-
Alkahól-frítt andlitsvatn sem fullkomnar hreinsun húðar, dregur úr olíuglans með mattandi eiginleikum og hefur einnig samherpandi áhrif á opnar/stórar húðholur sem dregur úr stíflumyndun. Inniheldur Equal Refining Complex sem stuðlar að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar með einstaklega samherpandi áhrifum á opnar/stórar húðholur. Með reglulegri noktun dragast opnar húðholur saman með sjáanlegum árángri og yfirborð húðarinnar verður sléttara. Fullkomið par með Purifying Cleansing Gel fyrir olíkenndar og grófar húðgerðir. Helstu innihaldsefni : Equal Refining Complex, Glycerine -
Gelkennd raksápa og hreinsir í einni vöru með frísklegum herrailm, hentar öllum húðgerðum einnig viðkvæmum. Einstaklega handægt og drjúgt hreinsigel sem breytist í kremkennda froðu þegar það er blandað með volgu vatni. Kemur í veg fyrir roða og ertingu af völdum raksturs, hreinsar og mattar yfirborð húðarinnar ásamt því að gefa góðan raka og frísklegra yfirbragð. Noktun: Blandið með volgu vatni í lófanum í kremkennda froðu, það þarf aðeins nokkra dropa af gelinu svo úr verður ríkuleg froða. Berið á húðina með hringlaga hreyfingum og skolið af með volgu vatni eða þvottapoka. Fyrir rakstur: Nuddið froðunni létt yfir skeggsvæði og leyfið að virka í stutta stund fyrir rakstur og skolið síðan umfram froðu af með volgu vatni eða þvottapoka. -
Milt og rakagefandi andlitsvatn, alkahólfrítt Mild en áhrifarík alkahól frí formúla sem fullkomnar hreinsun húðarinnar, fjarlægir síðustu leifar af hreinsimjólk eða óhreinindum sem kann að hafa sest í húðholur og er lýkur þannig við hreinsun húðarinnar. Radiant Firming Tonic jafnar pH gildi húðarinnar og eykur innsíunarhæfileika og virkni á vörum sem á eftir koma. Inniheldur leysanlegt kollagen sem eykur rakamagn húðarinnar með þéttandi eiginleikum. Hentar einnig sem frískandi meðferð til að fjarlægja umfram fitu og óhreinindi af húð sem er án farða til að auka ferskleika og gefa húðinni matta og mjúka áferð. Noktun: Með bómullarskífu, strjúkið með mjúkum hreyfingum yfir andlit og háls. -
TILBOÐ 25% MEIRA INNIHALD! Radiant Firming Tonic er alkahólfrítt andlitvatn úr Dry Skin vörulínu Janssen Cosmetics nú á tilboði í stærri umbúðum með 25% meira innihaldi! Mild en áhrifarík alkahól frí formúla sem fullkomnar hreinsun húðarinnar, fjarlægir síðustu leifar af hreinsimjólk eða óhreinindum sem kann að hafa sest í húðholur og er lýkur þannig við hreinsun húðarinnar. Radiant Firming Tonic jafnar pH gildi húðarinnar og eykur innsíunarhæfileika og virkni á vörum sem á eftir koma. Inniheldur leysanlegt kollagen sem eykur rakamagn húðarinnar með þéttandi eiginleikum. Hentar einnig sem frískandi meðferð til að fjarlægja umfram fitu og óhreinindi af húð sem er án farða til að auka ferskleika og gefa húðinni matta og mjúka áferð. Noktun: Með bómullarskífu, strjúkið með mjúkum hreyfingum yfir andlit og háls. -
Refining Retinol Fluid hefur öfluga virkni á áferð húðarinnar með oleanolic acid sem hreinsar opnar/stórar húðholur og jafnar fituframleiðslu húðarinnar þannig húðholur dragast saman með sýnilegum áhrifum ásamt Enanta chlorantha með hinu kröftuga Retinoli sem vinnur gegn öldrun húðarinnar, örvar kollagen framleiðslu og eykur birtu og ljóma húðarinnar. Ingredients: Encapsulated retinol:Stimulates collagen production and growth of fresh skin cells, helps restore youthful appearance, counteracts skin ageing; Anti-wrinkling effect; Increased stability and functionality compared to unencapsulated retinol, improved penetration into deeper skin layers Equal-Refining