-
Skaðlegir geislar sólarinnar, hormónaójafnvægi, aldur og lífsstíll geta haft áhrif á litabreytingar í húðinni með myndun dökkra bletta af mismunandi stærðum og gerðum. Þessar litabreytingar geta verið að myndast hægt og rólega með aldrinum eða komið skyndilega t.d. á meðgöngu, vegna p-pillunar eða eftir sólbruna. Melafadin Day Protection inniheldur sérstaka formúlu unna úr plöntum sem vinnur að því að sundra litafrumunum í sundur þannig óæskilegir blettir virðast minni og hindra nýja í að myndast á yfirborði húðarinnar. Litarháttur húðarinnar verður jafnari, bjartari og unglegri. Kremið er sérlega andoxandi og veitir djúpa næringu með bl-ndu af rauðum þara og náttúrulegym sykrum sem bindast keratínlagi húðarinnar og halda raka. Fullkomin vörn allann daginn með Spf 20. -
Kröftugt líkamskrem með detox þara og koffíni, kremið er međ hitaáhrifum sem fá þrjóskustu fitufrumur til ađ taka smá kipp!Inniheldur einnig elastín örvandi peptíð sem auka teygjanleika og styrk húðarinnar gegn þyngdarlögmálinu međ lyftandi áhrifum.•Frábær kostur fyrir þreytta og þunga fætur sem þurfa aukið blóðflæði fyrir enn betri árángur og fituniðurbrot.Hitaáhrifin og aukið blòðflæði er oft líka mjög mikill léttir og kærkomin hvíld fyrir þreytta fætur eftir langann vinnudag, göngu og svo framvegis.•Fyrir slappa og lausa húð, veitir auka styrk og styður við lausa húð að dragast saman og endurheimta þéttleika.•Fyrir þrjóskusvæði sem ætla að vera með erfiði, geggjað að smyrja á maga, rass og læri og skella sér svo á góða æfingu.Sama hvað markmiðið er þá eykst náttúrlegt blóðflæði húðarinnar og aukið afeitrunrferli (detox). Húðin verður líflegri og fær sjáanlega sléttari áferð og auknum þéttleika. -
LEAVE-ON DJÚPHREINSANDI SERUM FYRIR JAFNARI ÁFERÐ HÚÐARINNAR Ójöfnur, fílapenslamyndun og uppsöfnuð óhreinindi geta komið fram í húðinni hjá ólíkum húðgerðum jafnvel hjá fólki sem er ekki með olíukennda eða blandaða húð þar sem húðinni vantar aukna endurnýjun og hreinsun. Stíflaðar húðholur, bólur og fílapenslar eru eitthvað sem flestir væru til í að losna sem fyrst við með einföldum hætti og er Azelaic sýran frábær valkostur þar sem húðin fær örugga djúphreinsun og endurnýjun án þess að hafa of ertandi áhrif. Azelaic Acid Serum inniheldur aselsýru (azelaic acid) og aselsýruafleiðu (azelaic acid derivative) sem auka birtu húðarinnar og stuðla að jafnari húðlit með djúphreinsandi eiginleikum sem sléttir og gefur jafnari yfirborðsáferð. -
Kælandi augngel með djúpnærandi rakagefandi eiginleikum. Aqualift Eye Gel er einstaklega kælandi fyrir augnsvæðið og minnkar sýnilega þrota og þreytumerki í kringum augun og dregur úr dökkum baugum með Sensitive Complex plöntuþykkni sem inniheldur m.a. hestakastaníu og lakkrísrót sem vinna að því að styrkja örfínar blóðæðar undir augunum og draga þannig úr bláma og auka birtu undir augunum. Gelið vinnur í öllum lögum húðarinnar með einstakri samsetningu stuttra og langar keðja af Hyaluronic sýru þar sem stuttar keðjur síast niður í neðstu lög húðarinnar og binda rakamagn húðarinnar sem slétta yfirborð augnsvæðisins að innanverðu á meðan langar keðjur Hyaluron sýrunnar liggja í efri lögum húðarinnar með nærandi eiginleikum sem slétta úr þunnri húðinni í kringum augun og fylla uppí fínar línur af völdum þurrks. Gelið veitir einnig viðkvæmu augnsvæðinu vörn gegn UV geislum með Grape Stem Cell Extract sem verndar húðfrumunar fyrir skaðlegum áhrifum sólageisla og ótímabærri öldrun húðarinnar. -
