-
NÝTT! REFRESHING FACE MIST ómissandi núna fyrir sumarið! Rakagefandi andlitssprey með Skin Wall Care Complex, aloe vera og guarana sem eykur rakastig húðarinnar samstundis og veitir henni dásamlega frískandi tilfinningu með styrkjandi eiginleikum fyrir varnarhjúp húðarinnar. Fíngerður úðinn umlykur húðina með léttu verndarlagi sem gerir hana fallega ferska, vel nærða og náttúrulega ljómandi. Þökk sé upplífgandi ilmi af eucalyptus, myntu og grænum telaufum veitir Refreshing Face Mist þér aukinn ferskleika hvenær og hvar sem er – tilvalið þegar þú ert á ferðinni. Skin Wall Care Complex í úðanum veitir samstundis raka sem endist í allt að 120 klukkustundir. Það styrkir varnarhjúp húðarinnar, verndar húðina gegn rakatapi og skilur eftir sig frískandi og sefandi tilfinningu. Samsetningin er einnig hönnuð til að styðja við endurnýjun húðar sem hefur orðið fyrir álagi og eykur viðnámsþrótt hennar. Aloe vera og guarana gefa húðinni aukinn lífskraft og ferskleika. Aloe vera er ríkt af fjölsykrum, ensímum, nauðsynlegum amínósýrum, vítamínum, steinefnum og mörgum öðrum virkum efnum. Það virkar sem náttúrulegur rakagjafi með sefandi og endurlífgandi áhrif. Eimaður kjarni úr guarana-plöntunni magnar einnig upp frískandi áhrif formúlunnar og skilur húðina eftir líflegri og endurnærða. REFRESHING FACE MIST má nota bæði undir og yfir farða. – Þegar það er notað undir farða gefur það raka, verndar og sefar húðina. – Þegar það er notað yfir farða hjálpar það til við að festa förðunina og gefur fallega, ferska og ljómandi áferð. -
Pro Glow Selection – 7 daga ampúlukúr Ljómagefandi ampúlukúr sem veitir húðinni samstundis ferskara, jafnara og geislandi yfirbragð. Pro Glow Selection er sérvalin ampúlupakki sem sameinar þrjár öflugar ampúlur í 7 daga kúr fyrir húð sem vantar aukinn ljóma, rakafyllingu og frísklegra yfirbragð. Kúrinn er hannaður til að auka ljóma og útgeislun húðarinnar með sýnilegum árangri, draga úr þreytumerkjum og gefa húðinni sléttara, stinnara og unglegra útlit. Í pakkanum eru 2 x Brilliance Shine Elixir, 2 x Marine Collagen Fluid og 3 x Radiant Skin Fluid. -
Fullkomin kúr til að styrkja og endurstilla varnarhjúp húðarinnar, frábær tvenna til að viðhalda árángri eftir andlitsmeðferðir eða sem öflug viðgerð heima fyrir viðkvæmar, þurrar húðgerðir eða húð sem vantar aukið jafnvægi. Styrkir. Endurbyggir. Verndar. Ceramide Beauty Duo frá Janssen Cosmetics er öflug húðumhirðutvenna með serum og kremi sem vinnur markvisst að því að styrkja og endurbyggja náttúrulegan varnarhjúp húðarinnar. Heilbrigð húð byggir á réttu jafnvægi raka og fitusýra í yfirborði húðarinnar, en þegar það jafnvægi raskast verður húðin viðkvæmari, tapar raka hraðar og bregst auðveldlega við með þurrki, roða, kláða og herpingstilfinningu sem getur valdið óþægindum. Ceramide Beauty Duo er sérstaklega þróað til að styðja húðina einmitt við þessar aðstæður og hjálpa henni að endurheimta jafnvægi, aukna mýkt og heilbrigðara yfirbragð. Seramíðar gegna þar lykilhlutverki, enda eru þeir náttúrulegur hluti af varnarhjúp húðarinnar. Þeir hjálpa til við að styrkja samheldni húðarinnar, draga úr rakatapi og styðja við getu hennar til að verja sig gegn ytri ertingu og umhverfisáhrifum. Með markvissri blöndu seramíða hjálpar Ceramide Beauty Duo til við að auka jafnvægi og efla náttúrulegar varnir húðarinnar, fyllir á rakabirgðir, sefar roða og ertingu og gefur húðinni aukna léttleikatilfinningu. -
