• Instant Soothing Oil - Olíukennd formúlan gefur mýkri og áferðafallegri húð, efstu húðlögin drekka í sig næringuna og húðljómi eykst með sýnilegum áhrifum, ampúlan styrkir einnig náttúrulegar varnir húðarinnar og dregur samstundis úr ertingu og roða í húð.
  • Smooth + Lift Eye Cream er einstök formúla með hágæða virkum innihaldsefnum eins og lífrænum trönuberjapeptíðum, Soft Focus Pigments og amínósýru complex fyrir hámarks ummönnun og virkni fyrir augnsvæðið. AUGNKREM MEÐ ÁHRIFARÍKUM OG LANGVARANDI EIGINLEIKUM Smooth + Lift Eye Cream er einstök formúla með hágæða virkum innihaldsefnum eins og lífrænum trönuberjapeptíðum, Soft Focus Pigments og amínósýru complex fyrir hámarks ummönnun og virkni fyrir augnsvæðið. Dagleg umhirða augnsvæðisins kvölds og morgna er nauðsynlegur hluti af fyrirbyggjandi meðferð til að hægja á öldrunarferli húðarinnar, viðhalda styrk og jafnframt draga úr línum og fyrstu öldrunarmerkjum með djúpnærandi eiginleikum sem slétta húðina umhverfis augun og vinna gegn sinduráhrifum. Silkimjúk áferð Smooth + Lift Eye Cream frásogast hratt niður húðlögin og tryggir aukinn styrkleika og sléttara yfirbragð húðarinnar með djúpvirkandi rakagjöf og auknum frískleika. Trönuber hafa öfluga virkni á húðina og stuðla að auknum þéttleika og kollagenframleiðslu sem viðheldur fyllingu húðarinnar með langvarandi eiginleikum. Tvíþætt hýalúrónsýra færir húðinni djúpvirkandii raka og gerir hana sýnilega sléttari. Að auki er þessi fjölvirka fyrirbyggjandi formúla auðguð með nauðsynlegum fitusýrum og amínósýrum sem styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar og vinna gegn öldrunarmerkjum húðarinnar. Soft Focus Pigments gefa húðinni samstundis jafnari áferð og fylla uppí fíngerðar línur og hrukkur sem gefur augnsvæðinu silkimjúka slétta og matta áferð.
  • Mild p-H neutral hreinsifroða án allra rotvarna eða skaðlegra aukaefna. Létt froðan flæðir um yfirborð húðarinnar og dregur samstundis úr allri ertingu eða pirring í húðinni með kælandi áhrifum, inniheldur allantoin sem dregur sýnilega úr roða og sefar viðkvæma húð. Noktun: Hristið og notið 2 til 3 pumpur af froðunni, dreifið jafnt yfir andlit og háls með hringlaga hreyfingum og skolið af með volgu vatni. Ljúkið hreinsun með Soft Soothing Tonic/andlitsvatni til að auka virkni og fullkomna hreinsun húðar.
  • Sérhannað andlitsvatn fyrir viðkvæma húð dregur samstundis úr roða, ertingu og minnkar hitatilfinningu með einstaklega kælandi og sefandi áhrifum. Soft Soothing Tonic er alkahólfrítt og inniheldur Skin Defense Complex+ sem styrkir háræðanar með langvarandi áhrifum. Noktun: Strjúkið yfir með bómullarskífu á hreina húð yfir andlit og háls.
  • SPF 30 TRANSPARENT SUN SPRAY FYRIR LÍKAMA Sólarvörn er eitt það mikilvægasta sem við getum notað til þess að vernda húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar, sólarskemmdum og ótímabærri öldrun húðarinnar hvort sem er á ströndinni, skíðaferðalögum, útiveru eða daglegu amstri. Sun Protection Spray SPF 30 er létt og gegnsæ sólarvörn sem veitir hágæða vörn gegn UVA og UVB geislum og hefur verndandi eiginleika gegn sólarskemmdum með Ectoin® frumuvernd. *Kemur í handhægum sprey brúsa *Verndar húðina gegn UVA/UVB geislum og sólbruna *Létt formúlan smýgur hratt niður í húðina og skilur ekki eftir sig hvítar rákir*Húðin verður ekki klístruð eða olíukennd *Inniheldur Ectoin® sem er einstakt lífrænt efni sem smýgur niður í neðri lög húðarinnar þar sem það eflir náttúrulegar varnir húðfrumna gegn ytra áreiti eins og hita/kulda og UV geislum. Með því myndar húðin öflugri vörn gegn sólargeislum og minnkar líkunar á sólarskemmdum/litabreytingum síðar meir. *Hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmum Noktun - Hristið brúsan vel fyrir hverja noktun dreifið ríkulegi magni á húðina c.a. 30min áður en farið er í sólarljós, bætið á eftir þörfum yfir daginn til þess að viðhalda vörn sérstaklega eftir sundferðir eða hreyfingu þar sem er mikið svitnað.  
