoka frá Janssen Cosmetics. -
Enzyme Peeling Powder losar um dauðar húðfrumur og umfram húðfitu af yfirborði húðarinnar á áhrifaríkan en jafnframt mildan hátt við djúphreinsun á yfirborðs viðkvæmum og Acne húðgerðum. Fínmalað púðrið myndar létta froðu þegar það er blandað við vatn og virkjar um leið Ensím sem vinna hörðum höndum á yfirborði húðarinnar við að brjóta niður keratin prótín og losa þannig dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar á áhrifaríkann hátt án þess að erta yfirborð húðarinnar. Húðin nær að losa um óhreinindi og umfram húðfitu með mattandi áhrifum frá Silica kísil sem stuðlar að auknu jafnvægi fituframleiðslu og heilbrigði húðarinnar. -
Caviar Fluid - Veitir húðinni aukna orku, örvar nýmyndun húðar og er sérstaklega góð til þess að vekja upp líflausa húð og draga fram ljóma og orku. Veitir vörn gegn ótímabærri öldrun húðarinnar og verndar húðina gegn skaðlegum áhrifum sindurefna og virkjar viðgerðarferli fyrir húð sem hefur verið undir miklu álagi, stressi og streitu. -
Orkugefandi og kælandi augnrollon fyrir herra, sérhönnuð formúla fyrir augnsvæðið sem dregur samstundis úr þreytumerkjum, dökkum baugum og bólgum í kringum augun með sýnilegum áhrifum. Smýgur fljótt niður í húðina með kælandi og frískandi áhrifum, sléttir úr fínum línum og veitir augnsvæðinu einstaka rakagjöf og næringu. -
Fullkomin viðbót við hvaða krem sem er úr flóru Janssen Cosmetics fyrir þær húðgerðir sem vilja auka rakamagn húðarinnar með langvarandi verndandi áhrifum. Ultra létt formúlan smýgur hratt niður húðlögin og skotstundu með samstundis kælandi og frískandi áhrifum þar sem þú bókstaflega finnur húðina taka við sér. Deep Xpress Moist Serum inniheldur háþróaða Hydro Express Complex formúlu sem myndar ósýnilegt en jafnframt sterkt og ótrúlega virkt net virkra efna sem sameinast í efstu lögum húðarinnar og gefa húðinni jafnt og þétt skammta af raka og næringu með virkni sem endist í allt að 5 daga frá síðustu ásetningu. Þannig viðheldur húðin auknu rakamagni, mýkt og fyllingu og öðlast einstaka frumuvernd gegn umhverfisáhrifum svo sem veðurfarsbreytingum og öðru sem valda rakatapi húðarinnar. -
Dark Spot Perfector er kröftugt serum sem er bæði fyrirbyggjandi og lýsandi meðferð fyrir litabletti og aðrar litabreytingar á húðinni og hentar öllum húðgerðum. Inniheldur sérþróaða Age Spot Corrector formúlu með blöndu af soyja og jurtaþykkni (Garden Cress/Lepidium sativum) sem draga úr nýmyndun melaníns og lýsa upp dökka bletti á húðinni án þess þó að lýsa upp húðina í kring! -
Dark Circle Eye Cream er sérstaklega þróað til að vinna gegn og birta upp dökka bauga í kringum augnsvæðið með sýnilegum og langavarandi áhrifum.Húðin í kringum augnsvæðið og sér í lagi undir augunum er þunn og viðkvæm og sýnir gjarnan örfínar blóðæðar í gegn sem eru gjarnan kallaðar undir daglegu tali baugar.Hversu miklir baugar þá gjarnan eftir hversu dökkir þeir virðast fer allt eftir blóðmagni í þessum örfínu blóðæðum. Svefnleysi, stress, mataræði geta haft neikvæð áhrif á blóðflæðið sem og getur einnig verið genatískt. Blóðæðar með litlu/hægu blóðflæði bera súrefnisminna blóð og verða dekkri fyrir vikið sem orsakar þennann dökka lit undir augunum sem við köllum dökka