Dark Spot Perfector er kröftugt serum sem er bæði fyrirbyggjandi og lýsandi meðferð fyrir litabletti og aðrar litabreytingar á húðinni og hentar öllum húðgerðum. Inniheldur sérþróaða Age Spot Corrector formúlu með blöndu af soyja og jurtaþykkni (Garden Cress/Lepidium sativum) sem draga úr nýmyndun melaníns og lýsa upp dökka bletti á húðinni án þess þó að lýsa upp húðina í kring!Umhverfisáhrif, mengun, sól geta haft gríðarleg áhrif á ásýnd húðarinnar og látið húðina virðast eldri en hún raunverulega er. Litabreytingar og sólarskemmdir byrja vanalega að birtast á yfirborði húðarinnar eftir 30 ára aldurinn og aukast með árunum.Dark Spot Perfector er kröftugt serum sem er bæði fyrirbyggjandi og lýsandi meðferð fyrir litabletti og aðrar litabreytingar á húðinni og hentar öllum húðgerðum. Inniheldur sérþróaða Age Spot Corrector formúlu með blöndu af soyja og jurtaþykkni (Garden Cress/Lepidium sativum) sem draga úr nýmyndun melaníns og lýsa upp dökka bletti á húðinni án þess þó að lýsa upp húðina í kring!Pakkað af hyaluronic sýru löngum og stuttum keðjum sem heldur húðinni fylltri og sléttri ásamt E-Vitamíni sem sér um að verja húðina gegn skaðlegum áhrifum sindurefna.Niðurstöður vísindalegrar rannsóknar: *Age Spot Corrector Sönnun fengin úr klínískri rannsókn: Með notkun á Age Spot Corrector í 4% styrkleika, munurinn á litstyrk milli litabletta (age spots) og húðinni umhverfis sýndi allt að 50% minni litstyrk eftir aðeins 2 mánuði af reglubundinni notkun. Rannsóknin sýndi einnig að varan getur hnitmiðað virkni með sérlega lýsandi áhrifum á litabletti. Eftir átta vikur voru blettinir búnir að lýsast um 30% en húðin umhverfis hafði ekki orðið fyrir sömu áhrifum. (Heimild: Mibelle AG Biochemistry) -
Intensíf 40 daga C vítamín meðferð, gegn litabreytingum og öðrum ójöfnum. Virkt efni í 2-fasa ampúlum með vítamín C fosfati (duftfasi) ásamt lipoamínósýru, SORR og útdrætti úr mulberry rót (vökva fasi). Inniheldur 4x 10ml ampúlur og 1x pípettu lok Intensíf 40 daga C vítamín meðferð, gegn litabreytingum og öðrum ójöfnum. Virkt efni í 2-fasa ampúlum með vítamín C fosfati (duftfasi) ásamt lipoamínósýru, SORR og útdrætti úr mulberry rót (vökva fasi). Inniheldur 4x 10ml ampúlur og 1x pípettu lok Vítamín C fosfat í mjög háum styrk hemur melanin vöxt og verndar húðina einnig gegn oxunarálagi. Það stuðlar einnig að náttúrulegum viðgerðarferlum húðarinnar og örvar kollagenmyndun og bætir húðstrúktúr. 2-Phase Melafadin Concentrate býður uppá einstaka virkni með tveggja fasa ampúlum til heimameðferðar með hreinu C vítamíni. Vítamín C duftið (fasi 1) er blandað og leyst upp af innihaldsríkum activator (fasa 2). Báðir fasanir sameinast í blöndu með hámarks virkni af styrkjandi eiginleikum og óviðjafnanlegum húðljóma. Kúrinn er ætlaður sem meðferð fyrir alhliða betrumbætta áferð húðarinnar, styrkleika, jafnari húðlit og geislandi fallegan húðljóma . Kúrinn inniheldur 4 x 10 ml flöskur sem eru nauðsynlegar fyrir u.þ.b. 40 daga meðferðarferli. Ampúlunar koma með praktísku pípettu loki sem mælir hvern skammt fyrir sig fyrir daglega notkun og endingu. 2-Phase Melafadin Concentrate er 40 daga meðferð. Innihald einnar ampúlu dugar í u.þ.b. 10 daga og samanstendur af dufti og vökva. Báðir hlutanir eru blandaðir saman fyrir fyrstu notkun. Til að blanda ampúluna, ýttu einfaldlega á hnappinn á lokinu með smá afli, það kemur smellur. Hristið innihaldið vel saman, fjarlægið hnappinn og setjið pipettu lokið á ampúluna. Berið u.þ.b. 1 ml af lausninni á hreina húð á morgnana og kvöldin. Innihaldsefni: Duft fasi: • Vítamín C fosfat: Stöðug askorbínsýra; stöðug í vatni; umbreytist í C vítamín í húðinni með náttúrulegum ensímum húðarinnar (esterösum); hamlar melanin vöxt, styrkir kollagenþræði, eflir kollagenframleiðslu. Vökva fasi: • Lipoamínósýra: (INCI: undecylenoyl phenylalanine), áhrifaríkt húðlýsingarefni, blokkar α-MSH viðtaka á yfirborði melanósíta. • Plant extract SORR: Mjög virkur útdráttur úr Siegesbeckia orientalis og Rabdosia rubescens; hindrar upptöku melanins í keratínsítum, hefur sefandi og andoxandi áhrif, stuðlar að jafnri, geislandi húð. • Morus alba: extrakt úr rótum hvíta mullberry trésins; hemur tyrosinasa og heldur þeim í óvirkri stöðu og hamlar þannig melanin framleiðslu -