  • Mjúkt og einstaklega rakagefandi krem sem gefur rakaþurrum húðgerðum hámarks virkni af næringarríkum innihaldsefnum sem auka þéttleika og gera yfirborð húðarinnar slétt og silkimjúkt. Allar húðgerðir þurfa raka til að viðhalda fyllingu og heilbrigði húðar, Super Hydrating Cream er hið fullkomna rakakrem fyrir allar húðgerðir til að gefa húðinni daglega næringu og auka rakamagn sem veitir vörn gegn ytra áreiti og ótímabærri öldrun húðarinnar. Kremið veitir djúpa rakagjöf niður í neðstu húðlög og fyllir húðina af raka líkt og þegar þurr svampur kemst í snertingu við vatn með sérþróaðri tækni þar sem krosstengdar samsetningar af Hyaluronic sýru mynda einskonar raka-net í húðinni með “plumping” áhrifum. Kremið einstaklega frískandi viðkomu og gefur húðinni létta kælitilfinningu sem frískar samstundis uppá húðlitinn með mildum og náttúrulegum ilm. Super Hydrating Cream er einnig einstaklega gott undir farða, fyrir sléttari áferð, meiri fyllingu og betri endingu farðans.
  • Flauelsmjúkt og létt litað dagkrem, kemur í einum lit með litapigmentum sem aðlagast mismunandi húðtón hjá hverjum og einum með mildum bronze áhrifum sem gera húðina enn frísklegri.

    Tinted Balancing Cream er sérstaklega þróað til að mæta þörfum blandaðrar húðgerðar með tvöfaldri virkni þar sem kremið veitir bæði góða rakagjöf auk þess að stuðla að auknu jafnvægi á olíuframleiðslu húðarinnar, staðbundið allt eftir þörfum húðarinnar.

  • SERUM SEM LÝSIR OG JAFNAR LITARHÁTT HÚÐARINNAR Litabreytingar á húð, blettir, Acne ör eða aðrar ójöfnur eftir bólur sem og rósroði geta verið hvimleitt vandamál. Tranexamic Acid Serum dregur með sýnilegum hætti úr ýmsum litabreytingum á húð, þar á meðal dökkum blettum vegna skemmda af völdum sólarinnar, með áhrifaríkri en mildri efnasamsetningu. Tranexamsýra (tranexamic acid) er virkt innihaldsefni unnið úr amínósýrunni lýsíni, sem er um allan heim álitið það efni sem hefur mest lýsandi áhrif á húðina. Hún kemur í veg fyrir víxlverkun milli sortufrumna og hyrnisfrumna og hamlar þannig myndun melaníns og þar með nýmyndun dökkra bletta. Auk þess að vinna á þeim litabreytingum sem hafa nú þegar myndast.
  • Mjög áhrifaríkt augnkrem fyrir þroskaða húð með rauðsmárakjarna og kombucha ásamt A- og E-vítamínum, löngum og stuttum keðjum hýalúrónsýru og olíu úr makadamíuhnetum sem veitir djúpvirkandi endurnýjun. Öldrun húðarinnar þreyta, bólgur og dökkir baugar er oft það sem er mest sýnilegt í kringum augnsvæðið eftir því sem við eldumst, húðin er þynnri og viðkvæmari í kringum augnsvæðið og þarf sérstakt aðhald. Tri-Care augnkremið er með þrefalda virkni og tekur á öllum þessum kvillum í einu öflugasta augnkreminu frá Janssen Cosmetics. Inniheldur m.a A-Vitamín sem eykur endurnýjun og sléttir húðina, Sensitive Complex sem herjar sérstaklega á þrota og dökka bauga og E-Vítamín sem styrkir húðfrumunar og hægir á öldrun húðarinnar.
  • Silkimjúkt, orkugefandi og stinnandi líkamskrem með kröftugri blöndu af vitamin A, C og E, ásamt shea butter, hyaluronic sýru og Pentavitin®. Húðin verður sléttari og stinnari viðkomu og viðheldur náttúrulegri lyftingu og ljóma.
  • Öflugt serum fyrir húð sem þarfnast orku, aukna lyftingu og bjartara útlit. Húð sem er byrjuð að eldast og slakna á það til að verða föl og þreytuleg með tímanum þar sem hægst hefur á frumustarfsemi húðarinnar. Hátt hlutfall C Vítamíns í Vitaforce C Complex hefur þríþætt áhrif við að endurvekja frumustarfsemi og hægja á öldrunarferli húðarinnar.