Hver ampúla inniheldur hágæða efni í sínu hreinasta formi án allra aukaefna með hámarksvirkni á húð, öflug meðferð gegn djúpum línum/hrukkum og gefur samstundis lyftingu og aukinn þéttleika með Instensyl® 3-D Express Lifting tækni þar sem náttúrulegar sykrur tengjast á yfirborði húðarinnar og mynda á örskömmum tíma fjaðurkennt net sem togar upp slaka húðvefi með einstaklega þéttandi áhrifum.Inniheldur einnig Gatuline® lífrænt efni sem dregur saman og minnkar djúpar línur/hrukkur, eykur þéttleika, styrk og hægir á öldrunarferli húðarinnar með áberandi árángri!Húðin verður sýnilega þéttari og bjartari yfirlitum og endurheimtir teygjanleika og styrk með sýnilega lyftandi áhrifum. -
Sérvalin blanda af ávaxtasýrum örvar húðflögnun og náttúrulega endurnýjun húðarinnar. Ótrúlega gott sem viðgerðarkrem þar sem ávaxtasýrunar hafa leiðréttandi áhrif og betrumbæta alla starfsemi húðarinnar. *Hreinsa stíflaðar húðholur, jafna fituframleiðslu og draga úr fílapensla og bólumyndun *Rakagefandi með örvandi áhrifum á náttúrulega rakaframleiðslu húðarinnar *Jafna misfellur og slétta yfirborð húðarinnar *Jafna náttúrlegan litarhátt húðarinnar, dregur úr litabreytingum og hefur lýsandi áhrif á dökka bletti Gefur samstundis frískandi áhrif þar sem þú finnur bókstaflega fyrir virkni og örvun sem fær húðina til að geisla af ljóma. -
AHA + BHA Exfoliator er djúphreinsandi ávaxtasýru gel með einstaka og áhrifamikla virkni fyrir olíukennda, bólugjarna og acne húðgerðir. Gelið inniheldur hátt hlutfall af sérvalinni blöndu af fjórum ávaxtasýrum (AHA) glycolic, malic, citric og tartaric sem og hreinni (BHA) salicylic sýru sem leysa upp og fjarlægja dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar og losa um stíflur í húðholum á áhrifaríkan hátt með bakteríudrepandi og bólgueyðandi áhrifum frá salicylic sýrunni. -
AHA + BHA Cleanser pH 4,2 AHA + BHA Cleanser er áhrifarík hreinsimjólk fyrir olíukennda, bólugjarna og Acne húðgerðir og einnig fyrir grófgerða/eldri húð með opnar/stórar húðholur. Hreinsimjólkin inniheldur ávaxtasýrur sem hreinsa burt farða, óhreinindi og dauðar húðfrumur á áhrifaríkan hátt af yfirborði húðarinnar. -
Þegar húðin byrjar að eldast hægist á náttúrulegri starfsemi og endurnýjun húðarinnar, húðin verður slakari og þráir örvun og orku. Age Perfecting Serum er akkurat þetta auka orkuskot með plöntustofnfrumum sem húðin tekur vel á móti og eykur náttúrulega frumustarfsemi og endurnújun húðarinnar. Sérhönnuð formúla sem eykur virkni og innsíun virkra efna og passar fullkomnlega með Perfect Lift og Rich Recovery Cream úr Mature Skin línunni frá Janssen Cosmetics fyrir enn sýnilegri árángur. TIP: Serumið má bera alveg upp undir augu undir annað augnkrem fyrir djúpvirkandi lyftingu og sléttara yfirbragð húðarinnar í kringum augnsvæðið. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha), Hyaluron Sýru, Vitamin C og E og Plöntustofnfrumur (Alpine Rose) -