Í tilfelli blandaðrar húðar getur aukin fituframleiðsla valdið óæskilegum glans á húðinni, sérstaklega á miðsvæði andlitsins, á meðan vangar og augnsvæðið eru þurrari. Sértækar hreinsivörur eru nauðsynlegar af þessari ástæðu, til þess að mæta ólíkum þörfum húðarinnar fyrir áhrifaríka hreinsun og aukið jafnvægi fyrir blandaðar húðgerðir. Gentle Cleansing Powder hefur verið þróað sérstaklega til þess að mæta þessum þörfum! Í tilfelli blandaðrar húðar getur aukin fituframleiðsla valdið óæskilegum glans á húðinni, sérstaklega á miðsvæði andlitsins, á meðan vangar og augnsvæðið eru þurrari. Sértækar hreinsivörur eru nauðsynlegar af þessari ástæðu, til þess að mæta ólíkum þörfum húðarinnar fyrir áhrifaríka hreinsun og aukið jafnvægi fyrir blandaðar húðgerðir. Gentle Cleansing Powder hefur verið þróað sérstaklega til þess að mæta þessum þörfum! Kemur í púðurformi og er blandað saman við vatn í lófunum fyrir ríkulega og kremkennda hreinsifroðu. Hreinsar farða og önnur óhreinindi af með áreynslulausum hætti sérstaklega fyrir blandaðar húðgerðir. Húðin verður silkimjúk án ertingar og öðlast betra jafnvægi, jafnvel fyrir viðkvæma blandaða húð sem fær matt yfirbragð og endurnærist á einstakan hátt. • Kremkennd froða, hreinsar húðina eykur mýkt og ferskleika • Fjarlægir farða, umfram fitu og óhreinindi af húðinni • Viðheldur náttúrulegum raka húðarinnar • Stuðlar að hreinni, jafnvægisríkri og mattri áferð • Mildur ilmur Notkun: Helltu púðrinu í lófann og blandaðu því með vatni þar til það myndar kremkennda froðu. Berðu jafnt á andlit og háls með hringlaga hreinsihreyfingum. Skolaðu af með ríkulegu magni af vatni eða rökum þvottapoka. Virk innihaldsefni:- Hydrolyzed maize starch: Náttúrulegt síuefni, hjálpar við hreinsun húðarinnar, dregur í sig umfram fitu og gefur mjúka áferð. • Silica: Náttúrulegt púðurefni, dregur í sig umfram fitu og bætir áferð húðarinnar. •Tenside based on amino acids: Yfirborðsvirk efni úr amínósýrum, hreinsa húðina með nærandi eiginleikum. • Biosynthetic polypeptide: Lífvirkt fjölpeptíð, eykur mýkt og vellíðan húðarinnar.
-
Vitalizing Skin Refiner er einstaklega rakagefandi húðmeðferð sem færir húðinni nýjan þrótt og ljóma með lífrænum trönuberjapeptíðum og þykkni úr camu camu-berjum. Kremið hefur létta og silkimjúka áferð sem frásogast hratt niður húðlögin og gefur húðinni líflega útgeislun og ferskara útlit dag eftir dag. Vitalizing Skin Refiner er einstaklega rakagefandi húðmeðferð sem færir húðinni nýjan þrótt og ljóma með lífrænum trönuberjapeptíðum og þykkni úr camu camu-berjum. Kremið hefur létta og silkimjúka áferð sem frásogast hratt niður húðlögin og gefur húðinni líflega útgeislun og ferskara útlit dag eftir dag. Öflug blanda virkra innihaldsefna úr ofur ávöxtum, þ.e. Cranberry Bio Peptide (lífrænt trönuberjapeptíð) og Camu Camu Berry Extract (þykkni úr camu camu-berjum), styrkir og betrumbætir strúktúr húðarinnar, verndar frumurnar gegn sindurefnum með sléttandi áhrifum. Cranberry Bio Peptide stuðlar að auknum þéttleika og eykur massa húðnetjunnar sem tengir öll húðlögin saman og eykur þannig styrk og seiglu húðarinnar. Þykkni úr camu camu-berjum inniheldur hátt hlutfall af C-vítamíni og öflug andoxunarefni sem verja húðina gegn ótímabærri öldrun og öðrum skaðvöldum t.d. vegna umhverfisáhrifa með því að örva nýmyndun kollagens og færa húðinni aukinn ljóma. Tvíþætt hýalúrónsýra veitir húðinni síðan nauðsynlegan raka sem auka flutningsleiðir virkra efna með nærandi eiginleikum sem auka fyllingu húðarinnar með sýnilega sléttandi áhrifum. Að auki er þessi fjölvirka öldrunarvarnarblanda auðguð með nauðsynlegum fitusýrum og amínósýrum sem styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar og veita djúpvirkandi næringu og mýkt sem minnkar ásýnd og fyrirbyggir djúpar línur eða yfirborðslínur vegna þurrks. Vitalizing Skin Refiner er frábært alhliða 24stunda krem, parast einnig fullkomnlega sem dagkrem á móti Pro Lift Cream sem næturkrem ef þörf er á dýpri næringu fyrir nóttina. -