Complex: The combination of oleanolic acid and the extract from the bark of Enantia Chlorantha slows down sebocyte growth. The sebaceous glands are put into a dormant state, reducing greasy shine by -21.7% and pore size by -16% after 28 days Sugar-based moisture booster:Intensively moisturises; strengthens the skin barrier, reduces wrinkles caused by dryness and skin flaking Hyaluronic acid (long-chain):Forms a water-binding film on the skin surface and, protecting the skin from drying out. Fills out fine lines and wrinkles Aloe vera extract:Soothing, purifying, moisturising -
NÝTT! REFRESHING FACE MIST ómissandi núna fyrir sumarið! Rakagefandi andlitssprey með Skin Wall Care Complex, aloe vera og guarana sem eykur rakastig húðarinnar samstundis og veitir henni dásamlega frískandi tilfinningu með styrkjandi eiginleikum fyrir varnarhjúp húðarinnar. Fíngerður úðinn umlykur húðina með léttu verndarlagi sem gerir hana fallega ferska, vel nærða og náttúrulega ljómandi. Þökk sé upplífgandi ilmi af eucalyptus, myntu og grænum telaufum veitir Refreshing Face Mist þér aukinn ferskleika hvenær og hvar sem er – tilvalið þegar þú ert á ferðinni. Skin Wall Care Complex í úðanum veitir samstundis raka sem endist í allt að 120 klukkustundir. Það styrkir varnarhjúp húðarinnar, verndar húðina gegn rakatapi og skilur eftir sig frískandi og sefandi tilfinningu. Samsetningin er einnig hönnuð til að styðja við endurnýjun húðar sem hefur orðið fyrir álagi og eykur viðnámsþrótt hennar. Aloe vera og guarana gefa húðinni aukinn lífskraft og ferskleika. Aloe vera er ríkt af fjölsykrum, ensímum, nauðsynlegum amínósýrum, vítamínum, steinefnum og mörgum öðrum virkum efnum. Það virkar sem náttúrulegur rakagjafi með sefandi og endurlífgandi áhrif. Eimaður kjarni úr guarana-plöntunni magnar einnig upp frískandi áhrif formúlunnar og skilur húðina eftir líflegri og endurnærða. REFRESHING FACE MIST má nota bæði undir og yfir farða. – Þegar það er notað undir farða gefur það raka, verndar og sefar húðina. – Þegar það er notað yfir farða hjálpar það til við að festa förðunina og gefur fallega, ferska og ljómandi áferð. -
Regulating Retinol Cream er djúpvirkandi 24-stunda krem fyrir grófar og þykkar húðgerðir sem og eldri húðgerðir sem þurfa kröftuga endurnýjun, næringu og orku. Kremið hefur áhrifamikla virkni og hraðar öllu endurnýjunarferli húðarinnar með djúpnærandi eiginleikum, dregur saman og minnkar stórar/opnar húðholur og fyllir uppí fínar línur með sléttandi áhrifum á yfirborð húðarinnar. Inniheldur hjúpað Retinol sem helst stöðugt á ferð sinni niður húðlögin og tryggir þannig hámarksupptöku og virkni í neðstu húðlögum, Equal-Refining Complex sem dregur úr olíuglans og hefur samherpandi áhrif á stórar/opnar húðholur, rakagefandi Hyaluronic sýru og nærandi Shea butter sem eykur mýkt og fyllingu húðarinnar. Með aukinni nýmyndun öðlast húðin aukna orku og hreinleika sem eykur bæði birtu og náttúrulegan húðljóma, yfirborð húðarinnar þéttist eftir því sem húðholur og fínar línur dragast saman og náttúruleg kollagenframleiðsla eykst sem gefur húðinni aukna fyllingu og mýkt. -
Rejuvenating Mask gefur hámarks virkni á djúpnærandi innihaldsefnum sem endurlífga húðina, auka styrk með lyftandi áhrifum á slaka húðvefi. Sannkölluð orkubomba fyrir eldri, þreytta og húð sem vantar aukna orku og ljóma. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha), Sensitive Complex, Makadamíu olía, Cupuacu Butter, Bisabolol(Kamillujurt) og E - Vítamín. -