bauga.Dark Circle Eye Cream inniheldur birtu pigment sem lýsir upp og dregur samstundis úr dökkum lit undir augunum með langvarandi áhrifum um leið og kremið er borið á. Ef kremið er notað reglulega hlaðast upp þessi áhrif með hjálp frá öflugum innihaldsefnum “4-1 complex” sem samanstendur af tri-peptíðum, smáþörungum, panthenol og hyaluronic sýru sem saman örva flæði blóðæðanna, auka kollagenmyndun og lyftingu með djúpri næringu sem rakafyllir og sléttir viðkvæma húðina í kringum augun.*Eftir aðeins 7 daga eru fínar línur/hrukkur sjáanlega minni og sléttari.*Eftir aðeins 14 daga hefur dregið verulega með mælanlegum áhrifum úr dökkum baugum undir augunum. -
Dagleg meðferð við háræðaslitum og rósroða. Létt en öflug formúla þéttir og styrkir blóðæðaveggi húðarinnar sem dregur úr hita og ertingu í húðinni. Inniheldur RSC-Neutralizer sem minnkar sýnilega roða í húð og dregur úr einkennum rósroða. Með reglulegri noktun dregur sjáanlega úr æðaslitum og háræðanet húðarinnar styrkist með fyrirbyggjandi og verndandi eiginlegum. Betrumbætir áferð rósroða húðar með auknu rakajafnvægi, sléttandi og mýkjandi áhrifum. -
Augnkrem með ríkulegu magni af Skin Defense Complex sem gefur góða næringu og raka með græðandi eiginleikum fyrir viðkvæmni, exemgjarni og þurri húð í kringum augnsvæðið með langavarandi kælandi áhrifum. Inniheldur einnig Hyaluronic Sýru og Saccharide Isomerate með djúpnærandi eiginleikum sem fylla uppí og slétta linur í kringum augum vegna yfirborðsþurrks og gefa þannig augnsvæðinu aukna lyftingu. Vinnur á bólgum og dökkum baugum með lífrænt ræktaðri jurt: Eyebright sem gefur augnsvæðinu eins og nafnið gefur til kynna bjartara yfirlit. -
CBD Calming Fluid ampúlan er áhrifarík meðferð gegn hverskonar húðertingu, roða eða viðkvæmni. Ampúlan samanstendur af CBD-olíu og trufflusveppum sem saman með einstakri virkni róa ertingu og roða í húð ásamt því að styrkja náttúrulegt varnarlag og auka viðnám húðarinnar. Ampúlan inniheldur einnig tvíþætta hýalúrónsýru og aloe vera sem veita húðinni djúpvirkandi raka og næringu. CBD (kannabídíól) er vinsælt virkt innihaldsefni sem er unnið úr hampjurtinni og býr yfir einstökum eiginleikum og heilandi áhrifum á húðina. Kannabídíól (sem hefur ekki hugbreytandi áhrif) er þekkt fyrir að hafa sefandi áhrif á hitatilfinningu, roða eða hverskonar húðertingu og er frábær til meðhöndlunar á viðkvæmri húð. Til viðbótar við CBD olíuna inniheldur ampúlan sveppa-extract sem hefur bein áhrif á taugaenda húðarinnar með því að hamla virkni ákveðinna sársaukanema á yfirborði húðarinnar og dregur þannig með virkum hætti úr viðkvæmni húðarinnar. Saman með rakagefandi Hýalúrónsýru og Aloe Vera gefur CBD Calming Fluid ampúlan húðinni samstundis létti og fullkomna slökunartilfinningu. -
Caviar Luxury Cream er nærandi lúxuskrem með kavíarþykkni sem endurvekur þurra og þreytta húð. Það gefur húðinni fyllingu, dregur úr sýnilegum línum og hrukkum og skilur hana eftir silkimjúka og ljómandi. Ríkuleg áferðin bráðnar inn í húðina og veitir strax þægilega mýkt.Þrjú af vinsælustu kremunum frá Janssen Cosmetics koma í fallegri jólaútgáfu og á sérstöku tilboði núna fyrir jólin. Hvert um sig býður upp á einstaka húðumhirðu í 20 ml ferðastærð.