    • C vítamín er það efni sem er hvað mest áhrifaríkast í snyrtivörum við að styrkja og styðja við kollagenþræði húðarinnar. Það bæði eykur náttúrulega kollagenframleiðslu húðarinnar sem eykur þéttleika og styrkir varnir húðarinnar fyrir skaðlegum sindurefnum og öðrum umhverfis áhrifum sem herja á húðina.
    • C vítamin hefur djúpvirkandi áhrif í neðri húðlögum þar sem húðfrumur framleiða elastinþræði sem hafa áhrif á teygjanleika húðarinnar, hátt hlutfall C vítamins í Vitaforce C Complex styrkir við og hægjir á niðurbroti elastins í húðinni auk þess sem náttúruleg frumustarfsemi eykst og örvar nýmyndun nýrra þráða sem hafa stinnandi og lyftandi áhrif á húðvefi.
    • C vítamín eykur birtu í húðinni og minnkar ásýnd litabletta og vinnur á móti nýmyndun litabletta.
     
  • Öflugt C-vítamínkrem fyrir bjartari húð og ferskan ljóma.  Vitaforce C Cream sameinar ríkulega rakagjöf, andoxunarvörn og kraft C-vítamíns til að jafna húðlit og draga úr sýnilegum öldrunareinkennum. Þrjú af vinsælustu kremunum frá Janssen Cosmetics koma í fallegri jólaútgáfu og á sérstöku tilboði núna fyrir jólin. Hvert um sig býður upp á einstaka húðumhirðu í 20 ml ferðastærð.
  • Kröftugt C-Vítamín krem sem sléttir og bætir áferð húðarinnar, fyrirbyggir og dregur úr öldrunareinkennum ásamt því að vera einstaklega andoxandi og góð vörn gegn sindurefnum. Kremið bæði þéttir og styrkir húðvefi og örvar C-Vítamín náttúrulega endurnýjun og kollagen framleiðslu húðar,hefur lýsandi áhrif á litaflekki og dregur úr litabreytingum. Kremið er einstaklega frískandi með léttum ávaxtailm og fær húðina til að ljóma! Helstu innihaldsefni : C-Vitamin, Hyaluronic Sýra, Sítrónu-þykkni
  • Vitalizing Skin Refiner er einstaklega rakagefandi húðmeðferð sem færir húðinni nýjan þrótt og ljóma með lífrænum trönuberjapeptíðum og þykkni úr camu camu-berjum. Kremið hefur létta og silkimjúka áferð sem frásogast hratt niður húðlögin og gefur húðinni líflega útgeislun og ferskara útlit dag eftir dag. Vitalizing Skin Refiner er einstaklega rakagefandi húðmeðferð sem færir húðinni nýjan þrótt og ljóma með lífrænum trönuberjapeptíðum og þykkni úr camu camu-berjum. Kremið hefur létta og silkimjúka áferð sem frásogast hratt niður húðlögin og gefur húðinni líflega útgeislun og ferskara útlit dag eftir dag. Vitalizing Skin Refiner er frábært alhliða 24stunda krem, parast einnig fullkomnlega sem dagkrem á móti Pro Lift Cream sem næturkrem ef þörf er á dýpri næringu fyrir nóttina.
  • Vitamin C Glow Set - Kraftur C-vítamíns fyrir sléttari húð og geislandi ljóma

     
    Glæsilegt gjafasett fyrir húð sem vantar ferskleika, raka og ljóma. Vitaforce C Skin Complex og Vitaforce C Cream úr Demanding Skin vörulínu JANSSEN COSMETICS sameina markvissa virkni þar sem kraftur C-vítamíns og hyaluronsýru spila lykilhlutverk.
  • 25 sérvaldar ampúlur í 24 daga meðferð sem gefur húðinni ríkulegan raka, sléttari áferð og geislandi ljóma fyrir hátíðirnar. JANSSEN COSMETICS aðventudagatalið er dásamleg leið til þess að hleypa smá auka birtu inn í skammdegið og njóta aðventunnar enn frekar þar sem hver dagur verður dekurdagur. Nærandi niðurtalning til jóla með fullkomlega samsettum ampúlukúr sem svíkur engan. Dagatalið er gefið út í takmörkuðu upplagi á hverju ári og býður viðskiptavinum upp á einstakan 24 daga ampúlukúr á frábæru jólatilboði og er nú þegar orðið ómissandi partur af aðventunni fyrir marga.
Go to Top