Bi-Phase Skin Recovery ampúlan er djúpnærandi 2-fasa ampúla sem tryggir húðinni einstaka næringu og rakagjöf með tvíþættri virkni olíufasa og rakafasa. Olíufasi ampúlunnar er úr vönduðum blóma- og plöntuolíum og rakafasi ampúlunnar samanstendur af hýalúrónsýru og endurnýjandi runnasmárakjarna fyrir geislandi yfirbragð og endurnærða húð eftir hverja noktun. Olíufasinn inniheldur midsummer night olíu, sefandi 5-blóma elixír með endurnýjandi og kröftugum andoxunareiginleikum ásamt blöndu af djúpnærandi squalane- og makadamiu olíu. Í rakafasanum fæst einstök virkni úr plöntuþykkni unnið úr runnasmárakjarna sem vinnur gegn streitumerkjum húðarinnar sem hafa myndast t.d. vegna stress, aukins álags eða mikillar viðveru við tölvuskjá (blue light). Húðin öðlast aukið jafnvægi, orku og þreytumerki minnka þar sem húðin endurheimtir heilbrigði og aukinn húðljóma með sýnilegum áhrifum. Að auki sér Hýalúronsýra með stuttar og langar keðjur um að veita húðinni öfluga rakagjöf með rakabindandi og sléttandi áhrifum á yfirborði húðarinnar. Bi-Phase tveggja fasa ampúlunar eru sérstaklega þróaðar til að smjúga hratt inn í húðina og veita henni silkimjúka áferð með náttúrulegum mildum lavenderblóma ilm fyrir fullkomna slökunar og dekurtilfinningu. Noktun: Berið innihald Bi-Phase Skin Recovery ampúlunnar á hreina húð, mælt er með að nota Bi-Phase frekar á kvöldin fyrir nóttina. Hristið ampúluna vel fyrir notkun þar til fasarnir tveir hafa blandast alveg saman. Haldið síðan á ampúlunni í pappírsþurrku, brjótið lokið af og hellið innihaldinu í lófann í pörtum eða alla í einu. Berið síðan jafnt á andlit, háls og bringu og klappið laust inn í húðina. *Aðeins til notkunar útvortis -
Retinol Lift Serum er áhrifaríkt serum með margþætta eiginleika fyrir húðina þar sem hið margrómaða Retinol spilar lykilhlutverk. Retinol er eitt mest rannsakaða efni í heimi snyrtivara og klíniskar rannsóknir sanna það að Retinol er eitt það öflugasta efni sem hægt er að fá í húðsnyrtivörum sem hægir á öldrunarferli húðarinnar með sjánlegum árángri. Með aldrinum þá hægist á frumuendurnýjun húðarinnar og fínar línur, misfellur og litabreytingar fara gera vart um sig á yfirborði húðarinnar og með tímanum slaknar á teygjanleika og húðin verður slappari því kollagen framleiðsla fer minnkandi, þarna kemur Retinol sterkt inn og skerst í leikinn og hraðar endurnýjunarferlinu á nýjan leik og örvar nýmyndun kollagens og viðheldur þannig þéttleika og eykur lyftingu í húðvefum sem eru byrjaðir að slakna. Með aukinni endurnýjun eykst náttúruleg húðflögnun og yfirborð húðarinnar verður sléttara þar sem fínar línur vegna þurrks hverfa og svipbrigðalínur grynnka, litamisfellur verða minna áberandi og húðin fær bjartara yfirbragð og frísklegan ljóma. Retinol stuðlar einnig að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar dregur þannig úr fílapensla myndun og dregur saman stórar húðholur. Retinol Lift Serum inniheldur ríkulegt magn af hágæða Retinoli sem er lípósóm hjúpað og nær þess vegna að flytja Retinólið dýpra niður í húðina og tryggir þannig hámarksupptöku og virkni í neðstu húðlögum. Samhliða Retinolinu er annað lykilefni sem heitir Niacinamide sem er eitt form af B Vítamini og hefur retinól-lík áhrif á húðina ásamt því að styrkja varnahjúp húðarinnar, minnka bólgu, roða og ertingu og tryggir þannig þolanleika blöndunnar fyrir daglega noktun. Síðast en ekki síst inniheldur Retinol lift Serum rakagefandi Hyaluronic Sýru og blöndu af hágæða Sea Buckthorn Olíu og Macadama Olíu sem umlykja húðina með dásamlegri næringu og mýkt. -