-
Sannkallað vítaminboost fyrir allar húðgerðir sem vantar aukna orku, þéttingu og ljóma.Caviar er löngu þekkt munaðarvara og inniheldur einstaka samsetningu af steinefnum, vítamínum og aminosýrum.Kremið inniheldur hreint Caviar Extract og er áhrifarík meðferð fyrir þreytta og orkulausa húð þar sem samsetning vítamína, steinefna og aminosýra glæða húðina nýjum og orkumeiri ljóma.Frumustarfsemi húðarinnar eykst og hraðar nýmyndun kollagens sem gefur húðinni aukinn þéttleika með djúpvirkandi næringu sem fyllir húðlögin af raka og nauðsynlegum fitusýrum sem auka fyllingu, slétta yfirborð húðarinnar og gefur henni flauelsmjúka áferð.Fölt yfirbragð og þreytumerki víkja fyrir frísklegum ljóma og bjartara yfirbragði. -
Einstaklega rakagefandi formúla með sefandi og græðandi áhrifum, fullkomið eftir rakstur!Örvar endurnýjun húðarinnar og græðir sár eða rispur af völdum raksturs. Styrkir náttúrulegt varnarlag húðarinnar og eykur húðljóma.Gelkennd áferð með frísklegum herrailm sem smýgur fljótt niður í húðina þannig að húðin helst mött og þurr viðkomu. -
Næturkrem með tvöfalt öflugri virkni og langavarandi virkni gegn litabreytingum. Kröftug blanda af lipoamio sýru, diacetyl boldine og SORR plöntuþykkni vinna að því að sundra tengslum á milli melaninfrumna sem mynda litaflekki á yfirborði húðarinnar ásamt því að hindra nýmyndun þeirra. Kremið inniheldur einnig rauðan þara sem er einstaklega andoxandi og næringaríkur hann hefur þau áhrif á húðina að hún fær frísklegra yfirbragð og verður líflegri. Fullkomið krem gegn litabreytingum og fyrir þroskaða húð til þess að fyrirbyggja ellibletti-og sólarskemmdir sem koma með öldrun húðarinnar. Einnig hentar það mjög vel húð sem er þreytt og föl og þarfnast orku. Kremið innheldur einnig fíngert púður sem gefur húðinni matta og flauelskennda áferð. -
Orkugefandi andlistsvatn, fullkomnar hreinsun húðar og jafnar pH gildi húðarinnar. Notið eftir hreinsun húðar með andlitshreinsi eða eitt og sér á hreina húð sem frískandi meðferð, fjarlægir umfram húðfitu og frískar uppá yfirbragð húðarinnar. Virk innihaldsefni Morus alba : plöntu-þykkni unnið úr White Mulberry trjárótum stuðla að jafnari húðlit og auka birtu í húðinni. Fullkomið val fyrir húð sem sýnir fyrstu öldrunareinkenni, streitumerki, líflausa, opna og grófar húðgerðir . -
Létt örvandi hreinsimjólk hreinsar yfirborð húðarinnar fullkomnlega, lífgar uppá þreytta húð og gefur samstundis frísklegan orkuljóma. Fullkomið val fyrir húð sem sýnir fyrstu öldrunareinkenni, streitumerki, opnar og grófar húðgerðir sem vilja auka frískleika og birtu húðarinnar. Virk innihaldsefni Morus alba : plöntu-þykkni unnið úr White Mulberry trjárótum stuðlar að jafnari húðlit og eykur birtu og ljóma í húðinni. -
Korna-djúphreinsir með tvöfalda virkni, inniheldur einnig citric og glycolic sýru fyrir enn betri húðflögnun og bjartara útlit.Smyrjið meðalþunnu lagi yfir andlit, háls og bringusvæði leyfið kreminu að liggja og vinna á húðinni í 3 til 5 min.Nuddið yfir með hringlaga hreyfingum og látið kornin vinna á húðinni í 2-3min þannig næst hámarks húðflögnun.Sýrunar losa um tengsl dauðra húðfruma á yfirborði húðarinnar þannig ná kornin að hreinsa enn betur dauðar húðfrumur og örva náttúrulega starfsemi húðarinnar.Stuðlar að jafnari húðlit og bjartara yfirbragði með auknum húðljóma.