Smooth + Lift Eye Cream er einstök formúla með hágæða virkum innihaldsefnum eins og lífrænum trönuberjapeptíðum, Soft Focus Pigments og amínósýru complex fyrir hámarks ummönnun og virkni fyrir augnsvæðið. AUGNKREM MEÐ ÁHRIFARÍKUM OG LANGVARANDI EIGINLEIKUM Smooth + Lift Eye Cream er einstök formúla með hágæða virkum innihaldsefnum eins og lífrænum trönuberjapeptíðum, Soft Focus Pigments og amínósýru complex fyrir hámarks ummönnun og virkni fyrir augnsvæðið. Dagleg umhirða augnsvæðisins kvölds og morgna er nauðsynlegur hluti af fyrirbyggjandi meðferð til að hægja á öldrunarferli húðarinnar, viðhalda styrk og jafnframt draga úr línum og fyrstu öldrunarmerkjum með djúpnærandi eiginleikum sem slétta húðina umhverfis augun og vinna gegn sinduráhrifum. Silkimjúk áferð Smooth + Lift Eye Cream frásogast hratt niður húðlögin og tryggir aukinn styrkleika og sléttara yfirbragð húðarinnar með djúpvirkandi rakagjöf og auknum frískleika. Trönuber hafa öfluga virkni á húðina og stuðla að auknum þéttleika og kollagenframleiðslu sem viðheldur fyllingu húðarinnar með langvarandi eiginleikum. Tvíþætt hýalúrónsýra færir húðinni djúpvirkandii raka og gerir hana sýnilega sléttari. Að auki er þessi fjölvirka fyrirbyggjandi formúla auðguð með nauðsynlegum fitusýrum og amínósýrum sem styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar og vinna gegn öldrunarmerkjum húðarinnar. Soft Focus Pigments gefa húðinni samstundis jafnari áferð og fylla uppí fíngerðar línur og hrukkur sem gefur augnsvæðinu silkimjúka slétta og matta áferð. -
Pro-Lift Cream er öflugt djúpnærandi og endurnýjandi krem sem inniheldur þykkni úr „ofurávöxtum“ eins og trönuberjum og rambútanlaufum sem stuðla að endurnýjun húðarinnar og draga úr fyrstu línum og hrukkum. Kremið þéttir og bætir teygjanleika húðarinnar með lyftandi áhrifum sem gerir hana unglegri og frísklegri. Pro-Lift Cream er öflugt djúpnærandi og endurnýjandi krem sem inniheldur þykkni úr „ofurávöxtum“ eins og trönuberjum og rambútanlaufum sem stuðla að endurnýjun húðarinnar og draga úr fyrstu línum og hrukkum. Kremið þéttir og bætir teygjanleika húðarinnar með lyftandi áhrifum sem gerir hana unglegri og frísklegri. Streita, svefnleysi og skaðleg umhverfisáhrif setja mark sitt á andlitið, en þetta er hægt að minnka sýnilega með reglulegri umönnun. Rambútanþykkni tryggir að húðin geti slakað á og náð dýrmætri endurheimt. Náttúrulegt efni úr laufum þessara gómsætu, suðrænu ávaxta dregur úr öldrun og styrkir kollagen og elastín þræði sem eykur teygjanleika húðarinnar og gerir hana unglegri. Um leið hjálpar öflugt lífrænt trönuberjapeptíð við að bæta þéttleika húðnetjunnar og draga úr línum og hrukkum. Tvíþætt hýalúrónsýra færir húðinni djúpnærandi raka og gerir hana sýnilega sléttari. Að auki er þessi fjölvirka öldrunarvarnarblanda auðguð með nauðsynlegum fitusýrum og amínósýrum sem styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar og vinna gegn ótímabærri öldrun húðarinnar. Þetta ríkulega og silkimjúka krem smýgur auðveldlega inn í húðina og færir henni mýkra og jafnara yfirlag með auknum þéttleika og lyftingu. Frábært alhliða 24.stunda krem, parast einnig fullkomnlega við Vitalizing Skin Refiner sem léttari kost á móti hvort sem er fyrir dag eða næturumhirðu. -