Orkumikill maski fyrir húð sem hefur verið undir miklu álagi og er þreytuleg og slöpp.Maskinn inniheldur A og E vitamin ásamt Provitamin B5 og er sannkölluð vitaminbomba fyrir húðina, veitir samstundis orku og ferskleika. A-Vítamin eykur endurnýjun og sléttir húðina, E-Vítamin er sérlega andoxandi og viðheldur æskuljóma og B Vítamin sem hefur róandi og nærandi eiginleika.Látið maskann liggja á í 20 - 40.min veitir einstaka lyftingu og fyllingu eftir aðeins 1.Skipti! -
Eftir því sem húðin eldist verður hún þynnri, missir fyllingu og húðvefir slakna. Til þess að viðhalda náttúrulegri starfsemi og spyrna aðeins við þessu ferli er mikilvægt að velja vörur með djúpvirkandi næringu og nauðsynlegum fitusýrum sem viðhalda og auka náttúrulega fyllingu húðarinnar. Samspil virkra efna í Rich Recovery Cream gera akkurat það, ríkulega hlaðið af Omega fitusýrum, A- Vitamíni, Kombucha, Isoflavoníða og Hyaluronic Sýru sem örva náttúrulega endurnýjun húðarinnar og byggja upp sterkari húðvefi með auknum þéttleika og lyftingu. Kremið er ríkt af nærandi Shea Butter, Squalene og Makadamíu Olíu sem fylla húðina af djúpvirkandi næringu og veita einstaka fyllingu og auka mýkt húðarinnar. Vegna sérstakar blöndunar á Rich Recovery Cream “water-in-oil þeyta” myndast varnarfilma í efstu húðlögunum sem veita vörn gegn ytra áreiti og hentar því fullkomnlega sem kuldakrem yfir vetratímann. Rich Recovery Cream er hefur sömu virkni og Perfect Lift Cream í Mature Skin nema er næringarríkara og því frábær kostur fyrir fituþurra húð eða sem næturkrem á móti Perfect Lift Cream. Innih. Cellular Regeneration Complex (Red Clover – Kombucha), Vitamin A – Palmitate, Shea Butter, Squalene, Makadamía Olía -
Næringarríkt 24-stunda krem sem fær húðina bókstaflega til að ljóma! Kremið veitir húðinni djúpa næringu við fyrstu snertingu og smýgur á milli húðlaga og gefur henni samstundis rakafyllingu sem fyllir uppí fínar línur og yfirborðsþurrk. Kremið er sérþróað til þess að auka ljóma húðarinnar og samanstendur af virkum efnum eins og koffíni sem eykur blóðrás húðarinnar á mildan hátt, Indian Ocean Algae Extract, hyaluronic Sýru og Soft Focus Pigments sem fylla uppí yfirborðslínur og gefa þennann einstaka glampa á húðina án þess að skilja eftir sig “fituglans” heldur helst húðin þurr og mött viðkomu. Kremið hentar öllum húðgerðum sem vilja aukinn ljóma og glampa og hentar einnig viðkvæmum húðgerðum þar sem kremið inniheldur einnig sefandi Aloe Vera og Allantoin sem gerir kremið einnig frábæran valkost yfir sólríka daga bæði þar sem það eykur á ljóma húðarinnar þegar sólin skín og með verndandi áhrifum. Pro Tip! Notið Magic Glow Serum undir á morgnanna fyrir enn meiri ljóma og “highlight” áhrif. -
Skin Contour Cream er sérhannað til þess að endurbyggja stinnleika húðarinnar og lyfta slökum húðvefjum frá neðstu húðlögum með einstakri formúlu! Kremið er einstaklega næringarríkt og rakamikið og vætir uppí húðlögunum eins og þegar þurr svampur er bleyttur í vatni. Sama og með svampinn þenst húðin út og húðrumunar fá aukinn kraft til endurnýjunar. A – Vítamin, Elastin örvandi peptíð og Japanskt Silki mynda auka styrk og endurnýja stinnleika húðarinnar og gefa henni hreinna og unglegra yfirbragð. Inniheldur að auki E vitamin, Macadamiu Olíu og SORR plöntuþykkni. Inniheldur:- ESP:Elastin-örvandi peptid; örva myndun elastins í bandvef húðarinnar, styrkja þannig uppbyggingu og lyfta upp húðvefjum.
- Plant extract SORR:Einstaklega virkt plöntu-þykkni unnið úr Siegesbeckia orientalis og Rabdosia rubescens; dregur úr roða og ertingu í húð ásamt því að vera einstaklega andoxandi, jafnar þannig húðlit og eykur útgeislun.