After Sun frá Janssen Cosmetics er fullkomið líkamskrem eftir sólríka daga, sund og útiveru. Kælandi formúlan gefur húðinni samstundis létti með græðandi áhrifum, hefur djúpnærandi virkni og smýgur fljótt niður húðina og fyllir á tóma rakatanka sem gefur húðinni dásamlega mýkt og vellíðan. Janssen Cosmetics After Sun hefur einnig einstaklega verndandi áhrif og eflir náttúrulegar varnir húðarinnar gegn sólarskemmdum, ótímabærri öldrun og öðrum húðskemmdum sem geta myndast við sólbruna. Húðin verður jafnari og fær fallegri lit með sólkysstum ljóma.- Er kælandi, græðandi og gefur húðinni mýkt og vellíðan
- Smýgur fljótt niður í neðstu húðlögin
- Hefur verndandi áhrif og eflir náttúrulegar varnir húðarinnar gegn ótímabærri öldrun og öðrum húðskemmdum sem geta myndast við sólbruna
- Inniheldur:
- Aloe Vera : kælandi og græðandi
- Alpha bisabolol: dregur úr bólgum og roða
-
Out of stock
ACTIVATING sturtugel fyrir karlmenn 2 in 1 fyrir hár og líkama. Active Shower Gel frá JANSSEN COSMETICS er fullkomin byrjun á deginum. Endurlífgandi og frískandi formúlan tryggir milda en áhrifaríka hreinsun á húð og hári og skilur eftir frábæra ferskleikatilfinningu. Active Shower Gel hreinsar yfirborð húðarinnar á áhrifaríkan hátt án þess að virka þurrkandi þökk sé mildum yfirborðsvirkum efnum úr kókos og sykrum sem koma í veg fyrir að húðin þorni. Gagnsæ geláferðin dreifist auðveldlega og myndar mjúka froðu þegar það er blandað saman við vatn og eykur þannig endingu þar sem ekki þarf að nota mikið af gelinu fyrir ríkulegt magn af froðu. Gelið er með mildum en herralegum blæ sem lífgar upp á skynfærin og skilur eftir sig mjúka angan af krydduðum sandalviði, sítrus og jasmine. -
Intensíf 40 daga C vítamín meðferð, gegn litabreytingum og öðrum ójöfnum. Virkt efni í 2-fasa ampúlum með vítamín C fosfati (duftfasi) ásamt lipoamínósýru, SORR og útdrætti úr mulberry rót (vökva fasi). Inniheldur 4x 10ml ampúlur og 1x pípettu lok Vítamín C fosfat í mjög háum styrk hemur melanin vöxt og verndar húðina einnig gegn oxunarálagi. Það stuðlar einnig að náttúrulegum viðgerðarferlum húðarinnar og örvar kollagenmyndun og bætir húðstrúktúr. 2-Phase Melafadin Concentrate býður uppá einstaka virkni með tveggja fasa ampúlum til heimameðferðar með hreinu C vítamíni. Vítamín C duftið (fasi 1) er blandað og leyst upp af innihaldsríkum activator (fasa 2). Báðir fasanir sameinast í blöndu með hámarks virkni af styrkjandi eiginleikum og óviðjafnanlegum húðljóma. Kúrinn er ætlaður sem meðferð fyrir alhliða betrumbætta áferð húðarinnar, styrkleika, jafnari húðlit og geislandi fallegan húðljóma. Kúrinn inniheldur 4 x 10 ml flöskur sem eru nauðsynlegar fyrir u.þ.b. 40 daga meðferðarferli. Ampúlunar koma með praktísku pípettu loki sem mælir hvern skammt fyrir sig fyrir daglega notkun og endingu. -
Orkumikið og djúpnærandi krem fyrir húð sem er byrjuð að eldast. Djúpvirkandi formúla sem gefur húðinni samstundis orku og hraustlegan ljóma. Virk innihaldsefni auka nýmyndun húðar og þéttleika, fínar línur og áferð húðarinnar verða jafnari og náttúrulegt varnarlag fyrir utanaðkomandi áreiti og sindurefnum(free radicals) styrkist. Smýgur fljótt niður í húðina þannig húðin helst þurr viðkomu, með frísklegum herrailm. -
Lúxus kavíarmeðferð fyrir sléttari húð og unglegan ljóma Ríkuleg næring, silkimjúk áferð og sýnilega sléttari húð. Caviar Luxury Duo sameinar nýja 2-Phase Oil Serum Energizing og Caviar Luxury Cream í endurnærandi tvennu sem veitir húðinni langvarandi raka, dregur úr ásýnd lína og gefur henni ferskara og fyllra yfirbragð.