Fullkomið duo fyrir ljómandi húð! Nú á frábæru tilboði saman með glæsilegum kaupauka, vönduð og rúmgóð Janssen Cosmetics taska með rennilás fylgir með ásamt demants vasaspegli. Spegillinn er tvískiptur með stækkun á annari hliðinni. Magic Glow Serum og Sensational Glow Cream gefa húđinni dásamlega rakafyllingu og highlight glampa án þess ađ húđin glansi eđa virki olíukennd, hlaðið næringaríkum efnum eins og þara extrakti úr Indverska hafinu sem hefur sannað virkni á aukna húðendurnýjun og aukinn ljóma húðarinnar. ☆Magic Glow Serum létt og rakagefandi serum með highlight áhrifum sem gefa húðinni perlukenndan glampa, má einnig nota staðbundið yfir krem eða farða fyrir enn meiri highlight áhrif. Húðin fær dásamlegan raka og næringu og inniheldur m.a. næringarríkan þara úr Indverska hafinu sem hefur sannað 28% aukningu á ljóma húðarinnar á 28 dögum með aukinni rakafyllingu og þéttleika. ☆Sensational Glow Cream hefur flauelsmjúka áferđ og gefur húđinni djúpvirkandi næringu og ljóma. Kremið inniheldur náttúruleg virk efni eins og koffín sem örvar blóđrás húđarinnar á mildan hátt og betrumbætir þannig starfsemi húđarinnar og gerir hana móttækilegri fyrir virkum innihaldsefnum, Glow kremið inniheldur einnig eins og serumið þara úr Indverska hafinu og gefur húđinni fallega og slèttari áferð með einstökum húðljóma. -
SERUM SEM LÝSIR OG JAFNAR LITARHÁTT HÚÐARINNAR Litabreytingar á húð, blettir, Acne ör eða aðrar ójöfnur eftir bólur sem og rósroði geta verið hvimleitt vandamál. Tranexamic Acid Serum dregur með sýnilegum hætti úr ýmsum litabreytingum á húð, þar á meðal dökkum blettum vegna skemmda af völdum sólarinnar, með áhrifaríkri en mildri efnasamsetningu. Tranexamsýra (tranexamic acid) er virkt innihaldsefni unnið úr amínósýrunni lýsíni, sem er um allan heim álitið það efni sem hefur mest lýsandi áhrif á húðina. Hún kemur í veg fyrir víxlverkun milli sortufrumna og hyrnisfrumna og hamlar þannig myndun melaníns og þar með nýmyndun dökkra bletta. Auk þess að vinna á þeim litabreytingum sem hafa nú þegar myndast. Virk formúlan inniheldur einnig Níasínamíð (niacinamide) sem eykur lýsandi áhrif tranexamsýru, styrkir varnarlag húðarinnar og kemur í veg fyrir bólgu. Hýalúrónsýru með lýsandi áhrifum (hyaluronic acid with whitening effect) sem dregur marktækt úr myndun melaníns og gerir húðlitinn sýnilega bjartari og jafnari. Blanda af sykrum (saccharide isomerate) og hýalúrónsýru (með stuttri og langri keðju) gefur svo húðinni nauðsynlegan raka með langvarandi endingu og aukna mýkt. Með reglulegri notkun dregur hægt og örugglega úr roða, mislitun og dökkum blettum sem gefur húðinni jafnt og ljómandi yfirbragð með aukinni birtu. -
LEAVE-ON DJÚPHREINSANDI SERUM FYRIR JAFNARI ÁFERÐ HÚÐARINNAR Ójöfnur, fílapenslamyndun og uppsöfnuð óhreinindi geta komið fram í húðinni hjá ólíkum húðgerðum jafnvel hjá fólki sem er ekki með olíukennda eða blandaða húð þar sem húðinni vantar aukna endurnýjun og hreinsun. Stíflaðar húðholur, bólur og fílapenslar eru eitthvað sem flestir væru til í að losna sem fyrst við með einföldum hætti og er Azelaic sýran frábær valkostur þar sem húðin fær örugga djúphreinsun og endurnýjun án þess að hafa of ertandi áhrif. Azelaic Acid Serum inniheldur aselsýru (azelaic acid) og aselsýruafleiðu (azelaic acid derivative) sem auka birtu húðarinnar og stuðla að jafnari húðlit með djúphreinsandi eiginleikum sem sléttir og gefur jafnari yfirborðsáferð. -
Fallegt gjafasett úr Platinum vörulínu Janssen Cosmetics á einstöku gjafatilboði! Inniheldur hágæða Platinum Eye Care 15ml og 7stk Brilliance Shine Elixir ampúlur. Inniheldur sérþróaða Platinum MP Complex formúlu með peptíðblöndu sem fyllir uppí línur með einstakri virkni og hindrar niðurbrot kollagenþráða, verndar og hægir á öldrunarferli húðarinnar. Einstök virkni þar sem árángurinn er sléttari áferð í kringum augun og bjartara yfirbragð með auknum þéttleika. -