- Long- and short-chain hyaluronic acid:Langar og stuttar keðjur Hyaluronic sýrunnar veita einstakann raka og binda jafnframt raka í húðinni og halda henni vel fylltri.
- Genuine Japanese silk: Samlagast húðinni fullkomnlega, ver hana fyrir rakatapi, gefur húðinni einstaka mýkt og silkiáferð
- Macadamia nut oil:Er mýkjandi og nærandi, makadamíu olía inniheldur palmitoleic sýru sem eykur innsíun húðarinnar og greiðir farveg fyrir næringu úr olíunni niður í neðstu lög húðarinnar.
- Isostearyl-isostearate:Skammstafað ISIS; unnið úr raw plöntuefnum bætir samheldni lípiða í hornlagi húðarinnar og hindrar rakatap.
- Vitamin A palmitate:Örvar endurnýjun húðarinnar og bætir áferð.
- Vitamin E acetate:Er eitt það öflugugasta andoxunarefni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar og veitir einstakan varnarhjúp utan um húðfrumunnar.
-
Öflugt djúphreinsigel með virkum Enzymes sem losa um og hreinsa burt dauðar húðfrumur á yfirborði húðarinnar á mildan en áhrifaríkan hátt. Með reglulegri noktun verður yfirborð húðarinnar sléttara og náttúruleg húðendurnýjun eykst sem styður við aukna frumustarfsemi og heilbrigðri húðarinnar. Inniheldur engar olíur eða stíflandi efni og er því afar hentugt sem undirbúningur fyrir virkar húðmeðferðir. Frábær kostur fyrir allar húðgerðir líka viðkvæma og acne húð. Helstu innihaldsefni : Subtilisin(enzim) Tip : Smyrjið þunnu lagi á húðina undir maska eða krem, enzímin greiða leiðina fyrir virk efni lengst niður húðlögin. -
Græðandi krem til noktunar sem heimameðferð fyrir húð sem hefur gengist undir kraftmiklar húðmeðferðir á borð við ávaxtasýrur, dermapen eða lazer þar sem yfirborð húðarinnar verður meira berskjaldað viðkvæmt. Kremið flýtir fyrir gróanda húðarinnar og dregur úr óþægindum svo sem þurrki/herping og hitatilfinningu með græðandi jurtablöndu sem samanstendur m.a. af Calendula Officinalis og Hestakastaníu sem styrkja háræðakerfið og draga sýnilega úr roða, minnka hitatilfinningu og ertingu í húðinni. Kremið inniheldur einnig bakteríuverndandi Farnesol sem veitir húðinni vörn á meðan hún byggir sig upp að nýju og er að jafna sig eftir meðferð með frumuendurnýjandi áhrifum. -
Instant Soothing Oil - Olíukennd formúlan gefur mýkri og áferðafallegri húð, efstu húðlögin drekka í sig næringuna og húðljómi eykst með sýnilegum áhrifum, ampúlan styrkir einnig náttúrulegar varnir húðarinnar og dregur samstundis úr ertingu og roða í húð. Janssen Cosmetics hefur sérhæft sig í framleiðslu á virkum ampúlum fyrir andlitsmeðferðir og er fjölbreytt úrval í boði fyrir allar þarfir húðarinnar hvort sem það sé að þétta og lyfta slöppum húðvefum, auka húðflögnun og draga úr bakteríu- og bólumyndun, minnka stórar húðholur, draga úr háræðaslitum og sérmeðferð fyrir rósroða. -
Smooth + Lift Eye Cream er einstök formúla með hágæða virkum innihaldsefnum eins og lífrænum trönuberjapeptíðum, Soft Focus Pigments og amínósýru complex fyrir hámarks ummönnun og virkni fyrir augnsvæðið. AUGNKREM MEÐ ÁHRIFARÍKUM OG LANGVARANDI EIGINLEIKUM Smooth + Lift Eye Cream er einstök formúla með hágæða virkum innihaldsefnum eins og lífrænum trönuberjapeptíðum, Soft Focus Pigments og amínósýru complex fyrir hámarks ummönnun og virkni fyrir augnsvæðið. Dagleg umhirða augnsvæðisins kvölds og morgna er nauðsynlegur hluti af fyrirbyggjandi meðferð til að hægja á öldrunarferli húðarinnar, viðhalda styrk og jafnframt draga úr línum og fyrstu öldrunarmerkjum með djúpnærandi eiginleikum sem slétta húðina umhverfis augun og vinna gegn sinduráhrifum. Silkimjúk áferð Smooth + Lift Eye Cream frásogast hratt niður húðlögin og tryggir aukinn styrkleika og sléttara yfirbragð húðarinnar með djúpvirkandi rakagjöf og auknum frískleika. Trönuber hafa öfluga virkni á húðina og stuðla að auknum þéttleika og kollagenframleiðslu sem viðheldur fyllingu húðarinnar með langvarandi eiginleikum. Tvíþætt hýalúrónsýra færir húðinni djúpvirkandii raka og gerir hana sýnilega sléttari. Að auki er þessi fjölvirka fyrirbyggjandi formúla auðguð með nauðsynlegum fitusýrum og amínósýrum sem styrkja náttúrulegar varnir húðarinnar og vinna gegn öldrunarmerkjum húðarinnar. Soft Focus Pigments gefa húðinni samstundis jafnari áferð og fylla uppí fíngerðar línur og hrukkur sem gefur augnsvæðinu silkimjúka slétta og matta áferð. -
Mild p-H neutral hreinsifroða án allra rotvarna eða skaðlegra aukaefna. Létt froðan flæðir um yfirborð húðarinnar og dregur samstundis úr allri ertingu eða pirring í húðinni með kælandi áhrifum, inniheldur allantoin sem dregur sýnilega úr roða og sefar viðkvæma húð. Noktun: Hristið og notið 2 til 3 pumpur af froðunni, dreifið jafnt yfir andlit og háls með hringlaga hreyfingum og skolið af með volgu vatni. Ljúkið hreinsun með Soft Soothing Tonic/andlitsvatni til að auka virkni og fullkomna hreinsun húðar. -
Sérhannað andlitsvatn fyrir viðkvæma húð dregur samstundis úr roða, ertingu og minnkar hitatilfinningu með einstaklega kælandi og sefandi áhrifum. Soft Soothing Tonic er alkahólfrítt og inniheldur Skin Defense Complex+ sem styrkir háræðanar með langvarandi áhrifum. Noktun: Strjúkið yfir með bómullarskífu á hreina húð yfir andlit og háls. -
SPF 30 TRANSPARENT SUN SPRAY FYRIR LÍKAMA Sólarvörn er eitt það mikilvægasta sem við getum notað til þess að vernda húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar, sólarskemmdum og ótímabærri öldrun húðarinnar hvort sem er á ströndinni, skíðaferðalögum, útiveru eða daglegu amstri. Sun Protection Spray SPF 30 er létt og gegnsæ sólarvörn sem veitir hágæða vörn gegn UVA og UVB geislum og hefur verndandi eiginleika gegn sólarskemmdum með Ectoin® frumuvernd. *Kemur í handhægum sprey brúsa *Verndar húðina gegn UVA/UVB geislum og sólbruna *Létt formúlan smýgur hratt niður í húðina og skilur ekki eftir sig hvítar rákir*Húðin verður ekki klístruð eða olíukennd *Inniheldur Ectoin® sem er einstakt lífrænt efni sem smýgur niður í neðri lög húðarinnar þar sem það eflir náttúrulegar varnir húðfrumna gegn ytra áreiti eins og hita/kulda og UV geislum. Með því myndar húðin öflugri vörn gegn sólargeislum og minnkar líkunar á sólarskemmdum/litabreytingum síðar meir. *Hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmum Noktun - Hristið brúsan vel fyrir hverja noktun dreifið ríkulegi magni á húðina c.a. 30min áður en farið er í sólarljós, bætið á eftir þörfum yfir daginn til þess að viðhalda vörn sérstaklega eftir sundferðir eða hreyfingu þar sem er mikið svitnað. -