Fallegt gjafasett úr Platinum vörulínu Janssen Cosmetics á einstöku gjafatilboði! Inniheldur hágæða Platinum Eye Care 15ml og 7stk Brilliance Shine Elixir ampúlur. Inniheldur sérþróaða Platinum MP Complex formúlu með peptíðblöndu sem fyllir uppí línur með einstakri virkni og hindrar niðurbrot kollagenþráða, verndar og hægir á öldrunarferli húðarinnar. Einstök virkni þar sem árángurinn er sléttari áferð í kringum augun og bjartara yfirbragð með auknum þéttleika. -
TILBOÐ 25% MEIRA INNIHALD! Mild Creamy Cleanser er flauelsmjúk hreinsimjólk úr Dry Skin vörulínu Janssen Cosmetics nú á tilboði í stærri umbúðum með 25% meira innihaldi! Flauelsmjúk hreinsimjólk fyrir rakaþurrar húðgerðir, hreinsar farða, umfram fitu og óhreinindi af yfirborði húðarinnar á mildan en áhrifaríkan hátt án þess að raska sýruhjúp húðarinnar, valda herpingstilfinningu eða öðrum ónotum fyrir þurrar húðgerðir. Mjólkin inniheldur hreina avokadóolíu sem er einstaklega rík af náttúrurlegum fitusýrum, A, E og D vítamíni sem gefa næringu og efla varnir húðarinnar á meðan hreinsun stendur. Noktun: Nuddið húðina mjúklega með hringlaga hreyfingum og hreinsið af með volgu vatni/þvottapoka. Má einnig nota yfir augnsvæðið. *Ljúkið hreinsun húðar með andlitsvatni, Radiant Firming Tonic úr sömu línu fullkomnar hreinsun húðarinnar, fjarlægir örugglega allar restar af hreinsimjólkinni af húðinni jafnar pH gildi og gerir hana móttækilegri fyrir kremi, farða eða því sem eftir kemur. -
*Nýr litur Almond nr.3 er dekksti liturinn af litatónum Paraben frír farði, SPF 15 með langvarandi endingu frá Janssen Cosmetics Kremkenndur og silkimjúkur farði sem samlagast húðinni fullkomnlega, hentar öllum húðgerðum. Létt flauelskennd formúla fyllir uppí stórar húðholur og misfellur í húðinni, samlagast hverjum húðtón og jafnar litarhátt húðarinnar með einstakri formúlu sem endist allan daginn. Farðinn veitir húðinni að auki vörn gegn skaðlegum geislum og ótímabærri öldrun með UVA og UVB filterum, Hyaluron Sýru og Pseudoalteromonas ferment extract sem eykur rakafyllingu, minnkar fínar línur og hrukkur. Farðinn inniheldur einnig sérstök amino-húðuð litapigment sem tengjast og samlagast efstu húðlögum, fylla þannig uppí misfellur og gefa húðinni flekklausa áferð, við þessa tengingu myndast einnig varnarfilma sem viðheldur endingu og ljóma í marga klukkutíma. -
TILBOÐ 25% MEIRA INNIHALD! Radiant Firming Tonic er alkahólfrítt andlitvatn úr Dry Skin vörulínu Janssen Cosmetics nú á tilboði í stærri umbúðum með 25% meira innihaldi! Mild en áhrifarík alkahól frí formúla sem fullkomnar hreinsun húðarinnar, fjarlægir síðustu leifar af hreinsimjólk eða óhreinindum sem kann að hafa sest í húðholur og er lýkur þannig við hreinsun húðarinnar. Radiant Firming Tonic jafnar pH gildi húðarinnar og eykur innsíunarhæfileika og virkni á vörum sem á eftir koma. Inniheldur leysanlegt kollagen sem eykur rakamagn húðarinnar með þéttandi eiginleikum. Hentar einnig sem frískandi meðferð til að fjarlægja umfram fitu og óhreinindi af húð sem er án farða til að auka ferskleika og gefa húðinni matta og mjúka áferð. Noktun: Með bómullarskífu, strjúkið með mjúkum hreyfingum yfir andlit og háls. -
TILBOÐ 25% MEIRA INNIHALD! Brightening Face Freshener er alkahólfrítt andlitvatn úr Demanding Skin vörulínu Janssen Cosmetics nú á tilboði í stærri umbúðum með 25% meira innihaldi! Orkugefandi andlistsvatn, fullkomnar hreinsun húðar og jafnar pH gildi húðarinnar. Notið eftir hreinsun húðar með andlitshreinsi eða eitt og sér á hreina húð sem frískandi meðferð, fjarlægir umfram húðfitu og frískar uppá yfirbragð húðarinnar. Virk innihaldsefni Morus alba : plöntu-þykkni unnið úr White Mulberry trjárótum stuðla að jafnari húðlit og auka birtu í húðinni. Fullkomið val fyrir húð sem sýnir fyrstu öldrunareinkenni, streitumerki, líflausa, opna og grófar húðgerðir . -