Mjúkt og einstaklega rakagefandi krem sem gefur rakaþurrum húðgerðum hámarks virkni af næringarríkum innihaldsefnum sem auka þéttleika og gera yfirborð húðarinnar slétt og silkimjúkt. Allar húðgerðir þurfa raka til að viðhalda fyllingu og heilbrigði húðar, Super Hydrating Cream er hið fullkomna rakakrem fyrir allar húðgerðir til að gefa húðinni daglega næringu og auka rakamagn sem veitir vörn gegn ytra áreiti og ótímabærri öldrun húðarinnar. Kremið veitir djúpa rakagjöf niður í neðstu húðlög og fyllir húðina af raka líkt og þegar þurr svampur kemst í snertingu við vatn með sérþróaðri tækni þar sem krosstengdar samsetningar af Hyaluronic sýru mynda einskonar raka-net í húðinni með “plumping” áhrifum. Kremið einstaklega frískandi viðkomu og gefur húðinni létta kælitilfinningu sem frískar samstundis uppá húðlitinn með mildum og náttúrulegum ilm. Super Hydrating Cream er einnig einstaklega gott undir farða, fyrir sléttari áferð, meiri fyllingu og betri endingu farðans. - Helstu innihaldsefni: Imperata cylindrica =Næringarríkt plöntuþykkni úr einstakri plöntu sem finnst í eyðimörkum bæði í Ástralíu og Asíu, plantan er einstaklega rík af potassium og þekkt fyrir rakabindandi eiginlega til að lifa af þurrk og harðindi. Rannsóknir sýna að húðin hefur aukið rakamagn sitt um 20% eftir aðeins 24klst. Hyaluronic Sýra „langar keðjur og stuttar keðjur (cross-linked)“=Einstakur rakagjafi sem hefur þann eiginleika að þúsundfalda þyngd sína í vatni og bindur þannig raka í húðinni þannig hún heldur mýkt og fyllingu. Shea Butter =Nærir húðina, losar um herpingstilfinningu og gerir húðina mjúka viðkomu. Macadamia Oil = Nærir húðina með verndandi áhrifum. Allantoin= Sefandi, dregur úr ertingu. -
Litað dagkrem fyrir blandaðar húðgerðir, dregur úr olíuglans og gefur húðinni jafnann og frísklegan húðtón með litagigmentum sem aðlagast mismunandi húðtón hjá hverjum og einum. Tinted Balancing Cream hefur meiri virkni fyrir blandaðar húðgerðir en bara það að jafna húðlit og gefa húðinni fallegri áferð, kremið endurheimtir jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar með reglulegri noktun og dregur stórar/opnar húðholur saman með sýnilegum árángri. Létt og loftkennd áferð á kreminu inniheldur virkt sykru-líkt efni unnið úr Rice bran sem hefur þann einstaka eiginleika að stuðla að jafnvægi fitukirtla hvort sem er á olíukenndum svæðum eða þurrari svæðum húðarinnar ásamt þykkni úr Rauðum Þara og Aloe Vera sem gefa húðinni djúpvirkandi rakagjöf ásamt því að sefa roða og ertingu. Örfínt Polyamide púður dregur svo í sig umfram olíu á yfirborði húðarinnar þannig húðin helst mött og silkimjúk viðkomu. -
SERUM SEM LÝSIR OG JAFNAR LITARHÁTT HÚÐARINNAR Litabreytingar á húð, blettir, Acne ör eða aðrar ójöfnur eftir bólur sem og rósroði geta verið hvimleitt vandamál. Tranexamic Acid Serum dregur með sýnilegum hætti úr ýmsum litabreytingum á húð, þar á meðal dökkum blettum vegna skemmda af völdum sólarinnar, með áhrifaríkri en mildri efnasamsetningu. Tranexamsýra (tranexamic acid) er virkt innihaldsefni unnið úr amínósýrunni lýsíni, sem er um allan heim álitið það efni sem hefur mest lýsandi áhrif á húðina. Hún kemur í veg fyrir víxlverkun milli sortufrumna og hyrnisfrumna og hamlar þannig myndun melaníns og þar með nýmyndun dökkra bletta. Auk þess að vinna á þeim litabreytingum sem hafa nú þegar myndast. Virk formúlan inniheldur einnig Níasínamíð (niacinamide) sem eykur lýsandi áhrif tranexamsýru, styrkir varnarlag húðarinnar og kemur í veg fyrir bólgu. Hýalúrónsýru með lýsandi áhrifum (hyaluronic acid with whitening effect) sem dregur marktækt úr myndun melaníns og gerir húðlitinn sýnilega bjartari og jafnari. Blanda af sykrum (saccharide isomerate) og hýalúrónsýru (með stuttri og langri keðju) gefur svo húðinni nauðsynlegan raka með langvarandi endingu og aukna mýkt. Með reglulegri notkun dregur hægt og örugglega úr roða, mislitun og dökkum blettum sem gefur húðinni jafnt og ljómandi yfirbragð með aukinni birtu.