TILBOÐ 25% MEIRA INNIHALD! Brightening Face Cleanser andlitsmjólk úr Demanding Skin vörulínu Janssen Cosmetics nú á tilboði í stærri umbúðum með 25% meira innihaldi! Létt örvandi hreinsimjólk hreinsar yfirborð húðarinnar fullkomnlega, lífgar uppá þreytta húð og gefur samstundis frísklegan orkuljóma. Fullkomið val fyrir húð sem sýnir fyrstu öldrunareinkenni, streitumerki, opnar og grófar húðgerðir sem vilja auka frískleika og birtu húðarinnar. Virk innihaldsefni Morus alba : plöntu-þykkni unnið úr White Mulberry trjárótum stuðlar að jafnari húðlit og eykur birtu og ljóma í húðinni. -
Intense Calming Lotion er létt kremformúla fyrir viðkvæma húð, frábært fyrir yngri húðgerðir eða þá sem vilja léttari krem. Djúpvirkandi 24stunda formúla sem bæði verndar húðina á daginn og stuðlar að bættri endurnýjun á nóttunni. Fyrir enn betri virkni og árángur Intense Calming Lotion notið samhliða Intense Calming Serum. Kremið inniheldur sérþróað Skin Defense Complex+ sem samanstendur af virkum plöntuefnum og nauðsynlegum fitusýrum fyrir náttúrulega endurnýjun og heilbrigðan varnarhjúp húðarinnar. Létt formúlan inniheldur einnig náttúrulegt alpha bisabolol og allantoin sem dregur verulega úr bólgum, roða og viðkvæmni og bætir áferð húðarinnar með sýnilegum árángri. Saccharide isomerate og hýalúrónsýra veita húðinni djúpvirkandi rakagjöf og stuðla að auknu rakajafnvægi með langvarandi árángri fyrir viðkvæmar húðgerðir. Intense Calming Lotion er einnig tilvalið sumarkrem fyrir þau sem kjósa léttara krem yfir sumartímann, ef herpingur er enn til staðar í húðinni er hægt að nota Intense Calming Cream sem næturkrem. Inniheldur:- Skin Defense Complex+: Mjög virk plöntublanda með sólberjafræolíu (rík af ómega-3 og ómega-6 fitusýrum, dregur úr bólguferlum og bætir varnarvirkni húðarinnar), belgplöntukjarni (ríkur af plöntusterólum, talinn vera náttúrulegur valkostur í stað hýdrókortisóns, dregur úr bólgu) og hlutum sólblómaolíu sem ekki er hægt að mynda sápu úr (rík af nauðsynlegum fitusýrum; verndar og bætir skaddað varnarlag húðarinnar, dregur úr ofnæmisviðbrögðum)
- Langar og stuttar keðjur af hýalúrónsýru: Gefur mikinn raka og bindur hann í húðinni
- Shea-smjör: Nærir húðina og styður við varnarvirkni hennar
- Isostearyl Isostearate: Mýkjandi efni úr jurtahráefnum; klínískar rannsóknir sýna að það samlagast fituefnum milli frumna, styrkir þau og eykur varnarvirkni húðarinnar
- Squalane: Líkist náttúrulegum olíum í húðinni; kemur í veg fyrir þurrk, sléttir húðina
- Saccharide Isomerate: Kolvetnablanda sem er eins og húðin og veitir húðinni langvarandi raka (72 klukkustunda áhrif)
- α-Bisabolol: Róandi, bólgueyðandi og dregur úr ertingu
- Allantoin: Sefar erta húð og dregur úr roða
- E-vítamín asetat: Andoxandi, verndar húðfrumur gegn skaða af völdum sindurefna
-
CBD Calming Fluid ampúlan er áhrifarík meðferð gegn hverskonar húðertingu, roða eða viðkvæmni. Ampúlan samanstendur af CBD-olíu og trufflusveppum sem saman með einstakri virkni róa ertingu og roða í húð ásamt því að styrkja náttúrulegt varnarlag og auka viðnám húðarinnar. Ampúlan inniheldur einnig tvíþætta hýalúrónsýru og aloe vera sem veita húðinni djúpvirkandi raka og næringu. CBD (kannabídíól) er vinsælt virkt innihaldsefni sem er unnið úr hampjurtinni og býr yfir einstökum eiginleikum og heilandi áhrifum á húðina. Kannabídíól (sem hefur ekki hugbreytandi áhrif) er þekkt fyrir að hafa sefandi áhrif á hitatilfinningu, roða eða hverskonar húðertingu og er frábær til meðhöndlunar á viðkvæmri húð. Til viðbótar við CBD olíuna inniheldur ampúlan sveppa-extract sem hefur bein áhrif á taugaenda húðarinnar með því að hamla virkni ákveðinna sársaukanema á yfirborði húðarinnar og dregur þannig með virkum hætti úr viðkvæmni húðarinnar. Saman með rakagefandi Hýalúrónsýru og Aloe Vera gefur CBD Calming Fluid ampúlan húðinni samstundis létti og fullkomna slökunartilfinningu. -
Bi-Phase Skin Recovery ampúlan er djúpnærandi 2-fasa ampúla sem tryggir húðinni einstaka næringu og rakagjöf með tvíþættri virkni olíufasa og rakafasa. Olíufasi ampúlunnar er úr vönduðum blóma- og plöntuolíum og rakafasi ampúlunnar samanstendur af hýalúrónsýru og endurnýjandi runnasmárakjarna fyrir geislandi yfirbragð og endurnærða húð eftir hverja noktun. Olíufasinn inniheldur midsummer night olíu, sefandi 5-blóma elixír með endurnýjandi og kröftugum andoxunareiginleikum ásamt blöndu af djúpnærandi squalane- og makadamiu olíu. Í rakafasanum fæst einstök virkni úr plöntuþykkni unnið úr runnasmárakjarna sem vinnur gegn streitumerkjum húðarinnar sem hafa myndast t.d. vegna stress, aukins álags eða mikillar viðveru við tölvuskjá (blue light). Húðin öðlast aukið jafnvægi, orku og þreytumerki minnka þar sem húðin endurheimtir heilbrigði og aukinn húðljóma með sýnilegum áhrifum. Að auki sér Hýalúronsýra með stuttar og langar keðjur um að veita húðinni öfluga rakagjöf með rakabindandi og sléttandi áhrifum á yfirborði húðarinnar. Bi-Phase tveggja fasa ampúlunar eru sérstaklega þróaðar til að smjúga hratt inn í húðina og veita henni silkimjúka áferð með náttúrulegum mildum lavenderblóma ilm fyrir fullkomna slökunar og dekurtilfinningu. Noktun: Berið innihald Bi-Phase Skin Recovery ampúlunnar á hreina húð, mælt er með að nota Bi-Phase frekar á kvöldin fyrir nóttina. Hristið ampúluna vel fyrir notkun þar til fasarnir tveir hafa blandast alveg saman. Haldið síðan á ampúlunni í pappírsþurrku, brjótið lokið af og hellið innihaldinu í lófann í pörtum eða alla í einu. Berið síðan jafnt á andlit, háls og bringu og klappið laust inn í húðina. *Aðeins til notkunar útvortis -
Radiant Skin Fluid – Fyrir einstakann húðljóma og geislandi yfirbragð. Ampúlan inniheldur þörunga extract úr Indlandshafi sem gefur húðinni aukinn húðljóma á sjálfbæran hátt þ.e.a.s þörunganir láta húðina sjálfa framkalla aukinn húðljóma með því að hámarka frumuskiptingu í yfirborðslögum húðarinnar og stuðla þannig að jafnari uppbyggingu hennar sem eru fullkomin skilyrði fyrir geislandi og frísklegan húðljóma. Radiant Skin Fluid inniheldur að auki kjarna úr bóndarós sem tryggir að yfirbragð húðarinnar fær aukna birtu og jafnara litarhaft með hverjum deginum sem líður ásamt tvíþættri hýalúrónsýru sem gefur húðinni djúpnærandi raka frá neðstu húðlögum sem fyllir uppí fínar línur/ójöfnur með sléttandi áhrifum á yfirborði húðarinnar. Árángur: Húðin öðlast geislandi og náttúrulegan húðljómaljóma. *Með reglulegri noktun verður litarhaft húðarinnar enn jafnara með mælanlegum árángri. -
Marine Collagen Fluid fyrir þéttari og frísklegri húð. Inniheldur hátt hlutfall af hreinu sjávarkollageni, löngum- og stuttum keðjum af Hyaluronic sýru ásamt granateplaþykkni. ACTIVATE Marine Collagen ampúlunar gefa húðinni samstundis aukinn þéttleika með langvarandi eiginleikum þar sem kollagenþræðir húðarinnar taka vel á móti aðstoð og utanaðkomandi styrk frá sjávarkollageni ampúlunnar. Hyaluronic sýran sér um að gefa húðinni aukinn raka og passar uppá að virk efni nái á áfángastað niður neðstu húðlögin. Að auki fær húðin frísklegra yfirbragð og litarhaft húðarinnar verður líflegra með öflugri andoxun frá hreinni ofurfæðu fyrir húðina úr grantateplunum.